Helgarpósturinn - 06.08.1987, Side 29
Magnús Jóhannesson siglingamálstjóri skrifar undir dómsskýrslu, þeir feðgar til vinstri.
Siglingamalastjóri situr og skelfur
HP fylgist með fógetaaögerð í deilu JL-hússins hf. og Siglingamálastofnunar. Forsvarsmenn JL vilja stofnunina út úr
húsinu. Skrúfað fyrir heita vatnið og leigusamningi rift. Stofnunin fer hvergi.
Fjórða hæð JL-hússins er það sem deilt er um, Siglingamálastofnun leigir þar
feiknamikið húsnæði.
Fyrir 6 árum leigdi Loftur Jónsson
Siglingamálastofnun hluta af hús-
nœdi sínu á Hringbraut 121. Sam-
kvœmt samningnum leigdi stofnun-
in húsid til tólfára, frá 1.10. 1980 ad
telja. En sambúd þessara aöila hef-
ur ekki gengid þrautalaust þennan
tíma sem liðinn er frá þvísamningar
voru gerðir. I apríl sídastliðnum brá
svo við að Loftur lét loka fyrir heita
vatnið hjá Siglingamálastofnun,
eða hluta hennar, að því er hann
taldi vegna vanefnda á greiðslum al
þeirra hálfu. Opnað var fyrir vatnið
aftur, en nú hafa Loftur, sem eigandi
hússins, og sonur hans, Jón Loftsson,
sem forstjóri JL-hússins hf., látið
loka fyrir vatnið að nýju. Siglinga-
málastofnun gerði þá kröfu til
fógeta að hann kœmi á staðinn og
opnaði fyrir vatnið og mœtti fulltrúi
fógeta, Anna Karlsdóttir, ískrifstofu
Lofts Jónssonar til að framkvœma
þessa fógetaaðgerð.
Loft var lævi blandið þegar Anna
steig í skrifstofu Lofts ásamt fríðu
föruneyti. Voru þar í fylgd með
henni vottur sem var á hennar veg-
um, lögfræðingur úr samgöngu-
ráðuneytinu, Ragnhildur Hjaltadótt-
ir og Magnús Jóhannesson siglinga-
málastjóri fyrir hönd stofnunarinn-
ar. Að auki voru mættir annar starfs-
maður Siglingamálastofnunar svo og
fulltrúi Hitaveitu Reykjavíkur. Ósk-
aði Loftur eftir því að nærvera hans
yrði skýrð og var sagt að hann
myndi sjá um að opna fyrir vatnið
yrði það niðurstaða dómsins að svo
skyldi gera. Af hálfu eigenda húss-
ins og JL-hússins hf. voru þar staddir
þeir feðgar Loftur og Jón.
Fulltrúi fógeta óskaði eftir því að
fjölmiðlamenn vikju úr herberginu
en þeir feðgar neituðu því. Hófst þá
fulltrúinn handa við að skýra hvað
stæði til en fór jafnframt fram á að
ekki yrðu leyfðar myndatökur.
Hófst þá málflutningur og eftir
nokkurt karp og þæfing varð niður-
staða málsins ljós. Jón Loftsson fór
fram á fyrir hönd JL-hússins hf. að
hann fengi frest, sem honum ber
samkvæmt lögum, til að skila inn
greinargerð um málið. Byggði hann
þá kröfu sína á meintum vanskilum
Siglingamálastofnunar á greiðslu
hitareiknings og að auki kom fram í
máli þeirra feðga að þeir teldu stofn-
unina hafa brotið leigusamning
þann sem gerður var í upphafi. Það
varð síðan að niðurstöðu að frestur
yrði veittur til 20. ágúst og skyldi þá
JL-húsið skila inn greinargerð og
samþykkti Ragnhildur það fyrir
hönd Siglingamálastofnunarinnar.
Þangað til verða starfsmenn hennar
að sætta sig við að sitja í kulda við
vinnu sína. Það er þó rétt að taka
fram að ekki er búið að taka allt
heitt vatn af stofnuninni, aðeins í
vestasta hlutanum þar sem siglinga-
málastjóri m.a. hefur skrifstofu
sína.
SEX ÁRA ERJUR
Segja má að erjur leigusala og
leigutaka hafi hafist strax eftir að
samningurinn þeirra í millum var
fyrst gerður. Forsaga málsins er sú,
að sögn Lofts, að Siglingamálastofn-
unin gerði tilboð í húsnæðið án þess
að það væri auglýst til leigu. Samn-
ingur tókst með málsaðilum um að
leigt yrði skrifstofuhúsnæði, tæpir
780 fm, og að auki geymsluhúsnæði
460 fm. Leiga skyldi greiðast fyrir-
fram, fyrstu átján mánuði við stað-
festingu samningsins og áritun af
hálfu Fjárlaga- og hagsýslustofnun-
ar.
Þegar samningurinn kom til baka
í hendur Lofti Jónssyni hafði hins-
vegar fermetrafjöldanum á
geymsluhúsnæðinu verið breytt.
Hann var farinn úr 460 í tæpa 317
fm. Loftur telur að um brot hafi ver-
ið að ræða því samningurinn var
þegar undirskrifaður með fyrr-
nefndu tölunni og að auki hafi menn
frá stofnuninni sjálfir tekið út hús-
næðið og mælt hátt og lágt. Sigl-
ingamálastjóri, Magnús Jóhannes-
son, sem reyndar gegndi ekki þeirri
stöðu þá, hélt því hinsvegar fram að
þarna hefði verið um eðlilegan hlut
að ræða. Hluti húsnæðisins sé undir
súð og nái ekki tiltekinni lágmarks-
hæð svo greiðsluskylt sé, skv. húsa-
leigulögum.
leftir Kristjón Kristjánsson
Greiðsla fyrir þessa átján mánuði
sem borga átti fyrirfram barst síðan
ekki Lofti fyrr en 75 dögum síðar en
áætlað var, að hans sögn, og hleypti
það þegar illu blóði í samskiptin
milli leigusala og leigutaka. Síðan
hefur gengið á með linnulitlum
skærum og erjum varðandi ýmsa
hluta samningsins og framkvæmd
hans og almenna umgengni um
húsið. Kemur þar margt til, Loftur
og Jón telja að stofnunin hafi van-
rækt greiðslur til þeirra, skuldi þeim
fyrir hita og hafi skuldað húsaleigu
á tímabilinu til skemmri tíma, gangi
illa um húsnæðið og fleira. Siglinga-
málastjóri og lögfræðingur hans
vildu lítið um málið segja annað en
það að þau teldu að stofnunin hefði
staðið við allt það sem segir í samn-
ingnum og að auki staðið fullkom-
myndir Jim SmartHHBBBBBBBi
lega í skilum varðandi greiðslur á
hita, rafmagni og húsaleigu.
ÁFRAMHALDANDi
MÁLÞÓF
Ljóst er að standa mun málþóf
milli deiluaðila lengi enn. Þegar hef-
ur verið krafist útburðar af hálfu
leigusala í þrígang, en alltaf verið
synjað. Leigusamningnum, sem að
öllu óbreyttu hefði átt að gilda til
ársins 1992, hefur verið rift og eru
þeir feðgar ákveðnir í að koma Sigl-
ingamálastofnun út úr húsinu. Hið
opinbera stendur þó fast á sínu og
telur að það hafi staðið við skyldur
sínar gagnvart lei • ala og fer þvi
hvergi. Málið er fL enda stendur
þar fullyrðing ge ullyrðingu og
að auki virðast de lilar ekki vera
sammála um túli í hinum upp-
runalega leigu ngi. Þannig
vildu fulltrúar 1 ika halda því
fram að ákvæði nningi um að
þeim sé heimilt a ia upp sérhita-
mæla ef þau þ<. ,ka væri ekki
bindandi og þe.i ■ æri það ekki
skylt. Jón Loftsso<< neldur hinsveg-
ar því gagnstæða fram, að þeim sé
það skylt að setja upp sérmæli fyrir
heitt vatn og faðir h is telur að þeg-
ar samningurinn • gerður hafi
það verið ljóst að skyldi verða.
Þeim feðgum finnsi iál til komið að
verkið verði klárac nda séu komin
7 ár frá samnings ðinni. M.a. af
þeim sökum hafa skrúfað fyrir
heita vatnið til Si. ngamálastofn-
unarinnar, en af k.. i stofnunarinn-
ar til fógetaaðgerö. í vatnsmálinu
má sjá að hún er <essu algerlega
ósammála. Það er ] í allt útlit fyrir
að deilurnar un< eiguhúsnæðið
haldi áfram þótt æigendur telji
sig hafa rift leigusa. ingnum á lög-
legan hátt.
HELGA
'URINN 29