Helgarpósturinn - 29.10.1987, Blaðsíða 7
:i. Þessi sjálfvirka vélasamstæða er nýjasta
egur, veröleggur og sker oststykkin af meiri
IAÐURINN
I i
ICEPPNI
í mjókurdrykkju. Eykur
hengi við aukna rauðvínssölu?
En ostaval hefur líka aukist mjög
mikið á allra seinustu árum og Osta
og smjörsalan hefur tekið þátt í al-
þjóðlegum sýningum. Síðast í fyrra
fengu íslenskir ostar viðurkenning-
ar á alþjóðadómssvningi:; r/iácons-
•ttí Bandailkjiinum. Rjómaostur frá
Mjólkurbúi Flóamanna fékk 98 stig
af 100 mögulegum. Gauda-ostur frá
Húsavík fékk 97,6 stig af 100 mögu-
legum og skagfirskur Maribostur
fékk 97,6 stig.
„Við leggjum töluvert uppúr þess-
um samanburði," sagði Óskar. „Við
erum einir á markaðinum hérna og
megum ekki verða of ánægðir með
okkar framleiðlsu. Við þurfum mat
annarra á því sem við erum að
gera."
MJOLKURBU GETA
SAMEINAST!
Osta og smjörsalan er sameign 17
mjólkurbúa, stofnuð 1958 og er því
þrítug. Fyrirtækið sér um að selja
smjör, osta og ýmsar aðrar úr-
vinnsluvörur mjólkurbúanna. Þess-
ir 17 eigendur OSS eru á Selfossi,
Borgarnesi, Búðardal, Patreksfirði,
Isafirði, Hvammstanga, Blönduósi,
Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík,
Þórshöfn, Vopnafirði, Egilsstöðum,
Norðfirði, Djúpavogi og Höfn. Þessi
fjöldi hefur verið óbreyttur síðastlið-
in 20 ár en staðsetning mjólkurbúa
á landinu hefur tekið mið af vega-
kerfi fyrri tíma og margir telja að
þeim megi nú fækka til aukinnar
hagræðingar. Aðspurður út í þessi
mál sagði Óskar að í dag væri af-
kastageta starfandi mjólkurbúa
miklu meiri en þyrfti til innanlands-
neyslu eins og mjólkurframleiðslan
er miðuð við. Auk þess væri vega-
kerfi mun betra en verið hefur og
því væri góður grundvöllur fyrir því
að sameina bú.
Samkvæmt frétt í nýjasta tölu-
blaði Bændablaðsins hafa komið
upp hugmyndir um að mjólkurbú-
unum verði fækkað niður í 7. Þá
verði bú í Borgarnesi, á Akureyri,
Húsavík, Egilsstöðum, Selfossi og
tvö bú á Vestfjörðum. í sömu frétt
segir frá því að sama nefnd og vann
umtalaða sláturhúsaskýrslu fyrr á
árinu er nú með mjólkurbúaskýrslu
á lokastigi vinnslu. Mjólkurbúin
hafa með sér verðmiðlunarkerfi
þannig að hár framleiðslukostnaður
hjá einu greiðist niður af öðru sem
er betur í sveit sett.
HEIMSMET
Heimsmet eru aukageta íslensku
þjóðarinnar og slegin í öllu sem
nöfnum tjáir að nefna. í mjólkinni
stöndum við ansi nærri slíku ef við
höfum pálmann ekki bara í höndun-
um. Ef mjólkurneysla hér er borin
saman við velmegunarþjóðir í ná-
grenni okkar þá erum við fremstir,
með um það bil 205,9 lítra á mann
á ári en Finnar fylgja fast á eftir með
199,4 lítra. Hjá Irurn nemur neyslan
185 lítrum, Norðmönnum 168 og
Svíar eru harla linir við búkollu því
þeir drekka ekki nema 150 lítra á
ári.
Fyrir 15 til 20 árum var mjólkur-
drykkjan meiri, en síðan dróst hún
saman. Það hefur aftur orðið aukn-
ing á allra seinustu árum og þar hef-
ur mikið að segja sú aukning sem
við sögðum frá í ostasölu. Ef til vill
hafa auglýsingar líka haft sitt að
segja. Óskar er formaður Mjólkur-
dagsnefndar sem sér um að kynna
mjólkina og hann taldi allt hafa skil-
að sér; — vöruþróun, auglýsingar
og góður tæknibúnaður til að mæta
kröfum markaðarins.
irum
S og
lasta
GRÆNAR BAlíNíR
SMÁA8
... þær eru svo ómötstæðilegar
þessar litlu, grænu og sætu frá ORA!
HELGARPÓSTURINN B-7