Morgunblaðið - 23.08.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.08.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGOST 1977 5 Heimilissýningin í undirbúningi Undirbúningur fyrir heim- ilissýninguna í Laugardalshöil- inni er nú í fullum gangi. Að sögn Halldórs Guðmundssonar, blaðafulltrúa sýningarinnar, er undirbúningur nú lengra kom- inn en oft áður. Búið er að setja upp sýninga- kerfið og sýnendur eru nú af fullum krafti að setja upp sýn- ingastúkur sinar. Pallar fyrir tízkusýningar eru komnir upp en þær verða nú i áhorfenda- stæðum en ekki í kaffistofu eins og áður hefur verið. Á úti- svæði er þegar risinn sumar- bústaður og annar á eftir að rísa þar. Heimilissýningin verð- ur opnuð almenningi á föstu- dag n.k. kl. 6 og stendur fram til 11. september. ' Norskir síldarsaltendur: 11.500 kr. greiddar í styrk á hver ja tunnu NORSK stjórnvöld auka sí- fellt stuðning sinn við sjávarútveg þar í landi og samkvæmt þeim upplýs- ingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, eru nú greiddar kr. 3.05 á kfló af saltaðri síld eða 305 norsk- ar krónur á hverja 100 kílóa tunnu, sem samsvar- ar 11.500 krónum. Var Morgunblaðinu tjáð, að með þessu greiddi norska rikið 103 isl. krónur á hvert kiló af heilsaltaðri sild, en i slíkri tunnu er gengið út frá 112 kilóa hrá- efnisþunga. Fór nokkrar veltur á Suðurlandsvegi AÐFARARNÓTT sunnu- veginum. Báðir bílarnir íslendingar klífa Eiger- tind ödru sinni í sumar ÍSLENZKIR fjallgöngumenn hafa nú í annað sinn á þessu sumri gengið á Eigertind i Alpa- fjöllum. I júni s.l. klifu hann tveir félagar úr Hjálparsveit skáta i Reykjavik og nú i siðustu viku endurtóku afrekið sex félagar þeirra úr Hjálparsveitinni. Þeir lögðu upp að morgni 16. ágúst og gekk ferðin mjög vel hjá þeim félögum og voru þeir komnir nið- ur aftur innan sólarhrings. Daginn eftir klifu þeir annan nafnkunnan tind í Sviss, Möneh, sem er 4100 m hár. Þessir fjall- göngumenn hafa verið við æfing- ar í Austurríki og Sviss undan- farnar þrjár vikur og hafa í hyggju að ganga á næstunni á nokkur önnur fræg fjöll í Alpa- fjöllum, svo sem Matterhorn og Mont Blanc, sem er hæsta fjall Evrópu. Samkvæmt upplýsingum þeirra félaga hefur allt gengið mjög vel að því undanskildu, að einn félagi þeirra varð fyrir því öláni i upp- hafi æfingarferðarinnar að fót- brjóta sig og þurfti því að halda heim eins og áður hefur verið skýrt frá i Morgunblaðinu. dags fór fólksbíll nokkrar veltur á Suðurlandsvegi á móts við Geitháls og þegar hann loks stöðvaðist var öðrum bíl ekið á hann. Fimm manns voru flutt á slysavarðstofuna, þar af voru tvær stúlkur sem voru nokkuð illa slasaðar. Var önnur illa skorin í and- liti, en hin lærbrotin. Báðir bílarnir voru á leið vestur Suðurlandsveg, og skyndilega virtist bílstjóri bílsins sem fór á undan hafa misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að bíllinn fór nokkrar veltur á veginum. Bílstjóri bílsins sem á eftir kom náði ekki að stöðva sinn bíl og hafn- aði á þeim sem undan fór, þegar hann stöðvaðist á eru illa farnir, sérstaklega sá sem valt á veginum. Grunur leikur á að bílstjóri þessa bíls hafi verið ölvaður. r Olsarar eru harðir í get- raunum Ólafsvfk. 22. áKÚsl. ÓLSARAR eru góðir viðskiptavin- ir Getrauna að því er umboðsmað- urinn tjáir mér og hefur ung- mennafélagið Víkingur drjúgar tekjur af sölu getraun^seðla, þær mestu á Vesturlandi. Vinningar hafa einnig náðst hingað, m.a. einn er nam um 340 þúsund krón- um. Forráðamenn ungmennafé- lagsins Víkings munu ætla sér að halda þeim sessi að selja meira en nágrannar þeirra. Helgi Ólaf svík hef ur breytt um svip Olafsvik, 22. ágúst. BÚIÐ er að leggja olíumöl á stóran hluta gatna í Hjálmar W. Hannesson til Brtissel ÞÆR breytingar hafa orð- ið innan utanríkisþjónust- unnar, að Hjálmar W. Hannesson, sendiráðsritari í almennri deild utanríksi- ráðuneytisins, hefur verið fluttur til sendiráðs ís- lands í Briissel sem sendi- ráðsritari. Ólafsvík og hefur þorpið skipt mjög um svip við þessar framkvæmdir. Verkið unnu Miðfell hf. og Véltækni hf. og þykir vel hafa verið staðið að verki af þeirra hálfu. Þá eiga Ólafsvíkurbúar eftir annars vegar að greiða hin háu gjöld sem þessu eríi samfara og hins vegar að sjá hvernig olíu- mölin stenzt hina úrkomu- sömu vetrarveðráttu hér, en segja verður að hér sé „stórisunnan" mun algeng- ari þáttur í vetrarveðráttu en skinnklæðaþerririnn. - Hclsi Fámenn mótmælastaða A SUNNUDAG efndu Samtök herstöðvarandstæðinga til úti- fundar við sendiráð Sovétríkj- anna á tslandi, en þá voru liðin 9 ár frá því er herir Varsjárbanda- lagsins gerðu innrás I Tékkó- slóvakíu og brutu á bak aftur þá forystumenn Tékkóslóvaka, sem beitt hofðu sér fyrir breyttri stjórnarstefnu í landinu. Utifundurinn við sovézka sendi- ráðið var boðaður klukkan 14. Að sögn lögreglunnar tóku þátt f hon- um 20 til 30 manns, ræður voru haldnar og fór fundurinn frið- samlega fram. Vésteinn Ólason knúði dyra í sendiráðinu til þess að afhenda mótmælaávarp fundarins, en þeim var eigi lokið upp. Þá efndi svokölluð „21. ágúst- nefnd“ til stuðningsfundar við tékkneska alþýðu f kjallara Hall- veigarstaða klukkan 17 undir kjörorðunum: „Heri Sovétríkj- anna burt úr Tékkóslóvakíu!, Samstaða með baráttu alþýðu Tékkóslóvakíu! og Til baráttu gegn allri heimsvaldastefnu — gegn báðum risaveldunum — Bandaríkjunum og Sovétrfkjun- um!“ Karlakórinn FÓSTBRÆÐUR Karlakór KFUM -1916-1976 A síðasta ári átti Karlakórinn Fóstbræður 60 ára afmæli. í tilefni þessara tímamóta hafa nú verið gefnar út 2 hljómplötur sem innihalda sýnishorn af söng kórsins allt frá árinu 1930 til ársins 1975. Eftirtaldir stjórnendur kórsins koma við sögu á hljómplötunum: Jónas Halldórsson, Ragnar Björnsson, Jón Þórarinsson, Garðar Cortes, Jón Ásgeirsson og Jónas Ingimundarson. Þessar hljómplötur þurfa allir unnendur karlakórssöngs að eignast, enda hefur verði þeirra verið stillt mjög í hóf. Kosta þær báðar kr. 3900.- FALKIN N

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.