Morgunblaðið - 06.05.1971, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MAl 1971
7
.
.-
Eldmessutangi.
■ U'P..."
ijfuwJUmu nu .
u:1 (
uUjwíi a<c \f«í
íi'ns^iwn
Eldmessa og Angurvaka
Allir kannast við Eldmess-
una, einn svipmesta atburð I
íslenzkri kristnisögu. Hún
var sungin í Kirkjubæjar-
klausturskirkju meðan eld-
urinn var i algleymingi 5. sd.
e. trin., 20. júlí 1783. Heitur
var eldur sá — heitari þó
bænir sr. Jóns Steingrimsson
ar, sem stöðvuðu hraun-
rennslið í Skaftá fyrir utan
Systrastapa, „í afhallandi far
veg hér um 70 faðma á
breidd, en 20 faðma á dýpt,
sem sjáaniegt verður til
heimsenda, ef þar verður ei
á önnur umbreyting" eins og
sr. Jón kemst að orði i Eld-
riti sinu.
Þar heitir Eldmessutangi.
Um Skaftáreida hefur sr.
Jón ritað.
Fullkomið skrif um Síðu-
eld, nákvæm lýsing á gangi
gossins og afleiðingum þess
fyrir nálægar sveitir. Hann
hefur iíka ritað óviðjafnan-
lega ævisögu. Dr. Jón Þor-
kelsson gaf hana út fyrir
Sögufélagið 1913—16. Þá var
prentað með henni:
Kvæðe sem kallast Ang-
urvaka, um Jarðelden sem
upp kom í Skaftafells-
Sýslu 8da Junii hans
hellstu verkaner þar hann
yfirfiell og í kryngum hann
sierdeiiis í Kyrkiu bæar
Klausturs sókn til út-
gaungu ársins 1784 með öðr
um fleirum umbreitingum
sem fram komu það ár.
Kvæðeð er sorglegt en end
ast með fyerbæn og þack-
argjörð. Ort af þarverande
kiennimanne
Sra Jone Steingrimssyne.
Angurvaka (angur = iðrun)
er ails 34 erindi og hefst
þannig:
Ó, guð allsvaldandi,
öllum heim stjórnandi
í æðsta einvalds standi,
allskyns gott veitandi,
öllu eyðir grandi,
allt með'Íínum krafti hann
ber.
Herrann Jesús hjálpi mér,
ljái mér lið þinn andi,
lítið kvæði að smíða.
Sendi oss drottinn sigurinn
fríða.
Síðan minnist höfundur
þess hvernig ástandið var fyr
ir eldinn. Þá var ekki allt í
sómanum, ágirnd og tiundar-
svik í aiisnægtum og annað
fieira, sem of ljótt er að
heyra en
Kirkju og kenning presta
kauðar smáðu þrálátir.
Yfir þessa misnotkun á gjöf
um skaparans féli tyftun
hinna miklu hörmunga, ,,þó
með stærri biðlund og vægð
en verðskuldað höfðu."
Skírnarfontur Prestsbakka-
kirkju á Síðu. Á honum eru
myndir frá Eldmessunni, út-
skornar af Ríkarði. Þessi
mynd sýnir sr. Jón ásamt
kirkjugestum er þeir koma í
skarðið hjá Systrastapa og
sjá hraunrennslið stöðvað á
Eldmessutanga.
Sterklega er eldsögnunum
lýst í Angurvöku og Drott-
inn jafnframt ákallaður:
Rauð varð sólin sæla,
sands féll yfir pæla,
brennisteins vatn og bræla,
bliknaði fold og dæla,
skepnur veina og væla,
viltar dóu þar og hér.
Herrann Jesús hjálpi mér.
Soddan sorgargæla
sáran jók oss kviða.
Sendi oss Drottinn sigurinn
fríða.
Undir lokin víkur sr. Jón
Upphaf Angurvöku.
að sínum einkamálum:
Hér greind hróðrastaka
heitir Angurvaka,
þó beri hún bragsnúð laka
börn það vel upp taka.
Svo nam kveða og kvaka
klerkur sá á bakka er.
Herrann Jesús hjálpi mér.
Minn eg ektamaka
missti lyndisþýða.
Sendi oss Drottinn sigurinn
fríða.
Mad. Þórunn, kona sr. Jóns,
dó 4. okt. 1784. Mannkostum
hennar og bænhita í beisk-
um mannraunum er lýst í
næsta erindi. En sjálfan sig
felur sr. Jón, sem fyrr, góð-
um Guði og biður hann um
styrk i böli og sorg:
Einmana eg því þreyi
yfir feiginsdegi.
Guð, þó böl mig beygi,
bila lát mig eigi.
Hulin tryggð og tregi
hindra tíðum svefnværðir.
Herrann Jesús hjálpi mér.
Hann minn huga hneigi
að hlýða, bíða og líða
Sendi oss Drottinn sigurinn
fríða.
G. Br.
HER
ÁÐIJR
FYRRI
VÍSUKORN
Sál mín í eldinum brann
Ég skemmti mér ungur á
skautum
við skínandi stjarnanna biik
á gierhálum geislandi brautum
geysist mitt ákveðna strik.
En seinna ég fylgdist með fljóði
sem frjálslegt við hlið mína
rann.
Þá ólgaði ástin í blóði
og örlagaþræðina spann.
Ástin er svikul hjá ungum,
áfram því tíminn skjótt rann.
Saman ei lengur við sungum,
en sál mín i eldinum brann.
Giinnlaiigur Gunnlaugsson.
Vorvísa
Brumknapparnir birtu þrá,
brjótast út i vorið.
Lömbin smáu lítið á
læra fýrsta sporið.
Mai, 1971. J.O.J.
GAMALT
OG
GOTT
Líneik og Laufey
„Líneik systir!
Laufey grætur.
Bættu um borða,
ef betur þér lætur.“
„Manstu ekki
íjailið háva,
brekkuna bröttu
og bálið undir?“
I
I
|ÉG REYKTI
I LÍKA
POPCORNSVÉL Eigum óselda Pop-A-Lot pop coransvél. H. Óskarsson sf. Sími 33040. BROTAMALMUR Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 2-58-91.
ÓSKA EFTIR 2ja—3ja herb. íbúð. Uppl. í síma 82760 eftir kl. 1 á dag- inn. KEFLAVlK Til sölu járnklætt timburhús á Bergi. 2 íbúðir, 2ja og 3ja henb. Hagst. verð. Fasteigna- saia Vilhjáfms og- Guðfinns, símar 1263 og 2376.
SAGA Óska eftir að koma íslenzkri skáldsögu í blað eða tiímarit. Svör merkt: „Framhalads- saga 7497" tegg inn á afgr. Mbl. TRJAPLÖNTUR Birkiplöntur o. fl. til sölu að Lynghvammi 4, Hafnarfirði. Smni 50672. Jón Magnússon.
SUMARDVÖL VANTAR AÐSTOÐARSTÚLKU
Get bætt við nokkrum börn- um á sveitaheimiti í Húna- vatnssýslu. Uppl. í síma 52640 eftir kl. 20. á tannlækningastofu mína í Ytri-Njarðvík strax. Uppl. í síma 2148 miHi kl. 2 og 4. Þorieifur Mattbiasson.
KENNARASKÓLANEMA 15 ara drengur
sem lýkur 4. bekkjarprófi i vor, vantar góða vinnu. Nær altt kemur til greina. Titboð sendist Mbl. merkt: „7170”. óskar eftir að komast i sveit. Uppl. í síma 81911 eftir kl. 8 í kvöld.
UNG STÚLKA sem er að Ijúka 2. bekk Kennaraskólans óskar eftir atvinnu í sumar. Áreiðanleg og stundvis. Uppl. i sima 84271. NJARÐ- OG KEFLVlKINGAR Ung barnlaus hjón óska eftir íbúð. Uppl. í sima 1704, Njarðvikum.
ÓSKA EFTIR 3ja herb. íbúð, sem fyrst. Uppl. i sima 16724 og eftir kl. 5 í sima 13885. 11 TONNA BÁTUR Til sölu 11 tonna yfirbyggð- ur nótabátor með góðri 120 hestafla vél og nýupptekn- um vökvaskiptum gir. Uppl. að Ölduslóð 1, Hafnarfirði, neðri hæð, eftir kl. 7.
SKARNI matrAðskona
Heimkeyrður. Sími 42076. Tekið á móti pöntunum frá kl. 10—21. óskast að Barnaheimilinu, Tjaldanesi frá 14. maí. Uppl. hjá forstöðumanni. — Sími 66266.
LANDROVER DlSIL TIL SÖLU keyrður 35 þús. km. Mjög góður bíll. Skipti á góðum fólksbil koma til greina. — Uppl. í síma 93-8192. TIL SÖLU Moskwitch, árg. 1966 í góðu lagi, vel með farinn. Uppl. í sima 40753 í dag og næstu daga eftir kl. 17.
BANDARÍSKAN VERKFRÆÐING með fámenna fjölskyldu vant ar góða ibúð eða hús (þrjú svefnherb.) m. húsgögnum, sem næst Keflavíkurflugvelli. Paul Lindgreen, Keflavíkur- flugvelli, svæði 2290. SENDIBiLL Til sölu er sendibífl af stærstu gerð. Billinn sem er dísil, er í fyrsta flokks ástandi og selst með eða án stöðvarleyfi. Uppl. í s. 16243 stöðvarleyfis. Uppl. í síma 16243.
Afvinna
Viljum ráða nú þegar laghenta menn til verksmiðjustarfa.
Upplýsingar á staðnum.
Stálumbúðir bf..
við Kleppsveg.
UTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir ti.boðum i lagningu
tveggja vegarkafla á Austurlandsvegi:
1. Á Jökuldal í Norður-Múlasýslu (8,3 km).
2. Á Berufjarðarströnd í Suður-Múlasýslu
(8,8 km).
Útboðsgögn verða afhent á Vegamálaskrifstof-
unni í Reykjavik og hjá Vegagerð rikisins á Reyð-
arfirði gegn 2 000,00 kr. skilatryggingu.
o Vegagerð ríkisins.