Tíminn - 17.06.1930, Síða 8
TÍMINN
oö=oö=oö=tjö=oö=oö=oö=oö=0
ö
o
(@
ö
(^l
(@
(@
(@
(l^
(@
@
T óbaksverzlun íslands
h.
f.
Skrifstofa Sambandshúsinu, Reykjavík. Símnefni Tóbaksverzlun, Tobaccoco, Tóbak.
Símar 1819. 1850, 2319.
Stærzta heildverzlun landsins með alls konar
tóbaksvörur, sælgætisvörur, súkkulaði
Einkaumboð á íslandi fyrir heimsfirmun. British American Tobacco Co. Ltd., London. Crosse & Blackwell Ltd., London. C. J. van
Houten & Zoon, Weesp. American Tobacco Co., New-York. Henry Clay and Bock & Co., Havana. — Höfum enn fremur umboð fyrir
fleiri stórar verksmiðjur, svo sem t. d. C.W. Obel, Brödrene Braun, De danske Cigar- Tobaks-Fabr., A. M. Hirschsprung & Sönner, Kbh. o.fl.
Hér að neðan skulu taldar þær helstu tegundir er yið seljum.
Cigarettur:
Virginia:
Commander. Elephant.
Four Aces. Tree Bells.
Capstan, navy cut.
Players, navy cut.
Three Castles. Greys.
Garríck.
Tyrknéskar:
Statesman.
Westminster, Turkish A. A,
Sceptre.
Derby.
Cambridge.
Miss Mayfair.
Melachrino.
Abdulla.
Pall Mall.
Egypskar:
Soussa.
Maspero.
Melachrino.
Abdulla.
Havana Cigarettur:
Bock.
Henry Clay.
Corona.
Reyktóbak:
Moss Rose.
Ocean.
Richmond N. C.
Richmond Mixture.
Westward Ho!
Viking N. C
St. Bruno Flace
Capstan N. C.
Players.
St. Julien.
Glasgow Mixture.
Waverley Mixture.
Traveller Brand.
Pioner Brand
Cápstan Mixture
Old English Curve Cut.
Three Nuns.
Elephant Birds Eye.
Ph. Morris Mixtures.
Dills Best.
Tuxedo.
Dunhills.
Saylor Boy.
Marigold Flake.
Karvet Bladtobak.
N e f t ó b a k:
Brödrene Braun:
Rjól í l!z kg. bitum.
Nobels,
skorna neftóbak í l/z kg. og
‘Ao kg. loftþéttum blikkdósum
Munntóbak:
Brödrene Braun:
Mellemskraa. Smalskraa.
Chr. Augustinus;
Mellemskraa. Smalskraa.
C. W. Obel:
Mellemskraa. Skipperskraa.
Smalskraa. Lady Tvist.
Nobels munntóbak.
Tiedeinanns-Munntóbak.
Eldspýtur:
Svea.
Eyelite.
Reykjapípur eg tóbaksáhöld
frá hinum heimsþektu firmum:
H. Comoy & Co. Ltd., London.
L. Orlik, London.
Masta Pipe Patent Co. Ltd.,
London.
Philip Morris Co. Ltd., London.
Súkkulaði og sælgætisvörur:
Van Houtens:
Burkbrauns:
Crosse & Blackwells:
James Keillers & Son:
Suðusúkkulaði »Fine« og »Husholdnings«. - Átsúkkulaði, fjölda
margar tegundir og stærðir. — Mikið úrval af konfektkössum með
mismunandi verði. — Overtræk (Coverture) súkkulaði.
Skrautlegir konfektkassar í mjög stóru úrvali
»Tit-Bit«-átsúkkulaði og ýmsar aðrar átsúkkulaðl-tegundir.
heimsfrægu niðursuðuvörur og kryddvörur.
County Caramels. Kinema Karton. Nut Milk. Konfektkassar
Fíkjukassar o. s. frv.
Vindlar — Smávindlar:
Havana:
Bock & Co. Henry Glay.
Cabanas. La Corona.
Þýzkir:
Lloyd. Hiestriech-Special.
Jamaiea:
Golofina Londres. Ferfectos.
Hollenzkir:
Jón Sigurðsson. Regal.
La Semeuse. Nasco Prínsesas.
Fleur de Paris. Cabinets.
Mundi Victor. La Diosa.
Carmen. Lucky Charm.
La Traviata.
Java vindlar:
Maravillas. Orientales.
Perfectos. Selectos.
Danskir vindlar:
Advocat. Phunch.
Fíona. Favoritas. Bouquets.
Cassilda. Excepcionales.
Rencurell. Yrurac-Bat.
OriginaLBat. Suceso, Danitas.
Mígnon. Copelia. Boston.
Patti. Dolces. Minerva.
Pepitana. Edinburgh. Bristol.
Salon. London. Sirena.
Bridge. Rotschilds.
©
©
©)
©)
@)
,ÍP
©)
©
©)
@)
©)
©
©
©
©)
©
©
ÖÖ=Ö0=Ö0=ÖÖ=Ö0=ÖÖ=ÖÖ=Ö0:
ur þar í landi sagt, að engar erlendar bókmenntir hafi
haft jafnsterk og mikilvæg áhrif á bókmenntir Svía, sem
hinar fornu norsk-íslenzku. Af einstökum skáldum verður
að nefna Tegnér. íslendingum er t. d. kunn Friðþjófssaga
hans, er Matthías þýddi. Hún var um skeið eitt frægasta
skáldrit á sænska tungu. Efnið hefir Tegnér tekið úr ís-
lenzkri fornaldarsögu og vera má að íslenzkar rímur,
sem Tegnér kvað hafa þekkt, hafi haft áhrif á form og
bragarhætti sögunnar. — 1 Noregi mætti minna á Ivar
Ásen, Björnson, Ibsen o. fl., sem orðið hafa fyrir áhrifum
íslenzkra fombókmennta.
Allir hafa menn þeir, er nú voru nefndir, haft geysi-
mikil áhrif á andlegt líf Norðurlanda á síðustu öld og að
minnsta kosti tveir þeirra, Tegnér og Ibsen, markað spor
í heimsbókmenntunum. Það er ekki lítill vegsauki norræn-
um fræðum að hafa átt þátt í að þroska þá og móta.
Erlendar þjóðir nefna ísland oft „Sögueyna" og
ímynda sér, að vér, nútíma íslendingar, lifum og hrær-
umst meira í andrúmslofti sagna og fomra minninga en
nokkur önnur þjóð. Það er vafasamt hvort svo er. Hvergi
talar sagan til vor máttugri orðum en þegar sér stöndum
augliti til auglitis við tíguleg mannvirki fyrri alda. ís-
lendingi, sem reikar undir bogum hinna fomu dómkirkna
í Niðarósí, Lundi eða Uppsölum, eða um rústir varnar-
kirknanna í Sigtúnum, frá fyrstu öld norrænnar kristni,
finnst hann vera þar í landi sögunnar, engu síður en heima
á íslandi. Hann hugsar til þess með dapurleik, að „Sögu-
eyjan“ á engar slíkar verklegar minnja um atorku og
stórhug fyrritíðarmanna, enga byggingu eldri en frá 18.
öld. En sannleikurinn er sá, að Islendingar reistu allar
hallir sínar úr stuðlabergi tungunnar og mótuðu flest
menningarverðmæti sín í málm hennar, meðan frændur
þeirra austan hafsins gjörðu þessi mannvirki. 1 þeim
skilningi á ísland skilið nafnið „Sögueyjan“.
Merkustu verklegar minnjar frá íslenzkri fomöld
eru líka tengdar bókmenntum þjóðarinnar. Það eru hin
mörgu og glæsilegu skinnhandrit, sem geymd em nú á
bókasöfnum í Danmörku, Svíþjóð o. fl. löndum. Mörg
þeirra eru kjörgripir, sem vitna um frábæra elju, smekk-
vísi og listamannahæfileika. Til marks um það, hve dýr-
mætir slíkir hlutir eru nú á tímum, má geta þess, að heil
ríki, Danmörk og Svíþjóð, hafa eigi fundið annað betra til
að gefa Islandi í þúsund-ára-afmælisgjöf, en ljósmynda-
útgáfur af tveimur merkustu, forníslenzku skinnbókun-
um, Flateyjarbók og Uppsalabók. Hvers virði mundu þær
þá sjálfar metnar?
Því verður ekki neitað, að það er dapurlegt fyrir Is-
land, að skinnhandritin, sem að menningargildi hefðu
kannske getað jafnazt á við eina dómkirkju, skyldu öll
flytjast úr landi. En þó hefir það mál fleiri hliðar. Enginn
getur á það gizkað, hve mikið kynni að hafa farið for-
görðum af þeim hér heima, áður en þjóðin hefði eignazt
tryggan samastað fyrir þau, og í öðru lagi mundu þau
andlegu verðmæti, sem fornrit vor geyma, hafa komið um-
heiminum miklu síðar að notu m ,ef öll frumgögnin hefðu
verið hér. En næst því gildi, sem fornbókmenntirnar hafa
haft beint fyrir menningu þessarar þjóðar, er það gæfa
vor, að vér höfðum getað miðlað öðrum þjóðum andleg-
um fjársjóðum, — að vér höfum ef til vill lagt drýgri
skerf til heimsmenningarinnar en nokkur önnur þjóð, scm
að jafnaði hefir talið undir hundrað þúsund sálir.
Það er þetta, sem réttlætir tilveru íslenzku þjóðarinn-
ar í augum allra þeirra þjóða, er einhver deili viti í hög-
um vorum. Það er þetta, sem veldur því, að germanskir
fræðimenn líta á Island sem nokkurs konar heilagt minn-
ingaland. Margir þeirra, sem nú sækja Alþingishátíðina
eru einmitt að koma í pílagrímsferð til landsins, þar sem
vagga germanskra bókmennta hefir staðið.
íslendingar hafa sjálfir vaxið við það að vera ein-
hverjum öðrum einhvers virði. Meðvitundin um það hefi
gefið þeim dug til að heimta aftur sjálfstæði sitt og skipa
sér sess meðal annara menningarþjóða. Og hún mun
jafnan verða þeim hvöt til þess að beita kröftum sínum
til hins ítrasta, svo að þeir geti á næstu þúsund árum
lag fram einhvern nýjan skerf til hinnar sameiginlegu
h eimsmenningar.