Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 3 Skynsemin réð í Bolungarvík Frá Halli Hallssyni. blaðamanni Mbl. á ísafirði „SKYNSEMIN réð 1 Bolungarvík, höggvið var á þann hnút, sem hafði myndazt,“ sagði Birgir Valdimars- son, framkvæmdastjóri Gunnvarar hf., sem gerir út togarann Júlíus Geirmundsson. Togarinn kom til landsins á síðasta ári frá Noregi og hefur aflað 1.707 tonna frá áramótum eða á þremur mánuðum. Hvert er aflaverðmæti togar- ans þessa þrjá mánuði? „Aflaverðmætið nemur 370 milljónum króna, þar af er hásetahlutur þessa 3 mánuði 7,8 milljónir króna með orlofi, en þess ber að geta, að enginn, sem hefur verið á Júlíusi Geir- mundssyni, hefur verið til sjós í öllum túrum. Til að mynda eru vélstjórarnir þrír, einn er alltaf í landi og þeir skipta jafnt á milli sín. Það er rétt að það komi fram, að bara laun og launa- tengd gjöld nema um 50% af aflaverðmæti. Eftir eru 185 milljónir í rekstur, afborganir og vexti." Sjómenn segja að ofsagróði sé - á útgerðinni. Hvað er hæft í því? „Fullyrðingar sjómanna um ofsagróða eru ekki á rökum reistar. Hagur útgerðarinnar í ár er verri en áður, allur til- kostnaður hefur hækkað. Má þar nefna olíuverðshækkanir og eins hafa veiðarfæri hækkað mikið. Þá ber að hafa í huga, að Júlíus Geirmundsson er nýtt skip, kost- aði 24 milljónir norskra króna, sem eru gengistryggðar. Afborg- anir og vextir eru ákaflega miklar. Það segir sig sjálft að ekki er gróði af slíkri útgerð. Hins vegar gildir annað um skip, sem búið er að greiða niður. Af Birgir Valdimarsson þeim er gróði, enda væri annað hvort á meðan jafnvel hefur gengið og síðustu mánuðina. Aflabrögð hafa verið með ein- dæmum góð og veðrið óvenju- hagstætt, aldrei fallið dagur niður vegna veðurs. Þá hefur aflinn verið mjög góður, óvenju stór fiskur," sagði Birgir Valdi- marsson að lokum. Sjómenn í verkfalli gera klárt á grásleppu Frá Halli Hallssyni, blaðamanni Mbl. á ísafirði. SMÁBÁTAEIGENDUR á ísafirði eru nú sem óðast að búa báta sína undir hrogn- kelsavertíðina, sem hefst 18. apríl. Sumir þeirra eru í verkfalli. Því má segja að þeir séu hvort tveggja í senn útgerðarmenn og sjómenn í verkfalli. Blaðamaður Mbl. brá sér niður að smábáta- höfninni á ísafirði og ræddi við sjómenn, sem voru að dytta að bátum sínum og gera þá klára. Algjörlega á móti þessu verkfalli „Ég er algjörlega á móti þessu verkfalli og hef verið svo frá byrjun," sagði Salómon Sigurðs- son, en hann er landmaður á línubátnum Víkingi III. „Togarasjómenn hafa allt önnur og betri kjör en yið á línubátunum og við eigum því ekki samleið með þeim. Mér finnst ekki rétt af tekjuhæstu mönnum þjóðfélagsins að fara í verkfall. Mér finnst það ótíma- bært og það eina, sem hefði réttlætt verkfall, væri algjör samstaða allra sjómanna á Vest- fjörðum. Hitt er svo, að við á línubátunum hér á ísafirði, höf- um ekki eins góð kjör og félagar okkar á hinum fjörðunum, þar sem þeir eru yfirborgaðir. Skiptaprósenta þeirra er hag- stæðari, en ég veit að margir sjómenn eru óánægðir nú með þetta verkfall, þó svo hafi ekki verið í byrjun," sagði Salómön að lokum. Annað hvort losnar um hnútinn eða rembihnútur hefur myndazt „Við viljum fá í samninga hlutaskipti eins og þau hafa tíðkazt á hinum fjörðunum, þ.e. að skipt verði í 9 hluta á 10 manna áhöfn. Við erum því ekki ánægðir með samningana í Boi- ungarvík. Karvel vék frá þessari kröfu og þar með fuku fínustu fjaðrir Karvels Pálmasonar. Annað hvort losnar nú um hnút- inn eða rembihnútur hefur myndazt við samnigana í Bol- Sigurður Finnbogason og Ágúst Ingi Ágústsson. Salómon Sigurðsson ungarvík,“ sögðu þeir Sigurður Finnbogason og Ágúst Ingi Ág- ústsson, þar sem þeir voru að dytta að bát sínum og gera hann kláran fyrir grásleppu. Það var harður verkfallstónn í þeim fé- lögum og „útgerðarmönnum". „Við erum á línubátnum Guð- nýju og þó segja megi sem svo, að togaramenn annars vegar og línumenn hins vegar séu nokkuð aðskildir hópar innan Sjó- mannafélags Isfirðinga,J)á erum við fyllilega sammála þessu verkfalli. Samstöðuleysið á fjörðunum er ákaflega slæmt, en það er vegna yfirborgana. Það eina, sem mæla má samkomu- lagi Karvels til bóta, er að Bolvíkingar fá nú tvo vettlinga á hendurnar við beitingu í stað eins áður. Hvað uppgjör snertir, þá hefur það aldrei verið vanda- mál hér. Við höfum ávallt í þau 10 til 14 ár fengið greitt í byrjun hvers mánaðar. Stóra málið hjá okkur var að fá hlutaskiptin inn í samningana, en það fékkst ekki. Því er ekki hægt að mæla þessu samkomulagi bót. Hvað hátekjugrýluna snertir þá getum við nefnt dæmi um háseta á Guðbjarti. Hann fékk rúmar 8 milljónir í tekjur á síðasta ári fyrir 220 daga úthald. Það köllum við ekki mikið. Gífurleg vinna liggur að baki þessu. Togarasjómenn fá margar krónur að því er virðist, en þeir þurfa að leggja fram mikla vinnu," sögðu þeir félagar að lokum. Borgarráð: 20 Volvogrindur — og 3—5 Ikarusvagnar til reynslu BORGARRÁÐ samþykkti á fundi á þriðjudag kaup á 20 Volvo-strætis- vagnagrindum og að leitað yrði samninga við Nýju bíiasmiðjuna um yfirbyggingar þeirra og einnig að keyptir yrðu 3—5 stra'tisvagnar af Ikarusgerð til reynslu. Strætisvagnakaupin eru á dagskrá borgar- stjórnarfundar í dag. Á borgarráðsfundinum bar Sig- urjón Pétursson fyrst upp tillögu um kaup á 20 Ikarusvögnum og var hún telld með 4 atkvæðum fulltrúa sjálfstæðismanna, al- þýðuflokksmanna og framsókn- armanna gegn einu atkvæði Sigur- jóns. Þá var tekin fyrir tillaga stjórnar Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar um kaupin á 20 Volvogrindum og var hún samþykkt með 4 atkvæðum, en Sigurjón Pétursson sat hjá. Loks var borin fram tillaga Sigurjóns, Björgvins Guðmundssonar og Kristjáns Benediktssonar um kaup á 3—5 Ikarusvögnum til reynslu og var hún samþykkt með 3 atkvæðum, en fulltrúar sjálf- stæðismanna sátu hjá. 5 oc 30 Sértilboð í apríl ódýrasta Lundúnaferðin Brottför: 24. apríl — 5 nætur INNIFALIÐ: Flug, gisting m/enskum morgunverði og flutningur til og frá hóteli. Verð frá 168.300 - krónum Útvegum miða í leikhús, tónleika, knattspyrnuleiki helgarinnar, kynnisferðir um London og nágrenni. Takmarkað sætamagn - pantið tímanlega Feröaskrifstofan ÚTSÝN f Austurstræti 17 — sími 26611 FERDASKR/FSTOFAN ^LL^f I—^ URVAL^MT usturvöll. — Sími 26900 [\ 0 1^.0, Austurvöll. — Sími 26900 OC 30 'A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.