Helgarpósturinn - 29.10.1987, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 29.10.1987, Blaðsíða 3
verið að ryðjast inn á markaðinn í V- Evrópu þessi árin og íslendingar kynnst þeim þar, auk þess sem ferð- um íslendinga til Austurlanda fjær hefur fjölgað mjög og margir kynnst þessari matargerðarlist á uppruna- legum slóðum. En Peggý á allan heiðurinn af því að þetta skyldi verða að veruleika. Ég var hrifinn af hugmyndinni, en óaði alltaf við áhættunni. Hún kýldi á þetta — og dæmið sýnist ætla að ganga upp. En hvaö er þaö, sem fœr tvo líf- og efnafrœöinga frá Vestmannaeyjum og Guyana, menntaöa í Bandaríkj- unum, til aö setja á fót og reka ind- verskan matsölustaö í Reykjavík? VERKFALL OG MISGENGI Það eru nú tilviljanir og kringum- stæður sem hafa hrundið okkur út í þetta. Ætli kennaraverkfallið ‘85 hafi ekki riðið baggamuninn. Af- staða mín til þess var svolítið tví- bent. Annars vegar ofbauð mér verkfallið sjálft og fannst það ósann- gjarnt gagnvart nemendum. Hins vegar ofbuðu mér þau kjör sem kennurum var boðið upp á. Ég yfir- gaf kennsluna og fór að vinna hjá fyrirtækinu Entek í Hveragerði. Þetta fyrirtæki framleiðir gúmmí- slöngur og ég fór á námskeið á þeirra vegum í Englandi í áveitu- verkfræði. Starfaði svo hjá því eftir heimkomuna sem sölumaður og tæknilegur ráðgjafi. Um svipað leyti seldum við íbúð- ina okkar og keyptum okkur raðhús uppi í Mosfellssveit. Og þá lentum við í því sama og margir aðrir: Lánin hækkuðu og hækkuðu á sama tíma og íbúðaverðið hrundi. Það varð því að taka heljarstökk út í óvissuna til að bjarga því sem bjargað yrði. ALÞJÓÐLEG FJÖLSKYLDA Það hafði verið draumur minn allt frá 78, þegar ég kom hingað fyrst að setja hér upp indverskan mat- sölustað. Nú þegar sá draumur er orðinn að veruleika lít ég alla tilver- una bjartari augum. Eg kem úr stórri fjölskyldu. Mamma og ein systir mín búa nú í Vancouver í Kan- ada. Ein systirin býr í Kaliforníu, tvær hafa búið í London í yfir tutt- ugu ár. Svo á ég systur og bróður hér í Reykjavík. Hann aðstoðar okkur Einar núna við veitingareksturinn. Blaöamaöur rifjar nú upp endur- minningar frá yngri árum þegar Cheddi Jagan og flokkur hans PPP böröust fyrir sjálfstœöi Guyana og hann var í miklu uppáhaldi á vinstri kantinum i stjórnmálunum um all- an heim. CIA OG SÓSÍALISMINN Já honum var komið frá að undir- lagi CIA. En þá tók ekki betra við, hvorki fyrir Bandaríkin né íbúana. Flokkur Burnhams braust til valda og byggði fylgi sitt nær eingöngu á negrunum og andúð á öðrum kyn- þáttum. Hann lýsti Guyana sósíal- ískt lýðveldi og efnahagur landsins hrundi saman. Sjálfur lifði hann í bí- lífi, byggði hallir yfir sig og klíku- bræður sína og ferðaðist um í sérbú- inni einkaþotu, Júmbó 747. Allir sem efni hafa á hafa komið sér í burt og margir þeirra skilið eftir miklar eignir, þar sem ekki er hægt að koma þeim í raunverulegan gjald- eyri. Biðraðir eru við hverja verslun og þó kannski lengstu biðraðirnar við vegabréfaskrifstofurnar og ferðaskrifstofur. Ég ólst upp til 10 ára aldurs hjá afa mínum á eyjunni Leguan í mynni fljótsins Esoquibo. Hann rak búskap, hafði stórar hrísgrjónaekrur, vín- verslun og litla sjoppu. Þetta var dá- lítið frumstætt þarna, t.d. ekkert raf- magn eða önnur nútímaþægindi. Tíu ára gömul fékk ég styrk til skóla- náms í Georgetown. Þaðan fór ég svo til London og fékk þar GCE frá London University. Pabbi og mamma voru þá skilin og hann var orðinn verkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins í St. Thomas. Hann útvegaði mér styrk til náms þar, sem aftur gerði mér kleift að fá styrk til náms í Shippensburg, þar sem við Einar hittumst. Ástandið hefur farið stöðugt versnandi heima í Guyana. Að vísu er Burnham dauður, en gaurinn sem tók við af honum er sama manngerðin, herinn er einkaher valdhafans og lífvörður og einkum beitt gegn íbúum landsins. Þau okk- ar, úr minni fjölskyldu, sem komist hafa úr landi og komið undir sig fót- unum erlendis, hafa rétt hinum hjálparhönd til að sleppa líka og þannig höfum við tfnst úr landi hvert af öðru og dreifst um heiminn. Húsið okkar í Georgetown stendur autt og engin leið að selja það. Kannski rennur einhvern tíma upp betri tíð og einhver okkar geta snúið aftur? Hver veit? Það tók bróður minn 1 1/2 ár að fá vegabréfsáritun og komast úr landi. í gærkvöld uppgötvaði Einar að passinn hans var útrunninn. Hann skrapp niðrí bæ í morgun og hafði kippt þessu í lag eftir klukku- tíma. MEÐ BITRA SVEÐJU Já, segir Einar. Peggý þurfti að standa í alls konar veseni til að ná Tóní bróður sínum út. Ástandið þarna er þannig, að skór kosta mán- aðarlaun fyrir þann sem er svo heppinn að fá atvinnu. Eggið kostar klukkutíma laun. Fyrir sjö árum fór- um við Peggý í heimsókn þangað suðreftir. Ég var með myndavélina í ól um hálsinn eins og venjulega, þegar ég fór með Tóní á markaðinn. Þar hittum við tvo náunga sem ágirntust myndavélina og kváðust vilja kaupa hana. Þegar ég neitaði, spurðu þeir hvort ég vildi gefa hana. Eg neitaði enn. Skömmu síðar vakti Tóní athygli mína á því að þessir ná- ungar fylgdu okkur eftir og var nú annar þeirra kominn með stóra og bitra sveðju í hönd. Allt í einu segir Tóní: Hlaupum. Við tókum til fót- anna og komumst út á nærliggjandi götu, vorum svo stálheppnir að leigubíll átti leið framhjá í sömu svif- um og hentum okkur upp í hann og sluppum með skrekkinn. En þarna skall hurð nærri hælum. Meö þetta kveöjum viö þau hjón og dœturnar tvœr. Þarna hefur tveimur efnafrœöingum tekist aö af- sanna kennisetningu Kiplings og fengiö formáluna til aö ganga upp. Austriö og Vestriö hafa mœst — í Reykjavík. Og sú eining œtti aö bœta svolitlu kryddi í tilveruna fyrir Reykvíkinga. & Sérverslun með svínakjöt KFJINGLAN 8-12 SÍMI 689555 9 P ff JP ; ' r: r:" r r; FIMIVI GOMSÆTIR c IAIIAI1RFTTIRI l# m m\ mm il C I I I mm m þú va um góms sjávar réíti SKELJAGRATSN R/EKJUBÖKUR RÆKJURÚLLUR SJÁVARRÉTTUR MORNAY 0G HIN SÍGILDA SJÁVARRÉTTABAKA MARSKA HELGARPÓSTURINN B-3

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.