Morgunblaðið - 04.06.1971, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.06.1971, Blaðsíða 4
f 4 MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 4. JÚNI 1971 Fa ttÍLA L ElfwA X ’ALUR" 99-H-99- RAUÐARARSTIG 31 ■25555 1^14444 vmim BILALEIGA HVERFISGÖTU103 YW Sendiferííbifreií-VW 5 merna •VWsveímagn VW9manna-Lai»ironr 7manna LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastrætí 13 Sím/14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. BÍLALEIGA CAR RENTAL TT 21190 21188 BÍLASALAN HLEMMTOBGI Sími 25450 BÍLALEICA Keflavík, simi 92-2210 Reykjavík — Lúkasþjónustan Suðurlandsbraut 10, s. 83330. Bilaleigan SKÚLATÚNI 4SÍMI15808 (10937) bilaleigan AKBBAVT car rental scrvice r 8-23-4? settdim 0 Náttúran víki fyrir manninum í miðri borg Húsmóðir austarlega í borginni, sem verður að dyljast nafns (af óskiljanlegum ástæð- um), skrifar: „29. 5. 1971. Kæri Velvakandi! Ekki alls fyrir löngu birtist nýjan SKODA 100 fyrir lægra kílómetragjald — og aðeins 7 lífrar ó 100 kílómetra. Skodr LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. frétt þess efnis i dagblaði, að verið væri að fremja „glæp“ í miðborginni. Við nánari athug- un kom I ljós, að verið var að hneykslast á þeirri framtaks- semi yfirvalda að breikka Lækjargötuna, til að greiða úr umferð um miðborgina. Til þess að af því gæti orðið, þurfti auðvitað að skera smáskika framan af túnbletti stjórnar- ráðsins. Mér verður á að spyrja: Hvar ætli við stæðum nú, ef nátt- úran hefði aldrei verið látin víkja fyrir nútímatækni? Ætli við þyrftum ekki að bera þvott- inn i laugarnar eða sækja vatn- ið í.brunninn? Vísindi 20. aldar- innar hljóta að verða yfirsterk- ari, ef einhver menning á að geta þróazt. Ekki sakna menn held ég mikið grasbletts menntaskólans, þó að fyrir löngu hafi hann verið miklu stærri. Þetta er aðeins tíma- bundinn söknuður, sem menn verða að geta tekið með glöðu geði, ef þeir eiga að geta talizt opnir fyrir nýjungum.“ 0 Stuðlasetning Jón Ásgeirsson skrifar: „Heiðraði Velvakandi! I siðustu Lesbók er vísna- þáttur úr Gnúpverjahreppi. Þar eru ranglega stuðlaðar hend- ingar Gests frá Hæli; stendur é í stað e. I þættinum segir: Ég heiti Gestur og er frá Hæli, étið þið skít og verið þið sælir. En á auðvitað að vera svona: Eg heiti Gestur og er frá Hæli, etið þið skít og verið þið sælir. Þetta finna allir á auga- bragði, sem hafa gaman af vís- um eða öðrum kveðskap, En furðu er oft flaskað á þessu í blöðum. Ég þykist vita, að höf- undur þáttarins hafi haft þetta rétt í handriti sínu. En fyrst setjarar og prófarkalesarar þekkja ekki til einföldustu stuðlasetningar, þá ættu þeir blaðamenn, sem búa efnið í hendur þeirra, að biðja þá að gæta vandlega að. Því að oft eyðileggja blöðin góðan kveð- skap á svona vitleysu. Til eru einfaldar og ódýrar bragfræði- reglur, sem þeir ættu að hafa við höndina. Hafi menn þetta ekki á tilfinningunni, gætu þeir lært reglurnar. Þær eru auð- lærðar hverju barni. En nenni þeir ekki að læra, þá að fletta upp eða gæta vel að handriti, þegar þeir prenta hluti, sem þeir bera ekki skyn á. Nóg um þetta. Ef þú vilt ekki birta þetta, þá kannski talar þú um það við einhverja. Það er svo ósköp leiðinlegt að sjá kveðskap vitlaust prentað- an. Vertu svo sæll. Jón Ásgeirsson." Aths. prófarkalesara: — Próf- arkalesararnir vilja vekja at- hygli greinarhöfundar á, að það er ákaflega auðvelt að gefa sjálfum sér forsendur og ráð- ast svo að vindmyllunni og brytja hana niður i spað. — „Ég þykist vita ..segir grein- arhöfundur og gengur svo út frá „þykjustunni" sem stað- reynd. — Ja, það þurfa fleiri að viðhafa vönduð vinnubrögð en við prófarkalesarar!! 0 Ecce homo Skólapiltur skrifar: „Velvakandi: Þú varst með brandara um daginn, hvernig ætti að þýða amerísku í sjónvarpi á latínu. Hvernig lízt þér á þennan: See that guy? = Ecce homo?“ TIL ALLRA ATTA NEW YORK Alla daga REYKJAVÍK OSLÓ Mánudaga Miðvikudaga Laugardaga GLASGOW Emmtudaga LONDON Emmtudaga LUXEMBOURG Alla daga KAUPMANNAHÖFN Mánudaga Miövikudaga Laugardaga L0FTLEIDIR Höfum til sölu Raðhús Gott og vandað raðhús til sölu á Langholtsvegi. Stór borð- og dagstofa, garðstofa, með beinum aðgangi að ræktaðri lóð, 4 svefnherbergi, 2 snyrtiherbergi, innbyggður bilskúr, góðar geymslur. Einbýlishús Til sölu t Mosgerði. Á 1. hæð eru 3 herbergi, eldhús, snyrting og forstofa. I risi 3 svefnherbergi og snyrting. 1 kjallara herbergi og eldhús. Sumarbústaður — Þingvellir — Til sölu vandaður sumarbústaður á skemmtilegum stað við Þingvallavatn. Bústaðurinn er 2 stofur, 3 svefnherbergi, eld- hús, snyrting og geymslur. Ræktuð lóð. Veiðiréttur. Upplýsingar gefa LÖGMENN Tryggvagötu 8 Símar 11164 og 22801 Eyjólfur Konráð Jónsson, hrl., Jón Magnússon, hri., Hjörtur Torfason, hri., Sigurður Sigurðsson. hrt., Sigurður Hafstein, hdl. Óskum eftir að ráða mann í Starfið er fólgið í áætlanagerð og eftirliti rekstrar- kostnaðar. Aðeins áhugasamir umsækjendur á aldrinum 20—30 ára koma til greina. Umsækjendur þurfa að hafa verzlunar- eða menntaskólapróf og góða ensku- kumnáttu. Ráðning nú þegar, eða eftir samkomulagi, Þeim, sem eiga eldri umsóknir hjá ISAL er bent á að hafa sam- band við starfsmannastjóra. — Umsóknareyðublöð fást hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18, Reykja- vík, og Bókabúð Oliver Steins, Hafnarfirði. Umsóknir sendist eigi síðar en 11. júní 1971 í pósthólf 244, Hafnarfirði. ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.