Helgarpósturinn - 22.12.1987, Qupperneq 17

Helgarpósturinn - 22.12.1987, Qupperneq 17
Egill Ólafsson sem aðalsögupersónan Jean Val Jean á hér í höggi við fjandmann sinn, lögreglumanninn Javernier, sem leikinn er af Jóhanni Sigurðarsyni. Opnar nýjan heim í leikhúsinu Á annan dag jóla frumsýnir þjóö- leikhúsiö Vesalingana eftir sögu franska rithöfundarins Victors Hugo. Þessi sýning er á margan hátt óvenjuleg, hún er ekki eins og hefd- bundin leiksýning, ekki hetdur eins og söngleikur eða ópera. Einhvers staðar þarna mitt á milli standa Vesalingarnir, ein vidamesta, ef ekki sú viðamesta, uppfœrsla sem Þjód- leikhúsid hefur fœrst í fang. Um þrjátíu leikarar, tuttugu manna hljómsveit og svo allir hinir sem standa aö tjaldabaki. Benedikt Árnason leikstjóri hefur haldið utan um allt heila galleríið: Það urðu margir til þess að segja við okkur að þetta væri ekki hægt. Að við gætum ekki mannað sýning- una, að hún væri of flókin tækni- lega, bæði hljóðið og leikmyndin. Ég vona að annað komi í ljós. Það er reyndar skemmtilegt að við notum í þetta eingöngu fólk úr Þjóðleikhús- inu, sýningin er byggð í kringum okkar leikara, og aðrir sem við sögu koma hafa allir komið hér við áður. En þaö er rétt, sýningin er feikna- lega flókin, t.d. hvað varðar hljóð og hljóðblöndun. Það er ekki í henni eitt einasta talað orð og það tók leik- arana langan tíma að átta sig á sam- spili leiksins og söngsins og finna leiktaktinn sem passar við músík- ina. Við kynntum verkið síðastliðið vor en að vísu var þýðingin ekki til- búin þá. Síðan hófum við æfingar í haust en við höfum ekki haft allan hópinn saman nema síðustu tvo mánuði eða svo.“ — Er þetta með erfiðari verkefn- um sem þú hefur fengist við? ,,Ja, einhvern veginn hefur maður þjálfað sig upp og haft það mottó að hvert verkefni væri það skemmti- legasta sem maður hefur fengist við. Það er eina leiðin til að vinna verkið eins og það á skilið. Það má kannski segja að í Vesalingunum hafi verið fleiri þræðir sem þurfti að hnýta saman — eins og ég var að segja er hvert orð sungið sem er óvanalegt og það skapar önnur vandamál. Leikararnir eru bundnari en ella. Músíkin og textinn gera miklar kröf- ur til aga í túlkun, það er ekki hægt að spinna sig áfram, og þetta gerir kröfur til mikillar tækni, bæði í söng og leik. Venjulega er annaðhvort söngurinn eða leikurinn ofan á en þarna verður þetta að vera í jafn- vægi. Við höfum reynt að lita allan sönginn með leik, það er nauðsyn- Benedikt Árnason: — Margir urðu til að draga úr okkur kjarkinn. legt til sagan komist til skila. Við erum jú fyrst og fremst að segja sögu á eins trúverðugan hátt og unnt er innan ramma texta og tón- listar." — Þekkirðu eitthvað til upp- færslnanna á Vesalingunum erlend- is? „Já, ég sá sýninguna í London og varð yfir mig hrifinn af því að hægt skyldi vera að taka svona merkilega klassík og gera úr henni nútímaleg- an söngleik þar sem hvergi er horfið frá kjarna sögunnar. Þetta er ótrú- lega trúverðugur Victor Hugo. Mér fannst eins og það væri að opnast nýr heimur í leikhúsinu með þessari ensku uppfærslu á Vesalingunum þar sem tekin eru klassísk verk og spunnið í kringum þau án þess að glata inntakinu um leið og menn nota sér músíkina á dramatískari hátt en gert hefur verið. En varðandi það hvort okkar upp- færsla sé á einhvern hátt eins og þær sem settar hafa verið upp er- lendis þá er ég ekki dómbær á það. Það sem líkist, ef það líkist, er senni- lega ekki annað en að verið er að segja sömu söguna. Hins vegar kemur okkar túlkun ekki að utan, við höfum algerlega óbundnar hendur nema hvað við fylgjum text- anum og tónlistinni. Leikmynd, búningar, lýsing og fleira er allt öðruvísi." Eins og fyrr sagði er frumsýningin annan í jólum og ljóst er að sýningar verða margar því þegar er búið að selja miða alveg fram í mars. það er enda ekki ástæða til annars en að hvetja fólk til að drífa sig í leikhúsið því hér er á ferðinni alveg hreint stórskemmtileg sýning. 1 helstu hlutverkum eru Egill Ólafsson, Sverrir Guðjónsson, Sigrún Waage, Edda Heiðrún Backman, Aðalsteinn Bergdal, Ragnheiður Steindórsdótt- ir, Sigurður Sigurjónsson og Lilja Þórisdóttir. íslensk þýðing er eftir Böðvar Guðmundsson, hljómsveit- arstjóri er Sæbjörn Jónsson, Agnes Löve var æfingarstjóri tónlistar, dansa samdi Ingibjörg Björnsdóttir, leikmyndir og bdninga gerir Karl Aspelund, lýsing er eftir Pál Ragn- arsson og hljóðblöndun er í höndum Jonathans Dean, en hann hefur unnið að hljóðblöndun verksins bæði í Bandaríkjunum og á Bret- landi. KK HELGARPÓSTURINN 17 Skuplukonur sameinast í söng og virðast ekki hýreygar.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.