Helgarpósturinn - 22.12.1987, Qupperneq 8
„Menn ráöa náttúrulega ekki öllu þótt þeir
verdi ráðherrar.“ Guðmundur H. Garðarsson
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
##
Ekkert er fólki hagnýtara en
að öðlast góða cflómgreind,
vegnajþess að ef dómgreindin
er ekki í lagi fer allt annað i
vaskinn."
Páll Skúlason
heimspekiprófessor
,.Nú já, ég hef bara verið efnilegur."
Steingrímur Hermannsson
utanrikisráðherra
„Hvað er frétt og hvað er ekki
frétt?"
Ólafur M. Jóhannesson
fjölmiðlarýnir Morgunblaðsins
„Ég myndi aldrei skrifa undir að ég
aðhylltist mannfyrirlitningu. En
það er auðvitað margt voða fárán-
legt og hlægilegt í fari flestra
karaktera."
Einar Kárason
rithöfundur
„Ég er svekktur yfir því að búið er
að brjóta fyrir mér fullt af rúðum."
Guðlaugur Bergmann
kaupmaður
„Alþingi og ríkisstjórnin ættu nú aö
sjá sóma sinn í að létta lestrar-
skattsbyrðinni af bókaþjóðinni um
áramót með því að bæta íslenskum
bókum á undanþágulistann i sölu-
skattsfrumvarpinu."
Ólafur Ragnarsson
útgefandi og formaður Bókasambands
íslands
„Frjálshyggjan á sviði peninga-
mála fer með allt hér til andskotans
ef ekki verður fljótlega gripið í
taumana."
Steingrímur Hermannsson
utanrikisráðherra
Móðirin er sennilega útundir sig, útsmoginn karakter og biður jólasveininn um uppþvottavél eða eitthvað sem barninu kemur vel þegar það stækkar.
Það er ekki hlaupið að því að vera
jólasveinn nú á dögum, sumir krakk-
ar orðnir alltof stórir og nærri því
jafnmikil andleg vigt í þeim og
líkamleg.
Annars skiptir greinilega engu máli
hvort sveinninn er lífs eða liðinn,
þessi er í rólu og vekur greinilega
engu minni eftirtekt yngstu kynslóð-
arinnar.
síðan þeir hættu að vera steluþjófar.
Hægt að ganga að þeim vísum eins
og skóm í skóbúð, sumir halda varla
lagi og bara eitthvað svo púkó. En
samt eitthvað svo sjarmerandi,
kannski er það skeggið, kannski er
það rauði búningurinn eða kannski
bara það að þeir eru svo þekkt
stærð að þeir koma engum á óvart,
svo þægilegt þegar allt er eins og
það hefur alltaf verið.
JÓLASVEINAR Á JÓLUNUM
Jólasveinar einn og átta, sumir
segja að þeir séu þrettán, ofan koma
úr fjöllunum. Afar skemmtilegt
þetta með jólasveinana, svo yndis-
lega rauðklæddir og hvítskeggjaðir
enda eru þeir víst svo helvíti hund-
gamlir en samt ekki eldri en svo að
þeir eru sprækir um hver jól. Samt
svo neyðarlegt þegar einhver þeirra
gleymir að taka af sér tölvuúrið og
sést í það niður undan erminni sem
er aðeins of stutt af því sveinninn
hefur sennilega stækkað siðan í
fyrra. Jólasveinar náttúrlega löngu
orðnir náttúrulausir, áður fyrr voru
þetta hraustir kallar sem stálu og
voru púkalegir og hrekkjóttir. Næst
áttu þeir að vera stórir feitir kallar
með bassaraddir en síðan Jón Sig-
urðsson hætti að gefa sig í að leika
jólasvein í sjónvarpinu hefur eitt-
hvað dregið úr bassanum og jafnvel
komið fyrir að jólasveinninn sé ten-
ór, hafi háa og bjarta rödd. Ekkert
undarlegt við að börnin trúi ekki á
jólasvein sem er tenór. Svo óraun-
verulegt að ímynda sér kall í fjalli
sem ekki hefur djúpa og mikla rödd
svo undir tekur þegar hann syngur.
Asnalegt að setjast á hnéð á lág-
vöxnum manni sem talar eins og
geldingur. Alveg til að drepa niður
alla rómantík í kringum að vera
jólasveinn ef hann er tenór. Skrítið
líka með jólasveinana að þeir virð-
ast aldrei vera nema þar sem eitt-
hvað er skipulagt. Jólasveinn aldrei
birst að óvörum nokkrum manni
„Hvernig á mönnum að detta i hug
að þeir sem stjórna opinberum
stofnunum og forsvarsmenn sveit-
arfélags viti ekki að opinbert fé
kemur fjárlagaráöuneytinu við."
Ragnhildur Helgadóttir
þingmaður Sjálfstæöisflokksins
„Mér þykir mjög vænt um að vera
komin upp fyrir félaga Gorbatsjov,
ég er ánægð með það."
Guðrún Helgadóttir
rithöfundur og alþingismaður
„Það er ekkert launungarmál af
minni hálfu að vinnuframlag Pól-
verja og vinnugleði er mun meiri en
þeirra Islendinga sem við höfum
haft í vinnu um borð í kaupskipum
okkar."
Guðjón Ármann Einarsson
rekstrarstjóri Nesskipa hf.
„Eftirspurnin er fádæma mikil. Við
höfum selt mörg hundruð þvotta-
og eldavélar undanfarna daga."
Karl Eiriksson
forstjóri Bræðranna Ormsson
„Þetta kalla ég hagfræðilegt glap-
ræði og stingur i stúf við skálaræð-
ur ráðamanna þjóðfélagsins, sem
kallað hafa fiskeldið framtíðarat-
vinnuveg þjóöarinnar."
Guðmundur Runólfsson
útgerðarmaður og eigandi laxeldisstöðv-
arinnar Snælax
„Sannfærður um að þörfin er fyrir
hendi."
Ólafur Laufdal
eigandi Hótels íslands
Fortjaldið
HSfsratSjrj-s
eft'rhmn fræga tniarbr^ hér J
spekmg MarPn Bau^ fl|feut ^
uppifrá 1878 hl 1966^, fátœkan
var kynnt sem ævisa
hafði lokið lestri b-/^r #
fannst mér sem ép *3c1jU#W.
manni af annarri ffikruppu sjónvarps-
man ég ekki betijr á bak við fortjaldið
Bauber hafi verijiahöllina. Sesam, Ses-
hina andlegu án'st opnuðust glerhurð-
safn fræðimtytóku ranghalar klæddir
heimsstríðið npistu steinflísum, á einum
hér 'vegna bankastjóramir á tali við
var gyðingurtiatarskattaráðherrum Al-
lengi sem tfksins. Raddir hins íslenska
Jerúsalem./ns, Sigurðar Hauks og Áma
aldimar 'ékki inn fyrir hina bergmáls-
þessum u múra, nei þar ríkti háttvís
virtist ?n líkt og á bókasafni fræði-
„Lýsingarorðið kúbanskur er ólíkt
hljómfegurra en kúbskur og hefur
þar að auki alltaf veriö notað..."
Fréttatilkynning frá Vináttufélagi
Islands og Kúbu
„Ég neitaði að fara á fund rrkis-
stjórnarinnar..."
Karvel Pálmason
þingmaður og varaformaður VMSÍ
„Ég hygg að óhætt muni að full-
yrða, miðað við þróun umferðar á
undanförnum árum um Keflavíkur-
flugvöll, að þess verði ekki langt að
biða að talað verði um stækkun
flugstöðvarinnar."
Matthías Á. Mathiesen
samgönguráðherra
8 HELGARPÓSTURINN