Morgunblaðið - 23.08.1977, Side 31

Morgunblaðið - 23.08.1977, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977 39 2,7 torai afhassi í grísku skipi Heraklion. Krtl. 22. ágúst — Reuter HAFNARYFIRVÖLD hafa fund- iö 2,7 tonn af hassi um borð f grfsku flutningaskipi, að því er skýrt var frá Krft í dag. Aætlað verðmæti farmsins er um 30 milljónir Bandarfkjadala. Skipið var á leið til Hollands frá Libanon. Það var á siglingu út úr höfninni i Heraklion þegar toll- gæzlumenn fóru um borð. Skip- inu var snúið til hafnar tafarlaust og átta manna áhöfn þess hand- tekin. NAÐAÐIR á Filipseyjum M : nila — 22. ágúst — Reuter FERDINAND Marcos for- seti Filipseyja lýsti því yfir i dag að fangar, sem hlotið hafa dóm fyrir undir- róðursstarfsemi, yrðu náð- aðir og að sleppt yrði úr haldi þeim, sem hafa beðið þess að koma fyrir herrétt. Banvœnt bit eftir býflugu Chalkis, Grikklandi — 22. ágúst. — AP. LÖGREGLAN í bænum Chalk- is skýrði frá því í dag, að 42 ára gömul kona hefði látizt um fimm mfnútum eftir að býfluga stakk hana í höfuðið. Konan var að borða hádegis- matinn í garðinum fyrir utan hús sitt ásamt fjölskyldu sinni. Bólgnaði hún þegar þannig að höfuðið var orðið helmingi stærra en áður þegar hún lézt. Um leið aflýsti forsetinn útgöngubanni að nætur- þeli, en það hefur verið í gildi undanfarin fimm ár, auk þess sem hann hét því að efna til byggðakosninga innan árs. Kvað hann hér um að ræða skref í þá átt að afnema herlög, sem eru í gildi í landinu. Þessi yfirlýsing forsetans kom fram í ræðu, sem hann flutti við upphaf áttunda alheimsþings lög- fræðinga. Forsetinn gerði ekki nákvæma grein fyrir fyrirætlun- um stjórnar sinnar varðandi aukið frelsi í landinu og náðanir fanganna. Ekki er ljóst hversu margir fangar það eru, sem náð- aðir verða eða sleppt verður úr haldi, en áreiðanlegir heiipildar- menn túlka ummæli forsetans á þann veg, að þessar ívilnanir komi þvi aðeins til framkvæmda að sótt verði um náðun i hverju einstöku tiifelli. I siðasta mánuði tilkynnti forsetinn að þúsund gæzluföngum sem ekki hefðu verið ákærðir formlega, yrði sleppt. Samkvæmt tölum, sem yf- irvöld hafa birt, eru þá eftir um þrjú þúsund fangar i vörzlu hersins. Bretland: London. 19. ágúst — Reuter HÖPUR brezkra hagfræðinga hef- ur spáð þvf að utanrfkisviðskipti Bretlands verði hagstæð um 3,6 milljarða sterlingspunda á næsta ári en að fjöldi atvinnulausra muni nálgast 2,5 milljóna markið. Hagfræðingarnir sem höfðu að- gang að tölvulikani því af þjóðar- búskapnum, sem rikisstjórnin notar, spáðu þvi að laun myndu hækka um 14% á næstu 12 mánuðum og að verðbólgan færi niður i eins stafs tölu en hún er nú um 17%. Haft er eftir pólitiskum heimildum, að ef þessar spár hag- fræðinganna standist muni rikis- stjórnin eiga i erfiðleikum að verja þennan gifurlega tekju- hagnað á sama tíma og atvinnu- leysi fer vaxandi og fjöldi at- vinnuleysingja nálgist hámark kreppuáranna. Nýlega bár- ust þær fregnir, að fyrsta skipið hefði nú rutt sér braut að Norðurpóln- um. Væri hér um að ræða sovézka fs- brjótinn Ark- tika. Isbrjót- urinn er kjarnurku- - knúinn. Aður hafa sæfarar komizt á pól- inn en þá hefur verið um að ræða kafbáta, sem sigldu undir isnum. Myndin hér að ofan er af Arktika. 23 höfuðlaus lík í skógi við Kampala — segja úgandískir andófsmenn Spáð batnandi efnahag en vaxandi atvinnuleysi Nairobi — 22. áfiúst — AP 23 höfuðlaus lík, sem talin eru vera af stúdentum við háskólann í Úganda, hafa fundizt í skógi í útjaðri Kampala, höfuðborgar Úganda, að því er úgandfskir andófsmenn f Nairobi skýrðu frá í dag. Líkin voru af 14 körlum og 9 konurn, sem öryggisverðir Idi Amins réðu af dögum, að því er heimildir þessar herma. Hafði fólkið verið handtekið eftir mótmælaaðgerðir gegn því að nafni Makerere-háskóla yrði breytt og skólinn nefndur Idi Amin-háskóli eftirleiðis. Sömu heimildarmenn segja, að yfirvöld í Úganda haldi þvi fram að lögregla hefði fundið líkin, og séu þau af ræningjum, sem myrtir hafi verið. Þá kemur fram að foreldrar þeirra stúdenta sem saknað hefur verið frá því að ofangreindar handtökur áttu sér stað í byrjun þessa mánaðar, hafi snúið sér til yfirvalda og beðið um að líkin yrðu afhent en fengið synjun. Haft er eftir flóttamönnum, sem nýlega komu til Kenya frá Úganda, að nýlega hafi fundizt á víðavangi lík nokkurra þekktra manna í Úganda, en nánari fregnir hafa enn ekki borizt af því hverja þar var um aö ræða né hversu margir þeir voru. Útgáfu The Daily American hætt Róm — 22. á«úst — AP BLAÐIÐ The Dayly American, sem gefið er út á ensku f Róm, Carter forseti skipaði nýlega nýj- an yfirmann Alrfkislögreglunnar (FBI) f Bandarikjunum. Þegar Frank M. Johnson, sem á að baki sér langan dómaraferil, kom fram á fréttamannafundi í Washington nýlega, lél hann meðal annars svo um mælt, að hann vonaðist til að standa sig jafnvel f embættinu og J. Edgar Hoover, fyrirrennari sinn, hefði gert. Vildi ekki særa — aðeins drepa New York — 22. ágúst — AP DAVID Berkowitz, sam talið er að sé „Sonur Sáms“, lagði bif- reið sinni við brunahana kvöld- ið, sem hann framdi síðasta morðið, í þeirri von að hann yrði handtekinn, að þvi er blað- ið The Daily News segir koma fram af hljóðritunum af fram- burði hans. „Ég vissi að fengi ég miða fyrir að leggja bílnum ólöglega þá kæmust þeir á spor- ið,“ segir blaðið „Son Sáms“ hafa sagt við yfirheyrslur í geð- sjúkrahúsinu þar sem hann dvelst nú. Blaðið getur þess að rann- sókn á því hvort hér sé um að ræða raunverulega upptöku á framburði „Sonar Sáms“ sé um það bil að hefjast af hálfu stjórnvalda. í frásögn blaðsíns kemur fram, að Berkowitz hafi látið svo ummælt, að honum hafi þótt miður hversu margir hefðu særzt af sinum völdum. „Ég vildi að þau dæju öll — mitt hlutverk var að drepa,“ sagði hann að því er The Daily News hermir. mun senn hætta að koma út, að þvf er útgefandinn skýrði frá f dag. Blaðið hefur komið út um 32 ára skeið og var þar til fyrir þremur árum i eigu bandarískra aðila. Stofnendur voru þrfr blað- menn, sem starfað höfðu við dag- blað á vegum Bandarikjahcrs. Útgáfan hefur að undanförnu verið í höndum italsks fyrirtækis og sagði fulltúi þess í dag, að vegna margra mánaða deilna við prentara og erfiðleika við útgáf- una hefði nú verið ákveðið á hætta henni. Upplagið er um þessar mundir 8 þúsund eintök, en var þegar bezt lét 20 þúsund. VEÐRIÐ í nokkrum borg- um veraldar Veður Hitastig Amsterdam Skýjað 23 Aþena Heiðskfrt 34 Berlín Skýjað 19 Briissel Skýjað 18 Helsinki Heiðskfrt 17 Jóhannesarborg Heíðskfrt 25 Kaupmannahöfn Heiðskfrt 20 Lissabon Heiðskfrt 24 Madrid Skýjað 21 Moskva Heiðskfrt 15 New York Skýjað 24 Oslú Heiðskfrt 17 Parfs Heiðskfrt 20 Róm Skýjað 23 SanFrancisco Skýjað 19 Stokkhólmur Skýjað 10 Tók<ó Skýjað 22 ERLENT 200 mílur við Fiji og vest- ur Samoaeyjar á næstunni Suva, Fiji — 22. ágltst — AP ÞING Vestur-Samoaeyja hefur tekið akvörðun um að færa efna- hagslögsögu eyjanna út í 200 míl- ur, en enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um ákveðna dagsetn- ingu í þvi sambandi. Þá hef þing Fiji-eyja til meðferðar fru varp um útfærslu í 200 mílur, e þeim eyjaklasa eru alls 350 eyj, og er búizt við að það verði sa þykkt á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.