Helgarpósturinn - 22.12.1987, Síða 16
óvart. Það er dásamlega fjölskrúð-
ugt.
ÞJAÐIST AF
FRETTAÞORSTA
Þegar mér var tilkynnt að ég yrði
sendur til íslands hafði ég takmark-
aða þekkingu á þjóðlífinu hérna. En
ég útvegaði mér bækur um sögu
landsins og las það sem ég komst yf-
ir af íslendingasögunum. Þannig afl-
aði ég mér þekkingar, en vitneskja
mín hafði áður takmarkast af því
sem við fréttum um ykkur í Þorska-
stríöunum. T.d. að þið lifðuð mest-
megnis af fiskveiðum. En ég var þó
aldrei á því stigi að halda að þið vær-
uð eskimóar og byggjuð í snjóhús-
um! Ég vissi auðvitað um víkingana
frá Noregi. Þegar við sögðum vinum
og kunningjum frá því að við vær-
um á leið til íslands voru viðbrögðin
öll á einn veg: „Frábært, þá komum
við i heimsókn!" Heimsóknirnar
urðu líka svo margar, að það keyrði
næstum um þverbak. Frá júní og
fram í september ieið t.d. varla sá
dagur, að ekki væri einhver vinur
eða ættingi hjá okkur. Síðustu gest-
irnir voru hérna í október ogJ)eir,
sem komu lengst að, voru frá Astra-
líu og Sudur-Aíríku. Allir sögðust
hafa látið sig dreyma um að koma til
íslands og fyrst þeim stóð til boða
ókeypis gisting, nú þá létu þeir auð-
vitað verða af því. Ég býst fastlega
við því að þetta verði eins hjá okkur
næsta sumar.
Það er víða meira félagslíf í tengsl-
um við utanríkisþjónustuna en hér á
íslandi, en við hjónin höfum þó nóg
við að vera. Á sumrin förum við í
gönguferðir niður í fjöru, könnum
ókunna dali og leitum að fossum. Á
veturna er mun meira um að vera.
Við höfum mjög gaman af tónlist og
maður gæti auðveldlega verið á
tónleikum alla daga vikunnar! Þeg-
ar færi gefst förum við líka á göngu-
skíði, en við látum brekkurnar eiga
sig. Hins vegar hefur ekki verið mik-
ill snjór frá því að við komum. Ég les
þar að auki mikið á veturna og ein-
staka sinnum sauma ég líka út. Það
er tómstundaiðja, sem ég komst upp
á lagið með í Áfríku fyrir allnokkr-
um árum. Ég veiktist og varð að
liggja í rúminu í sex vikur og mér
leiddist alveg óskaplega. Þá fór ég
að leggja stund á útsaum. Það er
einstaklega róandi.
Fyrir tveimur mánuðum festi ég
kaup á gervihnattamóttökutæki og
get séð 6 erlendar sjónvarpsstöðvar.
Ég fékk nefnilega ekki svalað frétta-
þorsta mínum nægilega, því það
getur verið erfitt að ná breska út-
varpinu og blöðin eru um fimm
daga á leiðinni. Og ég er ekki orð-
inn nógu góður í íslensku til þess að
geta notfært mér sjónvarpsstöðv-
arnar ykkar og dagblöðin aö ein-
hverju gagni. Tungumálaerfiðleik-
arnir hafa líka komið í veg fyrir að
við færum í leikhús hérna, nema
hvað við sáum Land míns födur hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Okkur tókst
sæmilega að fylgja þræðinum, enda
var mikið um tónlist og söng."
Að endingu bað ég sendiherrann
að draga saman annars vegar það
jákvæða og hins vegar það nei-
kvæða við að dvelja á Islandi. Mark
Fenger Chapman leysti vitaskuld úr
þeirri þraut með sömu elskulegheit-
unum og öllum öðrum spurningum
blaðamanns:
„Það jákvæða tengist hiklaust
náttúrunni hérna. Náttúrufegurðin
er alveg einstök, uppspretta
ómældrar ánægju. Ef ég á að nefna
eitthvað neikvætt væri það líklega
fjarlægðin frá Bretlandi og megin-
landi Evrópu. Þó ekki hvað varðar
tímalengd, heldur ferðakostnað.
Svipað flug innan Evrópu er oftast
mun ódýrara en fargjaldið milli ís-
lands og annarra landa. Þess vegna
finnur maður til svolítillar einangr-
unar og þetta er á vissan hátt haml-
andi. Maður hoppar ekkert upp í
flugvél hérna nema hafa ærna
ástæðu til þess!“
Við óskum landsmönnum gleðilegra jóla,
árs og friðar og þökkum samstarfið
á árinu sem er að líða.
BRunnBðniFÉLDG jsumos
BI
LÍFTRYGGING
GAGNKVÍMT TRYGGINGAFÉLAG
VERÐ KR.
300.00
SÍMAHAPPDRÆTTI
STYRKTARFÉLAGS LAMAÐRA OG
miði nr.. ?????? FATLAÐRA 1987
Vinningar: 11 BIFREIÐAR SAMTALS AÐ VERÐMÆTI5 MILUÓNIR KRÓNA
1. vinningur VOLVO 244
2. -6. vinningur NISSAN SUNNY SEDAN
7.-11. vinningur NISSAN MARCH GL.
I VOLVO
NISSAN SUNNY
NISSAN MICRA GL
DREGIÐ 24. DESEMBER 1987
UPPLÝSINGAR í SÍMA 686690 OG Á SKRIFSTOFU FÉLAGSINS í SÍMA 84999
DRÆTTI HEFUR ALDREI VERIÐ FRESTAÐ
16 HELGARPÓSTURINN