Morgunblaðið - 23.08.1977, Síða 29

Morgunblaðið - 23.08.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977 37 iry ^7 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA I0100KL 10— 11 FRÁ MÁNUDEGI ■ ir styrkja afreksmenn íþrótta, ein- ungis tel ég nauðsyn á að komið verði á einhverju „kerfi“ sem geri beztu mönnum kleift að helga sig íþróttunum. Það verður alltaf álitamál hvert skipulagið skal vera, en það hlýtur að vera hlutverk iþróttaforystunnar (sambandanna) að koma á og vinna að einhverju skipulagi þessara mála. Ekki ætti það að vera forystunni neinn vandi að athuga þessi mál og komast niður á eitthvert kerfi, því mjög víða erlendis er iþróttastarfsemin mjög vel skipulögð og eru „kerf- in“ mörg, og hvergi er það neitt leyndarmál .hvernig unnið er að málinu, ekki einu sinni i löndum Austur-Evrópu. Dæmin eru mý- mörg hvernig málum er háttað, og koma þar við sögu bæði og hið opinbera, iðnaður, efnaðir ein- staklingar, og aðrar stofnanir. Aðalatriðið er að koma verður á einhverju kerfi hérlendis, því engum dylst hið jákvæða sem góð- ur árangur fþróttamanna hefur i för með sér. Góður árangur hefur mikið uppeldislegt gildi, hann hvetur og aðra íþróttamenn til frekari afreka, og á erlendum vettvangi er góður iþróttaárangur ein bezta landkynning sem völ er á. Undirritaður hefur dvalið lang- dvölum erlendis og þar eru menn allir miklu meira fþróttalega sinn- aðir. Þar vekur þvi góður árangur I Iþróttum verulega athygli. Oft hefur verið þörf, en einmitt í dag er meiri nauðsyn en nokkru sinni fyrr, að komið sé á einhverju kerfi til styrktar afreksmönnum f íþróttum. 0121—3997 % Falleg höfuðborg prýði þjóðar. Einar Ingvi Magnússon skrifar: Ég man eftir því að hafa lesið fyrir skömmu í einhverju dagblaðanna, lfklega Morgun- blaðinu, grein úr ferðabók ensks landkönnuðar, sem kom til lands- ins okkar, íslands, fyrir aldamót- in. Eftir minni þori ég ekki að herma eftir orðalagi hans á lýsingu Reykjavíkur og ibúum hennar þvi hún var öll feikna óhrein bókstaflega. Á nútfma hræðumst við ekki að afkomendur okkar þurfi að skammast sfn fyrir þessa sömu SKÁK Umsjón: Margeir Pótursson A skákmóti i Paris i ár kom þessi staða upp i skák þeirra Reé Clairgeaut og David Gedult, sem hafði svart og átti leik. 11... Rf3+!, 12. gxf3 — Bxf3, (Þessi staða er að þvi leyti athygl- isverð að bæði kóngur og drottn- ing hvíts eru patt!) 13. Rc3 (13. d4 — Df5, kom i sama stað niður) Df5, 14. Rc2 — Dg4 + , 15. Rg3 — Dh3. Hvítur gafst upp. Hann á ekki völ á öðru en 16. Rf5+ — Kd7, og þá verður hann mát eftir bæði 17. Re3 — Bxe3 og 17. Rf4 — Dg4+. borg þvi hún hefur breytzt svo geysilega til hins betra, að landar þessa áðurnefna landkönnuðar hafa varla litið fegurri borg. Það er þessi borg sem ég hef gert að umræðu hér — Reykjavik, höfuð- borg okkar tslendinga og stolt —. Reykjavík er frábrugðin mörgum borgum f útliti. Hún er vistleg, litrík af skemmtilegum hýbýlum, rúmgóð, og, það sem eftirtektar- verðast er, iklædd grænu skarti náttúrunnar. Græna byltingin svonefnda hefur loksins uppskor- ið þá fegurð sem hYIfur út- lendinga mest. Auk alls þessa væri litil prýði að borgarsvipnum ef allt væri út- atað i rusli, en því hefur borgin einnig séð fyrir að mestu leyti. Reykjavfk er að verða með hrein- legustu borgum heims og auk þess sem hún er augnayndi og súrefnisrfk útlendingum og ferða- fólki, njóta íbúar hennar ekki sið- ur fallegrar borgar. Við tslendingar megum vera hreyknir af slfkri höfuðborg sem Reykjav- ík er, og þeir, sem að hafa unnið, eiga hrós skilið, þvi falleg höfuð- borg er prýði þjóðarinnar. % Skrftin stefna örn Ásmundsson skrifar: — Það er skritin stefna sem verið hefur f landbúnaðar- málum gegnum árin. Land- búnaðarpólitfkin vill útrýma sem flestum neytendum, en þar á ég við þetta eilífa mjólkurþamb landsmanna. Það er krabbameins- valdur i mjólk, en erlendis ræða menn nú f alvöru þær hættur sem mjólkurneyzla getur haft f för með sér. Ekki fjölgar stuðnings- mönnum landbúnaðarins með þeirri stefnu sem verið hefur I landbúnaðarmálum til þessa, en batnandi mönnum er bezt að lifa samanber það að búa til 96% spira úr mysu. Auðvitað eigum við að búa til vfn okkar sjálfir, eins og t.d. Þjóðverjar o.fl. þjóðir. Verið er að tala um sveita- búskap á tslandi, þegar erlendis eru heilu hveiti- og rúgakrar, þús- undir nautgripa til manneldis o.fl. o.fl. Hér á landi hokra menn á smábýlum sem hvergi þekkist I alvöru landbúnaðarstefnu. Hér á landi borgum við þessum kotkörl- um, lagðir eru vegir og brýr inn að býlum til þess eins að fólkið geti síðan flutt á brott. Sjálfsagt er að brúa og gera vegi, en það verður að vera á skynsamlegan hátt. Sagt er að Borgarfjarðarbúar jarmi um leið og Halldór E. birtist upp við brú. En það skal þvó sagt þeim til afsökunar að gamla brúin og sýkisbrýrnar eru óþolandi, og slysahætta við þær mikil. Land- búnaðarstefnan ætti að dubba sig upp með Halldór f fararbroddi og skoða alvörubrýr og alvöru- bændabýli f Þýzkalandi og Dan- mörku. Landbúnaðarstefnan I dag er til háborinnar skammar. HÖGNI HREKKVÍSI Hreyfðu þig ekki — hann gengur i svefni! Utsala ‘(Olti Glæsilegu hertogahúsgögnin WOOOBROS SKAPASAMSTÆÐUR Sérkennilegar skápasamstæður það gamla er endurvakið. Gleðjið augað. 50 möguleikar á uppsetningu. Fáan- legt I einingum DÚNA Qí*umúla 23 - Sími 84200 Enn einu sinni kemur CANON á óvart með frábæra reiknivél. + Pappírsprentun og Ijósaborð + Allar venjulegar reikniaðferðir + Sérstaklega auðveld í notkun + ELDHRÖÐ PAPPÍRSFÆRSLA (SJALFVIRK EFTIR TOTAL OG ENGIN BIÐ) + Otrúlega hagstætt verð. Það hrífast allir sem sjá og reyna þessa vél. Skrifvélin hf SuSurlandsbraut 12 Pósth. 1232. Sími 85277

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.