Morgunblaðið - 10.10.1972, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.10.1972, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUU 10. OKTÓBER 1972 Bjarni Arnason Hafnarfirði — Minning Bjarni Árnason, Reykjavikur- vegi 24 í Hafnarfirði andaðist að heimili sínu 2. okt. sl. Bjarni var fæddur 23. okt. 1899 að Móakoti, Vatnsleysu- strandarhreppi, sonur Margrétar Jónsdóttur og Áma Sveinsson- ar er þar bjuggu. Tvö hálfsystk- ini átti Bjarni, bróður, sem er látinn og systur, Guðnýju, sem nú dvelst að Hrafnistu. Ungur byrjaði Bjami að stunda sjóróðra. Á unglingsár- um sínum reri hann á árabátum en siðar var hann háseti á tog- urum um langt árabil m.a. öll stríðsárin. Það var mjög eftir- sótt að hafa hann í skiprúmi, enda var hann dugmikill, gæt- inn og öruggur í störfum og allt af var hægt að treysta þvi að hann væri á sínum stað. Eftir að Bjarni hætti sjó- mennsku vann hann við fyr irtæki Jóns Gíslasonar í rúm 20 ár, en nú síðast vann hann hjá Hafnarfjarðarbæ. Vegna heilsu- brests átti Bjarni erfitt með að stunda vinnu og kunni hann því úr hendi. illa að verk félli nokkru sinni Bjarni kvæntist 2. okt. 1922 eftirlifandi konu sinni Ásu Bjarnadóttur frá Vorhúsum, Vatnsleysuströnd. Það ár flutt- ust þau til Hafnarfjarðar og hafa átt þar heima síðan og bú- ið að Reykjavíkurvegi 24 s.l. 43 ár. Þau hjónin eignuðust átta börn og eru þrjú þeirra á lífi. Voru þau hjón samhent um að byggja upp heimili sitt sem bezt enda var ávallt notalegt að konaa til þeirra og njóta þeirr ar alúðar og hlýju sem þeim var svo eðlileg. En margar erfiðar stund- ir varð einnig að bera. Kom bezt fram sá styrkur sem þau hjón- in bjuggu yfir þegar sorgin barði að dyrum. Það reynir á að standa yfir moldum barna sinna og nú fyrir stuttu barna barnabami öllu þvi erfiði var t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, Þóra Jónsdóttir, frá Hamri, lézt á St. Jósepsspítala mánu- daginn 9. okt. Fyrir hönd aðstandenda. Einhildur, Lilja og Jón. t Þakka innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför eigin- manns mins, Halldórs Eyjólfssonar. Guð blessi ykkur öll. Viktoría Jónsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, PÉTUR SIGURÐSSON, Ljósheimum 10, andaðist að kvöldi 7. október. Ásta Sigvaldadóttir og böm. t Eiginmaður minn, GUÐMUNDUR JÓN GUÐNASON frá Hælavik, andaðist að Hrafnistu sunnudaginn 8. október. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhanna Bjamadóttir og bömin. t Faðir okkar og tengdafaðir, JÓN MAGNÚSSON, Sundlaugavegi 18, andaðist í Hrafnistu laugardaginn 7. október. Nanna Cortes, Magnús Reynir Jónsson, Gitte Jónsson. t Maðurinn minn, SIGURÐUR G. K. JÓNSSON, rakarameistari. lézt 8. október. Þóra Helgadóttir. bjuggu þar, og ólst hann þar upp og átti sín bernsku og æskuár. Snemma hefir Bjami þurft að taka til hendi, við vinnu eins og títt var með unglinga á þeim árum og þá var það fyrst og fremst að róa út á miðin og fá í soðið, eins og venja var á Ströndinni í þá daga. Síðan varð sjómennskan hans aðal ævistarf. Hann fluttist til Hafnarfjarð- ar 1922, og kvæntist það ár, þann 2.10. Ásu Bjarnadóttur frá Vorhúsum á Vatnsleysuströnd, og hafa þau búið í Hafnarfirði allan sinn búskap, rétt 50 ár, lengst af á Reykjavíkurvegi 24, þar sem þau byggðu sér hús 1928, og þótti það mikið í ráð- izt, því verkafólk hafði ekki úr svo miklu að spila á þeim ár- um, en þau voru bjartsýn og sam hent um að bjarga sér sem bezt mátti vera. Bjarni stundaði sjó- mennsku árum saman og hlífði sér hvergi, enda ekki fyrir neina veifiskata að vera togara- maður í þá daga, því staðið var meðan stætt var, Ása var heima og annaðist heimilið af sínum al kunna dugnaði og oft vann hún í fiski yfir sumartímann og hafði þá ungling sér til hjálpar með börnin, á meðan þau voru ung. Og með sameiginlegu átaki kom ust þau sæmilega af, það voru að vísu ekki gerðar miklar kröf- ur til lífsins, móts við það sem nú er, þá voru ekki vélar til allra hluta á heimilum, eins og nú þykir sjálfsagt en þetta bless aðist allt og þau voru ánægð og undu glöð við sitt, vinna veitti fólkinu gleði í þá daga og hver Eiginkona mín, t GUÐNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR, matreiðslukona. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. okt. klukkan 13.30. Karl Vilhjálmsson. t Mágur minn, ÓSKAR KARL ÓLAFSSON, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. október klukkan 3 eftir hádegi. Björgvin Finnsson. t Dtför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Hvassahrauni, Sörlaskjóli 32, verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. október klukkan 10.30. Magnús Magnússon, "böm tegndabörn og barnabörn. t Útför ÓSKARS SIGURBJÖRNS ÓLAFSSONAR, seglasaumara, Hagaflöt 2, Garðahreppi, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 11. október klukkan 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeim, sem vifdu minnast hins látna, er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Ragnhildur Jónsdóttir, Sjöfn Óskarsdóttir, mætt með þeirri festu og ró, sem þeir einir eiga sem þá vissu hafa að lífið haldi áfram handan við gröf og dauða. Fjölskyldan minnist þín með þökkum fyrir góða handleiðslu og hjálp á samferðaleiðinni og ekki hvað sízt sakna barnaböm in þín sem ávallt mættu þeirri hlýju og trausti sem afa var svo eiginlegt að láta i té. Konu, börnum og öðrum ást- vinum votta ég dýpstu samúð. S.K. f dag verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, Bjarni Árnason, sem lengst hef- ir búið að Reykjavíkurvegi 24 þar í bæ. Bjami var fæddur 23. október 1899, að Móakoti á Vatnsleysuströnd og voru for- eldrar hans Margrét Jónsdóttir og Árni Sveinsson, sem þá t Bróðir minn og fósturbróðir okkar, AXEL SHIÖTH GUÐMUNDSSON, lézt þann 7. okt. — Útförin fer fram ^onúvn 12. okt. kl. 3 e. h. frá Fríkirkjunni fimmtu- C. Sylvest Johannsen, Agnete Simson, Óskar Petersen. Páll Ólafur Pálsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og útför móður okkar og fósturmóður, ELÍNAR JÓNSDÓTTUR, Álfheimum 30, Reykjavík. Börn og fóstursynir. þóttist hólpinn sem hafði fasta vinnu. Eftir að Bjarni kom í land, vann hann í Frost h.f. í Hafn- arfirði og síðustu árin hjá Hafn arfjarðarbæ. Hann var heilsu- hraustur lengst af og léttur á fæti, þar til fyrir tæpum 3 ár- um, að hann varð fyrir áfalli og eftir það varð hann að draga af sér við vinnu, en hann undi þvi illa, að geta ekki staðið fullan vinnudag, þó sjötugur væri. Ása og Bjarni eignuðust 8 börn, þar af lifa aðeins þrjú föður sinn, svo þau hjónin hafa fengið mörg þung högg i sambandi við ást- vinamissi, en þau tóku því með jafnaðargeði, eins og öðru sem að þeim var rétt. Þrjú bama þeirra önduðust kornböm, son misstu þau 16 ára gamlan, mesta efnispilt, og annan rúmlega fer- tugan, sem mikið þurfti á hjálp foreldranna að halda, allt sitt líf, en þrátt fyrir sína vanheilsu, veitti hann þeim marga gleði- stund, ekki síður en hin börn- in. En þau sem lifa föður sinn eru: Árni, Guðrún og Reynir, sem öll eiga sín heimili og börn, og veittu barnabörn- in og langafabörnin afa sínum marga ánægjustund. Bjami var mjög heimakær maður og vildi helzt vera þar, þegar hann ekki var við vinnu. Og gestrisin voru þau hjón, það átti margur kunninginn leið um Reykjavíkurveginn, og þá var sjálfsagt að líta inn til Ásu og Bjarna og fá sér kaffisopa og jafnvel að gista, því hér fyrr á árum þegar fólkið utan af landi fór í kaupstað, var ekki búið á hótelum eins og nú tíðkast, heldur var gist hjá kunningjunum. Jafnvel þó hús- rými væri stundum af skornum skammti, en þetta hefur breytzt eins og sVo margt annað í okk- ar þjóðfélagi. Ása og Bjarni voru búin að vera saman í rétt 50 ár, eins og fyrr segir, því harin andaðist á gullbrúðkaupsdegi þeirra hjóna fékk að fara snöggt og án fyrir- vara, eins og hann var oft bú- inn að óska sér. Ég vil að lokum þakka Bjarna fyrir mig, frá því fyrsta að ég kom á heimili þeirra hjóna fyr- ir röskum 40 árum, þá sem ungl- ingur, fyrir alla tryggðina og vinsemdina sem ég og mitt fólk hefir orðið aðnjótandi. Guð blessi hann og leiði á þeirri ferð sem nú er hafin. Samúðarkveðj- ur til Ásu minnar og barna og allra vandamanna. Helga B.jargmundsdóttir. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er heiðruðu minningu Guðrúnar M. Björnsdóttur frá Brjánslæk. Einnig þökkum við alla um- hyggju í erfiðum veikindum hennar. Og sérstakar þakkir færum við Guðmundi á Brjánslæk, afkomendum hans og fjölskyldum þeirra. Fyrir hönd systkina og venziafólks. Sæmundur Björnsson. S. Helgason hf. STEINIÐJA Elnholil 4 Slmar 26677 Ofl U254

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.