Helgarpósturinn - 22.12.1987, Page 22
Af afrekum ársins
EFTIR ÞÓRMUND BERGSSON
KNATTSPYRNA OG HAND*
BOLTISKARA FRAM ÚR
Um þetta leyti á ári huerju líta
menn gjarnan um öxl og kanna at-
burdiþess árs sem senn er ad Itda og
reyna aö gera sér grein fyrir afrek-
um einstakra íþróttamanna og
-greina, gjarnan til þess aö komast
ad nidurstödu um hvar mestu afrek-
in uoru unnin. Eins og sönnum
bladamanni sœmir um áramót œtla
ég líka ad renna mér í nokkur þau
íþróttaafrek sem mér finnst standa
upp úr á þessu ári. Listi eda upp-
talning sem þessi verdur aldrei tœm-
andi huad þá að menn séu sammála
um huer séu mestu afrekin eða af-
reksmennirnir. Eftir áramót munu
Samtök íþróttafréttamanna útnefna
íþróttamann ársins 1987 ogþá kem-
ur uœntanlega í Ijós huern eða
huerja þessir menn, sem stöðugt eru
í snertingu við íþróttirnar, velja sem
afreksmanneskju ársins.
Á afrekalistanum hafa tvær
íþróttagreinar skarað fram úr á
þessu ári. Knattspyrna og hand-
knattleikur. Á undanförnum árum
hafa keppnismenn í einstaklings-
greinum skarað fram úr og unnið til
verðlauna þeirra er íþróttafrétta-
menn veita ár hvert. Nú virðist sem
sagt komið að einhverjum úr hóp-
íþróttagreinum. Hvort það verður
handknattleiksmaður eða knatt-
spyrnumaður er ekki gott að segja,
en vissulega má búast við að ein-
staklingar úr þessum íþróttum setji
mark sitt á vai íþróttamanns ársins
ásamt mörgu ágætu afreksfólki.
íslenska landsliðið í knattspyrnu
stóð sig um margt með ágætum á
árinu. Liðið fékk að vísu slæman
skell gegn A-Þjóðverjum á Laugar-
dalsvelli sem frægt er orðið en tveir
sigrar á frændum vorum Norð-
mönnum með stuttu millibili urðu
þess valdandi að iiðið fékk fleiri stig
í riðli til Evrópukeppninnar en fyrr
og sigraði á útivelli, sem er afrek hjá
okkar knattspyrnulandsliði. Þá stóð
ólympíuliðið sig með eindæmum
vel og þar setti vissulega svip sinn á
að leikmenn voru flestir úr 1. deild-
inni hér á landi, sem fór fram með
miklum ágætum í sumar. íslensku
félagsliðin stóðu sig ágætlega í
Evrópukeppninni nema Frammar-
ar, sem mættu algjörum ofjörlum
sínum. Bæði Skagamenn og Valsar-
ar áttu góða möguleika á að komast
í aðra umferð en voru óheppnir.
Af þeim einstaklingum sem bar
hvað hæst í knattspyrnunni á árinu
má nefna Arnór Guðjohnsen, sem
varð belgískur meistari með liði
sínu Anderlecht og varð bæði
markahæsti leikmaður í Belgíu og
kosinn besti leikmaður deildarinn-
ar. Frábært afrek sem vissulega
svipar til afreks Ásgeirs Sigurvins-
sonar er hann leiddi Stuttgart til sig-
urs í þýsku 1. deildinni og hlaut að
Iaunum titiiinn íþróttamaður ársins
á íslandi. Á innlendri grund spilaði
Pétur Ormslev mjög vel í sumar og
leiddi sína menn til sigurs í bikar-
keppni KSÍ. Ekki síðri voru Vals-
mennirnir Sævar Jónsson og Guðni
Bergsson, sem leiddu Valsmenn til
sigurs á íslandsmótinu, og þá má
ekki gleyma Pétri Péturssyni og
Ólafi Þórðarsyni, sem báðir spiluðu
mjög vel i sumar. Pétur fyrri hluta
sumarsins en Ólafur síðari hlutann.
Þá má heldur ekki gleyma Gunnari
Gíslasyni, sem varð norskur meist-
ari, og Bjarna Sigurðssyni, sem
varði mark Brann af snilld, sem
varð til þess að honum bauðst staða
hjá fyrrum Evrópumeisturum
Gautaborgar.
Handknattleiksmenn okkar voru
í sviðsljósinu allt árið með þátttöku
á afar sterkum mótum um allan
heim. Liðið sigraði m.a. Júgósiava á
heimavelii þeirra og lagði A-Þjóð-
verja að velli í sömu keppni. Liðið
sýndi svo ekki verður um villst að
það er í hópi 6—10 bestu handknatt-
ieiksliða heims og þeir piltar sem
spila með liðinu leggja alveg ótrú-
lega mikið á sig. Æfingar eru eins og
hjá atvinnumönnum og leikir spil-
aðir í kippum svo stundum virðist
manni sem of mikið sé lagt á pilt-
ana. Okkar menn hafa náð mjög
góðum árangri með þeim liðum
sem þeir spila með. Kristján Arason
spilar með sterkasta liði Þýskalands
og hefur m.a. fengið þann dóm hjá
kunnum handknattleiksmanni að
hann sé besti leikmaður í heimi!!
Alfreð Gíslason varð þýskur meist-
ari með Essen og skarar fram úr í
þýskum handknattleik þar sem fé-
Iagsiið standa mjög framariega.
Leikmenn eins og Þorgils Óttar, fyr-
irliði islenska landsliðsins, og fleiri
leikmenn sem spila hér á heimavelli
hafa staðið sig með afbrigðum vel
*og handknattleikurinn sjaldan verið
betri eða meira spennandi en ein-
mitt nú. Margir ungir leikmenn eru
einnig að koma upp og framtíðin
ætti að vera björt sé haldið rétt á
spöðunum.
Af öðrum afrekum má nefna frá-
bæra frammistöðu Jóns Páls Sig-
marssonar, sem skellti hverjum ris-
anum af öðrum í kraftakeppni bæði
hér á landi og erlendis. Hann er jú
sterkasti maður heims og reyndar
heldur meira en það. Jón er líka
skemmtilegur keppnismaður og
helgar sig íþrótt sinni af alúð.
Pétur Guðmundsson spilar í NBA-
deildinni í körfuknattleik í Banda-
ríkjunum og það að komast á bekk-
inn þar er mikið afrek. Pétur gerir
enn betur og er einn af aðalmönn-
unum í liði San Antonio Spurs, sem
gengur betur en efni stóðu til í deild-
inni. Aðrir körfuknattleiksmenn
hafa nú ekki skilið eftir sig slóð af-
reka, en þó má ekki gleyma liði
Njarðvíkinga sem tapar varla leik
undir stjórn Vals ingimundarsonar
utan vallar eða innan.
Eðvarð Þór Eðvarðsson sund-
kappi er í hópi bestu Evrópubúa í
baksundi og vann mörg gullafrek á
þessu ári. Hann er okkar fremsti
sundmaður ásamt Ragnheiði Run-
ólfsdóttur sem einnig vann mörg
frábær afrekin.
Bjarni Friðriksson júdókappi virð-
ist vera að ná sér á strik í júdóinu nú
seinnipart ársins en tryggir sér þó
varla nein verðlaun út á það. Einar
Vilhjálmsson átti um tíma Norður-
landametið í spjótkasti í sumar en
hafði að öðru leyti heldur hægt um
sig. Vésteinn Hafsteinsson komst á
skrá yfir bestu kringlukastara heims
en aðrir frjálsíþróttamenn voru í ró-
legri kantinum.
Þessi upptalning gefur okkur að-
eins innsýn í það sem ég man eftir
í fljótu bragði að setti svip sinn á
þetta íþróttaár. Ég vil endurtaka það
sem ég sagði fyrst að hópíþróttirnar
handknattleikur og knattspyrna
sköruðu nokkuð fram úr á árinu og
kæmi mér ekki á óvart þó einhver
innan þeirra raða hreppti titilinn
Iþróttamaður ársins hjá íþrótta-
fréttamönnum.
■
141 *|fíj
IpÍpl
^|h|
22 HELGARPÓSTURINN