Helgarpósturinn - 06.08.1987, Blaðsíða 28
eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur
mynd Jim Smart
DYNAMISEZ
^ VOTRE CO FFURE
EN JOUANT LA
COUPE EN COULEUR
Un* coup« : un Ctlp
t'orieinattié de co nouveau ser-
vtco couteur, c est qu'ii
s adspts é ia coupa, Mteux. tl ta
personnatisa, te ftnattee gráce a
des effets cte coutaw sobnte-
tneot, intettijemmoot tocaíisés.
t» coupo - vit », efle acquiert
dcnstté, rahef. force. Atout roa-
jeur ; & chapoe coupe corres-
pood une rnéthoöe O appflca-
tion différeme (Clip Plumes,
Clip Voitos. Ciip Vaguas} Oonc
un rísuttat rlifféront : des ptu-
mos Oe coulour tocaiisées sur
lcs poinies d'une coope courte
etíhée. des vuites de couleur
juste en surface pour iitumtner
un carré iisse. des vagoas cte
coutoor pour soultgner !os on-
dulations d'une coiffure soupte
ou booctée.
A criaque r.oupo on peut donc
changer de rjip au gré de ses
riumeurs ot do ses ccops de
cceur, en touie compticité avec
son coiffeur.
Autro avantage. tes Ctlps Cou-
teur sont une tochnique d« co-
loration partiette. douco ct trés
suoiilo qui joue te naturet avec
brio. Ouoite qoe soii votre base
(mémo |r»s toncee). vou» »o-
w un résuital partait, vos che-
veu* prendronf de t éctat de 1»
lumiére. de l esprti. Solon vofre
envie et la teinie chotsie (II y en
a hutt, do Miel au Noir Prcrfond
en passanf par l Ambre et le
Víoltne) ct on tenani hien súr
compte de* conseifs dc votre
coiffeor (lut sool connalt trés
exactement la couleur dc votre
bese). vous pouvei obtenir un
fortdu lommeux comme des of-
fets de contrasie plus spocta-
cuHnres
De ptos, tes Ctips Couloor évo-
tuent oien dans le temps.
Méme aprés plusieurs snam-
pcotngs. l’offet couteur con-
serve tcuto son intonsité. se
fond avoc éctaf dans ia couieur
naluretle des choveux Cetle
souptesse, cotte douceur
certe taciiité i vtvre (comms ii
n'y » pa» de changement radi-
cal de couteur ot que tes effets
cooteur scnt parfiels. iI n'y a
pas d effet raclnes) rendont les
Ciips Couleur accessibies i
tous. Aussl bien aux jeunes
qu'aux femmes-femmes. m»>s
aussl sux bommes tout eussi
soucioox quo nous d« leur look
(méme s'iis ne I admeltent pas
votontíers i). C'est !» lormule
tdéale pour toules celtes qut
norit encore jamais osé tou-
crier A ta cooieut de leurs che-
veux. Les Chps Couteur, realt-
sés par un proleastonnel. sau-
ront tes convaincre.
Une lormut* exprea* pour un
éclet tmmédlal
Dé'nier point Important. les
Clips Couleur, c'ost aussi une
créme de coloration partielie
qut agit on vrngt mmutes «t
dont l'appttcaiion che: le cotf-
feur est taciliíðe par un maiériel
apéciatemem cooeo pour ce
support créme une mtni
brosse et un crayon pour
mieux localiser le produit et
permetfre une plus grande fi-
nesse d'exöcufion. Avec en
ptus des quatités cosmðtique» _
do douceur et de rospect du
cheveu. Besuttat : feffet cou-
leur est naturel. tes crioveux
brillants et souples. La coope
vii et vitre avec éclat et été-
gance, rehausséo d'uoo nou-
voile personnailté.
Dés aujoord'hul. che: votre
coltfeur, v>ve? votre coupe en
cooloor!
Anna Herdís Eiríksdóttir
Anna Björk Eðvarðsdóttir
28 HELGARPÓSTURINN
„Vilt þú slást í hópinn?“ Þannig hljóðaði auglýsing eftir
fyrirsætum, sem birtist í dagblöðunum í októberbyrjun.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Um 400 manns létu
skrá sig til fyrirsætustarfa og umboðsskrifstofan „Fyrir-
sœtarí' varð að veruleika.
„Markmiðið er að leyfa öllum sem
vilja að spreyta sig á fyrirsætustörf-
um,“ sagði Anna Björk Edvardsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Fyrirsætunn-
ar, en Anna Björk er sjálf vel kynnt
sem fyrirsæta og starfaði lengi við
það. Hún er einnig þekkt sem Feg-
urðardrottning íslands 1977.
„Fyrirsætan er umboð fyrir fólk
sem vill taka þátt í fyrirsætustörfum
hérna heima og í því samband ger-
um við engar útlitskröfur. Við tök-
um við öllum sem óska eftir að vera
hjá okkur á skrá. Til okkar leita aug-
lýsingastofur og kvikmyndagerðar-
félög, sem eru að leita að nýjum
andlitum fyrir sjónvarpsauglýsingar
og blaðaauglýsingar. Hugmyndin
að stofnun fyrirtækisins er komin
frá Guðjóni Magnússyni, meðeig-
anda mínum, sem hafði séð sam-
hliða fyrirtæki í Árósum í Dan-
mörku, þar sem hann var við nám.
Við ákváðum að slá til og prófa,
auglýstum eftir fólki til að koma á
skrá og viðbrögðin urðu ótrúleg.
Um fjögur hundruð nöfn komu
höfðu samband strax eftir fyrstu
auglýsinguna og síðan höfum við
aðeins auglýst tvisvar. Nú eru á milli
600 og 700 manns á skrá hjá okkur.
Auglýsingar virka oft trúverðugri ef
það er „venjulegt" fólk í þeim, ekki
eingöngu mjög fallegt fólk. Þannig
höfum við búið til heilu fjölskyld-
urnar eftir skrám okkar. Það er fólk
sem aldrei fyrr hefur sést og aldrei
komið nálægt fyrirsætustörfum áð-
ur.“
Anna Björk sagði að almennt
væri fólk ekki feimið við að sitja fyr-
ir á myndum í fyrsta skipti: „Það
fólk sem er til í að reyna þessi störf
er yfirleitt fólk sem er ekki feimið og
á auðvelt með að umgangast aðra.
Þetta fólk er ekki í leit að frægð og
frama, það er miklu fremur að leita
eftir tilbreytingu í lífinu, prófa eitt-
hvað nýtt, og þar að auki eru þessi
störf vel launuð.“
SAMSTARF VIÐ
FRANSKA UMBOÐS-
SKRIFSTOFU
Af þeim sem skráðu sig í upphafi
hjá Fyrirsætunni hafa miili 70 og 80
manns fengið vinnu: „Það er ekki
hægt að tryggja að allir fái vinnu, en
þó er enginn vafi á aö þaö borgar sig
að vera á skrá, hafi fólk á annað
borð áhuga á þessum störfum," seg-
ir Anna Björk. Meðal þeirra fyrstu
sem skráðir voru hjá fyrirtækinu
var 19 ára Reykjavíkurmær, Anna
Herdís Eiríksdóttir:
„Við gátum ekki útvegað henni
neitt að gera sem sýnir kannski best
hversu mismunandi það er eftir
hverju verið er að leita," segir Anna
Björk. „í vetur komst ég í samvinnu
við þekkta, franska umboðsskrif-
stofu, Crystal, sem var að leita að
fyrirsætum um allan heim. Mér var
falið að finna íslenskar stúlkur til
fyrirsætustarfa. Skilyrðin voru þau
að þær væru yfir 1.74 cm á hæð og
hefðu það útlit sem mest er í tísku
um þessar mundir, þ.e. stór augu,
þykkar varir og sakleysislegt útlit.
Þá var ekki nóg að hún væri falleg
þegar búið væri að farða hana,
myndirnar sem sendar voru til Par-
ísar urðu að sýna stúlkurnar algjör-
lega „hvítskúraðar" í framan. Ég
fletti möppunum mínum og fann tíu
stúlkur sem uppfylltu kröfurnar. Við
héldum síðan keppni í Kvosinni 2.
apríl þar sem íslensk dómnefnd
valdi Onnu Herdísi úr hópnum og
forsvarsmenn Crystai í París komu
hingað til lands og Anna Herdís
varð einnig fyrir valinu hjá þeim.
Verðlaunin voru ferð til Parísar og
samningur hjá umboðsskrifstofunni
Crystal."
SIGURVEGARI SLÆR í
GEGN í PARÍS
Það átti ýmislegt eftir að breytast
í lífi Önnu Herdísar frá þeim tíma
sem hún skráði sig hjá Fyrirsætunni
og fram til dagsins í dag: „Ég fylgdi
Önnu Herdísi til Parísar og hjálpaði
henni að koma sér fyrir," segir Anna
Björk. „Daginn eftir fór hún með
möppuna sína til fyrirtækja og tíu
dögum síðar fékk hún fyrsta verk-
efnið sitt hjá snyrtivörufyrirtæki.
Fyrsta verk umboðsskrifstofunnar
var að klippa hár hennar í þá sídd
sem þeim fannst hæfa best útliti
hennar. Síðan hefur Önnu Herdísi
gengið ótrúlega vel. Hún hefur stöð-
uga vinnu og er afar eftirsótt. Meðal
þess sem hún hefur afrekað er að
komast á heilsíðumynd hjá hinu
virta blaði Elle þar sem hún auglýsir
hárlit fyrir EOréal með grein um
hárlitun. Hún hefur verið á ferð og
flugi, m.a. setið fyrir á auglýsinga-
myndum í Nice og á Ítalíu og í októ-
ber fer hún í myndatökur fyrir
Chanel, þannig að allt stefnir í að í
vetur verði hún orðin dýrasta fyrir-
sætan hjá Crystal. Það hafa ekki
margar náð eins langt á skömmum
tíma. Þá hafa verið teknar af henni
plakatmyndir fyrir tískufyrirtækið
Kookai og verða þær hengdar upp
víða um París sem og í Japan."
FYRIRSÆTAN ÖÐRUVÍSI
UMBOÐSSKRIFSTOFA
Vinnutíminn hjá Önnu Björk er
langur og hún segir að ekki sé hægt
að tala um níu til fimm-vinnu, þótt
skrifstofan sé einkum opin á þeim
tíma: „Það er oft hringt á kvöldin og
um helgar ef það vantar fyrirsætur
með litlum fyrirvara," segir hún.
Hvort samkeppnin sé mikil hér á
landi milli umboðsaðila segir hún:
„Já hún er kannski svolítil á milli
umboðanna en það má segja að Fyr-
irsætan sé öðruvísi. Við erum ekki
með þessi þekktu andlit heldur ein-
göngu fólk sem ekki hefur sést áður,
og það gerir það líka að verkum að
samkeppni milli fyrirsætanna hjá
okkur er engin.“
Hún segir þá sem eru á skrá vera
á öllum aldri og úr öllum þjóðfélags-
stigum: „Yngsti meðlimur Fyrirsæt-
unnar er 2ja ára og sá elsti 65 ára,“
segir hún. „Það þarf auðvitað svolít-
inn kjark til að láta skrá sig í störf
sem þessi og það er til dæmis alls
ekki auðvelt fyrir fertuga karlmenn
að senda inn mynd af sér. Það gerir
það líka að verkum að færra er af
karlmönnum á skrá en æskilegt
væri. Táningar eru duglegastir við
að senda inn myndir af sér, en það
er minna fyrir unglingana að gera
en þá eldri."
...ANNARS HEFÐI
EINHVER ANNAR GERT
ÞETTA!
Anna Björk viðurkennir að það
hafi verið stórt stökk að fara út í
stofnun Fyrirsætunnar: „Auðvitað
var þetta áhætta," segir hún bros-
andi. „En ef ég hefði ekki farið út í
þetta hefði ég nagað mig í handar-
bökin síðar því ég er viss um að ein-
hver annar hefði hrint þessu í fram-
kvæmd. Þörfin fyrir svona starfsemi
er greinilega til staðar hér á landi
eins og annars staðar."
Hún ítrekar að allir geti verið með
sem þess óska: „Það eina sem fólk
þarf að gera er að senda okkur ný-
Íega mynd af sér ásamt helstu upp-
lýsingum," segir hún og leggur
áherslu á að engar kröfur eru gerð-
ar til útlits: „Fólk þarf bara að
treysta sér til að vinna með fólki
sem það hefur aldrei séð áður og
þetta starf gefur marga möguleika."
Þá segir hún að „Fyrirsætan" muni
aftur halda fyrirsætukeppni næsta
vor og þau séu þegar farin að leita
að stúlkum til að taka þátt í þeirri
keppni. „Skilyrðin þar eru: 16—19
ára stúlkur, yfir 1.74 á hæð og ekk-
ert annað,“ segir hún. „Stúlkurnar
þurfa alls ekki að vera vanar að sitja
fyrir því ef sú sem vinnur hefur
aldrei fengist við störf af þessu tagi
áður sér Crystal um þjálfunina. Sig-
urvegarinn fær samning hjá Crystal
og ef vel gengur opnast þannig
möguleikar á eftirsóttu og vel laun-
uðu starfi."