Morgunblaðið - 01.09.1943, Síða 2
MORGUNBLAÐIB
Miðvikudagur 1. sept. 1943
— Færeyjafrjettir —
Úrslit og áhrif kosninganna
TVEIR FÆREYINGAR
eru staddir hjer í bænum,
Pál Patursson frá Kirkju-
bæ og Knut Wang ritstjóri
í Þórshöfn. Þeir fóru áð
heiman daginn eftir Lög-
þingskosningarnar.
Morgunblaðið hefir leit
að frjetta hjá - þeim um
Færeyingamál, bæði um at
vinnulíf og stjórnmálin.
Þeir skýrðu m. a. svo frá.
Aflabrögð hafa verið
sæmilega góð við.Eyjarnar
og efnahagur batnað á síð-
ustu árum. Innieignir Fær-
eyinga erlendis nema nú
um, 40 miljónum króna.
— Skipatjónið? —
— Hefir verið gífurlegt.
Við áttum um 130 fiski-
skip er styrjöldin braust
út, en höfum misst 40
þeirra. Manntjónið er v:t-
anlega líka mikið, en þó
hðfði það getað verið mik-
ið meira af svo mörgum
skipum. Við höfum misst
um 80 manns.
— Vöruskortur? —
— Er tilfinnanlegur á
ýmsum sviðum. flestar inn-
fluttar matvörur skamtað-
ar. Kol fáum við ekki til
heimilisnotkunar nema hin
færeysku kol. En erfiðlega
gengur með vinnslu þeirra,
m. ia. vegna fólkseklu og
vegna þess. að lítið er um
timbur í stoðir námu-
ganganna. Frá Englandi
fáum við kol í skipin og í
sjúkrahús og aðrar opin-
berar byggingar, og ögn af
koksi. sem er skamtað.
— Hvað getið þið í
stuttu máli sagt mjer um
stjórnmálin og síðustu
kosningaúrslitin? -—
— Skýra þarf aðdrag-
anda þeirra með fáum orð-
um. Þegar Danmörk var
hernumin mynduðu 17 Lög
þingismenn samtök sín á
milli og gerðu samning við
Hilbert amtmann um það,
að þeir skyldu sjá um að
ekkert yrði samþykkt í
Lögþinginu, er amtmaður
gæti ekki fallist á.
Fólkaflokkurinn hjelt
því fram, að amtmaður
hefði ekki leyfi til þess að
taka völdin í sínar hendur
á þenna hátt, og heimtaði
að fram færu kosningar.
Sömu ósk ítrekaði flokk-
urinn. er Hilbert amtmaður
í fyrra sagði sig í flokk
„Frjálsra Dana“. En ekk-
ert varð úr þvd að kosn-
íngar færu fram. Amtmað-
ur stjórnaði Eyjunum með
5 manna nefnd sjer við
hlið milli þinga. í nefnd-
inni voru 2 fulltrúar úr
flokki sambandsmanna,
einn úr hverjum hinna
flokkanna, Fólkaflokki,
Sjálfstæðisflokki og Sósíal-
ista.
Svo komu kosningarnar
til Folkþingsins í vor, er
frambjóðandi Fólkaflokks-
ins var kosinn. Þrír flokk-
ar höfðu frambjóðendur í
kjöri, Fólkaflokkurinn,
Sambandsmenn og Sósíal-
istar. Við þær kosningar
fekk Fólkaflokkurinn að-
eins 250 atkvæðum færra
en hinir tveir flokkarnir til
saman. Að þessum kosn-
ingum loknum kallaði
amtmaður formenn flokk-
anna á sinn fund og til-
kynti þeim, að hann teldi
að hann gæti ekki skoðað
,,landsnefndina“ eða þing-
ið sem í'jetta mynd af
þjóðarviljanum. Og því
skyldu fram fara kosning-
ar.
En eftir úrslítunum við
kosningarnar í vor var
ekki nema eðlilegt að við
Fólkaflokksmenn gerðum
okkur vonir um að fá
hreinan meirihluta í Lög-
þjnginu við kosningarnar í
ágúst. En svo varð ekki.
Og það enda þótt Sjálf-
stæðisflokkurinn, er fekk
jTfir 1000 atkvæði, kæmi
engum að, svo atkvæði
hans fjellu ógild.
—- Hvernig verður sam-
starf flokkanna í Lögþing-
inu, þegar Fólkaflokkurinn
hefir 12 þingmenn, Sam-
bandsmenn 8 og Sósíalist-
ar 5? —
— Við getum engu um
það spáð. En þó Sam-
bandsmenn og Sósíalistar
vildu vinna saman, þá er
sá hængur á því, að þeir
hafa ekki við hendina
nema 7 Sambandsmenn,
því sá 8. er Poul Niclasen
ritstjóri, er hefir setið úti
í HÓfn síðan fyrir hernám.
Hann hefir hvað eftir ann-
að verið efsti maður á lista
Sambandsmanna í Þói's-
höfn. Hann var enn settur
á lista þeirra. En varamað-
ur hans getur ekki tekið
sæti á Lögþinginu nema
Lögþingið samþykki hann.
Við vitum ekki hvað Fólka
flokkurinn gerir í því máli.
— Hvernig stóð á því,
að hlutfallið milli flokk-
anna varð nokkuð annað í
ágúst en í maí? —
— Ástæðan fyrir því
mun hafa verið sú, að í
kjördæmakosningunum var
persónufylgi og atvinnu-
málum blandað mjög inn
í kosningabaráttuna. En
þetta kom síður til greina
við kosningarnar til Fólks-
þingsins í vor. Þá var kos-
ið aðallega um stefnumál-
in viðvíkjandi afstöðunni
út á við, en fjármál, at-
vinnumál og persónufylgi
komu síður til greina.
En hvernig sem fer í
Lögþinginu, er það kemur
saman eftir nokkra daga,
þá er eitt vitað, að allir
flokkar þingsins eru sam-
mála um, að sambandið
við Danmörku helst ekki
óbreytt frá því sem áður
var, að styrjöldinni lokinni.
Sambandsmenn, sem aðrir,
eru sammála um það. Þeir
vilja að við fáum meiri
umráð okkar mála, en við
höfum haft. Sósíalistar eru
með okkur í því að heimta
færeyska fánann viður-
kendan heima fyr'ir. Og
kosningarjett þurfum við
að hafa 21 árs. Nú hafa
menn ekki kosningarjett
fyr en þeir eru 25 ára. Með
því móti tapar sá flokkur-
inn fjölda atkvæða, er hef-
ir unga fólkið með sjer.
— Hvað er Joannes
faðir þinn orðinn gamall,
segi jeg við Pál.
Hann er 77 ára.
— Og hefir alltaf unga
fólkið með sjer, — og von-
ast eftir að unga fólkið í
Færeyjum fylgi stefnu
hans í framtíðinni, löngu
eftir að hann sjálfur er
kominn undir græna torfu,
segir hinn hressilegi bóndi
frá Kirkjubæ.
Marsvínatorfan
enn á Búlands-
höfðafjöru
í gær átti blaðið tal við
frjettaritara sinn í Grund-
arfirði. Sagði hann, að mar-
svínin lægju flest enn í
hrönn inni í Búlandshöfða-
fjöru.
Búlandshöfði er landsjóðs
jörð. Hafði ríkisstjórnin
beðið hreppstjórann í -Eyr-
arsveit að athuga málið og
gera álitsgerð um það,
hvernig hægt væri að hag-
nýta marsvínin. Ætlaði
hann á fjöruna í gær.
Helst er það bægsli og
sporður, sem hægt er að
hagnýta til manneldis. Hafa
bændur í nágrenninu flutt
af fjörunni 50—60 hestburði
af. slíkum matföngum. En
það er hverfandi lítið sam-
anborið við það sem eftir
er.
Talið er að hvalirnir hafi
ekki skemst mikið ennþá,
enn sje hægt að hagnýta þá
þannig, vinna úr þeim
lýsi og hvalmjöl í verksmiðj
um. Ekki hafa fundist til
þess útvegir enn.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Kristín Guðlaugsdóttir, Njáls-
götu 72 og Pjetiu’ Pálsson,
Miðtúni 24.
— Ræda Churchi s
Framh. af 1. síðu.
Ráðherrann sagði, að á ráð-
stefnunni hafi aðallega ver-
ið rætt um baráttuna gegn
Japan. Það hefði ekki verið
talið heppilegt, nje heldur
hægt við því að búast, að
Rússar hafi kært sig að sitja
þá ráðstefnu, því þess beri
að gæta, að Rússar hafi gert
5 ára griðasáttmála við
Japana.
Samvinna samveldis-
landanna.
Churchill hóf mál sitt
með því að ræða um til-
gang Quebec-ráðstefnunn-
ar. Hann þakkaði Kanada
fyrir þann skerf, sem það
hefði lagt til ófriðarins frá
því fyrsta, og mintist einn-
ig á hin samveldislönd
Breta. Hann kvaðst ekki
eiga heitari ósk en að sjer
gæfist tækifæri til að heim-
sækja sjálfur Nýja-Sjáland
og Ástralíu, til að geta r-ætt
við forystumenn þessara
landa og sagt þeim sjálfur
hvernig alt gengi.
Ráðstefna með
Rússum.
Churchill hældi Rússum
mjög fyrir hreysti þeirra á
vígvellinum og fyrir þær
miklu fórnir, sem þjóðin
hefði fært til að kasta af
höndum sjer innrásarher
Þjóðverja.
Hann sagði að það væri
ekki vegna þess, að hann og
Bandaríkjaforseti hefðu
ekki gert það sem í þeirra
valdi hafi staðið til að koma
á fundi milli þeirra og Stal-
íns, að ekki hafi neitt orðið
úr slíku ennþá. Stalín mar-
skálkur hefði í nógu að snú-
ast einmitt nú á vígvellin-
um, er Rússar væru að
vinna aftur svo mikið af
landi sínu. Churchill sagðist
vona, að brátt yrði hægt að
koma því svo fyrir, að þeir
hittust. En það, sem virtist
mest aðkallandi í bili, væri,
að utanríkisráðherrar Breta,
Bandaríkjanna og Rússa
hittust, eða fulltrúar þeirra,
til að ræða saman. Sigrarn-
ir í Miðjarðarhafi og sigrar
Rússa hafi breytt öllum horf
um og þess vegna sje nauð-
synlegt, að utanríkismála-
ráðherrarnir komi saman til
skrafs og ráðagerða, þar til
yfirmenn ríkisstjórnanna
sjálfir geti hitst. Það þurfi
ekki aðeins að ræða um nú-
verandi ástand, heldur og
framtíðina, og ráðstafanir,
sem gera þurfi að ófriðnum
loknum.
Nýjar vígstöðvar.
„Við höfum heyrt mikið
rætt um nýjar vígstöðvar
—„aðrar vígstöðvar“, sagði
Churchill ,,AlIir geta sjeð,
hve æskilegt það er að
koma upp vígstöðvum í
Norður-Frakklandi. Það er
ekki nema eðlilegt, að
Rússar hafi haldið því
fram, að koma verði upp
nýjurn vígstöðvum.
Við höfðum einu sinni
vígstöðvar í Frakklandi, og
það er auðveldara að
brjóta niður vígstöðvar en
að koma sjer upp nýjum
vígstöðvum. En jeg hefi
ávalt hugsað um , þriðju
vígstöðvar, sagði Church-
ill.
Balkanskagi í báli.
Churchill vjek nú að
baráttu Júgoslafa og
Grikkja og kvaðst vona, að
sá dagur rynni skjótt, er
þessar hugrökku þjóðir
fengju frelsi sitt aftur. Nú
væri svo komið, eftir sigra
bandamanna í Miðjarðar-
hafi og sigra Rússa, að
Balkanskagi væri kominn
í bál. Þjóðverjar ættu í hin
um mestu vandræðum með
að halda hinum undirok-
uðu þjóðum; þar í skefjum.
Italía.
Churchill mintist lítið
eitt á Ítalíu. Sagði aðeins,
að þessi veslings þjóð
mætti nú líða fyrir hinai
æfintýralegu og glæsam-
legu stjórn. Það væri hæg-
ara sagt en gjört að losná
við Þjóðverja. Þeir hefðu
nýlega sent fjölda her-
fylkja frá Frakklandi til
Italíu til að bæla. niður
mótþróa ítölsku þjóðarinn-
ar.
Þjóðverjar hefðu einnig
orðið að senda mikið flug-
lið frá Rússlandi til Italíu
og þar væri nú verið að
murka herlið þetta niður.
Hatrlð á Þjóðverjum vex.
4
Ráðherran mintist á at-
burðina í Danmörku. Þeir
væru afleiðingin af stjórn
Þjóðverja í hernumdu
löndum Evrópu og nýskip-
an þeirra. Hatrið væri nú
m,eira á Þjóðverjum meðal
undirokuðu þjóðanna í
Evrópu, en nokkur dæmi
væru til í veraldarsögunni*
að þjóð hafi verið hötuð.
SNIÐMEISTARI
karl eða kona, getur fengið framtíðarat-
vinnu við að standa fyrir kápusaumaverk-
stæði. Lysthafendur sendi nöfn sín í lokuðu
umslagi til afgreiðslu blaðsins fyrir 7. þ. m.
merkt „SniðmeistariÁ
s
y
y
y
y
y
y
y
•>
f
•>
y
y
•:♦
t
•:♦
I
♦*»
t
t
t
t
•I*