Morgunblaðið - 10.01.1968, Síða 16
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1968
- BORMANN
Framhald af bls. 10.
dvaldist þar. Hér er annars veg
ar um að ræða 35 milljónir
punda úr sjóðum Nazistaflokks-
ins auk auðæfa úr eigu Hitlers
(sem Bormann gerði upptæk) og
hins vegar 13 milljónir punda
úr sjóðum SS. Bormann er
greinilega langtum betur settur
en allir aðrir stríðsglæpamenn.
sem lýst hefur verið eftir og
búa á víð og dreif í Suður-Ame
ríku.
Wiledwald veit hvar Gliicks
heldur sig í Chile. Mengele seg-
ir hann að starfi sem herlækn-
ir með majorstign í setuliðsvirk
inu „Antonio Lopez“ á hersvæð-
inu í Norðaustur Paraguay. Yf-
irmaður Gestapo. Heindich Múll
er, virðist vera sá eini sem býr
í borg. Hann og ítölsk stúlka
reka járnvöru og matvælaverzl-
un í einu af úthverfum Natals
í Norðaustur- Brasilíu.
Flóttinn frá Berlín
Dagana 2—3 maí þegar herir
bandamanna brutu á bak aftur
síðustu leifar andspyrnu Þjóð-
verja í Berlín. var Erich Karl
Wiedwald, þá 19 ára gamall und
irforingi í Frundsberg-herfylki
SS, á rússnesku bráðabirgða-
sjúkrahúsi í Köningswusterhaus
en í syðsta hluta Berlínar.
Wiedwald hafði verið í hópi
manna. sem vörðu Hotel Adlon í
miðborginni, aðeins kippkorn frá
neðanjarðarbyrgi Hitlers. Hann
varð fyrir sprengjubroti, og þeg-
ar framvarðarsveitir Rússa murk
uðu niður SS-sveitina hætti
Wiedwald að berjast.
Hann reyndi að flýja suður á
bóginn. En eftir nokkrar klukku
stundir hneig hann niður vegna
blóðmissis. og Rússarnir fleygðu
honum upp í sjúkrabifreið á-
samt hópi særðra landa sinna
og fluttu hann til Köningswust-
erhausen.
Wiedwald var heppinn að
öðru leyti: hann vissi að hann
gat fundið annan og öruggari
griðastað á heimili frænda síns
í Dahlem, úthverfi í vesturhluta
Berlínar, þar sem efnað fólk
var búsett. (Eins og flestir Þjóð
verjar reyndir Wiedwald að falla
í hendur Breta eða Bandaríkja-
manna í 6tað Rússa). Wiedwald
reyndi að fá annan særðan mann.
sem gat gengið, til þess að koma
með sér, og fimm menn heyrðu
tal þeirra á svölum sjúkrahúss-
ins.
Þeir voru í margvíslegum ein-
kennisbúningum. Einn þeirra
var Martin Bormann sem var
dulbúinn sem hermaður úr loft-
varnarsveitum Berlínar. Annar
þeirra var í samfestingi í felu-
litum sem SS-hermenn notuðu.
Hann var Rolf Schwent. sem síð
ar varð hægri hönd Bormanns
í Suður-Ameríku.
Wiedwald segir, að hann hafi
ekki þekkti Bormann. Hann sá
aðeins feitíaginn hermann með
brotinn fót í sáraumbúðum.
Schwent var hár og Ijóshærður.
ósvikinn Aríi.
Schwent hafði orð fyrir þeim
og sannfærði Wiedwald um að
minni hætta væri á ferðum, ef
þeir færu allir saman í hóp til
Dahlem. Þeir íögðu af stað og
tveimur dögum síðar. 4. maí (eft
ir ferðalag sem Wiedwald lýsir
í smáatriðum), kom hópurinn að
raðhúsi. sem þakið var vafnings
við, húsi nr. 9 við Fontane-
strasse nr. 9 við Fontanestrasse
í Dahlem.
Þeir dvöldu þar í fimm daga.
10. maí lögðu þeir af stað til
Suður-Mecklenburg. Bormann
minntist eitthvað á landareign.
sem hann ætti þar og þar sem
hann gæti falizt. En þeir kom-
ust aldrei þangað. Rússarnir
neyddu þá til að snúa við hjá
Neuruppin.
Bormann og Schwent sneru
aftlur til Dahlem og ákváðu að
hætta við að reyna að brjótast
gegnum varnarlínur Rússa og
halda í þess stað norður á bóg-
inn til Dönitz flotaforingja, sem
var að skipuleggja síðustu and-
spyrnuna. Til þess að komast
frá Berlín urðu þeir að fara
hættumikla leið Wiedwald segir
að þeir hafi einfaldlega gengið
eftir hraðbrautinni í vestur.
beint í gegnum varnarlínur
Breta. Þegar þeir voru komnir
út úr borginni, héldu Bormann
og félagar hans norður á bóg-
inn- áleiðis til Glúcksburg á
dönsku landamærunum.
Wiedwald skildi við þá fljót-
lega, svo að Schwent er til frá
sagnar um það sem síðar gerð-
ist. Og frásögn Schwents er á
þá lund. að andspyrna Dönitz
hafi verið kæfð í fæðingu áður
en hann og félagar hans kom-
ust til hans. Bormann sá, að
hann átti enga framtíð fyrir sér
lengur í Þýzkalandi og fór því
úr landi eftir flóttaleið SS—
ODESSA-linunni.
(Fyrri rannsóknir. einkum
rannsóknír ísraelsmanna, hafa
leitt í ljós hvernig Bormann
komst úr landi eftir ODESSA-
leiðinni. fyrst um Austurríki,
um Brennerskarð, til ftalíu. í
klaustur nálægt Róm. þaðan í
fiskibát frá Genúa til Spánar og
loks um mitt ár 1947 til Suður-
Ameríku. Wiedwald segir, að
hann viti ek'kert um þetta ferða
lag).
Hann þekkir til ODESSA-
leiðarinnar engu að síður. enda
fór hann um hana haustið 1946
ásamt aðstoðarmanni Bormanns,
Schwent. (Hvernig fundum
þeirra bar saman aftur er flók-
in saga. en í stuttu máli hagaði
tilviljunin því svo til, að þeir
unnu báðir hjá bandarísku her-
lögreglunni í Múndhen). Sch-
went sagði að hann ætlaði til
Suður-Ameríku. og Wiedwald
féllst á að koma með honum,
.,frekar af ævintýraþrá en
nokkru öðru“, eins og hann seg
ir sjálfur.
Þegar þeir höfðu siglt í þrjá
daga í argentínsku vöruflutn-
ingaskipi sagði Schwent honum
allt af létta.
,.Þú ættir að fá að vita það
núna. að maðurinn sem þú hjálp
aðir að flýja frá Berlín var
Reidhsleiter Martin Bormann",
sagði hann. ..Reichsleiter Bor-
mann er núna í Argentínu. Við
erum á leiðinni til hans“. (Reic
hsleiter þýðir bókstaflega rík-
isleiðtogi,og það var Hitler sem
sæmdi hann þessum titli.
Lífið í búðum nazista.
WIEDWALD SEGIR. að það sé
einkum tvennt, sem mikilvægt
sé að hafa í huga í sambandi
við Martin Bormann nú í dag.
Hann er óþekkjanlegur frá
gömlum ljósmyndum, og hann
er dauðans matur.
Hann er óþekkjanlegur vegna
þess, að klunnaleg plastaðgerð.
sem gerð var á honum í Buenos
Aires skömmu eftir að hann
kom þangað 1947, mistókst herfi
lega. Wiedwald segir. að eftir
aðgerðina sé andlit Bormanns
þrútið, bólugrafið og að nokkru
leyti afmyndað. Litla örið, sem
sjá mátti á enni hans á myndum
af honum úr stríðinu (sjá með-
fylgjandi mynd). er nú hulið
undir þrútnu og uppbólgnu
skinni.
Til þess að fela þessi ör gæt-
ir Bormann þess að sjáist aldrei
án þess að bera barðastóran
hatt og þykk og dökk gleraugu.
Hatturinn, gleraugun og venju
legur klæðnaður hans — hvít
skyrta og há reiðstígvél — gera
það að verkum, að Bormann Mk
ist auðugum landeiganda eins
og menn gera sér þá venjulega
í hugarlund. ,
Það eina sem er sérkennilegt.
segir Wiedwald, er að reiðstíg-
vélin eru brún að lit. SS-menn
hötuðust við brún reiðstígvél,
þar sem þeir töldu þau tákn
.Jiinna úrkynjuðu yfirstétta".
Augljósasta skýringin á þessari
sérvizku Bormanns er ef til vill
jafnframt meginskýringin á því,
hvers vegna hann hefur hingað
til komizt hjá handtöku Stroessn
er, forseta Paraguay. klæðist
brúnum reiðstígvélum og Bor-
mann dáir Stroessner takmarka-
laus. Aðdáunin virðist vera gagn
kvæm. Wiedweld segir, að inn-
römmuð mynd af Stroessner
með eiginhandaráritun til ,ibezta
vinar míns“ hangi á virðuleg-
asta stað í svefnherbergi Bor-
manns ásamt myndum af Hitler
og Göbbels.
Kaldhæðnislegt er, að Bor-
mann heldur að fyrsta hetja
hans, Hitler hafi átt sökina á
magakrabba þeim. sem hann
þjáist af. Bormann hefur alltaf
verið mikill reykingamaður En
Hitler var meinlætamaður og
grasæta og hafði næstum því
eins mikla óbeit á tóbaki og
kjöti. Að því er Wiedwald seg-
ir, heldur Bormann því fram að
í örvæntingu sinni hafi hann flú
ið á náðir eiturlyfja í neðan-
jarðarbyrgi Hitlers, og laumað-
ist hann til þess að neita eitur-
lyfja á salerninu og óttaðist allt-
af að upp um það kæmist. Nikó
tínið í hinum sterku vindling-
um, sem Bormann reykir. eitur
lyfjaneyzlan og stöðugar áhyggj-
ur og kvíði ollu krabbameininu,
að því er hann telur.
Bormann virðist hins vegar
hafa sætt sig við þá tilhugsun,
að hann sé dauðans matur. Hann
reykir og drekkur í óhófi — og
eftirlætisvíntegundin hans er
Whiskey, Vat 69. sem einnig er
eftirlætisvíntegund Stroessners.
Hann virðist ekki einu sinni
hafa áhyggjur af þeim mögu-
leika, sem þó er fjarlægur. að
hann verði handtekinn, en aðrir
íbúar nýlendunnar eru skotglað
ir.
Þrátt fyrir þetta dreymir Bor
mann enn um viðurkenningu.
Wiedweld segir að ræður þær
sem hann haldi á fundum með
íbúum nýlendunnar séu hver
annari líkar og stríðsræður Hitl
ers. í þessum ræðum talaði hann
stundum um þann möguleika að
komast megi að samkomulagi
við Alþjóðadómstólinn í Haag
eða Sameinuðu þjóðirnar um að
nazistar fái sanngjarna málsmeð
ferð.
,Svo seint árið 1963 var Bor-
mann greinilega að hugsa um að
tryggja sér einhverja aðstoð í
þessu skyni. Á einni hinna ó-
löglegu ferða sinna til Evrópu
gerði Schwent Wiedwald grein
fyrir áætlun um að fá Alþjóða
Rauða krossinn til að skerast í
leikinn. Hlutverk milligöngu-
manns var ætlað þýzkri prin-
ses-su .sem í háði var kölluð
„Florence Nightingale SS-sveit-
anna“ En allt er á huldu um.
hvað Rauða krossinum hafi ver
ið ætlað að gera. Hugmyndin
virðist í aðalatriðum hafa verið
sú, að hlutlaus nefnd kæmi í
heimsókn til Kolonie Waldnér
555 og lýsti því yfir að engin
hætta stafaði af nýlendunni.
Brenglaður óraunveruleíki
þessara ráðagerða kemur jafn-
vel ennþá betur fram af lýsingu
Wiedwalds á lífinu í Kolonie
Waldner 555. Tyllidagar nýlend-
unnar eru brjálæðislegir í grát-
brosleik sínum og leikaraskap.
■íbúamir halda upp á afmælis-
dag Hitlers (20. apríl), valda-
töku hans (30. janúar). hina mis
heppnuðu byltingartilraun hans
1923 ( 9. nóvember) og afmælis-
dag Bormanns (17. júni) og
syngia Horst Wessel-sönginn og
aðra nazista-söngva.
Auk keiluspilsins — en jafn-
vel hann ber keim af kjallara-
dögunum í Múnchen — er eina
skemmtun íbúanna fólkin í sam
ræðum. Og eina umræðuefnið
eru gömlu, dauðu dagamir.
Briálæðisleg öfundsýki og tor-
trygg.ni hirðar Hitlers endurtek
ur sig á kvöldin í stjörnuskin-
inu.
Þetta er deyjandi samfélag. Á
undanförnum árum virðist kon-
um í fyrsta skipti hafa verið
levft að setjast að í nýlendunni
(Schwent ga*t þess þegar hann
var í Hollandi í sumar að getn-
aðarvarnarpillur væru notaðar
í Waldner 555). Áður hafði Bor
mann neitað að konur fengju að
setjast þar að, þar sem þær
gætu stofnað öryggi nýlendunn-
ar í hættu. Þegar lagt var til*
að komið yrði upp norrænu stóð
hestabúi brást hann reiður við
og sagði að slíkt mætti ekki
leyfa, þar sem þar með væri
minningu Hitlers sýnd óvirðing.
En þótt börn fæðist í Kolonie
Waldner 555 lifir nýlendan að-
eins fyrir einn mann. Jafnvel
þótt Bormann komist hjá hand
töku eða haldi lífi ef hann verð-
ur handtekinn — og ísraels-
men.n hafa meiri áhuga á Men-
gele — er erfitt að trúa því, sam
kvæmt frásögn Wiedwalds. að
útvirkið við Paranafljót lifi
lengi eftir fráfall stofnanda þess.
VERÐSTRÉÐIÐ HELDUR ÁFRAM
IMú eru það greiðslu-
sloppar, sænsk úrvals-
vara, margir litir, mörg
snið. Allir á kr. 500.
Tökum ennfremur fram enn meira af
hinum þekktu- og nú ódýru- Alundco
jersey-kjólum. Þeir seldust nœrri allir
sem voru frammi við á mánudag.
Við seljum ódýrt
kjóla, síða og stutta. Regnkápur,
kápur, dragtir, pils, síðbuxur, o.m.fl.
Flytjum verzlunina heim
til íslands. Verðmis-
munurinn er að minnka.
Innkaupaferðir til
Glasgow ekki lengur
nauðsynlegar.
Komið
Við byrjum verðstríðið, við skulum
sigra erlenda keppinauta, verzlið við
okkur og hagnizt sjálf um leið.
Tl ZKUVERZLUNIN
GUÐRON
RAUÐARÁRSTIG1
sími 15077