Morgunblaðið - 10.01.1968, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1068
19
Oliver Guðmundsson
prentari, sextugur
OLIVER Guðmundsson, prent-
ari, Sigríðarstöðum við Reykja-
veg er 60 ára í dag. Oliver er
Snæfellingur að ætt og uppruna,
fæddur í Ólafsvík, sonur hjón-
anna Guðmundar Guðjónssonar,
skósmíðameistara og Sigríðar
Oliversdóttur. Ungur fluttist
Oliver suður með foreldrum sín
um. Settust þau fyrst að í Hafn-
arfirði, en fluttu síðan til
Reykjavíkur árið 1922 og þar
hefur hann verið búsettur síð-
an.
Fljótlega eftir komuna til
Reykjavíkur eða árið 1925, hóf
Oliver prentnám í fsafold hjá
Gunnari Einarssyni. Starfaði
hann síðan hjá ísafoldarprent-
smiðju nær stöðugt næstu þrjá
áratugina. Er Gunnar Einarsson
tók við rekstri prentsmiðjunnar
„Leiftur", fluttist Oliver þangað
og hefur hann unnið þar síðan.
Góð vinátta tókst þegar í upp-
hafi á milli þeirra Olivers og
Gunnars og hefur hún verið
bundin traustum böndum, þar
sem Oliver hefur unnið á Gunn-
ars vegum nær óslitið í rúm 40
ár. Mun svo langur starfsferiU
hjá sama aðila næsta fátíður nú
á dögum.
Lengst af hefur Oliver unnið
við vélsetningu. Munu þær orðn
ar æði margar bækurnar, sem
hann hefur sett um ævina. Oft
hefur hann valizt til hinna
vandasömustu verka, og þó hér
sé ekki ætlunin, né þess nokkur
kostur í stuttri afmælisgrein, að
geta þeirra bóka, sem Oliver
hefur vélsett, þá má til gamans
minna á fjölda orðabóka, sjó-
mannaalmanak, símaskrána og
mörg önnur hliðstæð verkefni,
sem krefjast mikillar nákvæmn-
isvinnu og vandvirkni, og hann
hefur margsinnis verið valinn
til að leysa af hendi.
Utan sinna skyldustarfa eiga
flestir menn sín hugðarefni, sín
ar leyndu óskir, sem þeir þurfa
að svala. Tjáningarþörf er
mönnum í blóð borin, en tján-
ingarformið er eins margbreyti
legt og mennirnir sjálfir. Það
er margra álit, að hvergi hafi
maðurinn komizt hærra, né náð
að tjá sig á annan hátt betur,
en í hljómlistinni.
Ef nefna ætti hugðarefni Oli-
vers Guðmundssonar, þá yrði
hljómlistin eflaust efst á blaðL
í hennar heimi hefur hann lií-
að öðrum þræði. Þegar á unga
aldri tók Oliver að semja lög,
og eru þau nú mörg landskunn.
Hann lagði stund á hljóðfæra-
leik um árabil og enn sezt hann
við orgelið, ef svo ber undir,
og nýir tónar fæðast og lög
verða til. Meðfædd hlédrægni
og dagsins önn hafa hins veg-
ar valdið því, a'ð Oliver hefur
ekki lagt fyrir sig tónsmíðar sem
skyldi, og mörg lög, sem honum
hefur ekki unnizt tími til að full
vinna, mun hann eiga í fórum
sínum.
Oliver Guðmundsson er mað-
ur ljúfur í lund, hógvær og ein-
staklega hlýr í framgöngu, en
kann vel að vera glaður í góð-
vina hópi. Kvæntur er Oliver
Láru Einarsdóttur frá Hafra-
nesi við Reyðjarfjörð.
Þeir munu áreiðanlega verða
margir, vinir og kunningjar, sem
í dag senda Oliver Guðmunds-
syni hlýjar árnaðaróskir á þess-
um merkisdegi í lífi hans.
A.
Þorgeir Ólafsson
— Minningarorð —
HINN 30. des. sl. andaðist Þor-
geir Ólafsson, Brunngötu 12A
ísafirði. Með honum er horfinn
einn þeirra manna, sem öllum,
er honum kynntust, er ljúft að
minnast.
Þeirgeir var fæddur að Berja-
dalsá á Snæfjallaströnd 12. febr.
1898, sonur hjónanna Margrét-
ar Bjarnadóttur og Ólafs Bjarna
sonar. Þeim hjónum, Margréti
og Ólafi, varð fimm barna auð-
ið, en aðeins tveir synir þeirra
komust til fullorðins ára, Þor-
geir og Halldór, en hann lézt
árið 1955. Einn dreng tóku þau
í fóstur, Guðjón Kristjánsson,
og er hann búsettur í Bolungar-
vík.
Árið 1915, þegar Þorgeir var
17 ára, lézt faðir hans, en þeir
bræður héldu áfram heimili
með móður sinni og ömmu á
Berjadalsá. Búskapur var þar
alla tíð lítill, en sjómennskan
stunduð af því meira kappi. Þeir
bræður, Þorgeir og Halldór,
munu ekki hafa verið gamlir að
árum, þegar þeir fóru og stunda
sjóinn. Ungir þurftu þeir að
taka á sig mikla ábyrgð að fram
fleyta fjölskyldu sinni. Sú
ábyrgð gerði þá mjög sam-
rýmda og náið samband var
alla tíð með þeim bærðrum.
Árið 1925 flyzt Þorgeir ásamt
móður sinni og bróður til Hnífs-
dals og stundar þar áfram sjó-
mennsku, og þar kynntist hann
eftirlifandi konu sinni, Jónu
Jónsdóttur, hinni mætustu konu.
Þau giftust árið_ 1929 og hafa
alla tíð búið á ísafirði. Börn
þeirra hjóna eru þrjú. Elzt er
Ása, gift Páli Lúðvíkssyni, verk
fræðingi, Ólafur og Jóhann, vél-
smiður, báðir ókvæntir. — Mér
er enn í minni sú snyrtimennska
og hógværa gleði, sem var ein-
kenni heimilis þeirra Þorgeirs
og Jónu, enda voru þau sam-
hent mjög.
Á ísafirði stundaði Þorgeir
einkum sjómennsku, bæði á bát
um og togurum, allt fram undir
1950. Síðari árin hefur hann
Minning
ÞANN 2. janúar 1968 andaðist
að 'heimili aldraðra sjómanna
ekkjan Sigríður Jensdóttir frá
Arnardal.
Sigríður var fædd í Arnardal
þann 1. febrúar 1801 og voru
foreldrar hennar Jens Jónsson,
bóndli og fomaður þar, og Sól-
borg Sigurðardóttir. Sigríður
var tviburi móti Sóllborgu systur
sinni. Var hún strax tekin í fóst-
ur af Halldóri föðurbróður sínum
og ólst þar upp þv*i rnóðir henn-
ar dó þá. SVo kom hún 16 ára
inn í Æðey til föðursystur sdnn-
ar, Guðrúnar Jónsdóttur hús-
freyju þar. Kynntist hún þar
Guðmundi Jakdbssyni fóstur-
syni þeirra og giftust þau 26/7.
1.902 og fluttu til Rokingarvíkur
þar sem hann stundaði sjó-
starfað við frystihúsið Norður-
tangann. Alla tíð sýndi Þorgeir
einstaka trúmennsku og dugnað
í störfum. Hann mætti síðast til
vinnu 28. desember, tveimur
dögum áður en hann lézt Ekki
skyldi eftir gefið, þó heilsan
væri tekin að bila hin siðari
ár.
Ég vil að lokum fyrir hönd
bræðrabarna og Ólafar, mág-
konu Þorgeirs heitins, þakka
vináttu hans. Við sendum eig-
inkonu og börnum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. — Við
eigum öll aðeins hugljúfar og
fagrar minningar um þennan
góða dreng.
mennsku, fyrst á árabátum en
síðan á mótobbátum, en hann
drukknaði í ofsaveðri 27/11
1915.
Með Guðmundi átti hún 6 ibörn
sem öll dóu ung nema EMsabet,
sem gift var Magnúsi Rögnvalds
syni, verkstjóra í Búðardal, og
fórst hún í flugslysi 13/3. 1.947.
S'vo giftist Sigríður Elíasi Magn-
ússyni, útvegabónda 16/4. 1919.
Með honum átti hún 3 dætur, en
ein þeirra dó img, en hinar eru
Guðmunda Jakobína, söngkona,
nú búsett í Danmörku, en hin
Þorgerður, ekkja hér í Reykja-
vlk.
Áður en Sigr'íður giftist Guð-
mundi, fór hún norður í Eyja-
fjörð til Septínu Sigurðardóttur
sem var gift Rósinkar bróður
ökkar, og lærði hjá henni fata-
saum. H'ún hafði Iþá lært hann
í Kaupmannahöfn. Hún stund-
aði því alla ævi ásamt hússtörf-
um sínum sauma og kom henni
það oft vel á hennar erfiðu sevL
S'Vo var hún ágætlega söng-
hneigð sem kom mest fram í
Bolungarvík, þar sem hún söng
í kirkjunni þar í mörg ár.
í gegnum alla þessa erfiðu
ævi sjúkdóma og ástvinami'ss-
is, var hún oftast kát, og það
sagði mér gamall maður á elii-
heimilinu, að síðasta kvöldið
sem hún lifði, hefði hún verið
hin kátasta. Guð iblessi þig og
þína alla tíma.
Þess óskar þinn einlægi frændi
Ástgeir Guðmundsson frá Æðey.
Sigríður Jensdóttir
frá Arnardal
Fimmtugur / dag:
Bjarni Tómasson
BJARNI Tómasson, deildarstjóri
í Iðnaðarbanka fslands h.f., er
fimmtugur í dag. Hann er Reyk
víkingur í húð og hár, fæddur
og uppalinn í Austurbænum, nán
ar tiltekið við Laugaveginn. Að
vísu er föðurætt hans að aust-
an en móðurættin af Snæfells-
nesi. Það má því segja um hann,
eins og raunar fleiri Reykvík-
inga, sem komnir feru á miðjan
aldur: Sterkar rætur tengja
hann bæði borg og sveit. Borg-
in hefur mótað hann og þrosk-
að en merkir þættir fornrar
sveitamenningar eiga sterk ítök
ífari hans og háttum.
Foreldrar hans eru hjónin
Tómas Jónsson, trésmiður og
verkstjóri, er stofnaði Efnalaug
Reykjavíkur og starfrækti um
árabil og Bjarnína Bjarnadóttir.
Faðir hans lézt á bezta aldri
fyrir meira en þrjátíu árum en
móðir hans er enn á lífi. Bjarni
fór ungur í Verzlunarskóla ís-
lands og lauk þaðan burtfarar-
prófi vorið 1936 með mjög hárri
einkunn. Faðir hans andaðist
sama vorið og tók þá Bjarni, sem
er elztur systkina sinna, við
stjórn Efnalaugarinnar að hon-
um látnum. Hann var síðan for-
stjóri hennar í þrjátíu ár, eða
þar til í maíbyrjun 1966. Þá
réðist hann í þjónustu Iðnaðar-
bankans og er nú deildarstóri í
innheimtudeild bankans.
Bjarni hefur haft mikil af-
skipti af félagsmálum, enda þótt
honum sé ógeðfellt að láta á sér
bera í þeim efnum og forðist,
eins og heitan eld, að ota sjálf-
um sér fram á þeim vettvangi.
En hann hefur getið sér traust
og virðingu félaga sinna með
hógværð og prúðmennsku. Og
þeir hafa jafnan komizt að raun
um, að hverju máli. sem hann
snýr fangi að, er vel borgið í
höndum hans. Ég kann fátt eitt
að telja í þeim efnum. Hann
var um árabil formaður Félags
efnalaugaeigenda. Þá hefur hann
verið í stjórn Félags frímerkja-
safnara og formaður þess um
skeið. Hann hefur starfað mik-
ið í félagsskap Oddfellowa og
er mér kunnugt, að þar hafa
honum verið falin fjölmörg
trúnaðarstörf. Ekki hafði hann
starfað lengi í Iðnaðarbankan-
um, þegar samstarfsfólki hans
þar varð ljóst, að málum þess
yrði vel ráðið, ef hann myndi
um þau fjalla, en hann er nú
formaður starfsmannafélags
bankans.
Bjarni Tómasson er gætinn
maður og orðvar, stilltur vel og
einstakt prúðmenni. Hann er
athugull og glöggur að greina
aðalatriði frá aukaatriðum í
hverju máli. Ég ætla, að stærð-
fræði og raunvísindi hafi legið
vel fyrir honum í skóla og í
skóla lífsins hefur hann reynzt
raunsær en um leið mannlegur
(humanisti) í beztu merkingu
orðsins.
Mér er kunnugt, að Bjarni
nýtur mikils og vaxandi trausts
yfirmanna sinna í Iðnaðarbank-
anum, enda að verðleikum.
Engum, sem hefur af honum
kynni, blandast hugur um, að
þar er rúm vel skipað, sem hann
á sæti. Enginn þarf að efa, að
spor drengskaparmanns og
mannkosta hefðu hvarvetna sézt,
þar sem hann hefði haslað sér
völl í þjóðfélaginu. Vel má vera,
að þjóð vorri sé það meira tjón
en metið verði, þegar miklir
hæfileikar og farsælar gáfur
koma ekki að þeim notum, sem
efni standa til, vegna eðlislægr-
ar hógværðar og hlédrægni ein-
staklinganna sjálfra. Margir
hafa hvorki geð né löngun til
að olboga sig áfram — allra sízt
með takmarkalausri frekju, eins
og sumra er háttur — á hinum
mikla Iðavelli mannlífsins.
Bjarni er kvæntur Idu Tóm-
asdóttur, sem búið hefur manni
sínum fagurt heimili og vistlegt,
þar sem gestrisni og einlæg alúð
mæta þeim, er að gerði ber. Hún
er mikill kvenkostur og kven-
skörungur en það er mál þeirra,
er til þekkja, að með þeim sé
jafnræði mikið. Þau eiga eina
dóttur, Birnu, sem nú er senn
tvítug og kjördóttur, Hildi Hall-
dóru, er verður tveggja ára i
þessum mánuði. Hún er sann-
arlega sólargeisli heimilisins og
yndi þeirra beggja og eftirlæti.
Ég þakka Bjarna Tómassyni
margra ára vináttu og trausta,
svo að þar hefur aldrei fallið
skuggi á. Slík vinátta verður
raunar aldrei metin né þökkuð
eins og vert er. Ég og fjölskylda
mínum sendum honum og þeim
hjónum einlægar óskir á merk-
um tímamótum. í dag hafa þau
tvöfalda ástæðu til að gleðjast,
því að þau fagna nú einnig silf-
urbrúðkaupsdegi. Við þökkum
margar ljúfar stundir á heimili
þeirra og óskum þeim allrar
blessunar á komandi árum.
X.
Framtíðarstarf
Laghentur reglusamur maður óskast til starfa í
verksmiðjunni Varmaplast, við Kleppsveg.
Upplýsingar veittar hjá
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO.
Suðurlandsbraut 6.
Flutningaskipið
„ÍSB0RG“
er til sölu og sýnis, þar sem það nú stendur uppi
hjá Slippfélaginu í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir fulltrúi vor Björn
Ólafs hdl., sími 16312.
SEÐLABANKI ÍSLANDS.