Morgunblaðið - 23.08.1977, Page 3

Morgunblaðið - 23.08.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGOST 1977 Hvatarkonur í Suðurlandsreisu A annað hundrað manna hópur kvenna úr Sjálfstæðiskvennafélaginu Hvöt í Reykjavfk fór í dagsferð um Suðurland s.l. laugardag og skoðuðu konurnar m.a. Mjólkurbú Flóamanna á Selfossi. Ekki voru konurnar alveg karlmannslausar, því makar nokkurra voru með í förinni, en myndirnar tók Ijósmyndari Mbl„ Friðþjófur þegar ferðafólkið áði á Kambabrún. Efri myndin er tekin af þorra ferðalanganna á mosagrónum hól í Kömbun, en hin við rúturnar á Kambabrún. Þurfum ekki ann- an fisk meðan við höfum kolann r — segir Olafur Björnsson, útgerðarmaður „MÉR þætti í sannleika sagt helvíti hart að þurfa að loka á meðan við höfum kolann,“ sagði Olafur Björnsson útgerðarmaður í Keflavík, í samtali við Mbl. f gær, en frystihúsið Baldur f Keflavík auglýsti í gær eftir starfsfólki. „Ætli við höfum ekki bætt við það okkur 6—8 raanns," sagði Ólafur. „Báturinn okkar, Baldur, kom f gær úr Garðsjónum, þar sem þeir fengu sex tonn í sex höl- um, allt klára rauðsprettu. Þeir eru í Hafnarsjónum í dag. Ég hef reyndar ekki fengið fréttir frá þeim þar, en sennilega er sama uppi á teningnum, þannig að við þurfum ekki annan fisk á meðan.“ Ólafur sagði, að Baldur hefði veitt 30—40 manns atvinnu og yrði vonandi ekki lát á því. „Ég er að vona að við slömpumst f gegnum þessa erfiðleikatima á þennan máta.“ Engar viðræður við verkfræðinga Forseti skáksambands Thailands: Krefst ógildingar á brottrekstri S- Afríku úr FIDE — sakar dr. Euwe um fölsun á tilkynningu „FORSETI skáksambands Thailands er mjög harðorður í þessu bréfi sfnu. Hann krefst þess að samþykkt aukaþingsins í Luzern um brottrekstur S-Afríku úr FIDE verði dæmd ógild og sakar dr. Euwe um það, að FIDE hafi sent út falsaða tilkynningu um lyktir málsins," sagði Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands Islands, f samtali við Mbl. f gær. Forseti skáksambands Thailands, dr. Rak Oanyarchun, hefur sent S.I. afrit af bréfi, sem hann hefur sent dr. Euwe, forseta FIDE. Dr. Panyarchun sat auka- þingið i Luzern og fylgdi þar Vestur-Evrópuríkjunum að máli. Hins vegar sat hann eftir, þegar 20 fulltrúar gengu út. Segir hann f bréfinu að hann hafi beðið eftir atkvæðagreiðslu um málið, en samþykkt hafði ver- ið að nafnakall skyldi viðhaft við atkvæðagreiðslur. Segir dr. Panyarchun að hann hafi ætlað að greiða atkvæði gegn brottrekstri S-Afríku úr FIDE, en hins vegar hafi hann aldrei orðið þess var að atkvæðagreiðsla færi fram, held- ur kveðst hann aðeins hafa heyrt lófaklapp og siðan ekki vitað meir fyrr en búið var að slíta fundi. 1 tilkynningu FIDE um úrslti mála segir að þeir 28 fulltrúar, sem eftir sátu, hafi samþykkt brott- rekstur S-Afrfku samhljóða. Þetta segir dr. Panyarchun að sé fölsun og krefst hann þess að samþykkt- in sé ógilt, þar sem ekki hafi verið farið að réttum fundarsköpum. Loðnuveiðin yfir 70 þús. tonn: Afurðaverðið hef- ur f arið lækkandi kaupendur sögðu upp verði HEILDARLOÐNUVEIÐIN á sumarvertíðinni eru nú komin yfir 70 þús. tonn, en á allri sumar- og haustvertfðinni f fyrra veiddust um 110 þús. tonn. Loðnan, sem veiðzt hefur að undanförnu er stór og feit og hefur fituinnihaldið mælzt 16—17% og þurrofni er tæp 15%. Fyrir þessa loðnu er greitt hátt verð eða um 14 kr. á kíló, eins og er. Eins og Morgunblaðið skýrði frá á sinum tima ákváðu loðnu- kaupendur að segja upp loðnu- verðinu og hafa þeir þegar gert það en núverandi verðákvörðun er í gildi til 1. september. Astæð- an fyrir uppsögn verðsins af hálfu kaupenda er lækkandi verð í markaðslöndunum og mikil óvissa um framvindu mála þar. Talið er að nú fáist 6.50 dollarar fyrir hverja proteineiningu af mjöli, en hæst komst verðið í 8 dollara. Þá hefur hvert tonn af lýsi lækkað úr tæpum 600 dollur- um niður í röska 400. Lítið sem ekkert hefur verið selt af afurð- um frá Íslandi á þessu verði, þar sem seljendur vonast eftir að verðið hækki á ný og ennfremur hefur eftirspurn á mörkuðunum verið ákaflega lítil i sumar. Eins og fyrr segir er loðnuafl- inn nú kominn yfir 70 þús. tonn og hefur langmestu verið landað í 0 INNLENT „VERKFRÆÐINGAR hafa ekki óskað eftir viðræðum, en við í launamálanefndinni erum áfram opnir fyrir þeim, ef verkfræðing- ar óska eftir þeim,“ sagði Albert Guðmundsson, formaður launa- málanefndar Reykjavíkurborgar, í samtali við Mbl. í gær. „Við höfum ekkert rætt það að leita eftir þvi að sáttasemjari taki málið að sér nema síður sé,“ sagði Albert. „Hins vegar er það auðvit- að opin leið fyrir verkfræðingana að fá sáttasemjara í málið. Og svo getur hann sjálfur átt frumkvæð- ið. En við sjáum ekki ástæðu til að kalla á fund með verkfræðingun- um.“ Siglufirði, annars hefur loðnunni verið landað vítt og breitt um landið. Sigurður RE er aflahæsta loðnuskipið með 5200 tonn, þá kemur Súlan EA með 4600 tonn og Gullberg VE með tæp 4000 tonn. Frá því á laugardag fram til kl. 14 í gær tilkynntu 19 loðnuskip um afla, samtals 9500 lestir, en vitað er um 30 skip við loðnuveið- ar núna. Skipin, sem tilkynntu um afla, eru þessi: Svanur RE 320 tonn, Rauðsey AK 420, Jón Finnsson GK 360, Helga 2 RE 270, Hilmir SU 540, Gisli Árni RE 520, Huginn VE 550, Fifill GK 600, Guðmundur Kristinn SU 280, Bjarni Ólafsson AK 500, Vörður ÞH 250, ísleifur VE 430, Sigurður RE 1350, Stapavík SI 550, Árni Sigurður AK 400, Harpa RE 550, Gullberg VE 470, Sæberg SU 240 ogVíkingur AK800. Vörusýitingar International Frankfurt Fair 272.-3.3.1977 Alhliöa vörusýning, sem haldin er vor og haust. Meðal annars verða sýndar glervörur, keramik, postulin, járn- vörur, borðbúnaður, skrautmunir, ljósastæði, körfur, hús- gögn, úr, klukkur hljóðfæri, snyrtivörur og gjafavörur. LEIPZIG TRADE FAIR 4.-9. 9. 1977 M BÍLASÝNING í FRANKFURT 15.-25. 9. 1977 SPORTVÖRU- SÝNING KÖLN 25.-27.9 1977 SP0CA ^KOLM ALÞJÓÐLEG MATVÆLASÝNING. SEM SKIPTIST I ÞjA HLUTA KÖLN io. —15.9 onugo 1977 Alhliða vörusýning, sem haldin er vor og haust. Meðal annars verða sýndar efnavörur, plastvörur, vefnaðar- vörur, skór, pappir, læknavörur o.fl. Næstum allir framteiðendur vélknúinna ökutækja, sem hlotið hafa alþjóölega viðurkenningu munu sýna fram- leiðslu sina á IAA. Auk þess munu framleiðendur húsvagna, verkfæra, varahluta o.ft. taka þátt i þessarí frábæru sýningu. Alþjóðleg sýning á iþróttavörum og viðleguútbúnaði. Samtimis er sýning sem nefnist „GARTEN ’77“ þar sem sýnd verða garðhúsgögn og garðáhöld. b! systema technic f fyrsta hluta ANUGA eru sýndar neysluvörur á svæði, sem er 137.000 m og er fjölbreytnin i samræmi við það. í öðrum hluta eru kynntar helstu nýjungar i tækjabúnaði mötuneyta og veitingahúsa. í þríðja hluta eru kynntar aðferðir við fram- leiðslu, geymslu og frágang matvæla. Sérhæfð vörusýningaþjónusta Ferðamið- stöðvarinnar býður þér: I. Ókeypis aðgöngumiða að þeim sýningum, sem við erum umboðsmenn fyrir, ef ferðast er á okkar vegum. 2 Leiðbeiningar um hagkvæmasta ferða- mátann með tilliti til kostnaðar. 3 Alla fyrirgreiðslu erlendis t.d. útvegun gistingar, bilaleigubila o.ft. 4. Reynstu i skipulagningu viðskiptaferða og tillit til sérþarfa þinna. VIÐSKIPTAFERÐIR ERU I EÐLI SINU ERFIÐAR, EN OKKAR MARKMIÐ ER AÐ GERA ÞÆR ÞÆGILEGRI. 1 Ferðamiðstöðin hf. Aðalstræti9 sími 11255

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.