Helgarpósturinn - 06.08.1987, Qupperneq 35
FRÉTTAPÓSTUR
Ísskot/Icescot
Pyrrum framkvæmdastjóri skoska fisksölufyrirtækisins
Icescot hefur verið kærður af nokkrum meðeigendum sín-
um fyrir meint auðgunarbrot. Maðurinn er einn stærsti
hluthafi fyrirtækisins auk þess að vera stjórnarformaður
og einn eigandi ísskot, en Icescot er einn stærsti hluthafinn
í því fyrirtæki. Rekstur fyrirtækisins hefur ekki gengið sem
skyldi og varð það til þess að óánægðir hluthafar tóku dag-
legan rekstur í sínar hendur og hófust handa við að endur-
skipuleggja hann. Framkvæmdastjórinn er sakaður um að
hafa notað fjármuni fyrirtækisins til að greiða persónuleg-
ar skuldir og einnig að hafa skammtað sjálfum sér heldur
mikil laun. Einnig eru til rannsóknar hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins viðskipti framkvæmdastjórans við bróður
sinn. Framkvæmdastjórinn fyrrverandi hefur nú leikið
mótleik og kært núverandi framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins og sakað um fiskstuld og stuld á hrognum og lifur.
Guðmundur J. Guðmundsson
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar og fyrrum þingmaður Alþýðubanda-
lagsins, hefur nú sagt sig úr flokknum, en hann hefur verið
í Alþýðubandalaginu og áður Sósialistaflokknum í alls 43
ár. Ástæðuna fyrir úrsögninni kveður Guðmundur vera hið
leiðinlega andrúmsloft sem riki nú i flokknum. Guðmund-
ur hefur ekki verið virkur meðlimur í rúmlega ár en hann
studdi þó flokkinn í síðustu kosningum þó hann tæki ekki
þátt í kosningabaráttunni beint.
Brugg
í siðustu viku geröi lögreglan upptæka afkastamikla
bruggverksmiðju í Breiðholti. Lagði lögreglan hald á um 600
lítra af bruggi og um 88 lítra af áfengi. Var styrkleiki þess
allt frá 40% upp í nær hreinan vinanda sem mældist 90%.
Mennirnir, sem eru fimm talsins, hafa játað að hafa lagt í
um 1720 litra þegar allt er talið. Gangverðið á áfenginu var
venjulega um 1000 krónur fyrir 1,5 lítra.
Hvalastofninn
Um þessar mundir er að ljúka hér við land umfangsmik-
illi hvalatalningu og hafa verið taldir 4000 hvalir. Þessi taln-
ing er unnin i samvinnu við Norðmenn, Færeyinga, Dani og
Spánverja og er ætlunin aö kynna niðurstöðurnar sem fást
á næsta fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins en hann verður hald-
inn í maí á næstaári. Sérfræðingar sem unnið hafa við þessa
talningu telja langt frá því að hvalurinn sé að deyja út eins
og ýmis náttúruverndarsamtök halda fram.
Verslunarmannahelgin
Mesta ferðahelgi landsins var um síðustu helgi með til-
heyrandi útihátíðum og flakki. Fjölmennasta útihátíðin var
i Húsafelli, þar sem talið er að um 10.000 manns hafi verið
að skemmta sér þegar mest var, og næstfjölmennasta hátíð-
in var þjóðhátiðin i Vestmannaeyjum og voru þar um
7—8000 manns. Fámennasti staðurinn var án efa Gaukur-
inn i Þjórsárdal þar sem varð að aflýsa auglýstri dagskrá
vegna mannfæðar. Annars gekk helgin stórslysalaust fyrir
sig, jafnvel þó fólk hafi bleytt svolítið upp í innyflunum.
Eiturlyfjasmygl
Handteknir hafa verið í Svíþjóð fjórir íslendingar sem
grunaðir eru um fíkniefnasmygl. Mál þetta kom upp þegar
53 ára gamall íslendingur var handtekinn fyrir að hafa i fór-
um sínum 1,3 kíló af amfetamíni í Kaupmannahöfn. Tveir
Islendinganna verða framseldir til Kaupmannahafnar en
hin tvö sitja nú i gæsluvarðhaldi í Malmö í Svíþjóð.
Sviptur réttindum
Bygginganefnd Reykjavíkur hefur svipt Ólaf S. Björnsson
húsasmíðameistara leyfi til þess að undirrita bygginga-
nefndarteikningar og þar með leyfi til starfa í Reykjavík,
vegna brota á byggingareglugerð við framkvæmdir við Ham-
arshúsið svokallaða á Tryggvagötu 4—6. Ólafur mun hafa
breytt verulega samþykktum teikningum við endurbygg-
ingu hússins og ekki staðið við skuldbindingar sínar við eig-
endur íbúða í húsinu. í dómsorði var meðal annars kveðið
svo á að Ólafur skyldi sjá til þess að nýir menn tækju að sér
að ganga frá því sem bygginganefnd finnst á vanta og skal
þeim framkvæmdum lokið eigi siðar en 26. ágúst, annars
komi til dagsektir að upphæð 10.000 krónur. Einnig fékk
hönnuður lagna og pípulagningameistari alvarlega áminn-
ingu.
• Skattskrá fyrir áriö 1987 var lögð fram á fimmtudaginn
í síðustu viku. Skattakóngur Reykjavikur er sem fyrr Þor-
valdur Guðmundsson forstjóri, en það fyrirtæki sem greiðir
mest allra í opinber gjöld er íslenskir aðalverktakar í Kefla-
vik og þurfa þeir að greiða 153,2 milljónir á árinu.
• Nýtt hótel hefur verið opnað í Reykjavík og tilheyrir það
Holiday Inn-hótelkeðjunni. Þetta er fyrsta Holiday Inn-
hótelið sem opnað er á Norðurlöndum.
• Þann 8. september næstkomandi verður tekin í notkun
ný 50 krónumynt og er við því að búast að seðlarnir taki að
hverfa upp frá því.
• Nýtt megrunaræði hefur gripið um sig hér á landi og er
það fólgið í því að fólk fastar í einhvern tíma og fær sér síðan
stólpípu kvölds og morgna. Þetta hefur valdið því að pípurn-
ar eru að seljast upp í bænum.
• Markaður fyrir íslenskan fisk hefur hrunið í Þýskalandi
í kjölfar þess að þýskir fjölmiðlar skýrðu frá því að eitraðir
ormar hefðu fundist í fiski frá Danmörku sem veiddur er i
Norðursjónum. Talið er að það taki nokkurn tíma að byggja
markaðinn upp aftur.
• Sauðfé á landinu hefur fækkað um 18% á síðastliðnum 10
árum.
• Tíu prósenta söluskattur á matvöru gekk í gildi þann 1.
ágúst og þurftu margir sem starfa við verslunarstörf að eyða
verslunarmannahelginni og frídegi verslunarmanna við
það að verðmerkja vörur upp á nýtt.
os
Langholtsvegi 109
(í Fóstbræðraheimilinu)
Sækjum
og sendum
Greióslukorta
þjónusta
Sími 688177
Tökum hunda ígœslu
til lengri eða
skemmri dvalar
Hundagæsluheimili
Hundavinafélags fslands og
Hundaræktarfélags fslands
Arnarstöðum, Hraungerðishreppi
801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030
KERASTASE
'FRÁ L’ORÉAL PARÍS
ÁTT ÞÚ í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ.
LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU-
MEISTARANUM.
SPURÐU HANN UM KERASTASE.
FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM.
HELGARPÓSTURINN 35