Helgarpósturinn - 06.08.1987, Side 25
Er hægt að hugsa sér nokkuð betra en tandurhreint loftið, kristaltært vatnið, niðinn
fossum og fjöllin blá, hesta og kýr á beit, angan af nýslegnu grasinu,
og eftirvæntinguna að borða góðan mat og hvíla sig eftir velheppnaðan dag í
sveitasælunni. Tuttugu Eddu hótel um allt land gera þessa eftirvæntingu
að veruleika. Hótel Edda fyrir þá sem unna íslenskri náttúru.
V
ið höfum haft spurnir af þvi,
að Alþýðuflokksþingmenn og
jafnvel ráðherrar hafi mikið verið á
ferðinni á Vogi á síðustu vikum.
Bæði Jón Baldvin Hannibalsson,
Sighvatur Björgvinsson og Jón
Sæmundur Sigurjónsson hafa
dvalið á meðferðarstöðinni í nokkr-
ar klukkustundir, setið fyrirlestra og
rabbað við sjúklingana. Heimsóknir
pólitíkusa eru svo sem ekkert
óþekkt fyrirbæri á Vogi, en þær ber
venjulega upp á vikurnar fyrir kosn-
ingar og standa ekki ýkja fengi yfir.
Sú hugmynd hefur skotið upp koll-
inum, að kratarnir séu þarna að
sækja styrk vegna erfiðra fráhvarfs-
einkenna í kjölfar þess að stjórnar-
andstöðuvíman rann af þeim og blá-
kaldur stjórnarseturaunveruleikinn
tók við.. .
Þ.
jóðþekktir einstaklingar eru
núorðið ekki síður eitir á röndum
hér á landi en í útlöndum. Þeir eru
myndaðir í bak og fyrir á með-
göngutímanum, fæðingardeildinni
og annars staðar, þar sem til þeirra
næst, þó þeir séu svo sem ekki að
afreka neitt sérstakt. Bókaforlagið
Vaka gaf fyrir nokkrum árum út
bók með uppáhaldsmataruppskrift-
um fræga fólksins og nú höfum við
frétt að önnur slík bók sé á leiðinni
hjá sörrm útgáfu. Það eru hjónin
Einar Örn Stefánsson og Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir sem
hafa umsjón með gerð bókarinnar. ..
38 sinnum í hverri viku
Danmörk, Noregur og Svfþjóð taka þér ávallt opnum örmum, allt árið um kring.
Þegar um er að ræða menningarlíf, náttúrufegurð og vinalegt andrúmsloft eru fá lönd
sem taka Norðurlöndunum fram - svo mikið er víst. Taktu þér ferð á hendur,
til góðra granna, og þú munt njóta þess.
Flugleiðir halda uppi reglubundnu áætlunarflugi til fimm borga í Skandinavíu,
38 sinnum í viku.
* Miðað er við háannatíma, júní, júlí, ágúst.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
FLUGLEIDIR
FLUGLEIDIR
___fyrir þig__
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25100
3xBERGEN
PEX kr. 15.850
3xGAUTAB0RG
PEX kr. 17.200
17 x KAUPMANNAHOFN
PEX kr. 17.010,
8x0SL0
PEX kr. 15.850
7 x STOKKHOLMUR
PEX kr. 19.820