Morgunblaðið - 06.05.1971, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MAl 1971
5
Skólaslit í verzlunar-
deild Verzlun-
arskólans
128 nemendur brautskráðir
Föstudaginn 30. april s.l. voru
128 nemendur brautskráðir úr 4.
bekk Verzlunarskóla Islands við
hátíðlega athöfn í samkomusal
skólans. Meða! gesta var
Björgvin Schram, varaform.
Verzlunarráðs íslands, Gísli
Einarsson, form. skólanefndar,
fulltrúar ýmissa afmælisárganga
o.fl.
Skólastjóri, dr. Jón Gíslason,
minntist í upphafi tveggja ný-
látinna velunnara skólans, frú
frú Sigriðar J. Bjarnason, sem
var meðal fyrstu kennam skól-
ans, og Gríms Jónssonar frá
Súðavík, fyrrum útvegsbónda og
kaupmanns, sem var í fyrsta
nemendahópnum, er brautskráð-
ur var frá skólanum, árið 1907.
Frú Sigriður J. Bjarnason
kenndi um langt árabil ensku
við skólann. Gat hún sér mikinn
og góðan orðstir sem kennari.
Faðir frú Sigríðar, Jón Ólafs-
son, skáld og ritstjóri, var einn
af aðal hvatamönnum að stofnun
skólans.
Grimur Jónsson frá Súðavík
hélt jafnan staðfastri tryggð við
Verzlunarskólann og sýndi það
bæði í orði og verki við ýmis
tækifæri. Er þess skemmst að
minnast, að i „Verzlunarskóla
blaðið“, sem út kom í febrúar
s.L skrifaði hann ágæta grein,
sem er órækur vottur þess, hve
einlægan vinarhug hinn ágæti
frumherji og rammíslenzka
kempa bar til skólans.
Skólastjóri bað alla viðstadda
að rísa úr sætum í virðingar-
skyni við minningu þessara
tveggja hollvina skólans.
Skólastjóri flutti siðan stutta
skýrslu um starf skólans s.l. vet
ur. Við upphaf skólaárs höfðu
verið innritaðir samtals 731 nem
andi, 305 piltar og 426 stúlkur.
Var þeim skipað í 28 bekkjar-
deildir. Er þá talið með nám-
skeið i hagnýtum verzlunar- og
skrifstofugreinum fyrir gagn-
fræðinga.
Við skólann störfuðu samtals
46 kennarar, þar af 22 fastráðn-
ir.
Allt er fræðslustarfið nokkru
margbrotnara og erfiðara við-
fangs nú vegna þess, að kennt
er eftir tveimur námsskrám, með
an gamla skipulagið er að hverfa
smám saman, en hið nýja að
koma i þess stað.
Úr 4. bekk voru að þessu
sinni brautskráðir 128 nemend-
ur. Hlutu 55 I. eink., 54 II. eink.
og 19 III. eink. Enn hafa 13 nem
endur ekki lokið prófi í 4. bekk
að þessu sinni, bæði vegna veik-
inda og annarra orsaka.
Eftirtaldir nemendur náðu
beztum árangri á burtfararprófi
úr 4. bekk að þessu sinni: Niels
Karlsson, I. eink., 8,93, Pálmi
Vigfús Jónsson, I. eink., 8,80 og
Margrét Auðunsdóttir I. eink.,
8,78.
Er skólastjóri hafði gert grein
fyrir úrslitum prófa, afhenti
hann nemendum verzlunarprófs
skírteini sín og sæmdi þá verð-
launum, sem fram úr höfðu skar-
að.
Á námskeiði fyrir gagnfræð-
inga var Guðrún H. Bjarnadótt-
ir efst, hlaut I. eink., 8,58.
Loks ávarpaði skólastjóri
brautskráða nemendur með
ræðu. Kvað hann því fydgja
bæði vanda og vegsemd að vera
ungur, ekki ' sízt á vorum við-
sjálu tlmum. Brýndi hann fýrir
þeim að gera sér sem gleggsta
grein fyrir hinni miklu ábyrgð,
sem á þeim hvíldi gagnvart
landi og þjóð, einkum vegna sí-
vaxandi iðnvæðingar.
Loks kvöddu sér hljóðs full-
trúar nokkurra afmælisárganga.
Fyrir hönd 40 ára nemenda tal
aði Leifur Guðmundsson for-
stjóri. Gáfu þeir félagar peninga
upphæð í „Verðlaunasjóð Jóns
Sívertsen". Tilgangur sjóðsins
er að verðlauna þá, sem skara
fram úr í stærðfræði á burtfarar-
prófi.
Njáll Símonarson, fram-
kvæmdastjóri, hafði orð fyrir
30 ára nemendum. Færðu þeir
skólanum að gjöf málverk eftir
bekkjarsystur sína, listakonuna
Guðmundu Andrésdóttur.
Af hálfu 25 ára nemenda tal-
aði Björgvin Torfason. Gáfu
þeir félagar fjárupphæð i
„Minningarsjóð nemenda Verzl-
unarskóla Islands". Sjóð þenn-
an stofnaði einmitt þessi sami ár
gangur á 20 ára afmæli sínu.
Tilgangur sjóðsins er að efla
og viðhalda góðu félagslífi í skól
anum svo og að efla nýmæli við
kennslu í verzlunardeild skól-
ans.
Þorvaldur Alfonsson, fram-
kvæmdastjóri, hafði orð fyrir
20 ára nemendum, sem gáfu f jár-
upphæð í „Minningarsjóð Inga
Þ. Gislasonar."
Ólafur Nilsson, lögg. endur-
skoðandi, hafði orð fyrir 15 ára
nemendum, sem gáfu peninga-
upphæð í „Styrktarsjóð Nem-
endasambands Verzlunarskóla
Islands."
Orð fyrir 10 ára nemendum
hafði Sveinn Kjartansson, verzl-
unarmaður. Gáfu þeir félagar
peningaupphæð, sem varið
skyldi til kaupa á handbókum
fyrir kennarastofuna.
Skólastjóri þakkaði að lokum
ræðumönnum fyrir hlý orð í
garð skólans og starfsliðs hans
fyrr og siðar og fyrir hinar
rausnarlegu gjafir tii styrkt-
ar ýmsum nauðsynjamálum skól-
ans. Vinarhugur gamalla nem-
enda og vakandi áhugi þeirra á
málefnum skólans á líðandi
stund væri mikill stuðningur og
örvun fyrir þá, sem við hann
störfuðu.-
Hóf Nemendasambands
Verzlunarskóla íslands að
Hótel Sögu.
Að kvöldi 30. april efndi nem-
endasamband skólans til mann-
fagnaðar að Hótel Sögu. Valgarð
Briem, lögfræðingur, stýrði hóf-
inu, sem var mjög f jölmennt.
Margar og snjallar ræður
voru fluttar, þar sem blandað-
ist saman gaman og alvara og
mörgum gömlum minningum
skaut skyndilega upp.
Kristinn kaupmaður Einars-
son, brautskráður árið 1916,
flutti ræðu, sem gneistaði af
fjöri og skemmtilegum hugdett-
um. Kristinn er ættaður frá
Hjalla í Ölfusi, sem kunnugt er.
Höfðu foreldrar hans ráðizt í að
láta skrá hann nemanda í und-
irbúningsdeild Verzlunarskóla
íslands. En nokkru síðar bárust
austur yfir Fjall fregnir um, að
stríð hefði brotizt út í Evrópu.
Fylltust þá margir nokkrum ugg,
enda kvað kerling ein í Ölfus-
inu svo að orði: „Það er ég viss
um, að þeir hætta ekki í þessu
stríði, fyrr en þeir hafa drepið
mann.“ —• Helzt voru foreldrar
Kristins þá að hugsa um að láta
strika hann út af nemendaskrá
Verzlunarskólans. En rétt á eft-
ir kom önnur frétt austur yfir
Hellisheiði: Smjörið hafði hækk
að í verði. Þá dugði ekkert hik
lengur. Kristinn skyldi fara I
Verzlunarskólann.
Aðrir ræðumeim voru Gunnar
Petersen, skrifstofumaður,
Björgvin Torfason, skrifstofu-
maður, frú Hafdís Hlíf Sigur-
björnsdóttir, Sveinn Kjartans-
son, verzlunarmaður og frú
Gerður Pálmadóttir.
Að lokum flutti skólastjóri,
dr. Jón Gíslason, stutt ávarp.
Þakkaði hann mörg vinsamleg
orð, sem um skólann og kenn-
arana hefðu verið sögð.
Að loknu borðhaldi gekk I
salinn fylktu liði hinn fríði hóp-
ur, sem brautskráður hafði ver-
ið fyrr um daginn. Verzlunar-
prófsnemendur ávarpaði Krist-
inn Hallsson, óperusöngvaxi, og
bauð hina ungu menn og konur
velkomin í nemendasamband
skólans. Einn úr hópi nemenda,
Hilmar B. Baldursson, þakkaði
fyrir hönd bekkjarsystkina
sinna.
Síðan var dans stiginn af
miklu fjöri og með almennri þátt
töku allra aldursflokka.
Framtíðarstarf
Trésmiður eða laghentur maður óskast
í uppsetningu á bílskúrshurðum.
GLUGGASMIÐJAN, Síðumúla 20.
Sölumannadeild
Hádegisverðarfundur
Næsti fundur deildarinnar verður haldinn í Átthagasal Hótel
Sögu laugardaginn 8. maí klukkan 12.15.
Gestur fundarins verður
ERLENDUR EINARSSON. forstjóri,
og nefnir hann erindi sitt: SÍS og sölumálin.
Félagar eru hvattir til að bjóða gestum.
Athugið! Síðasti fundur vetrarins.
STJÓRNIN.
Ve/ varið hús fagnar vori....
VITRETEX
heitir plastmálningm frá SL/PPFÉLAG/NU.
Hún ver steinveggi gegn vatnsveðrum haustsins
og frosthörkum vetrarins.
V/TRETEX p/astmá/ning myndar óvenju sterka húð.
Hún hefur því framúrskarandi veðrunarþol.
Samt sem áður „andar" veggurinn út um V/TRETEX
plastmálningu.
Munið nafnið VITRETEX það er miki/vægt — því:
endingin vex með V/TRETEX
Framleiðandi á íslandi:
S/ippfé/agið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjód Dugguvogi — Símar 33433 og 33414