Morgunblaðið - 02.10.1962, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 2. október 1962.
MORGUNBLAÐIÐ
13
Hátíðarsamkoma
Norræna félagsins
NORRÆNA félagið hér efndi sl.
laugardagskvöld til hátíðarsam-
feomu í Þjciðleikhúsinu í tilefni
fjörutíu ára afmælis félagsins
þann dag. Var hvert sæti í hús-
inu skipað. Meðal gesta félagsins
voru forseti vor, herra Ásgeir
Ásgeirsson og frú hans, sendi-
herrar Norðurlandanna og fjöldi
annarra virðingartmanna, er-
lendra og innlendra. En sérstak-
ir heiðursgestir félagsins voru
þau hjónin Anna Borg og Poul
Reumert.
Samkoman hófst með bví að
formaður Norræna félagsins,
Gunnar Thoroddsen, fjármála-
ráðherra, flutti ræðu um sam-
skipti Norðurlandanna fyrr og
síðar og rakti hversu samvinnu-
hugur og bróðurþel hefði þróazt
með þessum þjóðum, einfeum á
þessari öld og hversu veigamik-
inn þátt Norrænu félögin, hvert
í sínu landi, hefðu átt í þessari
heillavænlegu þróun. Var ~æða
ráðherrans sköruleg og ágætlega
flutt, svo sem jafnan er hann
tekur til máls.
Þegar ráðherrann hafði lokið
máli sínu kom fram á sviðið
norski óperusöngvarinn Olav
Eriksen. Flutti hann kveðju til
félagsins frá Norræna félaginu í
landi sínu og söng að því búnu
sex lög eftir E. Grieg með und-
irleik Árna Kristjánssonar. Hef-
ur Eriksen glæsilega tenor-
bariton rödd.
Þá las frú Anna Borg upp hið
fagra kvæði „Svanerne fra Nord
en“ eftir H. H. Seedorf Pedersen.
Naut kvæðið sín frábærlega vel
í snilldarlegum flutningi frúar-
innar, sem hefur óvenjulega
þýða o_ hljómfagra rödd.
Þá lék sænski feapelmeistar-
inn Gert Crafoord einleik á fiðlu
með undirleik Ann Mary Fröir.
Flutti hann tónverkið „Fjórar
akvarettur fyrir fiðlu og píanó“
eftir sænska tónskáldið Tor Aul-
in. Var það skemmtileg músik
og ágætlega flutt.
Að því loknu las hinn aldni
höfuðsnillingur danskrar leik-
listar, Poul Reumert, úpp hið
áhrifamikla kvæði Ibsens „Terje
Viken.“ Flutti Reumert kvæðið
af þeirri reisn og innlifun að un-
un var á að hlýða, enda er
Reumert einn snj.allasti upplés-
ari, er Danir hafa átt.
Eftir hléið söng Kristinn HaUs
son með undirleik Árna Kristj-
ánssonar þessi lög: „Kalevala
savelma", „Det gáller“ eftir H.
Hannikainen, „Sjöfararen vid
milan“ eftir S. Palmgren og
„Sáv sáv susa“ eftir J. Sibelius.
Söng Kristinn öll þessi lög af-
bragðsvel með sinni djúpu en þó
mjúku og hljómfögru rödd og
músikölsku túlkun.
Því næst las frú Anna Borg
upp hina heillandi smásögu
„Sonurinn" eftir Gunnar Gunn-
arsson. Las frúin með beim lif-
andi innileik og þeirri . list að
hún hreif alla áheyrendur sína.
Síðasta atriði efnisskrárinnar
var flutningur þeirra Reumerts-
hjónanna á lokaþættinum úr
„Fjalla-Eyvindi“ eftir Jóhann
Sigurjónsson. Bæði hafa þau
hjónin leikið þessi hlutverk á
sviði og var flutningur þeirra
Hferk starfsemi Fél-
agsmálastofnunarinnar
SUNNUD. 7. okt. hefst haust-
námskeið Félagsmálastofnunar-
innar. Starfsemi stofnunarinnar
verður aukin til muna á þessum
vetri. Verða þá kenndar fjórar
greinar: Fundarstörf og mælska,
verkalýðsmál, hagfræði og þjóð-
félagsfræði, en tvær þær síðast-
nefndu eru nýjar af nálinni. —
Innritun fer fram í Bókabúð
KRON í Bankastræti og kennslu
gjald er 2—3 hundruð kr.
Kennarar verða Hannes Jóns-
son, félagsfræðingur, sem hefur
með höndum alla kennslu nema
hagfræðina, en hana kennir
Bjarni Bragi Jónsson, hagfræð-
ingur. Kennslan fer fram í
Gagnfræðaskólanum í Vonar-
stræti a sunnudagseftirmiðdög-
um, og hvert námskeið stendur
10 vikur.
Auk þessara föstu námskeiða,
tekur Félagsmálastofnunin að
sér að reka námskeið fyrir
ýmsar félagsheildir. Má í því
sambandi benda á, að á síðasta
vetri rak stofnunin námskeið
fyrir bankastarfsmenn og sím-
yirkjadeild Fél. ísl. símamanna.
Rannsóknlr á vegum
Félagsmálastofnunarinnar
1 fyrra fór fram allvíðtæk
rannsókn á ýmaum þáttum
verkalýðs- -og félagsmála, og
voru niðurstöður rannsóknarinn
ar síðan nötaðar sem uppistaða
erinda, sem flutt voru við
kennsluna. Nú er verið að prenta
úrval þessara erinda, og mun
bókin verða notuð við kennsl-
una í vetur. Bófein heitir Verka-
lýðurinn og þjóðfélagið og kem-
ur á markaðinn í byrjun okt.
Hliðstæð rannsókn fer fram á
efninu Fjölskyldan og hjóna-
bandið, og verða niðurstöðurnar
notaðar í erindaflokki á nám-
skeiði í vor. Félagsmálastofnun-
in vinnur einnig að rannsókn á
sögu og þróun íslenzku laun-
þegasamtakanna, og er gert ráð
fyrir að sú rannsókn taki að
minnsta kosti tvö ár. Fyrstu nið-
urstöðurnar munu þó birtast
sem viðbætir við bókina, sem
nú er að koma út.
Námsskírteini í hagnýtum
félagsmálum
Félagsmálastofnunin hefur
einnig í hyggju að bæta við
framhaldsnámskeiði í fundar-
störfum og mælsku á þessu vori.
Verður þar lögð áherzla á rök-
fræði og rökræður.
í sambandi við það verður
nemendum svo gefinn kostur á
að afla sér námssldrteinis í hag-
nýtum félagsmálum, sem verð-
ur afhent, þegar nemandi hefur
lokið öllum þessum fimm náms-
skeiðum. Standa vonir til að fé-
lagasamtök og fyrirtæki viður-
kenni gildi þessa skírteinis.
Fljótir að koma til.
Hannes Jónsson lagði áherzlu
á þá reynslu sína frá því í
fyrra, að nemendur væru furðu
fljótir að koma ti,l, og að menn
hefðu komið þangað, sem aldrei
hefðu áður fengizt við ræðu-
mennsku, en farið þaðan boð-
legir á hvaða fund.
Nemendafjöldi í fyrra fór
fram úr öllum vonum. Á vor-
námskeiðinu voru 105 nemend-
ur. í því sambandi benti Hann-
es á hversu mikill þáttur þessi
starfsemi er á ninum Norður-
löndunum. Kvað hann verka-
lýðsfélögin þar starfrækja slík
námskeið í flestum byggðarlög-
um.
Hannes Jónsson þakkaði að
lofeum Félags- og Menntamála-
ráðuneytunum, Alþýðusamband-
inu og fræðslustjóra Reykjavík-
ur margvíslega aðstoð.
með þeim ágætum að ■ hann var
vissulega hámark þess, sem
þarna fór fram.
Listamönnunum öllum var á-
kaft fagnað og þeir kallaðir fram
hvað eftir annað og hylltir með
dynjandi lófataki og fögrum
blómum.
Að þessu loknu var gestum
félagsins boðið til fagnaðar í
Krystalsal Þjóðleiklhússins. —
Flúttu þar sendiherrar Svía,
Danmerkur og Noregs félaginu
árnaðaróskir frá löndum sínum
og afhentu því blómakörfur. —
Ennfremur bárust félaginu
heillaskeyti frá Norrænu félög-
unum í Finnlandi og Færeyjum.
Formaður félagsins, Gunnar
Thoroddsen, bakkaði með nokkr
um orðum allar þessar kveðjur
og lýsti um leið yfir bví að þrír
fyrrverandi formenn félagsins
hefðu nú verið kjörnir heiðurs-
félagar þess, en það eru þeir
próf. Sigurður Nordal, Stefán
Jóhann Stefánsson, sendiherra
og Guðlaugur Rósinkranz, þjóð-
leiklhússtjóri. Fyrir var einn
■heiðursfélagi félagsins, herra
.Ásgeir Ásgeirsson, forseti. — Þá
hyllti Gunnar Thoroddsen heið-
ursgesti félagsins, frú Onnu Borg
og Poul Reumert, sérstakiega,
þakkaði þeim komuna og bann
ágæta hlut, sem þau hefðu átt
að því að gefa þennan afmælis-
fagnað ánægjulegan og eftir-
minnilegan.
S. Gr.
MAMMtMMMkMMMMfeMB
Rafmagn
í VESTMANNAEYJUM
er nú verið að ganga frá
lagningu rafstrengja í sam
bandi við tengingu Eyj-
anna við Sogsvirkjunina.
Eins og kunnugt er var í
ágúst lagður sæstrengur
frá Krosssandi í Landeyj-
um í Klettsvík í Vest-
mannaeyjum. Síðan hefur
verið unnið að því, að
setja upp loftlínur upp á
Heimaklett og af honum
niður á svonefndan Skans,
yfir siglingaleiðina rétt ut-
an við hafnarmynnið. —
Hefur þessi ráðstöfun sætt
nokkurri gagnrýni í Vest-
mannaeyjum, þar sem
menn hafa ótrú á línun-
um beint yfir innsigling-
unni og vildu allan streng
inn frekar lagðan neðan-
sjávar inn á höfnina og
lagninguna í landi á allt
annan veg. Blaðið hafði í
gær tal af Raforkumála-
skrifstofunni og tjáði Ei-
til Eyja
ríkur Briem, rafmagns-
veitustjóri, að þessi gagn-
rýni stafaði sennilega af
því, að fegurðarsmekk ein
hverra væri misboðið, óg
af ótta við að vírarnir
kynnu að slitna, en engin
hætta er talin á slíku, jafn
vel þó að í hávaðaroki sé.
— í næstu viku verða
hafnar prófanir á nýju raf
línunum og munu Vest-
mannaeyingar væntanlega
fá Sogsrafmagnið um
miðjan október.
liggur ofan af Heimakletti niður á Skansinn.
Móttökustólparnir, sem staðsettir eru á Skansinum. f þessa
stólpa er vírinn af Heimakletti tengdur og hefur mikið
kapp verið á það lagt, að hafa þá sem traustasta, því að
átakið frá strengjunum er mjög mikið.
(Ljósm. Sigurgeir Jónasson).
Hlutu fimm ára
námsstyrki
MENNTAMÁLARÁÐ hefur lok-
ið úthlutun 5 ára námisstyrkja
fyrir árið 1962. Styrkir þessir
eru 7, að upphæð 34 þús. kr.
hver. Styrkirnir eru ætlaðir ný
stúdentum til náms við erlenda
háskóla eða við Háskóla íslands.
Umsækjendur voru 12 að þessu
sinni. Styrkina hlutu þessir stúd-
entar.
Baldur Símonarson, Oddagötu
12, .Reykjavík, stúdent úr MR.,
til náms í lífefnafræði við háskóla
í Edinborg. Baldur hlaut á stúd-
entsprófi I. ágætiseinkunn, 9.10.
Björn Ingi Finsen, Vesturgötu
42, Akranesi, stúdent úr MA, til
náms í ensku og enskum bók-
menntum við Háskóla íslands og
háskóla í Englandi. Björn hlaut
á stúdentsprófi I. ágætiseinkunn,
9.15.
Egill Egilsson, Hléskógum
Höfðahverfi, S.-þing., stúdent úr
MA, til náms í líffræði í Frei-
burg, Þýzkalandi. Egill hlaut á
stúdentsprófi I. ágætiseinkunn,
9.27.
Gunnar Sigurðsson, Brekku-
götu 16, Hafnarfirði, stúdent úr
MR, til náms í læknisfræði við
Háskóla íslands. Gunnar hlaut
á stúdentsprófi I. ágætiseink-
unn, 9.09.
Leó Geir Kristjánsson, Hafn-
arstræti 7. ísafirði, stúdent úr
MA, til náms í eðlisfræði við
háskóla í Edinborg. Leó hlaut
á stúdentsprófi I. ágætiseink-
unn, 9.54. Er það jöfn einkunn
þeirri hæstu, sem áður hefur
verið gefin við MA samkvæmt
núverandi einkunnakerfi.
Magnús Þór Magnússon, Haga-
mel 25, Reykjavík, stúdent úr
MR, til náms í rafmagnsverk-
fræði við háskólann í Breunsch-
weig í Þýzkalandi. Magnús hlaut
á stúdentsprófi I. einkunn, 8.92.
Þorkell Helgason, Nökkvavogi
21, stúdent úr MR, til náms i
stærðfræði við Massacusetts In-
stitue of Technology í Banda-
ríkjunum. Þorkell hlaut á stúd-
entsprófi I. ágætiseinkunn, 9.31.
(Frá Menntaniáiaráði Islands)