Morgunblaðið - 29.01.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.01.1985, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B 23. tbl. 72. árg.___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1985________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins írakar hefja sókn inn í íran Kaghdad, 28. janúar. AP. ÍKAKAR tilkynntu í dag, að 40.000 manna herlið þeirra hefði haldið yfir landamærin inn í íran í fyrsta sinn í 31 mánuð. Hefði her þeirra strax á fyrsta degi þessarar sóknar náð á sitt vald ýmsum mikilvægum stöðum og valdið írönum miklu manntjóni. Tilgangurinn með þessari sókn væri að verða fyrri til og koma í veg fyrir yfirvofandi hernaðaraðgerðir írana á þessu svæði. í tilkynningu írösku herstjórn- arinnar var sagt, aö her hennar sækti fram á þremur stöðum og hefði honum strax orðið vel ágengt. Hefðu hernaðaraðgerðir þessar verið vel undirbúnar og Skotið á NATO-her- skip í Lissabon Osló, 28. janúar. AP. Fri frétUriUra Morgunblaðsin.s, J.E. Lauré. í DAG var skotið sprengikúlum á norska herskipið „Narvik" og tvö önnur skip NATO, þar sem þau voru stödd í höfninni í Lissabon í Portúgal. Skipin urðu þó ekki fyrir tjóni, þar sem sprengiukúl- urnar hittu ekki en lentu í 100 metra fjarlægð frá skipunum. Samkvæmt frásögn portú- gölsku lögreglunnar lentu sprengtkúlurnar, sem voru þrjár, í sjónum, en samkvæmt upplýsingum frá stöðvum NATO í Noregi lenti ein af sprengikúlunum á hafnar- bryggju. Enginn slasaðist samt. Talið er víst, að sprengi- kúlunum hafi verið skotið frá garði einum ekki langt frá höfninni. Samtök vinstri manna, sem kalla sig FP-25, hafa lýst yfir ábyrgð sinni á þessum atburði. hafizt fyrir dögun á mánudags- morgun samkvæmt fyrirskipun Saddam Hussein forseta. Væru ýmsar mjög mikilvægar stöðvar íranshers á þessu svæði þegar á valdi íraska hersins eftir „hetju- lega bardaga". Irakar hafa haldið því fram, að íranir væru að safna saman mörg hundruð þúsund manna her á suð- urlandamærum ríkjanna til und- irbúnings stórfelldri sókn inn í ír- ak. Frá upphafi fundar olfumálaráðherra OPEC-rfkjanna í Genf í gærmorgun. Ahmed Yamani, olíumálaráðherra Saudi- _________ Arabíu, ræðir við fréttamenn. Harðar deilur á fundi OPEC-ríkjanna í Genf Miklar líkur taldar á lækkun olíuverðs (íonf, 28. Janúnr. Al’. TIL harðrar deilu kom i dag á skyndifundi OPEC, samtaka olíuútflutnings- ríkjanna, í Genf. Gekk olíumálaráðherra Sameinuðu arabísku furstadæm- anna af fundi og sakaði Nígeríu um að „reka rýting í bakið“ á samtökunum með þvf að lækka olíuverðið. Eru nú allar líkur taldar á því, að OPEC-rfkin neyðist til að lækka olíuverðið, enda þótt sú lækkun verði ekki mikil. Ahmed Zaki Yamani, oliumála- ráðherra Saudi-Arabíu, gerði lítið úr þessum deilum við fréttamenn og sagði þær byggðar á „misskiln- ingi“. Vitað er hins vegar, að mörg aðildarríki OPEC og þá sér i lagi Nigería hafa orðið fyrir miklum efnahagslegum skakkaföllum vegna minnkandi oliusölu. Stafar þessi samdráttur af harðnandi samkeppni á oliumörkuðum heims og þá fyrst og fremst frá Bret- landi, Noregi og fleiri oliufram- leiðsluríkjum, sem ekki eru aðilar að OPEC. Nígería sagði skilið við verð- kerfi OPEC i október sl. með því að lækka olfuverð um 2 dollara hverja tunnu og var sú ál vörðun tekin með tilliti til sams konar verðlækkana af hálfu Bretlands og Noregs. Þetta skapaði glundroða í verðkerfi OPEC og þá skoðun, að samtökin gætu ekki komið f veg fyrir verðlækkun á olíu. Hráolía frá Saudi-Arabíu, sem olíuverð annarra OPEC-ríkja mið- ast við, hefur að undanförnu selzt fyrir 27,50 dollara tunnan á opnum markaði eða fyrir 1,50 doll- ara lægra verð en hið opinbera verð er á olfu frá Saudi-Arabiu. Haft var eftir heimildum innan OPEC í dag, að Saudi-Arabía kynni að lækka hið opinbera verð á olíu sinni um 2,50 dollara á tunnu, þannig að það yrði eftir- leiðis 26,50 dollarar hver tunna. Afganistan: Sextíu drepnir Islamahad, 28. janúar. AP. YFIK 60 óbreyttir borgarar, þar á meðal 30 smábörn, biðu bana, er Sovétmenn vörpuðu sprengjum á tvö þorp f Afganistan fyrir skömmu. Sex sovézkar MIG-þotur og tvær þyrlur framkvæmdu loft- árásina. Bæði þorpin eru f Ward- ak héraði um 75 km suðvestur af höfuðborginni Kabúl. Er frétt þessi höfð eftir lækninum Muslim Yara og verkfræðingnum Wahidullah Najmi, sem skýrðu frá þessum at- burðum f gær á fundi með frétta- mönnum f Peshawar f l'akistan. Miklar skemmdir urðu einnig á mannvirkjum f þessari loftárás og eyðilögðust um 80 hús, þar á með- al ein moska. Börnin, sem fórust, voru við skólanám f moskunni, er sprengjur lentu á húsinu. Páfinn í Venesúela Jóhanncs Páll páfi kom í gær til olíuborgarinnar Maracaibo í Vencsúela og var þar afar vel fagnað af íbúum borgarinnar. Hér sést páfi heilsa börnum við komu sína þangað. Páfi áformar að heimsækja fjögur lönd Suður-Ameríku f heimsókn sinni þang- að, sem á að standa í 12 daga. Verðfall í kaup- höllinni í London Brezkir bankar hækka vexti úr 12 í 14% London, 28. jnn. AP. ÓVISSAN um heimsmarkaðsverð á olíu olli því f dag, að verðbréf snar- lækkuðu f kauphöllinni f London, en vextir hækkuðu og hafa ekki verið hærri undanfarin þrjú ár. Sterlingspundið féll og komst niður f 1,1067 dollara, en hækkaði aðeins aftur, þegar leið á daginn og var komið f 1,1160 dollara síðdegis. Var það aöallega að þakka þeirri ákvörðun helztu banka Bretlands að hækka vexti úr 12114%. Var það þriöja vaxtahækkun þeirra frá þvf 11. janúar sl. Hlutabréf 30 stórfyrirtækja féllu mjög f verði eða meira en nokkru sinni fyrr á einum degi 9amkvæmt skrá blaðsins Fin- ancial Times. Nam verðfall þeirra í heild 6,8 milljörðum punda. Brezkt efnahagslíf er mjög háð olíunni, sem unnin er f Norðursjó og verð hennar 1 framtíðinni er að verulegu leyti komið undir þeim akvörðunum, sem teknar verða á OPEC-fundinum í Genf. Lækki heimsmarkaðsverð á olíu, mun það hafa f för með sér minni tekjur Breta að sama skapi af olíuvinnslunni. Viðræður um kolaverkfallið London, 28. janúar. AP. Á morgun, þriðjudag, eiga að hefjast viðræður milli fulltrúa rfkisreknu kolanámanna í Bretlandi og fulltrúa námamanna, sem verið hafa f verk- falli frá því í mars í fýrra. Peter Walker, orkumálaráðherra Bret- lands og Arthur Scargill, leiðtogi kolanámumanna lýstu þvl báðir yfír f dag, að það væri von þeirra, að viðræðurnar myndu bera árangur og verða til þess að leysa verkfallið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.