Helgarpósturinn - 06.08.1987, Side 26

Helgarpósturinn - 06.08.1987, Side 26
INNLEND YFIRSYN Eins og glöggskyggnir menn gerðu ráð fyrir eru nýju lögin um veitingu prestakalla þegar farin að valda úlfúð. Hafa menn nú jafnvel á orði að enginn viti hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Prestskosningar hafi vissulega oft verið sársaukafullar en með hinum nýju lögum og ákvörðun yfirvalda um nafnleynd séum við komin úr öskunni í eld- inn. Fámennisvald og spilling leysi nú af hólmi hinar lýðræðislegu leikreglur. Við veitingu Hjallaprestakalls í Kópavogi ákvað Ólafur Skúlason prófastur að nafn- leynd skyldi viðhöfð um umsækjendur. Var það gert í samráði við biskup. Þessir aðilar líta svo á að af anda nýju laganna verði ekki dregin önnur ályktun en að nafnleynd skuli viðhöfð. í samtali við Helgarpóstinn sagði Ólafur Skúlason að það sem fyrir þeim hefði vakað með nafnleynd hefði verið að losna við það Sem gerði gömlu lögin ómöguleg, en það hefði einkum verið þrennt. í fyrsta lagi, sagði Ólafur, hefði söfmkðin- um með gömlu lögunum verið skipt upp í andstæðar fylkingar og slíkt hefði jafnan reynst nýkjörnum presti fjötur um fót. I ann- an stað hefðu hin gömlu lög att prestum sam- an eins og stjórnmálamönnum í prófkjöri. í þriðja lagi ef prestur væri að fara frá einu brauði og sækja um annað þá losnaði um hann — söfnuðurinn vissi að hann hefði hug á öðru brauði. Kæmist hann svo ekki að, yrði starfið í prestakallinu erfiðara en áður. Nafnleyndina kvað Ólafur standa í beinu og rökréttu sambandi við anda þeirra laga- breytinga sem gerðar voru. Annar viðmæl- andi HP sagði að þessi túlkun væri út í hött. Aldrei áður hefði verið viðhöfð nafnleynd og hafi löggjafinn viljað gera breytingu þar á þá hlyti þess að sjá stað í hinum nýju lögum. Svo væri hins vegar ekki og samkvæmt allri laga- hefð bæri að líta svo á að nöfn umsækjenda væru áfram opinber nema skýrt væri kveðið á um annað. Nýju lögin um veitingu prestakalla gera ráð fyrir því að kosið sé um umsækjendur ef minnst fjórðungur sóknarbarna fer fram á það innan viku frá því að sóknarnefnd hefur „Greinilegt er að jafnt gagnrýnendum sem fylgjendum hinna nýju laga er fullkomlega ljóst að þessu „lýðræðis- ákvæði“ er ekki og var aldrei ætlað að ganga upp. Því var einungis ætlað að gefa ólýð- ræðislegri breytingu lýðræðislegan blæ.“ Kirkjan leyst undan lýðræðinu valið sér prest. Við þetta ákvæði hafa menn margt að athuga. í fyrsta lagi gagnrýna menn að sóknarbörn fá aðeins örfáa daga til að ráðfæra sig um niðurstöðu sóknarnefndar og taka ákvörðun um að krefjast kosninga. 1 öðru lagi hafa menn gagnrýnt að safna þurfi saman minnst 25% sóknarbarna til að krefjast kosninga. Þetta sé óvenju stórt hlutfall og alls ekki vinnandi vegur í hinum stærri prestaköllum. I raun væri hér um hreint sýndarákvæði að ræða, lýðræði sem nánast útilokað væri að nýta sér. Við þetta bætist að ef sóknarbörn vita almennt ekki hverjir umsækjendur eru þá gera þau vart meira en glöggva sig á þeim þann vikutíma sem þau hafa til að krefjast prestskosninga. í þriðja lagi benda menn á að séu hefðbundnar prestskosningar af hinu illa séu þær alveg óbærilegar eftir að safnað- arstjórn er búin að velja prest. Umsækjanda sem hafnað er sé þá gert að fara í stríð við sigurvegarann. Aðspurður hvort vika væri ekki stuttur tími fyrir söfnuð að gera það upp við sig hvort hann vildi kosningar og til að safna liði svarar Ólafur Skúlason: ,,Við verðum nátt- úrulega að gera okkur grein fyrir því að við erum að vona að fyrra ákvæði gildi. Við er- um ekkert að ýta undir almennar kosningar. Við erum að reyna að komast hjá þeim." Greinilegt er að jafnt gagnrýnendum sem fylgjendum hinna nýju laga er fullkomlega ljóst að þessu „lýðræðisákvæði" er ekki og var aldrei ætlað að ganga upp. Því var ein- ungis ætlað að gefa ólýðræðislegri breytingu lýðræðislegan blæ. Við val prests í Hjallaprestakalli í Kópavogi var hvort tveggja horft framhjá menntun og reynslu. Heimildarmenn HP fullyrða að meint vinstri slagsíða tveggja umsækjenda hafi orðið þeim fjötur um fót. í safnaðar- stjórn Hjallaprestakalls sitji einvala lið hægri manna sem hafi talið stjórnmálaskoðanir Kristjáns Einars Þorvarðarsonar, umsækj- andans sem fyrir valinu varð, standa næst sínum eigin. Þessi gagnrýni leiðir hugann að skipan safnaðarstjórna yfirleitt, ekki síst á þéttbýlis- svæðum. Endurspegla þær sóknirnar sem þær stýra? Varla. í Reykjavík til dæmis eru safnaðarstjórnir fjarri því að endurspegla þær skoðanir og starfsstéttir sem búa í við- komandi prestaköllum. Óbreyttir launa- menn eru til dæmis ekki fyrirferðarmikiir í safnaðarstjórnum. Með allri virðingu fyrir safnaðarstjórnum eru þær yfirleitt saman- safn vel stæðra manna sem ganga í jakkaföt- um hversdags og kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Ógjörningur er að ætla þessum fáu einstakl- ingum að endurspegla vilja og smekk, vonir og þrár allra sóknarbarna. Prestur sem HP ræddi við sagði að ákafa- fólk í trúmálum hefði í auknum mæli farið til náms í guðfræði við Háskóla Islands. Alla jafna væri þetta mjög hægrisinnað fólk. í samkeppni um prestakall væri það líklegra en annað til að falla hinni dæmigerðu safn- aðarstjórn í geð. Þröngsýni þessa fólks væri hins vegar svo mikil að í almennum prests- kosningum ætti það litla möguleika gegn venjulegum presti. Afnám prestskosninga hefur fram til þessa fyrst og fremst verið áhugamál presta sjálfra. Almenningur hefur aldrei verið spurður um það hvort hann vilji afsala sér þeim lýðræðis- lega rétti sem prestskosningar eru. Innan prestastéttarinnar hefur því mjög verið hald- ið á loft að niðurstöður prestskosninga séu oft i engu samræmi við starfsreynslu og þekkingu frambjóðenda. Til að vinna prests- kosningar þurfi menn öðru fremur að vera ungir og líflegir með eigulega konu sér við hiið. Hér er um grundvallaratriði að ræða. Taki fólk einhverja eiginleika fram yfir þá eigin- Ieika sem prestum sjálfum þykir mest um verðir vaknar sú spurning hverjir eigi að ráða. Á meðan kirkjan er ríkisrekin og kost- uð af almenningi er ekki óeðlilegt að þessi sami almenningur kveði upp úr um það hvernig prest hann vill. Eins og í öðru lýð- ræðislegu vali getur niðurstaðan vitaskuld orðið sársaukafull. Spurningin er hins vegar sú hvort slíkur sársauki er ekki heilbrigðari og léttbærari til langframa en það baktjalda- makk sem stjórnmálamenn og prestar kunna að hafa kallað yfir okkur með hinum nýju lögum. Á ríkisrekin kirkja ekki að hlíta leikreglum lýðræðis? ERLEND YFIRSYN Flotaæfing undir heitinu „Aðgerð píslar- vætti" hófst fyrir og á strandlengju írans að Persaflóa og Ómansflóa, samtímis því að fyrsta flugvélin af mörgum, fermd föllnum og særðum írönskum pílagrímum, hélt frá Saudi-Arabíu til Teheran. Nafn æfingarinnar á að tengja aðgerðir og viðbúnað byltingar- varða við fjölfarna, alþjóðlega siglingaleið afdrifum hundraða pílagríma í átökum á helgasta bletti sem islamstrú veit. Yfirmaður írönsku æfingarinnar sagði í dagskipun eftir fyrsta æfingardaginn, að eld- flaugar væru í skotstöðu og mannafli í við- bragðsstöðu á viðkvæmustu skikum strand- lengjunnar. Ekkert væri stríðsmönnum islamskrar byltingar að vanbúnaði að greiða „alþjóðlegum hrokagikkjum" höggin sem þeir ættu skilið. Um sömu mundir fór þó skipið Gas Prince frá Kuwait óáreitt um Hormuzsund í mynni Persaflóa undir bandarískum fána og banda- rískri flotavernd með farm af fljótandi gasi til Japans. íranska klerkastjórnin er óspör á stór orð til að kynda undir trúarmóði og bar- áttuvilja, en fer sér hægt að fylgja þeim eftir í verki. Fyrsta ferð olíuskipa Kuwait um Persaflóa undir bandarískri flotavernd tókst líka svo óhönduglega sem verða mátti, án þess Iranir þyrftu að hafa sig beint í frammi. Risaolíu- skipið Bridgeton, 401.382 tonn að burðar- magni, sigldi á tundurdufl í þröngum ál við eyna Farsi. Gerði sprengingin 18 metra langt og fjögurra metra breitt gat á fjögur af 31 farmhólfi skipsins. Á daginn kom að bandarísku herskipin þrjú, sem fylgdu fyrstu skipum Kuwait undir bandarískum fána, voru gagnslaus til að leita uppi tundurdufl. Vopnabúnaður þeirra og leitartæki beinast að kafbátum, flugvélum og herskipum. Þar á ofan er byrðingur bandarísku freigátanna svo veikur, að tund- urdufl á borð við það sem Bridgeton lenti á gæti hæglega sökkt þeim. Það var því fanga- ráð yfirforingja bandarísku flotadeildarinnar að láta laskað olíuskipið sigla á undan það sem eftir var til Kuwait, en fylgdarskipin halda í halarófu í humátt á eftir því, svo ris- inn tæki á sig hættuna af frekari tundurdufla- eftir Magnús Torfa Óiafsson Tundurdufl og pílagrímar eru helstu vopnin sem klerka- stjórn írans treystir sár til að beita. Biðstaða á háskasvæðinu umhverfis Persaflóa sprengingum. Þar með var skipið sem átti að verja orðið að tundurduflaslæðara fyrir her- skip í háska. Flotaforusta og ríkisstjórn Bandaríkjanna hafa hlotið hneisu af þessum atburði og því ástandi sem hann leiddi í Ijós. Á daginn kom að hvorki landvarnaráðuneytið né flotar stjórnin hafði gefið minnsta gaum hættunni af tundurduflum á siglingaleiðinni um Persa- flóa. Höfðu dufl þó skemmt nokkur skip og tundurduflaslæðarar frá Saudi-Arabíu og Sovétríkjunum verið að verki við að leita uppi duflalagnir. Þar á ofan reyndist Bandaríkjafloti ráða yfir alls þrem tundurduflaslæðurum í not- hæfu ástandi, og sá sem næst var vettvangi hélt sig í Charleston í Suður-Karólínu á Atlantshafsströnd Bandaríkjanna. Áform um að endurnýja skipakost flotans til tundur- duflaslæðingar höfðu lent í útideyfu, af því engum aðmírálnum þykir nein fremd í að vera orðaður við smíði eða yfirstjórn svo lítilsigldra farkosta. Bridgeton Iá þegar síðast fréttist i Kuwait, og ríkti togstreita um framhald á ferðum skipsins. Stjórnvöld í Kuwait vilja láta ferma óskemmdu hólfin olíu og losa hana í smærri skip, sem bíða farma utan Hormuzsunds, áð- ur en skipið fer í viðgerð í Dubai eða Bahrein. Bandarísku flotaforingjarnir telja hins vegar of mikla áhættu tekna með því að ferma svo laskað skip olíu, og vilja að það fari tómt til viðgerðar á annanhvorn þeirra staða, sem áður voru nefndir, og eru þeir einu við Persaflóa með flotkvíar færar um að taka við risaskipum. Bandaríkjastjórn hefur fengið afsvar hjá einum fjórum Vestur-Evrópuríkjum, sem hún bað um að senda tundurduflaslæðara til Persaflóa. Fangaráð Weinbergers landvarna- ráðherra er að láta selflytja átta þyrlur til tundurduflaleitar á vettvang. Hvorki Kuwait né Saudi-Arabía fást til að veita þyrlunum stöðvar hér á landi. Þær fara því fyrst til eyj- arinnar Diego Garcia á Indlandshafi, en komast ekki í gagnið að Persaflóa að heldur, fyrr en þangað er komið landgöngu- og þyrluskipið Guadalcanal að gerast lending- arpallur. Vélarnar eru svo þungar, að þær geta ekki lent á freigátunum, sem fyrir eru. Meðan regluleg sigling olíuskipa frá Kuwait undir bandarískri flotavernd er í bið- stöðu af þessum sökum varð óskyldur at- burður til að auka enn viðsjár milli byltingar- stjórnar shiítaklerka í íran og súnnítaríkisins Saudi-Arabíu. Viðureign lögreglumanna í hinni helgu borg Mekka og pílagríma frá íran síðastliðinn föstudag lauk með því að hundr- uð manna biðu bana. Pílagrímsförin hajj til borganna þar sem Múhameð spámaður lifði og bar fram opin- berun sína er höfuðviðburður trúarársins hjá múslímum. Þá flykkjast trúaðir til Mekka og Medína svo milljónum skiptir, klæðast píla- grimaskikkjum og taka án manngreinarálits þátt í hátíðahöldum og athöfnum, sem ekki eiga síst að vera til marks um bræðralag þeirra. Konungsætt Saudi-Arabíu hefur lagt metn- að sinn í að taka myndarlega á móti pila- grímaskaranum og skipuleggja helgiathafn- irnar sem best. Sérstök áhersla er lögð á að halda hreina trúarhátíð án flokkadrátta. Frá því byltingin varð í íran hafa shiíta- klerkarnir, sem þar ráða, verið í opinberri andstöðu við þennan súnnítaskilning á hajj og lagt sig fram að brjóta gegn honum. Þeir hafa gert íranska pílagríma út með áróðurs- efni í máli og myndum og falið leiðtogum þeirra að safna liðinu saman til pólitískra fjöldafunda á helgistöðum. Út af þessu kom til átaka milli lögreglu og íranskra pílagríma í hitteðfyrra, en á föstudaginn keyrði um þverbak. Yfirvöld í Saudi-Arabíu segja að á fimmta hundrað manns hafi troðist undir til bana við bænahúsið mikla í Mekka, þegar leiðtogar 150.000 íranskra pílagríma neituðu að hætta fjöldafundi til fordæmingar á Bandaríkjun- um, Sovétríkjunum og öðrum óvinum islams. Þvert á móti réðust þeir gegn lögregl- unni og kveiktu í bílum hennar. Gripu þá lög- reglumenn til barefla, múgæði náði tökum á þvögunni og fólk tróðst undir í hrönnum, einkum aldraðir og fatlaðir, sem írönsku for- sprakkarnir höfðu sett í miðja fylkingu sína. í Teheran er því haldið fram, að saudi- arabíska lögreglan hafi beitt skotvopnum og tala látinna nemi sex hundruðum. Hefur áróður frá Teheran gegn konungsætt Saudi- Arabíu verið hertur um allan helming. Því er heitið að Fadh konungi og öllu hans hyski skuli gert ólíft meðal múslíma. Eins og endranær er torvelt að greina á milli, hvað í málflutningi íransklerka er alvara og hvað er orðagjálfur og yfirvarp, sniðið eftir þörfum valdabaráttunnar, sem sí- fellt kraumar í byltingarstjórninni, og snýst um hver klíkuforinginn standi best að vígi að hrifsa völdin eftir að Khomeini fellur frá. Svo er að sjá sem íranski ofsinn hafi þjappað stjórnum arabarikja fastar saman en fyrr. Þykir sérstökum tíðindum sæta að Assad Sýrlandsforseti simaði í Fadh konung og lýsti vilja sínum til að bera sáttarorð á milli stjórn- anna í Riyadh og Teheran. 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.