Morgunblaðið - 08.01.1965, Side 10

Morgunblaðið - 08.01.1965, Side 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Föstudagur 8. janúar 1965 tíðindi d ^ííísscv. EKKI er annað sýnna en bú- ast megi við stórtíðindum frá Austur-Asíu áður en langt um líður. Litur allt út fyrir, að Indónesar ætli að gera alvöru úf endurteknum hótunum sín- um um að ganga milli bois <»i höfuðs á Malaysíu rikjasam- bandinu. Að undanförnu hefur óttinn við stórátök þar eystra aukizt dag frá degi. Kemur þar eink- um til sú ákvörðun stjórnar Indónesíu að segja ríkið úr samtökum Sameinuðu þjóð- anna — svo og að menn hafa ekki gleymt þeirri heitstreng- ingu Sukornos forseta frá síðasta ári að láta til skarar skriða gegn Malaysíu, áður en haninn galaði á nýjársmorgun 1965. Að vísu stóð Súkarno ekki við þetta heit — haninn gól 1. janúar án þess til átaka drægi — en síðustu dagana hefur liðssafnaður Indónesa á Sumötru og við landamæri Borneo og Sarawak farið sí- vaxandi. Af hálfu Malaysíu hefur þessu verið svarað með því m.a., að mælast til þess, að Sameinuðu þjóðirnar láti mál- ið til sín taka og auka jafn- framt herbúnað. Brezka stjórnin hefur sent aukalið til Malaysíu og hefur þar nú um það bil 18.000 hermenn. Lið Malaysíu stjórnar sjálfrar er nokkurn veginn jafn fjöl- mennt nú þegar og verið er að koma upp þjálfunarstöðum víðsvegar í ríkjasambandinu. Þess utan getur Malaysía vænzt nokkurrar aðstoðar frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi, komi til vopnaðra átaka. I her Indónesíu er hinsvegar talið að séu liðlega 400.000 manns. Verulegur hluti þess liðs er að vísu dreifður um eyjarnar, því að víða gengur stjórninni erfiðlega að halda uppi reglu — en kjarni hersins er við- búinn átökum við Malaysíu og vel búinn hinum nýjustu og fullkomnustu vopnum og hergögnum. ★ ★ ★ Súkarno hefur haldið uppi látlausum ógnunum við Malaysíu ríkjasambandið frá því það var stofnað í septem- ber árið 1963, — oig hafði áður barizt harðlega gegn stofnun þess. Jafnframt hefur hann haldið uppi sleitulausum skæruhernaði. Hafa flokkar skæruliða verið sendir hvað eftir annað inn x Sarawak til skemmdarverka og til þess að hreiðra um sig með- al íbúanna. Ekki hafa til- raunir þessar borið ýkja góð- an árangur. Brezka blaðið OBSERVER telur að alls hafi um 1200 indónesískir skæru- liðar verið sendir til Malaysíu frá þvi haustið 1963 og þar af hafi a.m.k. 700 verið felldir eða teknir til fanga og nokk- ur hundruð til viðbótar flúið aftur til föðurhúsanna. Síðasta hálfa árið hefur svo virzt, sem úr skæruhernaðin- Ná kommúiiistar algerum yfirráðum í hdónessu? um drægi. En svo bar við daginn tyrir gamlaarsaag, að flokkur skæruliða gekk á land á suðvesturströnd Malakka- skaga. Flestir þeirra voru handteknir, þeirra á meðal tveir liðsforingjar, sem gáfu þær upplýsing;ar, að indónes- ískum skæruliðum hefði tek- izt í samvinnu við sveitir kommúnista í Malaysíu að Indónesísklr hermenn og konur á hersýningu. stofna hersveit er kall- aði sig „Malayiska þjóð- frelsisherinn". Næsta dag, gamlársdag, voru teknir sjö prammar með indónesískum skæruliðum um borð. Stefndu þeir yfir sundið frá Súmatra. Þegar svo njósnir bárust af liðssafnaði Indónesa var þeg- ar talið næsta víst, að stund- in væri komin, Súkarnó myndi láta til skarar skríða fyrir næsta hanagal. Malay.síustjórn brá skjótt við, gerði brezku stjórninni viðvart og fór fram á frek- ari stuðning hennar, jafn- -framt því sem forsætisráð- herrann Tunku Abdul Rah- man kvaðst mundu kæra mál- ið til Sameinuðu Þjóðanna, sem hann hefur nú ,gert. ★ ★ ★ Indónesía er hið fyrsta af 115 aðildarríkjum Samein- uðu Þjóðanna sem gerir al- vöru úr hótun sinni um að segja sig úr samtökunum. Reyndar er rétt að hafa í huga, að U Thant, framkv.stj. sam- takanna hefur ekki enn bor- izt skrifleg úrsögn ríkisins og meðan svo er ekki, er það tal- ið aðili. Lambertus Palar, aðal fulltrúi Indónesíu hjá S.Þ. í New York hefur marglýst því yfir, að staðið verði við úr- sögnina En fréttir er bár- ust frá aðalstöðvunum í New York á miðvikudag bentu til þess, að á hann hefðu runnið tvær grímur, er hann gerði sér Ijós viðbrögð annarra aðildarríkja við stefnu Indónesíu, einkum „óháðu“ ríkjanna svonefndu, sem Indónesar hafa gjaírna talið sig til. Hafa stjórnir margra þeirra látið í ljós von brigði yfr ákvörðun Súkarnos og talið hann svíkjast undan merkjum. Svo virðist, sem Sukarnó hafi ekki látið neina Sukarno. leiðtoga óháðu ríkjanna vita um ákvörðun sína fyrirfram en talið víst, að a.m.k. sum- ir þeirra myndu fylgja hans fordæmi. Þeir munu hinsveg- ar á þeirri skoðun, að heppi- legar sé að berjast innan sam- takanna en utan. Komið hefur fram nokkrum sinnum á síð- ustu mánuðum, að með Sú- karno og leiðtogum helztu óháðu ríkjanna, svo sem Nasser, forseta Egyptalands; Tito, forseta Júgóslavíu og Shastri ,forsætisráðherra Ind- lands, ríkir ágreiningur um það, hvórt halda beri stefnu síðustu ára í samskiptunum við stórveldin eða taka upp aðra afdráttarlausari. Súkarnó hefur haldið því fram, að hug- takið ,,óháð“ ríki sé úrelt otg óframkvæmanlegt og beri þess í stað að koma stefnan „Nefos versus 01dfos“, það er, að hin svonefndu nýrri ríki „Nefos“ bindist samtökum gegn hinum gömlu og grónu, t.d. Evrópuríkjunum og Bandaríkjunum „Oldfos". Og að sjálfsögðu telur hann Kín- verja til „Nefos“. Úrsögn Indónesíu úr Sam- einuðu Þjóðunum er ekki tal- in draga svo mjög úr áhrifum samtakanna. Þó má það telj- ast hnekkir fyrir S.Þ., ef Indó nesar neita að standa við skuldbindingar sínar gaignvart sú, að láta fara fram á þessu samtökum. Meðal þeirra er sú að láta fara fram á þessu ári kosningar á vesturhluta Nýju Guineu — eða Irian, sem Indónesar kalla. Land- svæði þetta fengu þeir haustið 1963 með því skilyrði að þjóð- aratkvæðagreiðsla yrði látin skera úr um það árið 1965, hvort íbúarnir vildu verða sjálfstætt ríki eða tilheyra á- fram Indónesíu. Einnig er á það bent, að hér er um að ræða fimmta fjölmennasta ríki heims, — íbúar eru um 100 milljónir — og standa þá utan samtakanna 8-900 millj- ónir manna (Indónesar og Kínverjar) sem að mestum hluta búa við hin lélegustu lífsskilyrði, meira og minna hungur og hættulegán mennt- unarskort. Það má og telj- ast kaldhæðnislegt, að Indó- nesía mun það ríki heims, er hvað mestrar aðstoðar hefur notið af hálfu S.Þ. Það voru S.Þ. sem beittu sér fyrir vopna hléi milli Indónesíu og Hol- lands árið 1949, — og fengu Sú karnó látinn lausan úr fanig- elsi. Og þegar Indónesía gekk í samtökin árið 1950, 60. aðild- arríkið, var það boðið velkom ið sem „afsprengi alþjóðlegr- ar samvinnu". í bréfi U Thants, framkv.stj. til Sú- karnos, þar sem hann bað hann endurskoða ákvörðun sína skýrði hann svo frá, að ákveðið hefði verið að kalla árið 1965 „ár alþjóðleigrar sam vinnu.“ ★ ★ ★ Ein af ástæðum þess, að ætla má að Sukarno geri nú alvöru úr þeirri hótun sinni að ráðast á Malaysíu er sú, að hann er maður mjög heilsu veill og alls ekki talið líklegt, að hans njóti lengi við, þótt læknar hans haldi fram hinu gagnstæða. Um árabil hefur Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.