Morgunblaðið - 04.06.1971, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.06.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐLÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNl 1971 19 Miklar fram- kvæmdir á döf inni ÞEGAR blaðamaður Mbl. kom til Ólafsfjarðar á sól- björtum vordegi í síðustu viku, vakti það fyrst at- hygli hversu líflegt var yfir plássinu. Alls staðar þar sem farið er um má sjá fólkið önnurn kafið við störf sín: við vinnslu sjáv- arafurða, verzluna- og þjónustustörf og iðnaðinn. Myndarleg böm voru að leik, sum spörkuðu fót- bolta, önnur dunduðu við mömmuleik og nokkur dorguðu niðri á bryggju. Við vorum á hraðferð um plássið og leituðum því á bæjarskrifstofurnar til að fá fréttir af atvinnulífinu. Þá stóð yfir bæjarstjórnar- fundur, en bæjargjaldker- Mikið hefur verið byggt í Ólafsfirði undanfarlð, bæði einbýlishús nýja hverflð. inn, Ásgeir Ásgeirsson, tók á móti okkur og skýrði frá því helzta, sem er á döf- inni. Séð yfir liina nýju friðarhöfn 1 Ólafsfirði, en þar verður byggður nýr viðiegukantur í sumar. Við sjáum ekki fram úr verkefnunum“ Rætt við Porstein Jónsson forstjóra vélsmiðj- unnar Nonna í Ólafsfirði „Við sjáum ekki fram úr verkefnunum,“ sagði Þor- steinn Jónsson forstjóri vél- smiðjunnar Nonna h.f. i Ól- afsfirði, þegar fréttamaður Mbl. lútti hann að máli nú fyrir skömmu í Ólafsfirði. Hjá fyrirtækinu eru nú mikil um svif og starfsmenn 20 talsins og stendur til að fjölga, en húsnæði vélsmiðjunnar var nýlega stækkað um helming, með byggingu einnar hæðar ofan á gamla húsið. Bættist og, þar sem skrifstofur, kaffi stofa og skrifstofa verk- stjóra verða ásamt blikk- smiðju. Vélsmiðjan Nonni er gam- algróið og landskunnugt fyr- irtæki, sem var stofnað ár- ið 1917 og hefur frá upp- hafi verið í eigu sömu fjöl- skyldunnar. Jón Frímanns- son, faðir Þorsteins er vél- smíðameistari hjá Nonna h.f. „Aðalverkefni okkar eru báta og vélaviðgerðir svo og plötusmíðar og alhliða járn- smiðaverkefni." Sjálfsagt minnast margir síldarsjó- menn vélsmiðjunnar Nonna frá fyrri tímum, er starfs- menn hennar gerðu fljótt og vel við biianir, þannig að frá tafir frá veiðunum urðu litl- ar. „Framkvæmdir við húsnæð ið hófust í haust og gengu vel þrátt fyrir fjárhagserfið- leika. Helztu erfiðleikar okk ar núna, eru að fá fjármagn til að leysa út vélamar fyr- ir blikksmiðjuna, en þegar vélarnar nást út, eru hæg verkefni fyrir höndum, Við erum með samninga við skipa smiðastöðvarnar Bátalón í Hafnarfirði og Þorgeir og Ellert á Akranesi um smíði spila í bátana, sem þessar stöðvar smíða. Þetta er þátt- ur í ákvörðuninni um að dreifa um landið verkefnum í sambandi við skipasmíðar innanlands,“ „Það má segja að við höf- um unnið myrkranna á milli hér í vetur, við flotann, en við fáum einnig mörg verk- efni frá nágrannabæjunum. Starfsmennirnir eru allir héð an úr bænum og úrvalsmenn. Það er sem sagt nóg að gera og við sjáum ekki fram úr verkefnunum,, en það getur verið gremjulegt, þegar erf itt er að fá fyrirgreiðslu í bönkum til að leysa út vél- amar, sem þarf til að leysa þessi verkefni af höndum.“ „Stærsta verkefni okkar er stækkun hltaveitunnar og á næstunni verður hafizt handa Um borun á jarðlbitasvæðánu. Boruð verður ein hola og höf um við ákveðið hvar það verð ur gert. Jarðfræðinigar segja okkur, að góðar horfur séu á að þessi borun beri árangur, en auðviitað er ekki hægt að segja fyrir um það, fyrr en vatnið er komið upp úr hol- unni. Þetta eru talsvert dýr- ar framikvæomdir og hijóðar kostnaðaráætlunin upp á 1.5 milijónir. Við þurfum að leggja nýja leiðsiu frá jarð- hitasvæðinu fram á hálsdnn, sem við svo nefnum og einnig þurfum við að endurnýja og vikka gamilar ieiðslur.“ — Hversu mikið vatns- magtn þurfið þið til að full- nægja eftirspurninni i sam- bandi við franttiðaruppbygg- ingu staðarins? — Stærsta holan okkar núna gefur af sér 23 sekúndu llitra og við þurfum aið fá allt að heimingi meira vatn. Sú hola fullnægir ekki vatns þörfiinni og þvi þurfum við að taka vatn úr annari hoiiu, sem er kaldari og við þetta lækk- ar hitastig vatnsins um 3 gráð ur, sem er mjög óheppilegt. Það er því mjög brýn þörf á að við fáum aðra holu. Þó að hitaveitam nái um allan Ólafis- 'fjörð, eru enn ýrais hús og at vinnufyrirtæíki, sem ekki hafa femgið heitt vatn og nú erurn við með stóran gagn- fræðaskóia í byggingu og sjúkraskýli auk þess, sem lóðum hefur verið úthlutað fyrir raðhús og einbýlishús, sem öll þurfa að fá sitt vatn en í dag höfum við ekkert vatn afliögu fyrir þau. Þörfin fyrir aukið vatnsmagn er því orðin mjög brýn. — Hversu djúpt er áætlað að bora? — Um 300 metra, en við er- um svo heppin hér í Ólafs- firði að allt okkar vatn ligg- ur mjög grunnt — Hér er mikið um alls konar byggingaframkvæmdár og má segja að heilit hverfii hafi risið á síðustu árum. — Já, það hefur verið mik- il hreyfing í húsbyggingamál um og bæði byggð einbýMs- hús og raðhús. Nú eru í smiíð um 6 einbýlishús og 4ra Ibúða raðhúis. Þá er í byggingu Framhald á bls. 25. Feðgarnir Þorsteinn Jónsson og Jón Frimannsson, fyrir utan vélsmiðjuna Xoima. Magnús Gamalíusson útgerðarmaður í Óiafsfirði. Stutt spjall við Magnús Gamalíusson Er fréttamaður Mbi. var á ferð í Ólafsfirði um dagiirn hitti hann að máli út- gerðarmanninn landskunlia Magnús Gamalíusson og ræddi stuttlega við hann um landsins gagn og nauðsynjar. Magnús lét vel af vertíð- inni, en hann gerir nú út tvo báta, Sigurbjörgu og Guð- björgu, auk þess sem hann rekur eigið frystihús. Magnús sagði að útkoman á vertíðinni hefði verið all góð, þó að vorhrotan hefði brugð izt, miðað við sl. tvö ár, en þá voru april og mai bezti tóm inn. Magnús telur skýring- una á þessu vera að þar sem enginn hafis hafi verið við Norðurlandið i ár hafi er- lendir togarar óhindrað mok- að fiskinum upp á djúpmið- um. Magnús sagðist vera far- inn að hugsa um að draga sig í hlé og láta syni slna taka meiri þátt í rekstri fyr- irtækisins. Hann sagðist bú- ast við að selja Guðbjörgu á næstunni, en hefur ekki tekið ákvörðun enn, um hvort nýtt skip verður keypt í staðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.