Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 48
OPIÐALLA DAGA FRÁ KL. 11.45 - 23.30 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SlMI 11630 OPIÐÖLL FIMMTUDAGS-, FÖSTUDAGS-, LAUGARDAGS-, OG SUNNUDAGSKVÖLD AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SlMI 11340 SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Fríhöfnin í Keflavík: Gefur út verölista á ensku og íslensku FRÍHÖFNIN f Keflavík gefur árlega út tvo verðlista með auglýsingum, ann- an á íslenzku ætlaðan til dreifíngar innanlands en hinn á ensku til dreif- ingar erlendis og við brottrdr frá land- inu. í þeim, sem ætlaður er erlendum ferðamönnum, eru áfengis- og tóbaks- auglýsingar, en ekki hinum. Guðmundur Kari Jónsson, fram- kvæmdastjóri Fríhafnarinnar, var inntur eftir þvi, hvort þarna væri ekki um brot á lögum um auglýs- ingar á áfengi og tóbaki að ræða. Hann sagðist telja að svo væri ekki. Bannað væri að auglýsa áfengi og tóbak á íslandi og því væru ekki slík- ar auglýsingar í þeim verðlista, sem ætlaður væri innlendum ferðamönn- um. Hins vegar væri ekkert sem bannaði slíkar auglýsingar erlendis og því væri fjár aflað með áfengis- og tóbaksaugíýsingum í erlendu út- gáfunni. Enska verðlistanum væri dreift við brottför ferðamanna frá Keflavík, á umboðsskrifstofum Flugleiða og einhverjum erlendum ferðaskrifstofum. Aðspurður hvort ekki fælist í því tvískinnungur, að ríkið bæði auglýsti áfengi og tóbak og bannaði slíkar auglýsingar, sagði hann það vera rétt. Hins vegar fælist einnig tví- skinnungur f öllum þessum málum. í þessu tilfelli mætti benda á auglýs- ingar af þessu tagi f erlendum blöð- um, sem leyfilegt væri að flytja til landsins og ennfremur það, að ekki væri hjá því komizt, að veita útlend- ingum, sem hingað vildu koma, upp- lýsingar um það, sem Frfhöfnin hefði á boðstólum. Það væri eins með ensku verðlistana og erlend blöð, það kynni að gerast að þeir kæmust í hendur íslendinga, en hver munurinn væri sæi hann ekki. Tekinn með þrjár byssur í fanginu ÖLVAÐUR maður var handtekinn að- faranótt laugardagsins með þrjár byssur í fanginu — tvo riffla og eina haglabyssu. Auk þess hafði hann krækt sér í 13 úr og peninga. Maður- inn hafði brotist inn í Austurstræti 6, en var handtekinn á staðnum. Mikil ölvun var í miðbæ Reykja- víkur á föstudagskvöldið og fram á nótt. Fjölmargir unglingar voru í miðbænum að afloknum prófum og bar mikið á ölvun. Tefst hvalvertíðin? Hvalvertíð hefst venjulega upp úr fyrstu helgi júnímánaðar. Dregist getur í ár að hún hefjist þar sem fyrír félagsdómi eru nú samningamál Hvals hf. og Hlífar í Hafnarfirði. Hlíf í Hafnarfirði gekk frá samningum í fyrra með þeim fyrirfara að þeir giltu ekki hvað varðar Hval h.f. Hvalur h.f. krefst þess að sá fyrírvari verði dæmdur ómerkur. Varakrafa hjá báðum er, að ef sú krafa verði dæmd ómerk, þá séu engir samningar í gildi. — Myndina hér að ofan tók Lárus Karl. Verið er að gera „Hvalina“ klára. Rannsóknir á kjálkabrotum: Nær helmingur kvenna fórnarlömb barsmíða I yfir 90% tilfella, þar sem um barsmíðar er að ræða, er áfengi í spilinu KJÁLKABROT hjá konum af völd- um iíkamsárása eru miklu algeng- ari hér á landi en nokkurs staðar hefur verið greint frá, en hlutfallið hér á landi er 33% hærra en tíðkast hjá öðrum þjóðum, og 46% þeirra kvenna sem kjálkabrotna, eru fórnarlömb barsmíða. Þetta kemur fram í niðurstöðura rannsóknar Sigurjóns H. Ólafssonar lektors á andlitsbeinbrotum vistaðra sjúkl- inga í Reykjavík, á árunum 1970 til 1979. Þar kemur jafnframt fram að tíðni brota hjá ungu fólki á aldrin- um 16 til 20 ára er hlutfallslega meiri hér en annars staðar vegna umferðarslysa og slagsmála. í grein sem Sigurjón ritaði í Læknablaðið um þessa rannsókn sína segir að þáttur slagsmála í þessum brotum hafi verið afger- andi fyrir bæði kynin og að í yfir 90% tilfella þar sem um andlits- beinbrot var að ræða vegna bar- Óvenjusnemmgeng- inn lax í Elliðaám LAXVEIÐITÍMINN ER formlega hafinn, hefst jafnan 20. maí er netamenn við Hvítá í Borgarfirði þræða veiðitæki sín út í grugguga ála hennar. Svo sem frá hefur ver- ið skýrt í Mbl. hefur veiðin þar hafist með eindæmum vel og lofar það góðu fyrir komandi sumar. Stangaveiði hefst í fyrstu án- um 1. júní, Norðurá og Laxá á Ásum. Er undantekningalítið laxveiði í Norðurá svo snemma, en stopulli er veiðin hins vegar í Laxá. Fáeinum dögum síðar hefst svo veiði í Þverá/Kjarrá og síðan opnast allar flóðgáttir, ef svo mætti að orði komast. Lax- inn er fyrr á ferðinni í vor en í fyrra. Þó var allgott laxveiðiár víða á síðasta sumri. Glöggir menn hafa „séð’ann“ í Elliðaán- um og verið þess fullvissir að ekki hafi verið um hoplax að ræða. Er mjög fátítt að laxinn sjáist í „bæjarlæknum" fyrir mánaðmót maí/júní. Lofar það mjög góðu, ekki síður en hin mikla laxgengd í Hvítá. Byrjunin, þó veiðin sé rétt haf- in, lofar því góðu. Síðasta sumar kom mikill veiðibati I flestar ár á Suður- og Vesturlandi og nokkrar ár norðanlands voru einnig betri heldur en mögru sumrin þrjú á undan. I nokkrum ám bíða menn þó enn eftir bat- anum og góð byrjun nú dregur ekki úr þeim vonum. í heild var veiðisumarið 1983 núnda besta sumar frá upphafi, 58.223 laxar veiddust, meðalþunginn 3,4 kg. smiða hafi.áfengi verið með í spil- inu. Ljóst er af grein Sigurjóns að Island hefur nokkuð mikla og neikvæða sérstöðu á þessu sviði, bæði hvað varðar misþyrmingar á konum og fjölda margbrota, en af þeim 238 sjúklingum sem rann- sóknin tók til, þá voru 122 þeirra margbrotnir á kjálka. Sjá grein á bls. 53. Snorri Sturlu- son leigður til ísafjarðar ÍSFIRÐINGAR hafa tekið togarann Snorra Sturluson á leigu frá 1. júní nk. Eru það sömu aðilar og hafa rannsóknarskipið Hafþór á leigu, en Snorri verður notaður til rækjuveiða á meðan Hafþór verður frá í tvo mánuði á meðan verið er að setja í hann frystivélar. ísfirsku fyrirtækin, sem taka Snorra Sturluson á leigu, eru O.N. Olsen, Rækjuverksmiðjan hf., Hnífsdal, og Rækjustöðin, ísa- firði. Gengið hefur verið frá leigu- samningi vegna Snorra frá 1. júní til 15. október nk. en á sama tima verður Hafþór í klössun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.