Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984 43 störf á skrifstofu Ríkisspítalanna. Síðar gerðist hún kennari og kenndi handavinnu við Vogaskóla og einnig við Víghólaskóla um áraraðir. Á því sviði var hún snill- ingur og var listahandbragð á öllu, sem hún vann í höndum og voru það margir óvenjulega fallegir munir. Mörgum vina sinna gaf hún fagrar gjafir, unnar af þeim listræna smekk og vandvirkni,. sem henni var meðfæddur. Áhugi hennar og hæfni á þessu sviði mun hafa verið áhrif frá uppeldi henn- ar og listrænn arfur frá foreldrun- um. Nú síðustu árin rak Kristín verslunina Baldursbrá við Skóla- vörðustíg, sem stofnsett var af móður hennar, frú Ingibjörgu Eyfells, ásamt vinkonu hennar, Kristínu Jónsdóttur. Þá verslun þekkja reykvískar konur, því margar þeirra munu einhvern- tíma hafa átt leið þangað, bæði hannyrðakonur og ekki síður þær konur, sem voru að koma sér upp íslenska þjóðbúningnum. Eftir lát þeirra frú Ingibjargar, móður Kristínar, og Kristínar Jónsdótt- ur, sýndi Kristín mikinn áhuga á því að halda uppi nafni verslunar- innar Baldursbrár og halda áfram starfi móður sinnar. Ekki síst beindist áhugi hennar að því að stuðla að því, að íslenski þjóðbún- ingurinn liði ekki undir lok með því að hafa til sölu allt efni til hans og mun Baldursbrá lengst af hafa verið eina verslunin í Reykja- vík, þar sem fáanlegt var allt efni til íslenska þjóðbúningsins. Kristín Eyfells fæddist 7. febrú- ar 1925. Foreldrar hennar voru hjónin Ingibjörg Eyfells og Eyj- ólfur Eyfells listmálari, sem bæði eru látin. Hún giftist Hjálmari Ólafssyni menntaskólakennara árið 1955. Þau slitu samvistir. Dóttir þeirra Dóra, f. 11. október 1957, sem lokið hefur prófi í raf- magnsverkfræði frá Háskóla ís- lands, stundar framhaldsnám i þeirri grein í Þýskalandi og býr nú með unnusta sínum í Berlín. Við kveðjum nú Kristínu Ey- fells, vinkonu okkar, með hrærð- um huga og munum ávallt minn- ast hennar með söknuði og þakk- læti fyrir vináttu hennar og tryggð. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni á morgun, mánu- daginn 28. maí. Dóttur hennar, Dóru, vottum við dýpstu samúð, svo og öðrum vandamönnum. Bekkjarsystur Að leiðarlokum sækja minn- ingar um liðnar samverustundir á hugann. Kynni okkar Kristínar hófust í æsku og vináttan sem þá myndað- ist varaði æ síðan. Við vorum sessunautar í barnaskóla og síðar í Verzlunarskóla íslands. Þá naut ég góðs af hversu greind hún var, skyldurækin og iðin, því hjálpfýs- in var henni i blóð borin og hún hvatti mig óspart áfram, þegar letin leitaði á. Bágt á ég með trúa þvi, að það skuli vera liðin fimmtíu ár siðan tvær níu ára telpur töltu daglega millí Skólavörðustígs 4b og Leifs- götu 8 — jafnvel oft á dag, hvernig sem viðraði. En i þá daga skipti veðurfarið ekki máli þvi lífið sjálft var barmafullt af sólskini og gleði og stöðugt var eitthvað merkilegt á prjónunum, sem ekki þoldi neina bið. Foreldrar mínir leigðu litla íbúð í splunkunýju steinhúsi. Það var svo sem ágætt, en mér þótti miklu meira koma til hússins á Skóla- vörðustíg 4b. Þetta var gamalt timburhús með bröttum stigum, ótal skonsum, krókum og kimum. Á neðstu hæð var búðin, þar sem Ingibjörg, mamma Kristínar, réð ríkjum ásamt Kristínu Jónsdótt- ur, vinkonu sinni. Þær versluðu með allskyns hannyrðadót og var ákaflega vinsælt hjá okkur stöll- um að skoða og gramsa í kössum og hirslum „á bakvið". Aldrei var verið að amast við þessum rann- sóknarleiðöngrum okkar. Á hæð- inni fyrir ofan voru íveruherbergi og stórt eldhús, sem var sannkall- að hjarta hússins. Þar var ævin- lega margt um manninn og nota- legt að koma. Undir glugganum stóð stórt matbörð og oftast man ég eftir Jóhönnu ömmu sitjandi þar með saumavélina sína þar sem hún var að bæta og lagfæra föt heimilisfólksins. Eyjólf, pabba Kristínar, sé ég líka fyrir mér, þar sem hann situr á rabbi við að- komufólk yfir kaffi- eða tebolla og kannske smá „tári“. Aldrei minn- ist ég þess að hafa komið á þetta góða heimili og hitt þar einungis fyrir hjónin og börnin. Hjú, náms- menn, skyldufólk ofan úr sveit og aðrir gestir settu þar ávallt svip sinn á og lífguðu upp á heimilis- braginn. Þetta var spennandi hús. En það allrabesta, að mínu mati, var háaloftið. Snarbrattur stigi lá þangað upp og við tók hátt ris sneisafullt af gömlu dóti. Hrein- asti ævintýraheimur, sem unun var að heimsækja. Risið var að mestu óinnréttað, en þó leyndist þar agnarlítil hosfló undir súð með glugga á gafli. Þetta var herbergi Kristínar. Hún átti það ein. Sjálf deildi ég herbergi með litlu systur minni og vinnukon- unni svo það var ekki laust við að ég öfundaði hana af þessu dásam- lega einkaathvarfi. Frá þessari litlu skonsu á ég mínar bestu endurminningar um samverustundir okkar Kristínar í æsku og á unglingsárunum. Þarna vorum við einar í heiminum; lék- um okkur, lásum saman og trúð- um hver annarri fyrir leyndustu óskadraumum okkar. Þessara áhyggjulausu daga, áð- ur en sjúkdómar og vandamál voru komin til sögunnar, kýs ég mér að minnast, þegar ég kveð góða vinkonu, sem mér þótti inni- lega vænt um. Blessuð sé minning hennar. Megi allar góðar vættir styrkja Dóru mína og aðra ástvini. Edda + Inmlegar þakkir fyrlr auösýnda samúö viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, MAGNEU HALLDÓRSDÓTTUR frá Siglufiröi. Jón Guójónsson, Gréfar Guójónsson, Bogi Þórir Guójónsson, Þormar Guójónsson, Hlín Guðjónsdóttir, Einar Guójónsson, Hilmar Guðjónsson, Bragi Guðjónsson, Elfaa Dagbjört Guðjónsd., Helga Þorleifsdóttir, Jóhanna María Gestsdóttir, Margrét Viggósdóttir, Guörún Stefénsdóttir, Pétur Goldstein, Guörún Árnadóttir, Guórún Guömundsdóttir, Ásta Andersen, barnabörn og barnabarnabörn. Tökum að okkur aö rétta og lagfæra legsteina í kirkjugörðum. S.HELGASON HF STEINSMHUA SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677 <— Sætið þitt í veislufagnaði á fyrsta farrými—> z. •jYjnvwv h tá 1200 ódýrar ferðir með risaþotu til sólarlanda Mallorka Perla Miöjarðarhafsins. Brottför alla laug- ardagsmorgna, 2, 3 eða 4 vikur. Verð frá kr. 18.900 (2 vikur á hóteli og þrjár máltíðir á dag) Þér getið valið um dvöl á hótelum og íbúðum á eftirsóttustu stöðunum, Maga- luf, Palma Nova, Santa Ponsa, Arenal og Palma. Þar er sjórinn, sólskinið og skemmtanalífið eins og fólk vill hafa það. Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir með íslenskum fararstjóra. íbúðahótel. Trianon, Portanova, Hafria hótelin, Coral Playa El Paso, Leo Saga, Sunna, Cala Vinas, Valpariso. Tenerife Fögur sólskinsparadís Brottför alla þriðjudagsmorgna 2, 3 eða 4 vikur. Verð frá kr. 19.800 (Tveir í íbúð í tvær vikur) Frjálst val um dvöl á eftirsóttum fjögurra stjörnu hótelum og íbúðum í Puerto de la Cruz og á Amerísku ströndinni. Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarfefðir. Aðrar ferðir okkar: 2ja, 3ja eða 4ra vikna ferðir með tækifæri til þess að eyða nokkrum dögum i London í ferðalok. Brottför í hverri viku. Eftirsóttir gististaðir. Grikkland, eyjar Korfu og Aþenustranda. Malta, sólskinseyjar Jóhannesar riddaranna. Mallorka, allt það þesta sem þar er til. Tenerife hin undurfagra eyja hins eilífa vors. Landið helga og Egyptaland, 21 dagur, brottför 5. okt. (Fararstjóri Guðni Þórðarson) Ferðatilhögun: Þér njótið frábærrar þjónustu í áætlunar- flugi Flugleiða í stuttu morgunflugi til Glasgow, þar sem rétt gefst tími til að Ijúka við góðan morgunverð. Á laugar- dögum til Mallorka og þriðjudögum til Tenerife. Haldið síðan áfram með breið- þotu beint í solina. Njótið veislufagnaðar alla leiðina á fyrsta farrými. Allt frítt, steikurnar, borðvínin, koníakið og kampavínið og allir heimsins hressingar- drykkir á barnum á annari hæð risaþot- unnar. Heimleiðin úr solinni a einni stuttri dagstund sömu leið. Flugferðir - Sólarflug Vesturgötu 17, Rvk. símar 10661, 22100 og 15331

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.