Helgarpósturinn - 06.08.1987, Side 36

Helgarpósturinn - 06.08.1987, Side 36
lHSeins og kunnugt er verður Kringlan opnuð í næstu viku. Ein helsta skrautfjöður þessarar dýrustu og stærstu verslunarmiðstöðvar landsins (og víðar, segja sumir) er veitingastaðurinn Hard rock café sem Tómas Tómasson, kenndur við hamborgara, rekur. Tómas á reyndar ekki nema lítinn hluta firm- ans sjálfur, sem er í meirihlutaeign Vífilfells, sem býr til kók, og Sig- urðar Gísla Páimasonar hjá Hag- kaupum. Hard rock café er sem menn vita alþjóðieg veitingakeðja og munu forráðamenn hennar hafa komið hingað til lands á dögunum til að líta augum þennan nýjasta hlekk — og orðið hálfhverft við. Sagt er að oft hafi þessir menn litið fagra sali en aldrei sem nú, því þeir hafi fullyrt að þetta íslenska útibú veitingakeðjunnar vaeri það glæsi- legasta og fullkomnasta sem þeir hefðu augum litið. Fylgir sögunni að mennirnir kalli ekki allt ömmu sína í þessum efnum. Heildarkostnaður við íslenska Hard rock café-staðinn mun enda vera milli 120 og 130 milljónir króna að því er heimildir HP herma — og hefur verið byggt fyrir minna fé á Fróni.. . Þ að hefur ekki farið fram hjá mörgum að Kringlan verður opn- uð þann 13. ágúst. Þeir sem búist hafa við ærlegu „flugstöðvarsvalli" geta farið að tína til vasaklútana og búa sig undir mikil vonbrigði. Hag- kaupsmenn ætla nefnilega að bregða út af viðtekinni venju, sem Góða helgi! Pú átt það skilið SS pizzahosi ð Grensásvegi 10, 108 R. S:39933 felst í óhóflegri kokkteiladrykkju, ræðuhöldum og þvíumlíku, og hafa ,,bara“ morgunkaffi. Á boðstólun- um verður kaffi, te og djús svo og eitthvert brauð sem rúmast án telj- andi vandræða í lófa fullvaxins manns. Þetta morgunkaffi er haldið af aðstandendum Kringlunnar og eru það starfsmenn og eigendur ásamt fylgdarmönnum þeirra sem munu gera sér glaðan morgun á þennan máta. Þetta mun verða eitt- hvað um þúsund manns. Engin ræðuhöld eru á dagskrá nema ef svo færi að menn fylltust einhverri mikilli þörf til að tjá sig eftir aila kaffidrykkjuna þá er þeim frjálst að biðja um orðið. Morgunkaffið hefst nákvæmlega klukkan 8.15 en hin- um almenna borgara verður leyft að skoða herlegheitin upp úr klukkan tíu, en þá mun Pálmi Jónsson klippa á þennan klassíska borða. .. A ^^TBkðalballstaðurinn a Selfossi er Inghóll og undir sama hatti er grillstaðurinn Þórsnesti. Eftir síð- ustu bæjarstjórnarkosmngar var bæjarstjórinn, Stefán Ómar Jóns- son, ekki endurr;áðinn, meðal ann- ars vegna „pólitísks litarháttar" og deilna við hitaveitustjóra bæjarins. Síðar kom svo í ljós umdeildur samningur hans við fyrrverandi meirihluta um kaup á húsnæði hans á uppsprengdu verði. Eftir að mestu Iætin voru gengin yfir var Stefán Omar ráðinn framkvæmdastjóri Inghóls og Þórsnestis. Þar hugðist hann taka reksturinn föstum tökum en hefur átt við sífelld stjórnunar- vandamál að etja og flestallir eldri starfsmenn hafa hætt. Og nú kom að því um síðustu helgi að sjálfur Stefán Ómar sagði upp og gekk út. Það ætlar ekki af manninum að ganga. . . ins og skiljanlegt er hafa menn reynt að spá í hvað hið nýja bankaráð Alþýðubankans og þá einkum formaðurinn, Ásmundur Stefánsson, ætli með bankann. Ein kenningin er sú að þar sem Magnús Geirsson sé að tapa áhrifum í Raf- virkjafélaginu sé stefnt að því að hann fái einhvern bitling hjá bank- anum. Önnur kenning hljóðar svo að nota eigi Alþýðubankann sem skiptimynt til að koma KRON og Miklagarði i góð viðskipti hjá ein- hverjum af hinum bönkunum. Þessi fyrirtæki standa ekki ýkja vel og ef þau fengju skell sæti Þröstur Ólafsson, formaður KRON og stjórnarformaður Miklagarðs, uppi með skömmina. . . ■ rá því var rækilega skýrt í fjöl- miðlum hversu vel verslunar- mannahelgin hefði farið fram. Ein- hverjum þótti þó nóg um atganginn” i Húsafelli — hryllilegan drykkju- skap ungs fólks, sem lá eins og hrá- viði um svæðið, ælandi og ömurlegt á að líta, eins og Tíminn komst að orði. (Hefur maður ekki heyrt þetta áður?) Á föstudagskvöldið, fyrsta dag Húsafellshátíðar, var sagt frá unglingspilti sem fluttur var á spít- ala í Reykjavík vegna ofneyslu lyfja þar uppfrá. Nú hefur Heigarpóstur- inn frétt að lyfið sem ungi maðurinn bruddi í gríð og erg hafi verið töflur sem ætlaðar eru gegn flogaveiki, en síður tii upplyftingar. Og jú, piltur var fluttur til Reykjavíkur með mikilli viðhöfn. Ekki skilst okkur þó að honum hafi orðið meinna af en svo að hann var kominn út af spítal- anum fáum klukkutímum síðar og mættur upp í Húsafell daginn eftir, hressastur manna. . . FRAMDRIFSBILL Á UNDRAVERÐI Lada Samara hefur alla kosti til að bera sem íslenskar aðstœður krefjast af fólksbíl, í utanbœjar- sem innanbœjar akstri. Það er ekki að ástœðulausu sem Lada Samara er metsölubíll, því verðið er hreint undur og ekki spilla góð greiöslukjör. Lada Samara 5 gíra kr. 265.000.- Lada Samara 4 gíra kr. 249.000.- I Opið alla daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá 1 10—\ Beinn sími söludeildar 31236 I VERIÐ VELKOMIN i Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur 36 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.