Morgunblaðið - 14.09.1968, Blaðsíða 1
28 SIÐUR
Harðar ásakanir Rússa í
garð Júgdslava
IMýjar viðræður um fram-
tíð Tékkóslóvakíu —
Prag, Moskvu og Vín,
13. sept. — (AP)
0 OLDRICH Cernik for-
sætisráðherra ávarpaði í dag
tékkóslóvakíska þingið, og
skýrði frá því að á næstunni
yrði boðað til viðræðna leið-
toga Sovétríkjanna og Tékkó-
slóvakíu um brottflutning
alls erlends herliðs frá Tékkó
slóvakíu. Ekki gat ráðherr-
ann þess hvenær viðræðurn-
ar hæfust.
0 Málgagn miðstjórnar
sovézka kommúnistaflokks-
ins ræðir samninga fulltrúa
Tékkóslóvakíu og Sovétríkj-
anna, sem gerðir voru í
Moskvu fyrir skömmu, í
grein í dag, og sakar jafn-
framt leiðtoga Júgóslavíu um
að auka hættuna á „bræðra-
víga-styrjöld“ með áfram-
haldandi gagnrýni á Moskvu
samninginn um lausn Tékkó-
slóvakíudeilunnar.
í þingræð'U sinni sagði Cernik
forsætisráðherra að brottflutn-
ingur hemámsliðanna væri háð-
ur því hvemig gengi að koma á
„eðlilegu ástandi" í landinu og
styrkja stöðu sósíalismans. Skor-
aði hann á ríkis- og flokksstjóm
að vinna að því að koma ástand-
inu í e'ðlilogt horf, en því fylgdi
að draga yrði úr áhrifum hægri-
sinna og annarra öfgaafla og
veikja aðstöðu alþjóða heims-
valdasinna, eins og ráðherrann
komst að orði.
Cernik sagði að þegar væri
hafinn brottflutningur herliðs
Sovétríkjanrra og fyljjiríkja
þeirra fjögurra úr borigum og
þorpum til herbúða utan þétt-
býlis, og flugher rikjanna fimm
væri nú staðsettur á „sérstökum
flugvöllum."
ASAKANIR
í grein í blaðinu Sovietskaya
Rossiya, sem er málgagn mið-
stjómar sovézka kommúnista-
flokksins, segir að ekki sé unnt
a'ð standa gegn ákvæðum
Moskvusamkomulagsins, nema
að eiga á hættu að á skelli
styrjöld bræðravíga. Ekki skil-
greinir blaðið nánar hvað við er
átt með bræðravígum, hvort
hætta sé á borgarastyrjöld í
Tékkóslóvakíu vegna afskipta
Júgóslavíu, eða hvort gagnrýn-
in geti leitt til styrjaldar milli
bræðraþjóða kommúnistaríkj-
anna.
Blaðið fer hörðum orðum um
andstö'ðu Júgóslavíu við hersetu
Varsjárbandalagsríkjanna í
Tékkóslóvakíu, og við Moskvu-
samninginn, þar sem ákveðið er
að erlendu hernámssveitimar
skuli fluttar á brott frá Tékkó-
slóvakíu þegar „eðlilegt ástand"
er komið á í landinu, án þess að
geta nokkuð um við hvað er átt
með þessu „eðlilega ástandi".
Hafa blöð í Júgóslavíu sagt að
leiðtogar Tékkóslóvakíu hafi ver
ið neyddir til a’ð undirrita
Moskvusamninginn vegna her-
náms landsins.
Leiðtogar Sovétríkjanna og
Júgóslavíu hafa skipzt á orðsend
ingum þar sem báðir láta í Ijós
skoðanir sínar á innrásinni í
Tékkóslóvakíu, og viðbrögð
sovézkra blaða benda til versn-
andi sambúðar þessara tveggja
rikja. í greininni í Sovietskaya
Rosisiya í dag er gagnrýni Júgó-
Framhald á bls. 27
Loftflutningar til Biafra
hætta um sinn
— Sprengjum varpað á flugvöllinn,
sem Rauði krossinn hefur notað
Lagos og Genf 13. sept. AP
Alþjóða Rauðl krossinn til-
kynnti í dag að hætt hefði verið
við flug með matvæli
til Biafra vegna hem-
aðarástandsins í landinu. Samtím
is bárust fréttir af því að her
sambandsstjórnarinnar í L agos
ætti í bardögum við ,Annabelle‘
flugvöllinn, sem er neyðarflug-
Völlur og notaður hetfur verið
til lendinga véla Rauða kross-
ins. Talsmaður Lagosstjórnar
vildi þó ekki staðfesta þessa
frétt í dag. „Ekkert hefur verið
tilkynnt opinberlega um þetta“,
sagði hann.
Annabelle flugbrautin í vest-
urhluta Biafra hefur verið notuð
af flugvélum Rauða krossins sem
fLogið hafa með matv. og hjúkr
umargögn á nóttinni frá spænsku
eyjunni Fernando Po. Jafnframt
er talið að Biaframenn hafi feng
ið vopnasendingar til vallariins
frá porbugölsku eyjunni Sao
Tome.
Þetta er flugbraut sú sem sam
komulag náðist um 3. september
sl. milli Rauða krossins og Lag-
osstjórnar að notaður skyldi til
10 daga neyðarflugs meðmatvæli
í dagsbirtu, en enn hefur ekkert
orðið af því flugi.
August Lindt, fulltrúi Rauða
krossins í Nígeríu, ræddi vfð full
trúa Lagosistjórnar og Sam.
þjóðanna á fimmtudagskvöd um
endurnýjun á samningi um loft-
brúna, en hann rennur út á laug
ardaginn án þess að svo mikið
Eftir 40 ára vist á Grænlanasjokri. Hér sést þyrla Grönlands-f
fly lyfta flaki flugvélar sl. þriðjudsg yfir Grænandsjökli, en
þessi fiugvél nauðlenti þar 19 28. Hún var eins hreyfils
og var á leið frá Illinois til Stokkhólms. Með henni voru
tveir menn, er hún nauðlenti fyrir 40 árum og komust báðir
lífs af.
Úvenjuleg björgun
Flaki flugvélar, sem legið hafði
40 ár á Grœnlandsjökli bjargað —
sem ein flugvél hafi getað not-
fært sér hanm.
f Genf var tilkynnt í dag að j
hætta verði í bráð öllu flugi til ;
Biafra því sprengjum hefði ver-
ið varpað á umræddan flugvöll.
Jafnframt var tilkynnt að fram
kvæmdastjóri Alþjóða rauða
krossins, Henrik Beer, mundi
halda til Lagos í dag til þess að
ræða um aðstoð Rauða krossins
eftir að bardögum lýkur í Níg-
eríu.
FLAKI bandarískrar flugvél-
ar, sem legið hafði á Græn-
landsjökli í 40 ár, var bjarg-
að sl. þriðjudag. Var það gert
á þann hátt, að þyrla
frá fiugfélaginu Grönlandsfly
flaug inn yfir jökulinn, þang-
að sem flakið lá, en sáðan
voru festir vírar úr henni í
flakið. Þyrlan lyfti því svo
upp og flaug með það til
bandarisku flugbækistöðvar-
innar í Syðra-Straumsfirði.
Það voru tveir Bandarikja-
Concorde afhjúpuð í Bretlandi
Fi'lton, Englandi 12 sept.
Concorde 002, fyrsta þotan
af þessari brezk-frönsku gerð
sem smíðuð er í Bretlandi,
var afhjúpuð í Filton, skammt
frá Bristol í dag Fór afhjúp-
unin fram í kyrrþey, og þótti
ýmsum of lítið gent úr merk-
um viðburði í flugsögunni.
önnur Concorde-þota hef-
ur verið smíðuð í Frakklandi
óg var sú afhjúpuð í Toul-
ouse í desember í fyrra við
mikla viðhöfn. Er vonast til
Framhald á bls. 27
Concorde aflijúpuð í Bret landi
menn, sem árið 1928 hugðust
fljúga á þessari vél frá Illino-
is til Stokkhólms, en urðu að
nauðlenda á Grænlandsjökli.
Þeir sluppu báðir heilir á
húfi, og gengu síðan í 14
daga á jöklinum, unz þeim
var bjargað.
Bert Hassell, fyrrum ofursti
í bandaríska flughemum,
flaug vélinni 1928. Hann er
enn á lífi, en félagi hans
og samferðamaður, William
Framhald á bls. 27
Átök
í ísrael
Tel Aviv, 13. sept. (AP)
Til átaka kom í dag á þremur
stöðum við landamæri Israels
milli sveita úr ísraelsher og her-
manna frá Jórdaníu, Sýrlandi og
Egyptalandi. Beittu bæði Arab-
ar og Gyðingar fallbyssum, hríð
skotabyssum og léttari vopnum.
Ekki er vitað til þess að mann-
fa.Il hafi orðið, en nokkrir munu
hafa særzt.
Fallbyssum var beitt á landa
mærum fsraels og Jórdaníu, og
segir talsmaður fsraelshers að
átökin þar hafi hafizt þegar jór
danskt stórskotalið hóf skyndi-
lega skothríð yfir árnar Jórdan
og Yarmun á ísraelskar her-
Framhald á hls. 27