Morgunblaðið - 04.06.1971, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.06.1971, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNl 1971 Guðrún Ámunda- dóttir - Minningarorð 1 DAG er jarðsett Guðrún Ámundadóttir, Hverfisgötu 39, Reykjavík. Hún lézt af heilablóð- falli 30. maí sL í Landspítalan- um. Það eru snögg umskipti þegar vinir hverfa af sjónarsviði — allt í einu — það er eins og við þurf- um undirbúning að þessu, eins og svo mörgu öðru. Guðrún var dóttir hjónanna Ámunda Árnasonar, kaupmanns, og konu hans, Guðnýjar Guð- mundsdóttur, Hverfisgötu 37, Reykjavik, fædd 24. júní 1904. Guðrún átti eina alsystur, Vil- borgu, og hálfsystur, Guðnýju, sem Ámundi eignaðist með seinni konu sinni, Stefaníu Gísla- dóttur. Árið 1918, í spönsku veik- inrti, missti Guðrún móður sína. Var það mikið áfall fyrir þær systumair. Árið 1920 kvæntist Ámundi svo Stefaníu Gísladóttur og varð hún systrunum sem sannköEuð móðir. Ámundi and- aðist 5. desember 1928. Stefania tók þá við rekstri verzlunar þeirraar, sem Ámundi hafði rek- ið — og hélt heimilinu áfram, t Dóttir okkar og systir, Anna Karls, lézt í Los Angeles 23. maí sl. Dóra Líndal, Karl Guðmundsson, Klara Karls, Óskar Karls. t Móðir mín, Anna Jónasdóttir Tuomikoski, andaðist að heimili sínu á Álandseyjum 6. maí. Jarðarförin fór fram 15. maí. Lil.ja Fransdóttir, Króki, Rangárvallasýslu. t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda vináttu við andlát og jarðarför Guðríínar Þorvaldsdóttur, Ilöfða, Vatnsleysuströnd. Þórarinn Kinarsson, börn, fósturbörn og tengdaböm. t Tengdasonur minn, Valek Kwaszenko, lézt í London 31. máí. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín Björnsdóttir. t Öllum þeim, sem sýndu mér og minum vináttu og samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, Ingibjargar Sigurðardóttur, þakka ég innilega. Giiðnmndur Böðvarsson. t Eiginkona mín, Guðfinna Magnúsdóttir, Þórustíg 4, Ytri-Njarðvík, verður jarðsungin frá Kefla- víkurkirkju laugardaginn 5. júni kl. 3. Július Vigfússon. t Þökkum samúð og vinsemd við andlát og útför Benedikts Halldórssonar, Hamrahlíð 27. Sérstakar þakkir til stjórnar og starfsmanna Kirkjugarða Reykjavikur. Börn og tengdabörn. t Eiginkona mín, Anna Júlía Halldórsson (fædd Bieber) Jaðarsbraut 41, Akranesi, verður jarðsungin frá Akra- neskirkju laugardaginn 5. júní kl. 2. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á sjúkrahús Akraness. Guðmundur Halldórsson. t Innilegar þakkir fyrir samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför Einars Ólafssonar, Sigríður Eínarsdóttir, Ágústa Ólafsdöttir, Garðar Ólafsson, Jón Ólafsson, Ingigerður Eggertsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför litlu dóttur okkar, GUÐRÚNAR. Kristín Helgadóttir, Ami Njálsson. Jón Halldórs Jóns- son frá Tröllatungu eins og verið hafði. Kunni Guð- rún vel að meta þau miklu störf Stefaníu stjúpmóður sínnar, og sýndi það vel í umönnun við Stefaniu, þegar hún átti i lang- varandi veikindum. Stefanía lézt 21. júní 1961. Guðrún var merkilega sterkur persónuleiki, sem allir muna eft- ir sem kynntust henni að ráði. Það var erfitt að kynnast henni, því hún var dul og fáskiptin, en þegar vinátta tókst, var hún sem traustur hornsteinn, sem bifað- ist ekki þó á reyndi. Guðrún giftist ekki og átti ekkert barn. Hún var sérstaklega barngóð og tók ástfóstri við ýmsa unglinga — skylda sem óskylda. -— Kunnu þeir fljótt að meta Guðrúnu — eða Dúnu, eins og hún var venju lega kölluð — og má segja að hún væri um langt skeið eins konar athvarf þessara unglinga, sem leituðu til hennar eins og stál að segli. Var þá oft glatt á hjalla. Þarna má margra nafna minnast — en ég læt það ógert núna — en eitt nafn verð ég að minnast á og það er hann Árni Huxley litli — 3ja ára — sem undanfarin ár hefur verið hjá henni hluta úr degi. Má segja, að þar næði að blómstra hjá henni að fullu sá kærleiki, sem hún bar hið innra með sér, en fékk of sjaldan nægilega útrás. Ég veit, að Árni litli á eftir að segja oft og mörgum sinnum: „Við skulum koma til Dúnu,“ og ég veit, að á þvi sviði, sem tekur við hjá Dúnu, muni hún sakna Árna mest. Milli þeirra var kom- ið sérstaklega kærleiksríkt sam- band. Ég held, að allt okkar líf og starf sé orsök og afleiðing, og það lögmál gildi áfram í næsta lífi. Ég er þess fullviss, að þau orsakasambönd, sem þú, Dúna, hefur orsakað hér, valdi þvi, að þú átt góða vist tilbúna á næsta sviði. Huxley Ólafsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför Kristjáns Heiðars Hannessonar, sem fórst með mb. Sigurfara frá Hornafirði. Lilja Aradóttir, Hannes Kristjánsson, börn og tengdabörn. t Þakka innilega auðsýnda sam- úð og vináttu við andlát og útför mannsins míns, Þorbjörns Bjarnasonar, Laugavegi 140. Helga Sigurðardóttir. F. 2. nóv. 1886 D. 28. maí 1971 TRÖLLATUNGA í Stranda- prófastsdæmi var prestsetur um aldaraðir, þar til vorið 1887 er Halldór Jónsson lét af prests- skap, vegoa aldurs. Þá flytjast þangað ung hjón vestan frá ísa- fjarðardjúpi, Jón Jónsson Hall- dórssonar á Laugabóli og Hall- dóra Jónsdóttir á Hjöllum í Þorskafirði, með son sinn á fyrsta ári, þann er þessi minn- ingarorð eru helguð. Þar bjuggu þau til 1920 er Halldóra and- aðist og Jón flutti til Hólmavík- ur. Jón Halldórg var elztur sinna systkina, en þau voru 11, 6 pilt- ar og 5 stúlkur er komust til fullorðinsára, en þá hjóst skarð í hinn mannvænlega systkina- hóp fyrir sigð hvítadauðans. Heimili þeirra Jóng og Halldóru í Tröllatungu bar vott snyrti- mennsku og reglusemi, svo að á orði var haft og gestir er þar bar að garði, voru margir. Þá var Tröllatunga í þjóðbraut, og duldist þvi engum að þar var á öllu haldið af stjómsemi og festu, enda blasti hvarvetna við snyrtimennska og reglusemi. — Þarna var hinn fyrsti skóli er systkinin í Tröllatungu, fengu kynni af. Jón Halldórs var ungur að ár- um er hann vann með föður sínum að söðlasmiði auk ann- arra heimilisstarfa. Er bömin voru komin á þann aldur, var þar heimiliskennari. Þá var og nýlega stofnaður alþýðuskólinn á Heydalsá, sem margir sóttu sér til þekkingar og þroska. Þar dvaldi Jón. KAPPREIÐAR hestamannafé- lagsins Gusts í Kópavogi fóru fram á Kjóavöllum, sunnudag- inn 23. maí sl. Fjölmenni var samankomið á Kjóavöllum á sunnudaginn enda veður gott. — Ýmsar nýjungar voru notaðar í sambandi við framkvæmd kapp reiðanna og gekk dagskráin ó- venju hratt fyrir sig. T.d. voru kappreiðahestamir ræstir úr bás um og auðveldaði það mjög að halda hestum stilltum á ráslínu. Keppt var í brokki, tölti, skeiði, folahlaupi, 300 m stökki, 3000 m víðavangshlaupi og 300 m hindrunarhlauþi. Alls voru á milli 70—80 hestar skráðir til keppni. í keppni alhliða góðhesta var keppt um Byko bikarinn, sem býggingavöruverzlun Kópavogs gaf, en fyrstu þrir hestamir fá skrautrituð heiðursskjöl. — í keppni klárhesta með tölti var keppt um Ora-bikarinn, sem Ora — Kjöt og Rengi í Kópa- vogi gaf. Einnig fengu þrír fyrstu hestarnir heiðursskjöl. í kappreiðunum fengu þrír fyrstu hestarnir gull, silfur og bronz- inerki. Jón bóndi var áhugamaður um jarð- og garðrækt og sendi þvi son sinn Jón Halldórs til að kynnast gróðrarstöð íslands í Reykjavík og á jarðræktamám- skeið í Brautarholti hjá Jóni Jónatanssyni bústjóra. 1910 kvæntist Jón annarri heimasætunni á Smáhömrum, Matthildi, er var dóttir þeirra Björns Halldórssonar og Matt- hildar Benediktsdóttur er gjört höfðu garðinn frægan. Þótti þar jafnræði og vel til stofnað, sem og rúm 60 ára samferð hef ir vottað. Þau eignuðust 4 böm, og eru þau: Björn, verzlunarm., búsettur í Rvik, kvæntur Guð- rúnu Jónsdóttur prests Jóhann- essonar á Stað í Steingrims- firði, Halldóra dáin fyrir 3 árum, gift Steini Kristjánssyni skrifstof'umann i, Jón er dó í bemsku og stúlka sem lézt ný- fædd. Bróðurdóttur Matthildar, Aðalbjörgu Guðbrandsd. ólu þau upp frá bernsku. Er hún gift Ólafi Thoroddsen rafvirkja og búsett í Reykjavík. Árið 1911 byrjuðu þau búskap á Heydalsá þar sem þau bjuggu til 1921 er þau fóru að Trölla tungu er Halldóra móðir Jóns lézt og faðir hans hætti búskap. Þar voru þau tii ársins 1929 að þau fluttust til Hólmavikur. Hann hafði fengið fótarmein, er leiddi til þess að taka varð fótinn um öklann. Þetta áfall dæmdi hann úr leik bóndans. Brugðu þau búi og fluttust til Hólmavíkur, sem að framan get ur og vann hann á skrifstofu Kaupfélags Steingrímsfjarðar. Jón hafði gegnt mörgum opin- berum störfum þau ár er hann dvaldist í Kirkjubólshreppi. — Gjaldkeri sparisjóðs Fells- og Kirkjubólshrepps mun hann hafa orðið 1913 og því gegndi hann til 1946 að hann fluttist úr héraðinu. Á kreppuárunum, er peningastofnanir urðu fyrir á- föllum hafði Jóni tekizt að fleyta stofnuninni áfallalaust og hafa þar verið að verki hygg- indi og samningahæfileikar. Öll störf Jóns einkenndust af reglu semi og velvirkni. Það þótti því hverju óleystu verkefni komið í góðar hendur, er Jón tók það til úrlausnar. Eftir að Jón varð að hætta bú skap vann hann á skrifstofum á Hólmavík hjá Riis-verzlun og síðar Kaupfélaginu. Árið 1946 yfirgáfu þau heimabyggð sína og fluttust til Reykjavíkur með því að börn þeirra höfðu flutzt þang að. Halldóra er stundað hafði nám við Verzlunarsk. fsl., hafði stofnað sitt eigið heimili og feng ið sér gott og hentugt starf. Björn er dvalið hafði með fjöl skyldu sína á Hólmavík, hugðist hagnýta sér þá fjölþættu at- vinnugreinar, er voru að skap- ast í Reykjavík. Jón mun hafa unnið fyrstu árin hjá bifreiðafyrirtæki Stein- dórs og síðari árin hjá verk- smiðjunni Coca-Cola, þar vann hann þar til þraut, fyrir rúmu einu ári að hann varð að fara á sjúkrahús. Þar dvaldist hann nokkra mánuði, en fór þá heim til Björns sonar sins og konu hans. Þangað var og Matthildur komin svo þau fengu að dvelja saman sem kyrrlátust á áhyggju lausu ævikvöldi, — Hafði þá samfylgd þeirra verið í 60 ár og 8 mánuði. Nú eru þáttaskil, horfinn er traustur, ástríkur lífsförunautur, faðir, tengdafaðir, afi, samferða maður og félagi. Vér drúpum höfði. Yfir minningunum er bjart og trúin brúar bilið til meira Ijóss og starfs. Einhver spekingur hefur mót að hugsun sína ' í eftirfarandi, sem ég vil gjöra að mínum kveðjuorðum. Þar sem góðir menn fara, eru guðs vegir. Guðbr, Benediktsson. Kappreiðar Gusts: Fjölbreytt keppni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.