Morgunblaðið - 10.01.1968, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1968
fltrigítmM&Mlr
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði tnnanlands.
HJARTA VERND
TJannsóknarstöð Hjarta-
verndar hefur nú verið
tekin formlega í notkun og
hafa 500 manns þegar verið
rannsakaðir, en stöðin hefur
raunverulega starfað nú um
tveggja og hálfs mánaðar
skeið. Þessi rannsóknarstöð
er algjörlega byggð upp af
frjálsum samtökum einstakl-
inga, og að uppbyggingu
hennar hefur verið staðið
með þeim hætti, að til fyrir-
mýndar er.
Sérstök fjáröflunarnefnd,
undir forustu Péturs Bene-
diktssonar alþingismanns,
safnaði 6 milljónum króna til
að hrinda þessu máli úr höfn,
og eiga hjartaverndarsam-
tökin nú tvær hæðir í húsi
því, sem rannsóknarstöðin er
í, og hefur hún verið búin
hinum fullkomnustu tækjum.
Til þess að standa straum af
rekstrarkostnaði rannsóknar-
stöðvarinnar hefur Alþingi
ákveðið að Hjartavernd
skuli hljóta hluta af tappa-
gjaldi af öli og gosdrykkjum.
Þessi starfsemi á vafalaust
eftir að njóta þess í framtíð-
inni að svo vel hefur verið
séð fyrir fjárhag hennar í
byrjun.
Frumkvöðull að þeim sam-
tökum, sem nú hafa náð svo
glæsilegum árangri í starfi
sínu má óhikað telja prófes-
sor Sigurð Samúelsson og við
opnun rannsóknarstöðvarinn-
ar flutti hann ræðu, þar sem
hann sagði m.a.:
„Bæði hér á landi og er-
lendis hafa einstaklingar, fé-
lög og stofnanir beitt sér fyrir
stórátökum á sviði menning-
ar- og mannúðarmála. Hér á
landi eru mörg slík dæmi,
sem við öll þekkjum. Sá
skilningur og örlæti, sem
Hjartavernd hefur frá önd-
verðu mætt er glöggt dæmi
um stórhug og framsýni Is-
lendinga og þakka ég af al-
hug þann styrk, sem samtök-
in hafa hlotið frá hinum fjöl-
mörgu gefendum ...
Rannsóknarstöðin hefur nú
starfað um tveggja og hálfs-
mánaðar skeið og rannsakað-
ir hafa verið um 500 manns.
Fyrsta hóprannsókn okkar
telur um 3 þúsund karla á
aldrinum 34—60 ára, nánar
tiltekið 16 aldursflokkar á
þessu aldursskeiði og valinn
einn þriðji úr hverjum ald-
ursflokki eftir ákveðnum fæð
ingardögum. Fullyrða má, að
innan fárra mánaða liggi fyr-
ir svo ítarlegar niðurstöður,
að hægt verði að draga af
þeim ábyggilegar áætlanir.
Stjórn Hjartaverndar vonast
tií þess, að allar heilbrigðis-
stofnanir landsins geti notið
góðs af þessu brautryðjenda-
starfi, og í náinni framtíð
verði hægt að nýta betur þær
starfsaðferðir, sem hér er
verið að reyna.“
Hér á landi eru starfandi
fjölmörg líknarfélög, sem ein
beita sér að tilteknum grein-
um, líknar-, heilbrigðis eða
mannúðarmála. Hjartavernd
eru ein yngstu samtökin í
þessum hópi. Þau hafa farið
mjög myndarlega af stað. Öll-
um þessum líknar- og mann-
úðarfélögum er það sameigin-
legt, að mikill fjöldi einstakl-
inga leggur fram fórnfúst
starf og töluverða fjármuni
til starfsemi þeirra, og fjöl-
mörg slíkra félaga hafa unn-
ið stórvirki á undanförnum
árum og áratugum og má í
því sambandi minna á Sam-
band ísl. berklasjúklinga.
Sá hugsunarháttur hefur
verið allt of algengur hér á
íslandi að krefjast þess, að
opinberir aðilar hafi frum-
kvæði að og forustu um,
helztu þjóðþrifamál. Þau fjöl-
mörgu félagssamtök, sem
starfa að líknar- og mannúð-
armálum sýna glögglega, að
þessi hugsunarháttur er að
breytast, og að frjáls samtök
einstaklinga í landinu hafa
tekið að sér þýðingarmikla
starfsemi á fjölmörgum svið-
um.
TOLLAR Á BÓKA-
GERÐAREFNI
íyfú um þessar mundir er
’ unnið að endurskoðun
tollkerfisins og má búast við
að skömmu eftir að þing
kemur saman í næstu viku,
muni ríkisstjórnin leggja fyr-
ir Alþingi tillögur sínar um
tollalækkanir.
í sambandi við þá endur-
skoðun tolla, sem nú stendur
yfir, er rík ástæða til að íhuga
vandlega, hvort unnt sé að
fella niður tolla á bókagerð-
arefni, þannig að innlendir
bókaútgefendur og bókafram-
leiðendur standi jafnfætis er-
lendum bókaútgefendum. Sá
aðstöðumunur, sem nú er til
bókagerðar innanlands og
utan er varla sæmandi þjóð,
sem telur sig mikla bókaþjóð.
„LANDRÁÐ"
IT’jórir ungir sovézkir rit-
* höfundar hafa nú verið
dregnir fyrir rétt í Moskvu
og ákærðir fyrir landráð. Slík
ir atburðir eru að verða dag-
legt brauð austur þar, og
benda ótvírætt til þess, að
ráðamönnunum í Kreml þyki
nú mikið liggja við að berja
ÉG HEF eytt miklum hluta
ævi minnar í að berjast við
Þjóð!v’erja og berjast við
stjórnmálamenn. Það er
miklu auðveldara að berjast
við Þjóðverja.
— Momtgomery lávarður
MARGIR telja að leiðin til að
vinna sér virðingu sé að
segja sem minnst. Ég verð að
segja ykkar að það er ekki
mín reynsla.
— George Brown utanríkis-
ráðherra.
FRAKKAR hafa aldrei fyrir-
gefið okkur að hafa ekki gef-
izt upp árið 1040. — Edward
du Cann formaður flokks-
stjórnar brezka íhaldsflokks-
ins.
ÞAÐ er talin vera þjóðar-
dyggð okkar Breta að geta
hlegið að sjálfum okkar. Ég
er ekki viss. Við eyðum of
miklu.m tíma í hl'átur.
Angus Wilson rithöfundur.
ÉG HEF aldrei gert mér gr&in
fyrir því að eitt af verkefn-
um Verkamannaflokksins
væri að tryggja atvinnuleysi.
— Emanuel Shinwell þing-
maður.
ÉG HELD það séu tveir menn
í mér. — George Brown
utanríkisráðherra.
SAGAN er uppfull af styrj-
öldum sem allir héldu að
aldrei gætu orðið. — Enoch
Powell fyrrum heilbrigðis-
málaráðlherra Bretlands.
ALLIR menn eru jafningjar
við fæðingu, en þeir eru
nokkuð margir sem komast
yfir það. — Mancroft lávarð-
ur, forsjóri Cunard skipa-
félagsins.
MÉR líkar illa að horfa á
unglinga brenna fána lands-
ins sem ég elska. Ef þá vantar
viðeigandi táknmynd ættu
þeir heldur að þvo hann.
— Norman Thomas, fram-
bjóðandi sósíalista við for-
setakosningarnar í Banda-
ríkjunum 1928, 32, 36, 40, 44
og 48.
ÞEGAR maðurinn kemst á
ákveðinn aldur getur hann
byrjað að deyja með því að
hugsa of mikið um þá stað-
reynd að hann sé að eldast.
— Pablo Casals níræður.
MÉR HEFUR aldrei fundizt
ég jafn sáttur við sjálfan mig
og heiminn og síðustu fjögur
ár mín og átta mánuði í fang-
elsi. — Milovan Djilas rit-
höfundur og fyrrum varafor-
seti Júgóslavíu,
ÞAÐ KÆMI mér ekki á óvart
þótt forgarðurinn við Buck-
ingham höllina yrði tekin
undir bílastæði innan tíu ára.
— Sir. Basil Spence arkitekt.
SAGNFRÆÐINGAR sem eiga
eftir að dæma okkar tíma í
framtíðinni munu segja: Þetta
var undarlegt tímabil þegar
vinstriflokkar voru ekki
vinstrisinnaðir, hægriflokkar
ekki hægrisinnnaðir og mið-
flokkarnir ekki í miðju.
— Andre Malrftux menning-
armálaráðherra Frakklands.
ÞÓTT ég væri dauður yrði ég
kosinn á þing þar til þeir
hætta að styðja við líkið.
— Blökkumannaþingmaður-
inn Adam Clayton Powell frá
New York.
KENNEDY-ARNIR áttu eng-
an Napoleon I. Þeir urðu að
byrja með Napoleon III. og
Eugeniu keisaradrottningu.
— Gore Vidal rithöfundur.
BRETADROTTNING er örugg
í höndum Verkamannaflokks
ins. Þegar ég lít á suma for-
setana erlendis, og hef ég þá
einn þeirra sérstaklega í
huga, fæ ég ekki séð neitt
sem fær mig til að óska eftir
breytingu á konungsveldinu.
— Emanuel Shinvell þing-
rnaður.
Jólin á Grund og
í Ási í Hveragerði
í JÓLAMÁNUÐINUM var að
venju gestkvæmt á Grund og
Minni-Grund. Margir k.omu tii
þess að heimsækja heimilisfólk-
ið, færðu því allskonar gjafir
og kveðjur og jólapósturinn var
mikill að vanda.
Árlega koma Luciurnar í heim
sókn og fara um húsið með
kertaljósum og syngja jólasálma.
Frú Sigrún Jónsdóttir og frú
Birna Hjaltested sáu um þessa
heimsókn, en það hafa þær gert
á annan áratug — og sýna með
því frábæra tryggð og hugul-
semi til eldra fólksins. Þökk-
um við þeim og ungu stúlkun-
um — Luciunum — innilega
fyrir komuna.
niður af fyllstu hörku alla til-
hneigingu í hópi rithöfunda
og menntamanna til frjálsrar
hugsunar og frjálsra skoðana.
Þeir eru að verða býsna
margir sovézku rithöfund-
arnir, sem gengið hafa þessa
sömu leið, fyrst í tugthús,
síðan fyrir dóm, sakaðir um
hina furðulegustu glæpi, og
loks í nauðungarvinnu eða á
geðveikrahæli. Lítil þroska-
merki sjást því enn á hálfr-
ar aldar gömlu Ráðstjórnar-
þjóðfélagi.
Tónlistarskólinn — yngri
deild — heimsótti okkur um
þessi jól eins og svo oft áður.
Söngkór og strengjahljómsveit
hélt jólatónlei’ka, sem okkur
þótti takast með ágætum. Frk.
Þorgerður Ingólfsdóttir annaðist
söngstjórn og tókst piýðilega.
Þá kom frk. Þorgerður einnig
með söngflokk úr Menntaskóla
Hamrahlíðar nokkru seinna, og
var það einnig kærkomin heim-
sókn. — Hjálpræðisherinn hélt
hér einnig jólatónleika, sem
okkur þótti vænt um.
Átthagafélögin rnundu að
venju eftir sín ufólki, einnig
Rebekku-systur, Blindravina-
félagið og Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Hef ég verið beðinn að
færa öllum þessum félögum hug
heilar þakkir fyrir kærkomnar
gjafir og þá ræktarsemi, sem
þær 'bera vitni m —
Góður vinur okkar á Grund,
Tómas Tómasson forstjóri, sendi
okkur marga kassa af jólaöli og
gosdrýkkjum eins og svo oft áð-
ur um jólin.
í Ási í Hveragerði var einnig
gestkvæmt í jólamánuðinum og
vistfólkinu þar bárust einnig
margar gjafir og jólak'veðjur.
K'venfélag Hveragerðis bauð
heimilisfólkinu á jólatrésskemmt
un. Var það ágæt skemimbun
og veitingar rausnarlegar.
Vistfólkið á stofnunum okkar
er orðið nokkuð margt og á því
marga að. Jóláheimsóknir, gjaf-
ir og jólakveðjur eru kærkomn-
ar og fyrir þetta allt er þakkað
af heilum hug.
Að endingu þakka ég öllu
starfsfólkinu á Grund og í Ási
fyrir mikil og ve’ unnin störf —
ekki aðeins um jólin, heldur
allt árið. Án þess að hafa gott
og samtaka starfsfólk, væri ekki
hægt að starfrækja þessar stofn-
anir svo vel sé og þess vegna
nota ég tækifærið til þess að
þakka því öll störfin sem það
vinnur — ekki aðeins vegna
kaupsins — heldur vegna þess,
að það hefur skilning á þeim
störfum, sem það vinnur að.
Gísli Sig'urbjörnsson.
Brezhnev árnar
Dubcek heílla
Prag, 9. jan., AP.
DAGBLÖÐ í Tékkóslóvakíu
birtu á sunnudag boðskap frá
Brezhnev, aðalritara kommún-
istaflokks Sovétríkjanna, þar
sean hann lýsir velþóknun sinni
á útnefningu Alexanders Dub-
ceks í embætti aðalritara tékk-
neska kommúnistaflokksins.
Varð Brezhnev fyrsitur erlendra
kommúnistaleiðtoga til að óska
Dubcek til hamingju með hið
nýja embætti.
Ducek hlaut menntun sína í
So'vétríkjunum og var áður aðal-
ritari kommúnistaflokksins í
Slóvakíu. Var hann skipaður í
hið nýja embætti eftir miklar
deilur 1 miðstjórn tékkneska
komimúnistaflokksins. Kom hann
í stað Antonins Novotny, sem
skipað hefur þetta emibætti frá
1953. Novotny er ennþá forseti
Tékkóslóvakíu.