Heiðarbúinn - 26.07.1940, Blaðsíða 1
Heiðarbúinn Blað vegavinnu- og varðmanna Ritstjórar: Kristm. Bjarnason Stgr. Bernharðsson
I. árg. Öxnadalsheiði, föstudaginn 26. júlí 1940. 1. tbl.
Inngangsorð.
Okkur undirrituðum hefir komið
til hugar að gefa út blað hér á
Öxnadalsheiði.
í fyrstu var þetta aðeins óljós
draumur hjá okkur, en hann hefir
nú fengið á sig veruleikablæ.
Það orkar varla tvímælis, að það
er ýmsum vandkvæðum bundið að
halda út blaði og fást við ritstörf
eftir 10 stunda vinnudag, sjá fyrir
efni í það, útgáfu þess o. s. frv. En
með hjálp og velvild allra góð-
gjarnra manna, mun þetta engan
veginn reynast ókleift.
Við drepum nú lauslega á útgáfu
blaðsins og tilgang.
Ætlunin er, að blaðið verði les-
öndum sínum ofurlítið skemmtiat-
riði og andleg hressing að afloknu
dagsverki, veiti þeim stundar
ánægju og — að lokum — væran
blund með brosi á vör. Megi þetta
takast er tilgangi okkar náð.
Efnið munum við reyna að hafa
sem mest við allra hæfi. Sögur,
frumsamdar og þýddar, kvæði og
sniðugar lausavísur ásamt ritgjörð-
um um ýmiskonar efni. Blaðið verð-
ur og væntanlega með myndum
öðru hverju. Við höfum þegar
tryggt okkur kvæði og kviðlinga hjá
nokkrum snjöllum hagyrðingum. En
Heiðarbúinn vill tryggja sér and-
lega starfsorku starfsbræðra sinna,
vegabóta- og varðmanna, að þeir
fleygi frá sér, öðru hverju, svipu
eða skóflu og gerist andlegir vega-
bótamenn.
Við skorum nú á alla þá, sem
þessu málefni unna, að kaupa blað-
ið og senda Heiðarbúanum smásög-
ur, kvæði og annað það, er hann
þarfnast sér til andlegs vaxtar og
viðhalds. Eftir því, sem við bezt vit-
um, er þetta fyrsta blaðið hér á landi,
sem unnið er að á fjöllum uppi. Og
án efa er tjaldið okkar óbrotnasta
„ritstjórnarskrifstofa“ i veröldinni!
Ritstjórarnir eru og alóreyndir
blaðamenn.
Ef til vill á það fyrir Heiðarbúan-
um að liggja að slíta barnsskónum
og verða stór, verða frumrót að
blaði, sem hefir sama mark og mið.
En það er framtíðarinnar að skera úr
því.
. Það er forn siðvenja hjá okkur ís-
lendingum, að taka vel á móti lang-
ferðamönnum, ekki sízt, ef þeir
koma af heiðum ofan, og bjóða þeim
til stofu og veita góðan beina.
Heiðarbúinn væntir góðrar gest-
risni byggðarmanna og ekki síður
hjá „starfsbróður sínum!“ hátt upp
til heiða.
Enn sem komið er, höfum við eigi
ákveðið að gefa blaðið út, nema á
meðan unnið verður á Öxnadals-
heiði. Hversu lengi vinna verður hév
i '/? i /, Q V
. v\ ~ JL '& ö i c_3
ri T. f- T.tti '