Helgarpósturinn - 22.12.1987, Qupperneq 23
FRÉTTAPÓSTUR
Lánsloforð seld
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagði á Alþingi
á miðvikudag, að vitað væri um sölu 148 einstaklinga á láns-
loforðum Byggingarsjóðs ríkisins, samtals að upphæð 150
milljónir króna. Afföll i sölu næmu samtals 12 milljónum og
sölulaun 3 milljónum. Rýrnun við sölu væri því samtals 15
milljónir króna. Þessar upplýsingar komu fram þegar hús-
næðisfrumvarp ríkisstjórnarinnar var til fyrstu umræðu í
efri deild Alþingis. Jóhanna Sigurðardóttir staðhæfði að
fjármagnsstreymi af þessum sökum út á hinn almenna
markað hefði aukið þenslu og hækkað húsnæðisverð. Hún
sagði jafnframt að hefði húsnæðislánakerfið verið opnað á
ný, að öðru óhreyttu, hefði það þýtt afgreiðslu á 4.000 um-
sóknum með tilheyrandi lánsloforðum og markaðsáhrifum.
• Eftir að hreytingar á aðflutningsgjöldum um næstu ára-
mót komu til umræðu hefur gifurleg sala verið á ýmiss kon-
ar heimilistækjum. Meðal annars seldi verslun ein á fjórða
hundrað þvottavélar á 10 dögum.
• Enn hætist fyrirtæki í hóp þeirra sem hætta fatafram-
leiðslu hér á landi. Nú er það fyrirtækið Henson-sportfatn-
aður sem hefur ákveðið að hætta rekstri saumastofu sinnar,
Hennes hf., á Akranesi. Nú starfa þar 30 manns, aðallega
konur. Henson hefur boðið Akranesbæ að yfirtaka rekstur-
inn, en ef því hoði verður ekki tekið og aðrir aðilar fást ekki
til að taka við rekstrinum verður óskað eftir gjaldþrota-
skiptum Hennes hf. Fyrirtækið hefur verið talið glæsileg-
asta og best úthúna saumastofa landsins. Eigandi fyrirtæk-
isins, Halldór Einarsson, segir ákvörðunina tekna af illri
nauðsyn enda standi hann í haráttu með fyrirtæki sitt í
Reykjavik þar sem 30 manns starfa.
• Á fundi sameinaðs þings á fimmtudag var Gaukur Jör-
undsson prófessor kjörinn umboðsmaður Alþingis til
næstu fjögurra ára. Gaukur tekur við embættinu í hyrjun
næsta árs og er hann fyrsti maður til að gegna því. Umboðs-
manni Alþingis er samkvæmt lögum ætlað að gæta réttar
einstaklinga gagnvart stjórnvöldum.
• Fjármálaráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, segir að
tekjuáætlun f járlagafrumvarpsins muni hækka óvenjulega
lítið við þessa fjárlagaafgreiðslu og mjög auðvelt sé að meta
skattstofninn varðandi tolla, vörugjald og söluskatt. Fjár-
málaráðherra segir það vera verkefni Þjóðhagsstofnunar að
meta tekjustofnana fyrir þriðju umræðu fjárlaga og þar
með eftirspurnaráhrif skattkerfisbreytinganna og veltu-
breytingar i þjóðfólaginu miðað við reynslu þessa árs. End-
urskoðuð tekjuáætlun liggur ekki fyrir í endanlegri mynd,
en samkvæmt mati fjármálaráðuneytisins og Þjóðhags-
stofnunar mun ekki mikilla breytinga að vænta á tekjuhlið
fjárlagafrumvarpsins.
• Tímaritið „The Economist" hefur gefið út sérblað þar sem
m.a. er yfirlit yfir það sem sérfræðingar telja að búast megi
við að gerist í einstökum ríkjum og í alþjóðamálum á næsta
ári. í ritinu er stutt klausa um ísland, þar sem fullyrt er að
ríkisstjórnin komist ekki hjá því að fella gengi krónunnar.
• Slysatiðni barna og unglinga hér á landi er með þvi hæsta
sem þekkist í heiminum og hefur slysum á börnum og ungl-
ingum fjölgað hér meðan dregið hefur úr slysatíðni í ná-
grannalöndunum. Hæst er tíðni slysa á gangandi vegfarend-
um og heimaslys eru einnig algeng meðal barna og ungl-
inga, einkum í aldurshópnum 5—9 ára.
• Skrifstofa borgarstjóra lét gangast fyrir skoðanakönnun
meðal borgarbúa um hundahald. í ljós kom að rúmlega 66%
þeirra Reykvíkinga, sem afstöðu tóku, telja tilraun með
hundahald i Reykjavík hafa tekist vel, en 33,8% telja hana
hafa tekist illa.
• Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra sagði í umræðum um
kostnað við byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar að
hann væri þeirrar skoðunar að því hvernig staðið væri að
opinberum framkvæmdum væri ábótavant og sagðist telja
að betra skipulag þyrfti í þeim efnum.
• Sláturleyfishafar áttu að gera upp að fullu við bændur
vegna sauðfjárinnleggs i haust fyrir 15. desember, en það
var ekki gert og segja sláturleyfishafarnir að ríkið hafi ekki
tryggt þeim fjármagn til að standa við þetta lagaákvæði.
Starfsmenn landbúnaðarráðuneytisins unnu í síðustu viku
að útreikningum á skiptingu svokallaðs staðgreiðsluláns
ríkisins til sláturleyfishafa og á lánið, 674 milljónir, ásamt
afurðalánum bankanna að gera sláturleyfishöfum kleift að
gera upp að fullu við sauðf járbændur. Þó er ekki víst að
bændur fái innlegg sitt greitt að fullu þar sem forsvarmenn
sláturleyfishafa segjast ekki hafa fengið fjármagn til að
standa undir vinnslukostnaðinum, auk þess sem þeir séu
með mikið fé bundið í vaxta- og geymslukostnaði fyrir ríkið.
• Nýkjörið útvarpsráð hélt sinn fyrsta fund á föstudag. Þar
var samþykkt að beina þeim tilmælum til yfirmanna frétta-
stofa sjónvarps og útvarps að unnið verði markvisst að því
að auka stórlega hlut kvenna sem viðmælenda í fréttum og
fréttatengdum þáttum í Ríkisútvarpinu. Tilmæli þessi
komu í kjölfar niðurstöðu könnunar sem sýndi að hlutur
kvenna í fréttum sl. 20 ár er aðeins 13% og þá jafnan í mjög
afmörkuðum málaflokkum. Þá staðfesti útvarpsráð auglýs-
ingabann á HP vegna Stefáns Jóhanns-málsins.
• Síðdegis á laugardag afgreiddi neðri deild Alþingis sem lög
frumvarp um Húsnæðisstofnun ríkisins. Frumvarpið var
samþykkt með 26 samhljóða atkvæðum en þingmenn Borg-
araflokks sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
• Eftir að upp úr samningaviðræðum stjórnar og stjórnar-
andstöðunnar slitnaði á sunnudag þykir liklegt að Alþingi
muni starfa milli jóla og nýárs og að líkindum einnig í
janúar.
Andlát:
Guðmundur í. Guðmundsson, fyrrverandi ráðherra og
sendiherra, lést á heimili sínu aðfaranótt laugardags.
Guðmundur var 78 ára að aldri. Hann var fyrst kjörinn á
Alþingi árið 1942 fyrir Alþýðuflokkinn og sat þar til ársins
1965. Hann var utanríkisráðherra á árunum 1956—58 og
utanríkis- og fjármálaráðherra '58—59. Guðmundur var
síðan utanríkisráðherra frá 1959—1965, er hann var skip-
aður sendiherra.
CANON = GÆÐI
TÝLI = ÞJÓNUSTA
ÚTSÖLUSTAÐIR
FÓKUS, Lækjargötu
JAPIS, Kringlunni
KASK, Hornafirði
LEO-LITMYNDIR, Isafirði
LJÓSMYNDABÚÐIN, Laugavegi 118
NYJA FILMUHÚSIÐ, Akureyri
TÝLI, Austurstræti
<•>
LÍTT'INN HJÁ ÓLA — Keflavík
Einkaumboð á íslandi
_____________f; IJh____________
Austurstræti 3 im’Jttl F
S. 10966 Jg
LITRÍK
ÞJÓNUSTA
Opiö 10—18.45
Laugardaga og sunnudaga 10—16
HELGARPÓSTURINN 23