Morgunblaðið - 01.05.1947, Side 2
m&mm
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 1. maí 194/,
UM VIÐSKIFTASAMNINGANA
Ræða Bjarna Benediktssonar utan-
ríkisráðh. við eldhúsdagsumræðurnar
Það er sjaldgæft að verða í
lifandi lífi aðalsöguhetjan í
reyfara, sem er uppspuni frá
rótum, eins og jeg var í skáld-
sögu Aka Jakobss. hjer áðan og
er það sannarlega ánægja fyrir
svo óskáldlega persónu sem
mig, lítinn og lágkúrulegan, að
svona mikið skuli við mig haft,
og, mun það vissulega veita
mjer ótalda ánægju í daglegu
striti, að jeg skuli verka svo
eggjandi á ímyndunarafl Áka
Jakobssonar, að hann skyndi-
legá verður mesti reyfarahöf-
undur; sem setið hefur á Al-
þingi.
Mjer vinst ekki tími til að
rekja lið fyrir lið öll ósann-
indi háttvirts þingmanns, og
skál aðeins vikja að örfáum
atriðum.
Vanræksla Aka
á flugvellinum.
Um flugvöllinn vil jeg að-
eins segja það, að útlendingar
þeir, sem þar starfa, eru að
öllu leyti háðir umsjá útlend-
ingaeftirlitsins og sækja um
dvalarleyfi hjer jafn-harðan.
Liggur mikill fjöldi slíkra um-
sókna nú fyrir dómsmálaráðu-
neytinu og hefi jeg ekki látið
afgreiða þær, vegna þess að
jeg vil fá yfirlit um fjölda þess
ara manna og starfsgreiningu
áður en dvalarleyfin verða end
anlega veitt.
Að svo miklu leyti, sem enn
kann á að vanta, að búið sje
að koma öllu í rjett horf af ís-
lands hálfu á Keflavíkurvell-
inum, þá er það fyrst og fremst
sök Áka Jakobssonar. Hann
vanrækti undirbúning þessa
máls í ráðherratíð sinni og
gerði núverandi stjórn þar með
erfiðara fyrir. Að öðru leyti
er það flugmálastjórinn, sem
vanrækt hefir að gera stjórn-
inni aðvart, ef þarna er eitt-
hvað öðru vísi en vera skal.
Mega þeir Áki og Ellingsen
mín vegna deila um hvors sök-
in sje meiri. Það skiftir mig
litlu.
Heimsókn Marshalls.
Þá gerði Áki Jakobsson það
að árásarefni á mig, að jeg
hefði að næturlagi farið suður
á Keflavíkurvöll til að heilsa
upp á utanríkisráðherra Banda
ríkjanna, Marshall, og taldi
það úrslitasönnun um óhæfni
mína til að vera utanríkisráð-
herra.
Minstu máli skiftir, að ráð-
herrann kom hjer að kvöldi en
ekki um nótt. Sýnir það að-
eins, að jafnt er sagt ósatt um
smátt sem stórt.
Það er góður og gamall ís-
lenskur siður að heilsa gestum,
sem að garði ber, ekki síst. ef
boð hefir komið á undan þeim.
Sendiráð Bandaríkjanna til-
kynti mjer, að ráðherrans væri
von og var það þá jafnt í sam-
ræmi við íslenska sem alþjóð-
lega hæversku að taka á móti
honum, er hann stigi á íslenska
grund.
Hitt vil jeg að segja, að jeg
var ekki í amalegum fjelags-
skap að hitta Marshall, því að
kvöldinu áður hafði hann ein-
mitt setið í dýrðlegum fagnaði
með sjálfum Stalin austur í
Kreml. Var þar veitt af mikilli
rausn og tuttugu minni drukk-
in. Veit jeg, að Áki Jakobs-
son mundi hafa unað sjer vel
í því hófi, enda mundi hann
áreiðanlega ekki hafa þurft að
kvíða því að vera rukkaður fyr
ir það áfengi, sem hann hefði
þar tekið út.
Eitt dæmi um
óstjórn Áka.
Vegna ummæla Áka Jakobs-
sonar um viðskiftasamningana
við Rússa og framkomu mína
í þeim, skal jeg rekja það mál
nokkuð ítarlega og sýna fram
á lið fyrir iið, hversu fullyrð-
ingar hans eru haldlausar. Jeg
mun ekki gera það af skáld-
legu hugarflugi eins og Áki
Jakobsson talaði áðan, heldur
halda mjer við staðreyndirnar
einar eftir því, sem þær óvje-
fenganlegar birtast í skjölum
þeim, er í Stjórnarráðinu
liggja. En af þeim má marka
framkomu Áka Jakobssonar í
einu og öllu. Hún hefir öll ver-
ið á hinn sama veg og kemur
fram í skiftum hans af við-
skiftasamningunum við Rússa.
Upphaf afskipunarmanna. *
Það er upphaf þessa máls, að
á s. 1. hausti komu hingað 6
fulltrúar úr utanríkisviðskipta-
ráðuneyti Sovjetríkjanna, að
því er segir í brjefi Sovjetsendi
ráðsins hjer dags. 19. septem-
ber 1946, og er þá tilkynnt, að
þeir hafi komið til Islands um
sinn í sambandi við afskipun
á íslenskum fiskútflutningsvör-
um til Sovjetríkjanna.
Hæstv. fyrrv. atvinnumála-
ráðherra, Áki Jakobsson, hefir
auðsjáanlega haldið, að úr því
að menn þessir voru frá hinu
stjettlausa ríki Sovjetsambands
ins, stæði á sama, hvort um
væri að ræða menn, sem sendir
væru til að sjá um útskipun á
þegar keyptum fiski, eða út-
senda samninganefnd til milli-
ríkjaviðskipta og hóf þegar í
stað samningaumleitanir um
frekari verslunarviðskipti við
þessa afskipunarfulltrúa og rit-
aði þeim brjef, dags. 21. sept.,
þar sem teknar eru upp við-
ræður um kaup Sovjetríkjanna
á ísuðum fiski. Nokkrum dög-
um síðar ítrekaði utanríkisráðu
neytið þessi tilmæli til Sovjet-
sendiráðsins hjer og spurðist fyr
ir um, hvort þessi viðskipta-
nefnd mundi vilja kaupa fleiri
íslenskar vörur en þegar áður
hefði verið samið um. Sovjet-
sendiráðið svaraði þessu um
hæl með brjefi dags. 3. október,
og tilkynnti, að tilboð íslend-
inga mundi verða sent áleiðis
til hlutaðeigandi stjórnarvalda
í Sovjetríkjunum. Síðan bætir
Sovjetsendiráðið orðrjett við í
íslenskri þýðingu: „Sendiráðið
telur rjett að nota þetta tæki-
færi til að nefna, að Sovjetfull-
trúarnir, sem eru' nefndir í
brjefi yðar, komu til íslands til
að taka á móti íslenskum fisk-
framleiðsluvörum í samræmi
við viðskiptasamninginn11.
Rjett stjórnarvöld rússnesk
gátu eigi látið skýi-ar uppi en
þetta, að afskipunármenn þess-
ir væru hjer eingöngu í þeim
tilgangi, en alls ekki komnir til
að gera nýja verslunarsamn-
inga. Þrátt fyrir þessa ábend-
ingu Sovjetsendiráðsins og
þrátt fyrir það, að hæstvirtum
ráðherra barst ekki svar við
brjefi því, er hann hafði sjálf-
ur skrifað nefndinni 21; sept.,
var hæstvirtur ráðherra Áki
Jakobsson ekki að baki dottinn
um þessar samningaumleitanir
sínar. Hann átti áframhaldandi
viðræður við formann þessar-
ar nefndar, mann að nafni hr.
Semenov. Jafnframt útvegaði
hann sjer skýrslur hjá Lands-
sambandi útvegsmanna og Sölu
miðstöð hraðfrystihúsanna um
það verð, sem þessar stofnanir
teldu líklegt, að fá þyrfti fyrir
framleiðslu útvegsmanna á
þessu ári.
Áki afhcndir trúnaðarplögg.
Þessar skýrslur voru honum
sendar með brjefi dags. 16. og
17. október s. 1. og strax sama
dag, eða hinn 17. október, send-
ir hæstvirtur ráðherra þessar
skýrslur áleiðis til herra Semen
ovs. En þeim mun varhugaverð-
ara var að nota skýrslur þessar
þannig, þar sem þær voru auð-
vitað samdar til leiðbeiningar
fyrir íslenska samningsaðila
við erlend stjómarvöld og alls
ekki til þess löguð á þessu stigi
að koma þeim í hendur, svo
sem á daginn kom, því að þeg-
ar lögin um ábyrgðarverð á
fiski voru síðar sett, þá reynd-
ist verð það, sem íslenska
stjórnin varð að taka ábyrgð á,
miklum mun hærra heldur en
verðhugmyndir þær, sem ráð-
herrann setti fram við herra
Semenov í októbermánuði.
Má nærri geta, á hvern veg
slík vinnubrögð voru til þess
löguð að greiða fyrir síðari
samningum við' Sovjetríkin,
þegar miklu hærra verðs varð
að kiæfjast. Þ. e. a. s. ef þessi
plögg frá hæstvirtum ráðherra
hafa nokkru sinni komist til
rjettra aðila, svo sem ætla verð-
ur, þó að þeir að öðru virtust
lítt hirða um skifti hr. Semen-
ovs af þessu máli.
Fvrst er glappaskotið gert. —
Síðan skipuð nefnd.
Fyrst eftir að. hæstvirtur at-
vinnumálaráðherra Áki Jakobs
son hafði lagt þennan vænlega
grundvöll fyrir samningsgerð
við Sovjetríkin, skipaði hann
hinn 23. október þriggja manna
nefnd til þess að ræða við herra
Semenov, og aðra fulltrúa ríkis
stjórnar Sovjetríkjanna, um
sölu á íslenskum sjávarafurð-
um. (í nefnd þessa voru skip-
aðir Ársæll Sigurðsson, for-
maður, Ólafur Jónsson og
Einar Sigurðsson). Daginn eftir
átti nefndin fund með herra
Semenov og spurði hann þá
hvaða vörur Sovjetríkin hefðu
áhuga á að kaupa af íslending-
um á næsta ári og hvaða magn
af hverri vörutegund. Herra
Semenov kvað þau hafa áhuga
á mörgum útflutningsvörum
íslendinga, en þó einkum þeim,
er að neðan greinir, og í þeirri
röð, sem þær eru hjer taldar:
1. lagi síldarlýsi,
2. lagi saltsíld,
3. lagi þorskalýsi,
4. lagi hraðfrystum fiski,
5. lagi ísuðum fiski,
6. lagi saltfiski,
7. lagi söltuðum hrognum.
Minnsta magn, sem Sovjet-
ríkin teldu sig geta sætt sig
við af síldarlýsi og saltsíld
væru % af framleiðslunni en
helst vildu þau fá keypta þessa
framleiðslu alla. Ef samningar
tækjust um það, mundu þau
jafnframt vilja taka það, sem
vjer þyrftum að selja af öðr-
um vörum.
Herra Semenov tilkynnir, að
hann hafi ekki umboð.
Herra Semenov sagðist vilja
undirstrika það, að hann hefði
ekki umboð til samninga, held-
ur hefði honum aðeins verið
falið að leita tilboða, sem hann
mundi síma til Moskva. Þar
mundi svo verða tekin afstaða
til þeirra og þá væntanlega út-
nefnd samninganefnd með fullu
umboði. Hr. Semenov kvað
Sovjetríkin hafa hug á því, að
viðræðum væri hraðað og ósk-
aði að fá sem fyrst að vita hug-
myndir Islendinga um magn og
verð hinna þriggja tegunda,
sem fyrst eru taldar hjer að
framan.
Mánudaginn 28. október var
svo haldinn fundur í utanríkis-
ráðuneytinu að tilhlutun for-
sætis- og utanríkisráðherra
Ólafs Thors, sem stýrði fund-
inum. Þar voru mættir, auk for-
sætisráðherra og fulltrúa í
utanríkisráðuneytinu, níu menn
frá ýmsum greinum sjávaraf-
urðaframleiðslunnar, þar á
meðal 2 nefndarmanna, þeir
Einar Sigurðsson og Ólafur Jóns
son. Auk þessara voru mættir
tveir menn frá innflutnings-
versluninni. I lok þessa fundar
lýsti forsætisráðherra yfir því,
sem niðurstöðu fundarins, að
fulltrúar íslenskra framleið-
enda væru fúsir til þess að
hefja nú þegar viðræður og
samningaumleitanir við full-
trúa ríkisstjórnar eða verslun-
arstofnana Sovjetríkjanna um
viðskipti milli landanna. Hins-
vegar óskuðu þeir ekki að
nefna verð eða magn fyrr en
samningar hæfust við menn
með umboði, en hann fyrir sitt
leyti óskaði, að það gæti orðið
sem fyrst, helst innan viku eða
svo. Best teldi hann, ef samn-
ingar gætu farið fram hjer á
landi, en þó væri það ekki nein
krafa. Bað hann þá nefndar-
menn, sem mættir voru á fund-
inum, að tilkynna hr. Semenov
þessa niðurstöðu fundarins.
Herra Semenov fer og kemur
ekki aftur.
Daginn eftir tilkynntu nefnd
armenn hr. Semenov þessa nið-
urstöðu og ummæli forsætis-
ráðherra. Hr. Semenov spurði,
hvort hann mætti síma þessi
ummæli forsætisráðherra til
Moskva og bera hann fyrir
þeim, og svöruðu nefndarmenn
því játandi. Hann kvaðst þá
mundi gera það. Bjóst hann við
að það mundi taka nokkra daga
að fá svar að austan, en hann
mundi láta nefndina vita þeg-
ar er svar kæmi. Fleiri fundi
hafði nefndin ekki með herra
Semenov.
Néíndin skrifaði hæstvirtum
fyrrv. atvinnumálaráðherra
brjef dags. 13. nóvember, þar
sem hún tilkynnir, að hr. Sem-
enov sje nú farinn til Englands
og muni ekki koma aftur fvrr
en eftir hjer um bil hálfan mán
uð. Segir nefndin að lokum,
eftir að hún hefir rakið gang
málsins:
„Nú er nefndinni kunnugt
um, að útgerðarmenn og frysti-
húsaeigendur eru orðnir óþolin-
móðir að bíða eftir lausn þess-
ara mála, og má segja að það
sje að vonum þar sem nú ýtir
hver tíminn öðrum er vertíð
stendur fyrir dyrum. Eigi að’
bíða eftir komu hr. Semenovs
frá Bretlandi, — en hann
kvaðst mundu koma hingað
þaðan, — dragast allar viðræð-
ur a. m. k. um tveggja vikna
skeið, eins og áður er sagt.
Nefndin hefir því komið sjer
saman um, að beina því til yðar,
herra atvinnumálaráðherra,
hvort ríkisstjórnin mundi ekkl
telja rjett, að leita eftir því með
milligöngu utanríkisþjónust-
unnar, að þessum málum verði
hraðað svo sem unnt er“.
Eftir þetta hefir ekki heyrst
frá hr. Semenov svo vitað sje.
Hann svaraði nefndinni aldrei
þeim skilaboðum og tilboðum,
er hann hafði fengið í hendur
og hann ljet aldrei sjá sig fram
ar hjer á landi. Áður en herra
Semenov fór af landi brott, hef-
ir hæstv. fyrrv. atvinnumála-
ráðherra Áki Jakobsson, þó
skýrt frá því, að hann hafi átt
samtal við sig hinn 9. nóvem-
ber og sagt, að þá væri svar
frá Moskva komið og máliö
væri í athugun. Síðan hefir
sem sagt ekkert spurst til hr.
Semenovs.
Afstaða yfirvaldanna í Moskva
Ekki gerði fyrv. atvinnumálá
ráðh. Áki Jakobsson gangskör
að því eins og nefndin bað um,
að óska þess að utanríkisráðu-
neytið tæki mál þetta upp.
En ráðuneytið gerði það engu
að síður að eigin hvötum í des.
og þegar sendifulltrúi íslands
í Moskva samkv. tilmælum ut-
anríkisráðuneytisins grenslaðist
þá eftir því, hvað meðferð þess
ara tilboða íslendinga liði,
skýrði rjettur aðili honum þar
svo frá, að viðræðurnar milli
Semenovs og atvinnumálaráðu-
neytisins hefði að sínu áliti at$
eins verið lausleg viðtöl til a<5
kanna jarðveginn, enda væri
Semenov ekki fulltrúi Sovjet-
stjórnarinnar heldur aðeins
starfsmaður hjá vcrslunarstofn
uninni Exportkleb. Og þegar
íslenska samninganefndin aust-
ur í Moskva eða Ársæll Sig-
urðsson fulltrúi í henni, serrt
Framh. á bls. 8 j
i