Morgunblaðið - 26.08.1959, Síða 2
2
MORCUNBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 26. ágúst 1959
Fjölmennf þing og héraðsmöt Fjórð-
ungssambands Sjálfstœöismanna á
Vestfjörðum haldin að Núpi í Dýrafirði
ISAFIRÐI, 24. ágúst. — Þingr. Fjórðungssambands Sjálfstæðismanna
á Vestfjörðum var haldið að Núpi í Dýrafirði laugardaginn 22.
ágúst og hófst kl. 4 síðdegis. — Formaður sambandsins, Matthías
Bjarnason, framkvæmdastjóri, tsafirði, setti Jjingið og bauð full-
trúa velkomna. Árnaði hann Gísla Jónssyni, þingamnni Barð-
strendinga heilla með sjötugsafmæli, er hann átti fyrir skömmu.
Xóku fulltrúar undir árnaðaróskir formanns með lófataki. — Þá
voru kjömir fundarstjórar, þeir Magnús Amlin, Þingeyri og Ás-
mundur Olsen, Patreksfirði og ritarar: Jörundur Gestsson, Hellu
oð Baldur Bjarnason, Vigur.
Ávörp og ræður
Þá flutti formaður sambandsins
rseðu og að því loknu fluttu á-
vörp þeir Gísli Jónsson, þingmað
ur Barðstrendinga, Kjartan J.
Jóhannsson, þingmaður ísfirð-
inga, Ragnar Lárusson, frambjóð
andi Sjálfstæðisflokksins í
Strandasýslu, Sigurður Bjarna-
son, þingmaður Norður ísfirð-
inga og Þorvaldur G. Kristjáns-
son, þingmaður Vestur-ísfirðinga.
Þá lagði formaður fram Irum-
varp að nýjum lögum fyrir sam
bandið, með tilliti til breyttrar
kjördæmaskipunar. Var frum-
varpinu vísað til laganefndar.
Framsögumaður nefndarinnar
var Guðfinnur Magnússon, ísa-
firði. Var frumvarpið afgreitt
með fáum breytingatillögum.
Síðan var rætt um, hvaða hátt-
ur skuli hafður varðandi skipan
framboðslista við næstu alþing-
iskosningar. Tillögur um það
voru samþykktar með öllum at-
kvæðum. Kjörin var sérstök kjör
nefnd til þess að ganga endan-
lega frá framboðslista.
Síðan hófust umræður um hér-
aðsmál, og tóku margir til máls.
Að lokum fór fram kosning for-
manns sambandsins fyrir næstu
tvö ár. Endurkjörinn var ein-
róma Matthías Bjarnason, ísaf.
Kosning fulltrúaráðs
Frá Isafirði: Guðfinnur Magn-
ússon og Jón Páll Halldórsson.
Úr Norður-ísaf jarðarsýslai: Frið
rik Sigurbjörnsson, Bolungarvík.
Friðrik Guðjónsson, Vogum,
Þórður Sigurðsson, Hnífsdal.
Úr Strandasýslu: Kristján Jóns
son, Hólmavík,, Guðbrandur
Benediktsson, Broddanesi og Jör-
undur Gestsson, Hellu.
Úr Barðastrandasýslu: Jóhann-
es Ámason, Patreksfirði, Páll
Hannesson, Bíldudal og Sveinn
Guðmundsson, Miðhúsum.
Úr Vestair-ísafjarðarsýslu:
Magnús Amlín, Þingeyri, Jón Þ.
Btefánsson, Flateyri og Óslkar
Kristjánsson, Suðureyri.
Varamenn voru kjörnir: Högni
Þórðarson, ísafirði, Guðjón Krist-
insson, ísafirði, Guðmundur B.
Jónsson, Bolungarvík, Kristján
Sveinbjörnsson, Súðavík, Frið-
— Eisenhower
Framh. af bls. 1.
ríkjanna væri hann í rauninni
þjóðhöfðingi, og hann mundi fara
til Bandaríkjanna sem þjóðhöfð-
ingi. Eisenhower kvaðst hafa
skuldbundið sig til að fara til
Sovétríkjanna og hann mundi
þess vegna fara þangað, nema
eitthvað óvænt hindraði för hans.
Tilgangur Evrópufararinnar
Eisenhower hóf fundinn með
fréttamönnunum með því að lesa
upp yfirlýsingu um tilgang far-
ar sinnar til Evrópu á morgun.
Tilgangurinn felst í eftirfarandi
fimm atriðum:
1) Bandarikin munu styðja ein-
huga mótspyrnu Vesturveld-
anna gegn hvers konar árás,
með valdi ef þörf krefur.
8) Bandaríkin eru fús til að
eiga raunsæjar viðræður við
Sovétríkin um allar sann-
gjarnar áætlanir varðandi
afvopnun, sem hægt er að
framkvæma á báða bóga, og
þau munu gangast inn á að
stiga fyrsta skrefið til að
leysa vandarrfál Þýzkalands
og draga úr alþjóðaviðsjám.
3) Forsetinn mun ræða við ein-
staka leiðtoga Vesturveld-
anna um þau vandamál, sem
þau eiga sameiginleg við
Bandarikin.
4) Hann mun fullvissa leiðtoga
Vesturveldanna um algera
tryggð Bandaríkjanna við At-
lantshafsbandalagið.
5) Hann mun leggja til, að
Bandaríkin og ríki Vestur-
Evrópu athugi í sameiningu
möguleikana á að bæta lífs-
skilyrði þeirra tæpu tveggja
milljarða manna, sem lifa í
vanræktum löndum og eru
nú að hefja iðnvæðingu sína.
r -rsendwr boðsins til Krúsjeffs
Um forsendurnar fyrir boðinu
til Krúsjeffs sagði Eisenhower,
að hann hefði áhuga á að kanna
sjálfur hvort Krúsjeff hefði fram
að færa tillögur, sem hinn frjálsi
heimur kynni að geta rætt og
jafnvel samþykkt, þannig að
hægt verði að draga úr viðsján-
um í heiminum. Ennfremur
að Krúsjeff sæi með eigin augum
hvernig frjálsir menn lifa og
vinna. Einn af lærdómunum sem
Krúsjeff gæti tekið með sér heim
eftir veruna í Bandaríkjunum
væri sá, að fjöldi manns í land-
inu væri andvígur heimsókn hans
Eisenhower var gramur.
Eisenhower var greinilaga
gramur þegar hann minntist á þá
gagnrýni sem fram hefur komið
á heimsókn Krúsjeffs, m.a. frá
Truman fyrrverandi forseta.
Hann sagði, að forseti sem ekki
notaði tíma sinn, áhrifavald og
krafta, sem ekki reyndi að finna
nýjar leiðir til að tryggja frið-
inn ,slíkur forseti ætti skilið for-
dæmingu bandarísku þjóðarinnar
Orðrómur borinn til baka
Eisenhower bar til baka allan
orðróm um, að bróðir hans, dr.
Milton Eisenhower, hefði haft
með sér frá Moskvu ádrátt um,
að Krúsjeff kynni að stinga upp
á því, að myndaður yrði „gangur“
milli Berlínar og Vestur-Þýzka-
lands. Það fylgdi sögunni að ó
sama tima mundi Vestur-Þýzka-
land taka að sér stjórn Vestur-
Berlínar, en Vesturveldin kalla
herafla sinn frá Berlín. Eisenhow
er sagði að orðrómurinn væri úr
lausu lofti gripinn.
Óvíst um framhald á kjarna-
sprengjutilraunum
Forsetinn sagði enn, að ekki
hefði verið tekin nein ákvörðun
um það, að hve miklu leyti Banda
ríkin tækju að nýju upp tilraun-
ir með kjarhavopn eftir 31. okt.,
en þann dag lýkur hléinu, sem
Vesturveldin gerðu á tilraunum
sínum að eigin frumkvæði.
Þrælkuðum þjóðum ekki
gleymt
Að lokum sagði Eisenhower
aðspurður, að Bandaríkin mundu
aldrei fallast á, að í heiminum
væri heilbrigt og varanlegt frið-
arástand meðan hinar þrælkuðu
þjóðir kommúnismans fengju
ekki sjálfar að ákveða örlög sín.
Bandaríkin munu nota hvert
tækifæri og hvern möguleika til
að hjálpa þeim til að láta í ljós
vilja sinn, en þau munu aðeins
nota til þess friðsamleg meðul,
kvaðst hann vilja tryggja það, sagði forsetinn.
'jón Sigurðsson, Hólmavik, Jón
Guðmundsson, Stóru-Ávík, Arn-
grímur Jónsson Núpi, Baldur
Sveinsson, Flateyri, Þórður Jóns-
son, Hvallátrum.
Fulltrúaráðið kaus úr sínum
hópi fjóra menn í stjórn sam-
bandsins og voru þessir kjörnir:
Varaformaður: Jóhannes Árna-
son, Patreksfirði; ritari Jón Páll
Halldórsson, ísafirði; og með-
stjórnendur: Óskar Kristjánsson,
Suðureyri og Friðrik Sigurbjörns
son, Bolungarvík.
Að lokum þingstörfum þakk-
aði formaður sambandsins full-
trúum komuna, og einnig þeim,
sem undirbjuggu þingið og bað
þingfulltrúa að minnast fóstur-
jarðarinnar og var svo gert. Síð-
an var þlnginu slitið. Þing þetta
var hið fjölmennasta, sem sam-
bandið hefir haldið. Mættir voru
115 fulltrúar. Á þinginu ríkti
mikill eining og áhugi fyrir mál-
efnum Sjálfstæðismanna.
Héraðsmót á sunnudag
Sunnudaginn 23. ágúst hófst
svo héraðsmót sambandsins á
sama stað kl. 16.30. Jóhannes
Árnason, varaformaður sambands
ins, setti mótið og stjórnaði þvj.
Var mótið mjög fjölsótt. Ræður
fluttu alþingismennirnir Sigurð-
ur Bjarnason og Þorvaldur G.
Kristjánsson. Var gerður mjög
góður rómur að máli þeirra. —
Skemmtiatriði önnuðust: Harald
ur Á. Sigurðsson, Ómar Ragaars
son og Hafliði Jónsson. Siðan var
dansað. Mótið fór hið bezta fram.
Allur aðbúnaður á staðnum var
með miklum ágætum og þakkar
Fjórðungssambandið skólastjóra
Núpsskóla, séra Eiríki Eiríkssyni,
fyrir þá velvild, sem hann sýndi
með því að leyfa að þinghald og
mót væri haldin á þessum ágæta
stað. Einnig þakkar Fjórðungs-
sambandið öðrum heimamönnum
á Núpi fyrir góða fyrirgreiðslu.
— Guðjón.
George Grosz
Skopteiknarinn Grosz nýlótinn
HINN heimskunni skop- og aðarandann og stríðsæðið. Hann
ádeiluteiknari George Grosz er
nýlátinn af hjartaslagi, 65 ára
gamall. Hann var fæddur og upp
alinn í Þýzkalandi og ætlaði í
öndverðu að gerast alvarlegur
listmálari. Hann var hermaður í
fyrri heimsstyrjöld og komst þá
í náin kynni vi& villimennsku
stríðsins og höfðu þau kynni óaf-
máanleg áhrif á hann. Upp frá
því helgaði hann krafta sína
miskuiiarlausum ádeilum á hern-
Alkirkjuráðið fordœmir
kjarnavopnatilraunir
RÓDOS, 25. ágúst. — Samþykkt
var á þingi Alkirkjuráðsins á
eynni Ródos í morgun að skora
á leiðtoga kirkjunnar og stjórn-
málaforingja og svo alþýðu
manna að setja sér ekki lægra
markmið en það að afnema
i Kðpaskeri, 19. ágúst 1959 \
S KLUKKAN 9 aö morgni mið- s
| vikudagsins 19. ágúst, gerö- )
\ ist sá merkisatburöur, aö \
s fyrsta íslenzka fragtskipiö \
\ lagöist aö bryggju á Kópa- S
\ skeri. Þetta skip var m.s. •
S Disarfell frá Þorlákshöfn. — ;
i Skipstjóri var Ingi Halldórs- S
\ son frá Vopnafiröi. Fram- i
s kvœmdastjóri Kaupfélags i
| Noröur-Þingeyinga, Þórhall- S
\ ur Björnsson, bauö skip og |
s skipshöfn velkomiö, en skip- ;
) stjóri þakkaöi fyrir hönd s
• skipshafnar. Aö þessu loknu |
S hófu verkamenn uppskipun ;
S á farmi skipsins, sem aö s
i þessu sinni var harðkol og )
^ koks og skipuöu upp 230 \
S tonnum á 7% tíma. Unnið s
> var aöeins við eina lest. Mega s
^ þaö teljast góö afköst, ekki |
s sízt ef miöaö er við uppskip- s
s unarbáta þá, sem viö höfum s
\ notazt viö undanfarin ár. Er\
s meö þessari skipskomu merk-;
S um áfanga náö t samgöngu- s
\ málum héraösins enda fyrir \
s henni flaggaö á flestum hús-;
S um þorpsins.
!
— Jósep.
styrjaldir með öllu. Ennfremur
var skorað á kjarnorkuveldin að
hefja ekki aftur tilraunir með
kjarnavopn, heldur gefa fulltrú-
um sínum tóm til að semja um
bann við slíkum tilraunum.
Sérstök ályktun var gerð vegna
fyrirhugaðra tilrauna Frakka
með kjarnavopn í Sahara-eyði-
mörk. Segir þar að engin ein-
stök þjóð sé þess umkomin að
ákveða upp á sitt eindæmi að
gera tilraunjr með kjarnavopn,
sem bitnað geti á öðrum þjóðum,
sem ekki hafa samþykkt þær.
Sízt af öllu sé slíkt framferði
réttlætanlegt meðan verið sé að
semja um bann við tilraunum
þessum og alþjóðlegt eftirlit. Þá
fagnar kirkjuþingið því, að stór-
veldin skuli nú hyggja á samn-
ingaumleitanir sín á milli i því
skyni að draga úr stríðsóttanum.
Kirkjuþing Alkirkjuráðsins
sækja fulltrúar 173 kirkjufélaga
mótmælendakirkna og grísk-
orþódoxu kirkjufélaganna, en frá
rómversk-kaþólsku kirkjunni eru
áheyrnarfulltrúar.
Jafnt-iU
HAFNARFIRÐI — Leiknum
milli Akureyringa og Hafnfirð-
inga síðastliðinn sunnudag lyxt-
aði með jafntefli, 0:0.
En í 3. og 4. flokki unnu dreng-
irnir að norðan mikinn sigur.
í 3. fl. með 10 gegn 1 og 4. fl.
með 6 mörkum gegn 0. —G.E.
var handtekinn og sektaður þrisv
ar af stjórnarvöldunum, en nafn
hans var þegar þekkt um allan
heim. Árið 1932 var honum boðið
að kenna við listaháskóla í New
York, og upp frá því átti hann
heimili í Bandaríkjunum.
Hann kvæntist og eignaðist tvo
syni. Lífið virtist mun bjartara
og hann hóf að mála rómantískar
landslagsmyndir, blómamyndir
og annað sem gladdi hjartað. En
skuggi nýrrar styrjaldar hvíldi út
við sjóndeildarhringinn, og penni
Grosz varð á ný beittur og misk-
unnarlaus. En málverk hans urðu
aldrei eins markviss og teikning-
ar hans, sem margar eru klass-
ískar.
Fyrir tveimíur mánuðum fór
hann aftur til Þýzkalands til að
reyna að endurvekja „drauminn**
frá árunum fyrir fyrri heimsstyrj
öld, en það var of seint. Hann
lézt skömmu eftir að hann kom
til hins gamla föðurlands. Hins
vegar mun list hans skipa hon-
um á bekk með meisturum heims-
álfunnar.
\l etnissprengju* *
þota sprakk á
mikilli hæ5
SLONDON, 25. ágúst. NTB— s
< AFP. — Hin nýja og leynilega S
| vetnissprengjuþota af gerðinni \
S Victor, sem Bretar fram- s
) leiddu, sprakk skyndilega í>
\ mikilli hæð í reynsluflugi sínu •
S á fimmtudaginn, segir í opin- s
) berri tilkynningu, sem gefin i
\ var út í dag. Sprengingin varð £
S um klukkustund eftir flugtak, s
) og það virðist öruggt að slysið i
\ varð mjög óvænt. Áhöfnin var |
S búin tækjum, sem hún gat not s
) að til að skýra þegar í stað >
\ frá hverju því, sem koma \
S kynni fyrir, en sjáanlega s
) vannst henni ekki tími til að >
grípa til þessara tækja, segir í \
S tilkynningunni. s