Morgunblaðið - 02.10.1962, Page 2
2
MORGUNBL AÐIÐ
ÞriSJudagur 2. október 1962.
200 hvalir hlupu á
land á Barðaströnd
PATREKSFIRÐI, 1. okt — f gær
hlupu á land á Siglunesi á Barða
Sumarsýningunni í
Ásgrímssafni
að ljúka
UM mánaðamótin maí-júní var
opnuð sumarsýning í Ásgríms-
safni. Skoðuðu sýninguna m.a.
margt erlendra gesta. Nú er þess
ari sýningu að ljúka. Verður
hún aðeins opin- 3 daga ennþá,
þriðjudag, fimimtudag og næst-
komandi sunnudag.
Safnið verður síðan lokað í
2—3 vi'kur meðan komið er fyrir
nýrri sýningu.
Ásigrimssafn er opið frá kl.
1,30—4.
strönd upp undir 200 marsvin
allt upp í 8—10 m að stærð þau
stærstu. Er óvíst að hægt verði
að nýta hvalina.
Þetta gerðist fyrir hádegi. í»á
komu allt í einu hvalir að strönd
inni við svonefnda Ulugakletta
og hlupu upp í fjöruna. En hval
irnir breyta ekkert stefnu, þótt
þeir finni iand undir sér. Fjaran
er þarna illfær á jeppum og ekki
fær alla leið að hvölunum, og
því erfitt að nýti hv.iina. Á
Siglunesi búa tveir bræður.
Kosið til ASÍ-þings.
Hér er lokið kosningu í verka
manna"’aginu til alþýðusam-
bandsþings. Voru kjörnir Her-
mann Finnbogason, Marteinn
Jónsson og Snorri Gunnlaugs-
son — Trausti.
ISarÖur áreksiur við Engidal
HAFNARFIRÐI — Rétt fyrir
klukkan sjö á laugardagskvöldið
Starfandi sjómenn gegn
gerðardómsmönnum
//
44
SVOHLJÓÐANDI fyrirsögn birt- | Sjómannasambandsins telja sig
ist með stærsta letri á forsíðu I sig nú, sem endranær vera hina
Þjóðviljans fyrir skömmu.
Fyrirsögn þessi lýsir að nokkru
ofsalegum tilraunum kommún-
ista til að vinna fulltrúa Sjó-
mannasambandsins á næsta Al-
þýðusambandsþing, en kosning-
ar fara fram um næstu helgi.
Ef kommúnistum tækist að
vinna fulltrúa þessa ynnu þeir
fyrst og fremst tvennt:
1. Þeir næðu í þessum einu
kosningum fleiri fulltrúum, en
þeir hafa tapað til lýðræðissinna
í yfirstand'tndi ASÍ kosningum.
2. Með þessum fulltrúum og
með því að beita verzlunar og
skrifstofumenn áframhaldandi of
beldi og halda þeim utan heildar-
samtakanna þá hafa kommún-
istar ásamt framsóknarmönnum
möguleika á því að breyta lög-
um A.S.Í. en til þess þarf %
allra fulltrúa, á þann veg, að
næsta þing A.S.Í. yrði ekki fyrr
en að 4 árum liðnum, í stað 2 nú.
—II—
Það sem kommúnistar ætla að
ríða muni baggamuninn nú, er
óánægja sildarsjómanna með
bráðabirgðalög ríkisstjórnarinn-
ar, til lausnar síðdveiðideilunni.
Eins og mönnum er kunnugt
töldu allir aðilar — fulltrúar sjó;-
manna og útgerðarmanna auk
sáttasemjara, að tilgangslaust
væri að haida samningatilraun-
um áfram. y
Fyrirsjáan’eg var því 'áfram-
haldandi stöðvun síldveiðiflotans,
sjómönnum, útgerðinni, land-
verkafólki og þjóðarheildinni til
stórtjóns, ef ekki væri gripið í
taumana.
Þetta gerði ríkisstjórnin og nú
tryllast kommúnistar yfir því að
flotinn skyidi leysa landfestar og
færa þjóðarbúinu meiri afla en
áður getur urn í sögu þjóðarinn-
ar, og öllum sem að unnu meiri
tekjur en áður hafa þekkzt.
Helzt virðist fara í taugar
kommúnista sú ábyrga afstaða
stjórnar Sjomannafélags Reykja-
víkur, að virða landslög í þessu
máli sem öðrum.
Þeir ráða sér ekki af vonzku
yfir því að stjórn S. R. skyldi
hafa þá skoðun, að gerðardómur,
sem varð til vegna bráðabirgða-
laganna, eftir að ítrekaðar samn-
ingaumleitanir fóru út um þúfur,
að sá gerðardómur, sem ætti að
kveða á um kaup og kjör á síld-
veiðiflotanum yfir sumarið, hefði
innan sinna vébanda mann, er
gæti túlkað vilja og kröfur sjó-
manna, og væri auk þess þaul-
kunnugur þeim samningaumleit-
unum, sem fram hefðu farið.
Kommúnistar í Sjómannafélagi
Reykjavíkur og öðrum félögum
einu sönnu „starfandi sjómenn“.
Fyrirlitningu sína á sjómönn-
um, með þessu glamri sýna þeir
bezt, ef litið er á frambjóðenda-
lista þeirra, en þar má m. a. sjá
sölumann hjá einu stærsta heild-
sölufyrirtæki þjóðarinnar. Einnig
má líta þar bónda vestan úr
Dölum, sem hóf þar búskap 1958.
Bóndi þessi er hreppsnefndarmað
ur í Laxárdalshreppi fyrir komm
únista og fy’gifiska þeirra.
Á síðasta vetri setti þessi
frambjóðanði kommúnista í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur, á, um
100 kindur, 2 kýr og 4 hross!
—II—
Sjómenn sjá í gegnum grímu
kommúnista og fylkja sér til
varnar félagi sínu um næstu
helgi. Þeir kjósa ábyrga og raun-
sæja forystumenn, en ekki ekki
spriklkarla mðurrifsaflanna.
(Sjómaður).
— Mississippi
Framh. af bls. 1.
fréttamaður, sem allir eru hættu-
lega særðir. Er óeirðirnar höfðu
staðið í nokkrar klukkustundir
lýsti Ross Barnett því yfir, að
frekari mótstaða væri þýðingar-
laus, við ofurefli liðs væri að
etja, — en óeirðunum hélt samt
áfram, undir stjórn Walkers.
Haft er eftir Robert Kennedy,
dómsmálaráðherra, að Barnett
hafi hringt til hans og lýst yfir
uppgjöf sinni og heitið samvinnu
við hermennina um að koma á
reglu í borginni.
Um þrjú ieytið í nótt, að stað-
artíma, fyrjrskipaði Billingslea,
hershöfðingi að hermenn beittu
nauðsynlegu valdi til að koma
á lögum og reglu í borginni.
Hjöðnuðu átökin upp úr því og
fólkið drefðist en umhverfis
háskólann og var allt á tjá og
tundri. Flöskur, grjót og múr-
steinar og hálfbrunnar bifreiðar
á víð og dreif.
Fyrst í morgun var allt með
kyrrum kjörum, en svo fór að
koma til slagsmála milli hvítra
manna og lögreglu hingað og
þangað um borgina. Eftir hádeg-
ið kom enn til óeirða og þá á
aðaltorgi borgarinnar og fyrir
framan dómshúsið, þar sem taka
átti til meðferðar mál þeirra, er
handteknir höfðu verið, en þeir
voru á annað hundrað. Mikill
mannfjöldi safnaðist saman og
hóf enn griotkast. Lauk svo að
miklu magni af táragassprengjum
var varpað og mannfjöldinn
dreifðist. Eftir það var öllum
aðalgötum lokað.
• Suðurríkjafáninn
í hálfa stöng
f kvöld var Oxford eins og her
tekinn bær. Táragaslyktin ang-
aði um allt og brunnin bílflök
voru á víð og dreif. Suðurríkja-
fáninn, sem notaður var í borgara
styrjöldinni blakti í hálfa stöng
á nokkrum stöðum, sem tákn
ósigurs fylkisins gagnvart sam-
bandsstjórmnni.
Þessi átök eru hin mestu, sem
orðið hafa í Bandaríkjunum
vegna skólagöngu blökkumanna
frá því næstiréttur úrskurðaði
órið 1954, að þeim skyldi heimil
skólavist til jafns við hvíta í opin
berum skólum. Meredith er fyrsti
stúdentinn er innritast í háskól-
ann í Oxford, sem starfað hefur
í 114 ár. Innritun hans fór fram
í morgun, og síðan sótti hann
fyrirlestra í fylgd vopnaðra lög-
reglumanna. Þegar hann kom í
fyrsta fyrirlesturinn mættu hon-
um ókvæðisorð stúdentanna.
Lýstu þeir sök á hendur honum
fyrir blóðsúthellingarnar í gær
og kölluðu tií hans ýmis slagorð
svo sem „komdu þér heim
niggari, þú ert með blóð á hönd-
unum“ og „hvernig er að hafa
blóð á höndunum". Lögreglu-
menn brugðu við og handtóku
nokkra æstustu stúdentana. Er
viðbúið, að Meredith njóti fylgd-
ar vopnaðra manna fyrst um
sinn.
• Alvarlegustu
innanrikisdeilur í USA
Ágreiningur þessi er hinn al-
varlegasti sem upp hefur komið
milli fylkisstjórnar Mississippi
og sambandsstjórnarinnar í
hundrað ár, eða frá því í borgara
styrjöldinni — og jafnframt er
hér um að ræða alvarlegustu inn
anríkisdeilur í Bandaríkjunum á
þeim tíma. Er viðbúið, að þær
dragi einhvern dilk á eftir sér,
því að ágreiningur ér þegar orð-
inn hávær milli þingmanna á
Bandaríkjaþirigi vegna íhlutunar
stjórnarinnar. — Á hinn bóg-
inn virðist Kennedy eiga öflugan
stuðning bbðanna í New York
og víðar.
Sem fyrr segir hefur mikill
fjöldi manna verið tekinn hönd-
um. Samkvæmt síðustu fregnum
hafa 175 manns verið handteknir
og eiga margit þeirra yfir höfð-
um sér þunga dóma, allt að 20
ára fangelsi eða 20.000 dala sekt.
varð allharður bifreiðaárekstur í
brekkunni við Engidal og slasað-
ist eldri kona lítið eitt, skarst í
andliti. Heitir hún Hallfríður
Jóhannesdóttir og á heima að
Vesturbraut 1. Bílnum, sem hún
var í (rússneskur fólksbíll af
Pobeta-gerð), ók kona og voru
þær tvær í bílnum. Var hann
á leið upp brekkuna þegar stöðv
ar bíll (Opel) úr Reykjavík kom
á móti. Mun konan hafa misst
vald é bílnum, sem skall á hægra
frambretti hans og við það fór
annað framhjól hins fyrrnefnda
undan. Kastaðist hann yfir göt-
una og lenti út af veginuim á
hægra vegarhelmingi. Konan,
sem slasaðist, skall í framrúðuna
sem brotnaði og skráimaðist
við það í andliti, en öku-
konan slapp ómeidd. Einn
farþegi var í stöðvarbílnum og
slapp hann og bílstjórinn við
meiðsli, en frambretti hans beyigl
innbrot á
Skatt-
stofuna
AÐFARANÓTT sunnudagsins
var fcrotizt inn í Skattstofuna við
Hverfisgötu. Var brotin upp hurð
á skrifstofu gjaldkera, en ekki
varð séð að neinu hefði verið
stolið.
Þá var brotizt inn í tvo bíla
Norðurleiða þessa sömu nótt, og
reynt að ná úr þeim útvarps-
tækjunum. en án árangurs. Loks
var brotizt inn í Bifreiðastilling
una að Görðum við Ægissíðu en
ekki varð séð að neinu hefði ver
ið stolið þar.
aðist mjög eins og myndin hér að
ofan sýnir. Pobetabíllinn skemmd
ist líka nokkuð að framanverðu,
en hann kom niður á hjólin. —
G.E.
Tregur afli hjá
togurunum
í GÆR var togarinn Narfi vænt
anlegur af Vestur-Grænlandsmið
um með 200 léstir af fiski.
Flestir togararnir eru á heima
miðum, þar sem hefur verið
tregur afli og ótíð, að því er
Hallgrímur Guðmundsson á Tog
araafgreiðslunni tjáði blaðinu i
gær.
Þarf að fá duglega
krakka og unglinga, 1
til að bera blaðið til
kaupenda þess víðs
vegar um borgina og
úthverfi hennar.
Talið við skrifstof-
una eða afgreiðsluna !
strax
Sími 22480.
Z' NA IS hnútar S SV50hnútar Snjótoma * ÚSi \7 Skúrír EC Þrumur WZjs, KvUaM Zs4 Hitaaki H H.t | L t.maS 1
—:—: t—TK /ooo ;
DJÚPA lægðin fyrir sunnan kaldi, víða skúrir.
land þokast NA. Á undan skil Breiðafjörður og miðin: All
unum, sem á kortinu eru á hvass NA- hægari á morgun,
milli Vestfjarða og Græn- víða dálitil rigning.
lands var NA hvassviðrið og Vestfiiðir, miðin og norður-
rigningin, sem gekk yfir land- mið: Ailhvass NA- rigning.
ið á sunnudag. í Vestur Norðurland til SA-lands og
Evrópu er suðlæg átt og hlý- miðin: Austan kaldi eða stinn-
indi. ingskaldi, rigning.
Veðurspáin kl. 10 í gær- Horfur á miðvikudag:
kvöldi Austan eða SA-átt, rigning
SV-land, Faxaflói og miðin: víða um iand, einkum austan
Austan kaldi eða stinnings- lands og sunnan.