Morgunblaðið - 01.05.1947, Qupperneq 5
• Fiiimitucli}gur; ,1- maí 1947
l >MtO:R!G U Tí B) L'A-iÐ I Ð
? 5
Rilstjórn: Landssambandsstjórn sjálfstœðisverkamanna og sjómanna.
FYRSTIMAÍ - ópólitískur hútáðis-
dugur verknmunna
iiifmiiimit
DAGURINN 1. maí á sjer nokkuð sjerstæða merkingu í hug-
um íslenskrar alþýðu sökum þess, að þessi dagur hefir verið
yiðurkendur og löghelgaður sem sjerstakur frídagur verkalýðs-
ins og hefir hann um nokkur undanfarin ár verið haldinn hjer
á landi hátíðlegur sem slíkur og er ekki nema allt gott um það
að segja og reyndar eðlilegt og sjálfsagt að verkamenn hafi sinn
Ejerstaka frídag, sem eingögnu er helgaður þeirra samtökum.
Það mun og tíðkast víðs-f"
yegar um heim, að verka-
menn haldi þennan dag hátið-
legan með því að taka sjer al-
gert frí frá störfum. Þá er
það að sjálfsögðu algjört hugð
arefni verkamanna að þessi
hátíðisdagur þeirra megi
yerða þeim sjálfum og þeirra
aðstandendum til sem mestrar
gleði og sóma. En til þess að
svo megi verða, má enginn
ptjórnmálaflokkur leyfa sjer
að nota þennan dag sem sjer-
stakan pólitískan áróðursdag
til framdráítar sínum flokki,
því það hlýtur óhjákvæmilega
að eyðileggja þann tilgang,
sem þessum degi er ætlað að
jnna af hendi, sem er sá, að
dagurinn sje skemmti- og frí-
dagur verkafólksins og helgað
!ur hugðarefnum og hagsmuna
málum stjettarinnar.
i.róðursdagur eins flokks
Þar sem innan verkalýðs-
amtakanna eru menn af öll-
ím stjórnmálaflokkum, verð-
ir það að teljast sjálfsagt og'
íðlilegt að þeir, sem skipu-
eggja hátíðahöld þessa dags,
ýni þá sjálfsögðu smekkvísi
>g kurteisi við verkamenn að
osa þá við allt pólitískt arg og
uas á þessum hátíðisdegi
icirra. En slíku láni hefur is-
'ensk verkalýðsstjett ekki ótt
ið fagna. Frá þvi iyrst, er far-
ð var að halda 1. mai hátíð-
egan, hefur hann meira og
ninna verið notaður sem sjer-
;takur áróðursdagur þess
lokks, sem ráðið hefur mestu
im stjórn Alþýðusambandsins.
\ þeim tima, sem stjórn Al-
lýðusamhandsins var í hönd-
,im Alþýðuflokksins var 1.
nai helgaður Alþýðuflokkn-
un, en eins og kunnugt er,
’jeðust sjálfstæðisverkamenn
ill hart á þetta fyrirkomulag
)g misnotkun á deginum, og
jcrðu kommúnistar, sem þá
roru tiltölulega fámennir slikt
íið sama, og það með rjettu.
5vik kommúnista
En svt hefst nýtt tímabil í
;ögu verkalýðshreyfinga rinn-
u. Kommúnistar ná illu heilli
^firtökunum i stjórn verka-
ýðssamtákanna, og meðan
;líkt var að gjörast voru ekki
;pöruð hin gullnu loförð. —
Verkamönum voru gcfin glæst
fyrirhcit um lýðræðislegt fyr-
irkomulag í verkalýðsfjelögun
um, öll pólitík skyldi rekin á
dyr og verkalýðsfjelögunum
eingöngu stjórnað með hags-
muni verkamanna fyrir aug-
um. Um efndirnar fór, eins
og við mátti búast, frá slíkum
mönum.
Sjálfstæðisverkamenn gerðu
sjer að vísu aldrei háar vonir
um lýðræðishjal kommúnista,
til þess höfðu þeir fengið allt
of góð kynni bæði af starfs-
háttum þeirra svo og af þeim
mönnum, sem hafðir voru á
oddinum. Þó töldu sjálfstæðis-
verkamenn rjett að láta
kommúnista sýna heilindi sín
í garð verkamanna, og höfð-
ust því ekkert að, því sjálf-
stæðisverkamenn voru þess al-
búnir að gjöra allt, sem i
þeirra valdi stæði, til þess að
1. maí, hátiðisdagur verkalýðs
ins, gæti farið fram með sem
mestum glæsibrag, svo hann
mætti verða verkamönnum til
sem mestrar gleði og sóma, og
að hann gæti jafnframt losað'
verkamenn við hið pólitíska
dægurþras, sem meira en nóg
var af hina daga ársins.
ís’cnski fáninn í staö þess
rauða
Svo rann upp hinn 1. maí
hátíðisdagur, sem haldinn var
undir stjórn kommúnista, og
gaf hann þá þegar fyrirheit
um það, hver mundi verða
stefna þeirra í framtíðinni, og
hvers skyldi vænta af þeim i
•þesum málum. Dagurinn var
fyrst og fremmst hápólitískur
áróðursdagur fyrir Kommún-
istaflolvkinn, og svo hefur ver-
ið, sem vænta mátíi um þau
1. maí hátíðahöld, sem fram
hafa farið siðan rauði fáninn
rússneski hefur verið látinn
sitja í öndvegi þennan dag.
Hann hefur vérið langsam-
lega mest áberandi i hópgöng-
unni. fslenska þjóðfánanum
hefur verið vikið til hliðar. Þó
fiefði vist íslenskum verka-
mönnum, nema kommúnist-
um, verið kærara að ganga
undir islenska fánanum.
Þá hafa erlendir byltinga-
’söngvar vérið komntúnistum
sætarjá rpunni til söngs þenn-
an dag,- og hafa þeir mest ver-
ið uotaðir, cú-islensldr ættjarð
arsöngvar hafa aftur á móti
kommúnistum síðar þótt söng-
hæfir.
f dagskrá Ríkisútvarpsins,
sem helguð hefur verið degin-
um, hefur verið teflt fram að-
alleiðtogum Kommúnista-
flokksins, sem hafa þrumað
yfir háttvirtum hlustendum
hápólitískar æsinga- og áróð-
ursræður á rikjandi þjóðskipu-
lagi, og inn á milli ræðanna
hefur verið smeygt bvltinga-
söngvum, líklega til þess að
kynna lilustendum þá ættjarð
arsöngva, sem koma skyldu,
ef kommúnistar ættu eftir að !
ráða rikjum á fslandi.
Sökum þesara óhæfilegu og
óviðeigandi misnotkun komm-
iinista á 1. mai, hefur sá hóp-
ur verkamanna alltaf stækkað
meira og meir, sem dregið hef
ur sig í hlje frá þátttöku í há-
tíðahöldunum, og er það vissu
lega von, að svo sje.
Hátíðisdagur frjálsborinnar
íslenskrar aíþýðu
Sjálfstæðisverkamenn vilja
beita sjer fyrir því, að gjöra
1. maí að ópólitískum hátíðis-
degi, sem miði að því, að lyfta
hugsun verkafólksins frá önn-
um og striti vinnudagsins. Að
liðnum þessum hátiðisdegi
bíður verkamannsins hin
fjöldamörgu óle.ystu verkefni,
sem krefjast skjótrar úrlausn-
ar, og á því, að þau sjeu vel og
samviskusamlega af hendi
leyst, veltur öll velferð þess
þjóðfjelags, sem við eigum við
að búa. Við Sjálfstæðisverka-
menn óskum þess, og \’ið eig-
um kröfu á því, að sú ósk okk-
ar sje tekin til greina, að þessi
hátíðisdagur verkamanna sje
fyrst og fremst hátíðisdagur,
en ekki notaður sem pólitísk-
ur flokksdagur til framdráttar
: Kommúnistaflokknum eða
nokkrum öðrum stjórnmála-
flokki.
En það virðist, að núver-
andi stjórnendur verkalýðs-
| samtakanna líti þar öðrum
augum á, því þeir hafa lagt
allt kapp á það siðan þeir tóku
við stjórn samtakanna, að
gjöra þau fyrst og fremst að
hagsmunasamtökum Kommún
istaflokksins, og hafa ekkert
látið ógert til þess, að ná þvi
marki. En takist sú ætlun
þeirra að fullu, er þess skamt
að bíða, að íslenskum verka-
lýðssamtökum mistakðist það,
sem mestu skiptir, að 1. maí
sje sannur hátíðisdagur frjáls-
í borinnar íslenskrar alþýðu.
11 iii i ii m ii iti
...................... -
nm
AVARP
UM LEIÐ og sjálfstæðisverkamenn og sjómenn
hefja útgáfu á sjerstakri sambandssíðu í Morgun- :
blaðinu, sem eingöngu er helguð málefnum sjálf-
stæðisverkamanna og sjómanna, óskar stjórn sam-
bandsins efitir samvinnu allra sjálfstæðismanna og
þá sjerstaklega verkamanna og sjómanna, svo að
hægt verði að gjöra þessa sambandssíðu, sem best
ur garði, til þess að hún geti sem best gegnt því
hlutverki, sem henni er ætlað að inna af hendi, en
það er helst hægt með því, að sem flestir sendi
siðunni, til birtingar, greinar um þau áhugamál,
sem efst eru á baugi hjá þéim á hverjum tíma.
Með því að raddirnar verði sem flestar og komi
sem viðast að hlítur einnig að fást betra yfirlit '■
um málin og þá afstöðu, sem sjálfstæðisverka-
menn og sjómenn kunna að taka til þeirra.
Stjórn Landssambands Sjálfstæðisverkamanna
og sjómanna hefur nú í nokkurn tíma verið Ijós
sú nauðs}rn að þessum samtökum væri helgað rúm :
í aðalmálgagni Sjálfstæðisflokksins, Morgunblað-
inu, sem er viðlesnasta blað landsins, og er hugs-
að að síðan komi út einu sinni í mánuði hverjum.
Tilgangurinn með þessari nýbreytni er sá, að
kynna landsmönnum starf og stefnumál Sjálf-
stæðisverkamanna og sjómanna, sem er meðal
annars, að beita sjer fyrir lýðræðisfyrirkomulagi
innan vei’kalýðssamtakanna, en eins og nú horfir
málum, vantar mikið á að svo sje, og munum
vjer leitast við að bæta þar úr eftir því sem föng
eru á.
Árið 1941 hóf stjórn Landssambands sjálfstæð-
isverkamanna og sjómanna, undir forystu Her-
manns Guðmundssonar, núverandi forseta Alþýðu
sambands Islands, sem þá var stjórnarformaður
Landssambandsins, útgáfu blaðs, er nefnt var
„Lýðfrelsið“, og kom það út einu sinni i mánuði
í eitt ár og náði talsverðri útbreiðslu. „Lýðfrelsið“
flutti einungis greinar um verklýðsmál og ræddi
þau frá sjónarmiði sjálfstæðisverkamapna og hafði
það mjög mikla þýðingu fyrir samtök sjálfstæðis-
verkamanna og sjómanna.
Þessari sambandssíðu er nú ætlað að gegna
sama hlutverki og „I.ýðfrelsinu11. Stjórn Sambands
sjálfstæðisverkamanna og sjómanna telur að sam-
tökin hafi beðið við það mikinn hnekki, að horfið
var frá því ráði, að halda áfram útgáfu á blaðinu
„Lýrðfrelsi“ og hyggst nú að reyna að bæta úr því
eftir því sem hægt er. Telur hún að sambandssíða í
jafnfjöllesnu blaði sem Morgunblaðinu, ætti að
bæta að verulegu leyti úr þeirri þörf samtakanna,
að koma stefnu og áhugamálum sínum fyrir sem
flestra sjónir.
Þá væntum við þess að samherjar okkar um allt
land sýni sambandssíðunni sama skilning og vel-
vilja, eins og þeir sýndu „Lýðfrelsinu“ á sínum
tíma, en það geta þeir best gert með því að senda
greinar um áhugamál sin, og verði slikt gjört er
vissa fengin fyrir þvi, að síðan nær þeim tilgangi,
sem henni er ætlaður og leiðin til sigurs að settu
marki greiöari.
Axel Guðmumlsson, Meyvant SigurSsson,
ísleifur Guðmundsson, Þorvarður Þorvarðarson,
Ölafur R. Bjöfiisson.
| Bankastræti 7. Simi 6063 i i
s er miðstöð bifreiðakaupa. = i
IMiMllllMIUIIIIM. «UMI*l{ll|lllllllinMIUI«^ll|IIIMMIII
tl|IIIIIIIIIIIIIIIIIMIUIIIIIIIIIIIII|IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIMI|IIMIM
MMIIMMIMIMIIMMMMIMMII' 111 ^IUIII IIIII1111IIIIII