Helgarpósturinn - 06.08.1987, Síða 23
Genesis Eroticae
í Hafnargalleríi
Ungur myndhöggvari, Haraldur
Jónsson, opnar á föstudaginn sína
fyrstu einkasýningu í Hafnargallerí-
inu. Haraldur lauk námi við mynd-
mótunardeild MHÍ í vor og er einn
þeirra fjölmörgu ungu listamanna
sem galleríið hefur lagt metnað sinn
í að kynna á undangengnum mán-
uðum.
A sýningunni er Haraldur með
bókverk til sýnis sem heitir Genesis
Eroticae, bókin er gerð í 6 mismun-
andi eintökum og er um grafík-
þrykk að ræða þar sem spila saman
orð og mynd. Út frá þessari bók, eða
öllu heldur þema hennar, eru svo
skúlptúrarnir unnir og út frá þeim
hefur Haraldur gert myndband sem
einnig verður sýnt gestum í gallerí-
inu. Tengslin milli myndbandsins og
skúlptúranna felast einkum í því að
skúlptúrarnir eru hreyfanlegir, þeir
eru gerðir úr tveimur hlutum, járni
og tré, sem er þannig samsett að
hægt er að setja verkin í mismun-
andi stöður þannig að um bæði
kyrrstöðu og hreyfingu verður að
ræða í sömu mund. Þessir þrír miðl-
ar sem Haraldur vinnur með, bókin,
skúlptúrinn og myndbandið, mynda
þannig eina heild og eru saman-
lagt í radn og veru eitt verk. Verkin
eru öll unnin á þessu ári, en á haust-
mánuðum fer höfundurinn til frek-
ara náms í Þýskalandi. Sýningin
stendur til 15. þessa mánaðar og er
opin á venjulegum verslunartíma.
LISTASAFN ASÍ mun næsta
hálfa mánuðinn sýna ýmsar perlur
úr eigu safnsins þeim sem þangað
leggja leið sína. Þar ber að sjálf-
sögðu mest á eldri meisturum en
einnig verða til sýnis verk yngri
manna. Listasafnið var stofnað árið
1961 með höfðinglegri gjöf Ragnars
í Smára Jónssonar, en hann gaf ís-
lenskum verkamönnum 120 mál-
verk eftir ýmsa af fremstu lista-
mönnum þjóðarinnar. Meðal þeirra
má nefna Asgrím Jónsson, Gunn-
laug Scheving, Jóhannes Kjarval,
Jón Stefánsson og svo þá sem yngri
eru, t.d. Porvald Skúlason og Svav-
ar Guðnason. Síðar hafa safninu
bæst fjölmargar gjafir og ber fremst
að telja að Margrét Jónsdóttir, ekkja
Þórbergs Þórðarsonar, gaf safninu
málverkasafn þeirra hjóna. I þeirri
gjöf eru mest áberandi þeir sem
fram komu á sjónarsviðið um miðja
öldina og ber safn þeirra Margrétar
og Þórbergs mjög persónuleg ein-
kenni.
A undanförnum árum hefur auk-
ist sá þáttur í starfsemi Listasafnsins,
að til sýnis í safninu eru verk sem
ekki eru í eigu þess, heldur eru utan-
aðkomandi. Verk safnsins hafa hins-
vegar verið sýnd á vinnustöðum,
starfsfólki og gestum þeirra til ynd-
isauka. Mikil brögð hafa hinsvegar
verið að því að gestir safnsins vilji fá
að sjá þau verk sem eru í eigu þess
en ekki þær tímabundnu sýningar
sem prýða sali hverju sinni. Af þeim
sökum er þessi sýning haldin nú og
ber að þessu sinni mest á verkum úr
stofngjöf Ragnars í Smára.
Safnið er opið 16—20 virka daga
og 14—22 um helgar og sýningin
stendur til 23. ágúst.
LISTVIÐBURÐIR
Árbæjarsafnið
er opið alla daga nenía mánudaga
frá kl. 10—18. M.a. eru í safninu sýn-
ing á gömlum slökkviliðsbílum, sýn-
ing á Reykjavíkurlíkönum og sýning
á fornleifauppgreftri í Reykjavík.
Tónleikar í kirkju safnsins sunnudag
kl. 15.00.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74
Opið alla daga nema laugardaga frá
13.30 — 16.00. Yfir stendur sumar-
sýning á úrvali verka Ásgríms Jóns-
sonar.
Ásmundarsafn
Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar,
opið daglega frá 10—16.
Gallerí Borg
Frjálst upphengi að hætti hússins,
gamlir meistarar v/Austurvöll og
nýir v/Austurstræti.
Gallerí Gangskör
Frjálst upphengi meðlima gallerís-
ins. Opið frá 12—18 virka daga og
14—18 um helgar.
Gallerí Grjót
Samsýning aðstandenda. Málverk,
grafík, skúlptúr, silfur o.fl.
Galleri Svart á hvítu
Lokað um skeið vegna breytinga og
lagfæringa. Einkasýningar hefjast
15. ágúst.
Gallerí Langbrók Textíll
Vefnaður, tauþrykk, myndir, fatnað-
ur o.fl. á Bókhlöðustíg 2.
Gallerí Vesturgata 17
Sumarsýning Listmálarafélagsins.
Margir af okkar fremstu málurum
með sölusýningu á verkum sínum.
Opið virka daga frá 9—17.
Hafnargallerí
Haraldur Jónsson verður með skúlp-
túr, bókverk og myndband frá föstu-
deginum 8. til 15. ágúst.
Krákan
Unnur Svavarsdóttir sýnir akrýl- og
pastelmyndir.
Kjarvalsstaðir
Sýning á norrænni hönnun í vestur-
sal. I öðrum sölum árviss Kjarvals-
sýning.
Listasafn ASÍ
Sýning stendur yfir á verkum i eigu
safnsins og kennir þar margvíslegra
grasa og fróðlegra.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 13.30—16.00. Höggmynda-
garðurinn er opinn daglega frá kl.
10—17.
Norræna húsið
Frans Widerberg, norskur málari og
grafíker, sýnir málverk í kjallara og
grafík í anddyri. Sýningin opnuð 8
ágúst og stendur út mánuðinn.
Nýlistasafnið við Vatnsstig
Samsýning þeirra Húberts Nóa
Jóhannessonar og Þorvalds Þor-
steinssonar. Sýningin stendurfrá 30.
júlí til 9. ágúst og safnið er opið
16—20 á virkum dögum og 14—20
um helgar.
KVIKMYNDAHUSIN
★★★★
Bláa Betty (Betty Blue)
Mynd um hrikalegar geðsveiflur
sem fá miðurfagran endi. Sýnd í Bíó-
húsinu kl. 5, 7.30 og 10.
Blátt flauel (Blue Velvet). Sýnd kl. 9
í Bíóhöllinni.
Herbergi með útsýni (Room with a
View). Notalegur sjarmi kl. 7 i Regn-
boganum.
Herdeildin (Platoon). Nánast óþarfi
að dásama hana öllu frekar. Kl. 3,
5.20, 9 og 11.15 í Regnboganum.
★★★
Krókódíla-Dundee (Crocodile
Dundee). Létt ævintýri kl. 5 og 9 í
Bióborg.
Þrir vinir (Three Amigos). Hrein og
bein fyndni. Kl. 3.10, 5.10 í Regnbog-
anum.
Morguninn eftir (The Morning
After). Áfengisvandamál kl. 5,7,9 og
11 í Bíóhöllinni.
Arizona yngri (Raising Arizona).
Frumlegur og bráðskemmtilegur
ærslaleikur. Kl. 7 og 11 í Bíóborginni.
Angel Heart
Yfirþyrmandi blóðstraumar og
galdraviðbjóður í einni mögnuðustu
hrollvekju siðari tíma. Sýnd kl. 5, 7, 9
og 11.05.
Á eyðieyju (Castaway). Paradís á
jörð hverfist í mótsögn sína. Sýnd kl.
9 og 11.15 í Regnboganum.
Logandi hræddur (The Living Day-
lights). Nýjasta Bond-myndin og er
bara vel heppnuð þó hann sé hættur
við fjöllífi blessaður. Sýnd í Bíóhöll-
inni kl. 5, 7.30 og 10.
Ottó (Otto: Der Film) Endursýnd
mynd, full af fyndni og skemmtileg-
heitum. Sýnd kl. 3, 5, 9 og 11.15 í
Regnboganum.
Villtir dagar (Something Wild)
Bráðskemmtileg mynd sem er í senn
spennandi og fyndin. Ærslafull.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.10 í Háskólabíói.
★★
Dauðinn á skriðbeltunum (Wheels
of Terror) kl. 9.10 og 11.10 i Regnbog-
anum.
Wisdom. Hasarmynd, unglinga-
stjarnan Emilio Estevez farinn að
skrifa og leikstýra sjálfur. í Stjörnu-
bíói kl. 5 og 9.
Morgan kemur heim (Morgan
Stewart's Coming Home). Unglinga
og/eða foreldravandamál afgreitt á
fjörugan hátt. Sýnd kl. 7, og 11 í Bíó-
höllinni.
Innbrotsþjófurinn (Burglar). Grín-
mynd með Whoopi Goldberg í Bíó-
höllinni kl. 5, 7, 9 og 11.
★
Hættuástand (Critical Condition),
grínmynd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15
í Regnboganum.
Meiriháttar mái (Terminal Expos-
ure). Ljósmyndarar reyna að leysa
morðgátu. Kl. 5,7,9 og 11 í Laugarás-
bíói.
0
Lögregluskólinn 4. Langþreytt grín-
mynd kl. 5 og 9 í Bíóhöllinni.
NÝJAR
Velgengni er besta vörnin (Success
is the best Revenge). Um mann sem
gengur vel í starfi en heimilisbölið er
þyngra en tárum taki. Kl. 3, 5, 7, 9 og
11.15 í Regnboganum.
Gustur (The Wind). Hryllingsmynd
um ungan rithöfund sem finnur ekki
næði til starfa. Kl. 5, 7,9 og 11 í Laug-
arásbíói.
Andaborð. Mynd um dularfulla anda
og yfirnáttúrulega hluti sem hræða.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í Laugarásbíói.
Gustur.Hrollvekja um ungan rithöf-
und sem lendir í ýmsu óskemmti-
legu. Kl. 5, 7, 9 og 11 í Laugarásbíói.
Óvænt stefnumót (Blind Date). Ný
gamanmynd frá Blake Edwards með
hinni kynþokkafullu Kim Basinger.
Kl. 5, 7, 9 og 11 í Stjörnubíói.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
KVIKMYNDIR
Glæfraspil
Háskólabíó: Something Wild
(Villtir dagar). ★★★
Bandarísk. Árgerð 1986.
Framleiðendur: Jonathan
Demme, Kenneth Utt.
Leikstjórn: Jonathan Demme.
Handrit: E. Max Frye.
Kvikmyndun: Tak Fujimoto.
Aðalhlutverk: Melanie Griffith,
Jeff Daniels, Ray Liotta o.fl.
Hún kemur svo sannarlega
skemmtilega á óvart þessi óvið-
jafnanlega litla perla Jonathans
Demme. Myndin hefur flest það til
að bera er talist getur höfuðprýði
allra vel frambærilegra afþreying-
armynda: Handritsgerðin er bæði
frumleg og bráðskemmtileg, þó
svo að þar gæti að vísu nokkurra
áhrifa úr eldri afurðum road-
movie-hefðarinnar, leikstjórn
Demmes er prýðilega yfirveguð
og samleikur þeirra Daniels og
Griffiths, og umfram allt Ray Liotta
í hlutverki höfuðskúrksins með
hinum mestu ágætum.
Something Wild hefst á litlu veit-
ingahúsi einhvers staðar í New
York, hvar Charles Driggs, nýorð-
inn varaforseti virðulegs fjármála-
fyrirtækis, situr yfir málsverði.
Hann fær skyndilega þá hugdettu
að stinga af frá reikningnum, en er
ekki kominn langt þá er hann
er stöðvaður af bráðmyndarlegri
ungri konu, Lulu Hankel að nafni,
er séð hefur til hans og hótar jafn-
framt að koma upp um þetta
ótímabæra skammarstrik hans.
Eftir stundarþref þar á gangstétt-
inni fyrir framan veitingahúsið
býðst hún um síðir til að aka hon-
um í vinnuna, sem hann og þiggur
með þökkum sér allsendis ómeð-
vitaður um að þeirri ferð muni
ekki ljúka fyrr en að þremur dög-
um liðnum. Og umfram allt eftir
ævintýri og svaðilfarir svo miklar
að ekki einu sinni villtustu draum-
eftir Ólaf Angantýsson
um hans sjálfs er þar við að jafna.
Áður en hann veit orðið af hefur
Lulu tekið strikið út úr borginni og
linnir ekki ferðinni fyrr en í New
Jersey, hvar hún rænir áfengis-
verslun á meðan Charles gefur
einkaritara sínum dagskipanir
gegnum síma.
Þegar veslings Charles er loks-
ins fyrir alvöru farinn að njóta
ferðarinnar og hins nýfengna
frelsis, og í ofanálag orðinn yfir sig
ástfanginn af stúlkukindinni, kem-
ur fyrst verulegt babb í bátinn; hún
reynist vera gift einhverjum af
náttsvartari höfuðskúrkum og
tukthúslimum bæjarins. Snýst því
lokauppgjör þessarar dæmalausu
litlu kvikmyndar ekki einvörð-
ungu um það hvort hann skuli
freista þess að ná þessari dís
drauma sinna frá eiginmanninum,
heldur umfram allt hvernig það
megi takast án þess að líftóran
fjúki veg allra vega.
HELGARPÓSTURINN 23