Morgunblaðið - 08.01.1965, Side 15

Morgunblaðið - 08.01.1965, Side 15
Föstudagur 8. janúar 1965 MORGU NBLAÐIÐ 15 : > ! ! :! Skoda 1000 MB urnar senda Opel verksmiðj- urnar frá sér fleiri en eina gerð bíla. Skiptast Opel bíl- arnir í þrjár gerðir. Minnsti bíllinn nefnist Kadett og er smíðaður í fjórum útgáfum. Næst kemur svo Olympia í sex útgáfum og loks stærsti bíllinn, Kapitan, Admiral og Diplomat. Meðfylgjandi mynd er af Opel Rekord, tveggja dyra sedan, og kostaði hann við síðustu útreikninga hingað kominn rúmlega 190 þúsund krónur. Þetta er rúmgóður fimm manna bíll með stórri farangursgeymslu, og svipar nokkuð til minnstu bílanna frá Chevrolet. Að framan eru stólar með bökum, sem leggja þeir eru hraðamælir, vega- lengdarmælir, benzín- og hita mælir. Auk þess eru ljósmerki fyrir hleðslu, smurningu o. fl. I miðju mælaborðsins er einnig upplýst klukka og við hlið hennar geymsluhólf, sem má læsa. Vélin, eða réttara sagt vél- arnar því fá má þrjár gerðir, eru fjögurra strokka. „Stand- ard“ vélin gefur 62 hestöfl við 4800 snúninga á mínútu, og er sprengirú.m hennar 1488 rúmsentímetrar. Samkvæmt upplýsingum verksmiðjunnar gefur þessi vél bílnum 134 km. hámarkshraða. Þeir, sem þess óska geta fengið orku- meiri vélar, 67 og 75 hestafla, og hækkað með því hámarks- OPEL Bandarísku bílasmiðjurnar General Motors, sem smíða m. a. Chevrolet, Oldsmobile, Buick og Cadillac bifreiðir, áttu fyrir síðustu heimástyrj- öld víða ítök í bílasmiðjum Evrópu. Má þar nefna Vaux- hall í Englandi, Fiat á Ítalíu, Zaporozhets 966 Skoda bílasmiðjurnar senda frá sér bíl með vél að aftan, en fyrri tilraunin, árið 19*34. gast ekki vel. Eftir blaðadóm- um að dæma hefur tilraunin heppnazt nú. Þannig segir t.d. Poul Chantelou í Berlingske Tid- ende: ,,Það má ef til vill segja að fyrstu eftirstríðs Skod-arn- ir hafi verið helzt til of „aust- ur-evrópskir“ fyrir danskan bílamarkað. Of þungir og klunnalegir. En smám saman hafa þeir lært mikið af vest- rænum bílasmiðjum og nýi Skoda 1000 uppfyllir mangar þær kröfur sem vandlátir vestrænir bílaeigendur gera. Og jafnvel þótt verðið á Skoda 1000 verði hærra en á fyrri gerðum, er bíllinn samt ódýr“. Vélin er sem fyrr segir að aftan. Gefur hún 45 hestöfl við 4600 snúninga á mínútu, og sprenigirúmið er 988 rúm- sentímetrar. Hámarkshraði er gefinn upp 120 km. og benzín- eyðslan 7 lítrar á hundrað km. Nýi bíllinn vegur aðeins 725 kg., og er því nokkuð léttari en fyrri gerðir. Þó er bíllinn stærri. Fæst þetta með því að nota léttmálma eins og alú- miníum bæði í vél oig yfir- byggingu. Erlendum fréttamönnum var boðið að reyna Skoda 1000 fyrir nokkru og létu þeir vel af bílnum. Einstaka kvart- anir heyrðust þó. Þótti t.d. möngum undarlegt að ekki skyldi vera unnt að skrúfa niður afturrúður og að stefnu- Ijósin skyldu ekki slokkna eftir beygjur. Aðrir (t.d. Storm Nexö i Politiken) bentu á að þyngdardreifing milli fram og afturöxuls væri mj ög góð og að bíllinn lægi vel á vegi. Það kemur væntanleiga fljótlega I ljós hvernig bif- reiðin reynist á íslenzkum veg- um, og í rauninni hefði mátt búast við að sjá bílinn hér verið smíðaðar nokkrar reynslubifreiðar, svo engar upplýsingar hafa verið gefnar enn um bílinn. En þar til nán- ari upplýsingar eru fyrir hendi birtum við hér mynd af Renault 16 í reynsluferð. ZAPOROZHETS 966 Lítið er vitað hér um nýjan bíl, sem farið er að smíða í Sovétríkjunum og nefnist Zaporozhets 966, en hann á það sameiginlegt með Skoda 1000 MB að líkjast Renault Dauphine. Bíllinn er smíðaður í sam- nefndri borg í Ukrainu. Herma fréttir að bíllinn sé endurbætt útgáfa af fyrri smábílum rússneskum, hafi aflmeiri vél og hærri há- markshraða og sé auk þess rúrpbetri. Eins og á Dauphine eru loftraufir framan við aflr- urbretti, og vélin að aftan. Framleiðir vélin 40 hestöfl. Simca í Frakklandi og loks Opel í Þýzkalandi. Enn halda G. M. ítökunum í Opel smiðjunum, eins og sjá má á sumum „módelunum“ þaðan, en þeim svipar oft mjög til bandarískra bifreiða. Og eins og bandarísku smiðj- Renault 16 má niður. Aftursætið er bekk ur, sem þó má skipta í tvö sæti með því að fella niður arm í miðju baki. Útsýni er gott úr bifreið- inni, gluggar stórir en glugga póstar mjóir. öllum mælum er haganlega fyrirkomið beint fyrir framan ökumann, en hraðann í 138 og 142 km. Þá gefur bílasmiðjan það upp að benzíneyðslan 8,6 lítrar á 10C km. miðað við minnstu vél- ina, en 9,2 lítrar miðað við þá stærstu. (Umboð Samband ísL samvinnuf élaga), Opel Rekord. tveggja dyra sedan. BÍLLINN SKODA SKODA bílarnir tékknesku eru vel þekktir hér á landi og hefur mikið verið flutt inn af þeim á seinni árum. Fyrir nokkru var hafin smíði á nýrri gerð Skoda er nefnist Skoda 1000 MB og svipar tals- vert til Renault Dauphine. Bíll þessi var fyrst sýnáur opin- berlega snemma í september, og var þá fyrirhugað að smíða 400—500 bíla á dag. Nýi bílinn er mjög frá- brugðinn fyrri Skoda-bílum, og þá fyrst og fremst að því leyti að vélin er að aftan. Þetta er í annað skipti sem fyrir lönigu. (Umboð: Tékkneska bif- reiðaumboðið á íslandi h.f.) RENAULT 16 Enn ein nýjung er vaentan leg frá Renault bílasmiðjun- um frönsku á næsta ári og nefnist nýi bíllinn Renault 16. Er þetta rúmgóð fjögurra manna bifreið. Aðeins hafa Bíllin mun enn ekki kominn í fjöldaframleiðslu, og ekki vitað hvenær það verður. (Umboð: Bifreiðar og Land- búnaðarvélar h.f.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.