Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 Ólafur Ingi Hrólfsson: Þeir sem ekki hafa áhuga á almennum mann- réttindum — félagslegum samskiptum fólks né rétti einstaklingsins til frjálsr- ar hugsunar — ættu ekki að lesa þessa grein. Hinir ættu að lesa hana og æski- legt væri að fólk tæki sér penna í hönd og tjáði sig um innihald hennar á prenti. Undirritaður hóf störf í ísbirn- inum á Grandagarði í byrjun nóvember 1979. Starfið hófst með vinnu á flökunarvélum, síðan var ég fluttur til og settur á „skápinn" og síðan í það að taka fiskinn sem var kominn í pakkningar og setja hann í frystitækin. Mun ég nú gera nokkra grein fyrir þróun mála eftir tilfærslum innan ísbjarnarkerfisins. Sigurðar þáttur „verkstjóra“ I flökun er maður sem Sigurður heitir. Hlutverk hans virðist vera það að raða fólki á hinar ýmsu vélar sem í salnum eru ásamt því að gera við minniháttar bilanir sem upp koma. „Verkstjórn" þessa manns var með þeim hætti að sonur hans ásamt 2—3 starfsmönnum öðrum „lentu" sífellt í þeim störfum sem mestan bónus gáfu af sér, þ.e. unnu á karfavélum. Hinir skiptu öðrum störfum á milli sín t.d. vinnu á þorskvélum, aðstoðarstörf o.þ.h. Mér þótti þetta undarlegt fyrir- komulag þar sem í samningum stendur að skipta skuli störfum þannig að allir starfsmenn hafi sömu tekjumöguleika enda séu þeir hæfir til starfsins. Þegar minnst var á þessa hluti við „verkstjórann“ brást hann hinn versti við og sagðist ekki taka vana menn af vélunum því að hann yrði að hugsa um nýtinguna á þessum vélum. Alveg rétt. En eitt vantaði í þá fullyrðingu. Þegar t.d. undirritaður og aðrir úr» hópi hinna útskúfuðu voru settir á karfavélar kom það í ljós að fiskafjöldi okkar var yfirleitt meiri en hjá syni „verkstjórans". Að lokum var trúnaðarmaður okk- ar Dagsbrúnarmanna beðinn um að gera eitthvað í málinu þar sem menn yndu því illa að vera með helmingi minni bónus en t.d. umræddur „verkstjóra“sonur. Allt kom þó fyrir ekki. Þrátt fyrir það að „verkstjóranum" væru sýndar niðurstöður á sam- lagningu bónusmiða sem sýndu þá staðreynd að sonur hans væri óeðlilega miklu hærri í bónus en aðrir starfsmenn sagði hann þetta bTÓ — þvætting og vitleysu, hann hefði ekki látið son sinn né neinn annan fá meira af „góðri" bónus- vinnu en aðra. Þó sáust tölur eftir vikuna eins og 23000.- krónur hjá einum en 46000.- hjá syni hans. Ef þessi maður er hæfur til að vera verkstjóri þá hefur sú stétt manna sett mikið niður og er það slæmt. Um þetta sama leyti hafði ég svo samband við Dagsbrún vegna þessara mála svo og vegna óánægju með trúnaðarmann stað- arins. Dagsbrúnarstúlka spurði þá hvers vegna ekki væri skipt um trúnaðarmann. Það væri „einfald- asta mál í heimi“. Einnig mætti ég á fund hjá Dagsbrún í desember og ræddi þá m.a. við Guðmund J. Guðmundsson um þessi mál. Þessu næst gerðist það að ég var fluttur úr vélflökunarsal og settur fram í sal og hefst þá í rauninni Þáttur starfsstúlkna í Isbirninum Þegar starfið hófst „frammi" var ekki laust við að starfsstúlkur, sem heyrt höfðu ávæning af því, sem gerðist í flökunarsal, kæmu og bæru upp sín mál varðandi óréttlæti sem þótti vera í starfi starfsstúlkna. Bar þar kannski hæst að þær töldu bónus í sumum þáttum starfsins vera óeðlilega lélegan og þá ekki síst vegna þess að konur sem náðu fullum bónus í einum þætti starfsins náðu ekki hálfum bónus í öðrum. Einnig var kvartað yfir framkomu verkstjóra — erfiðleikum vegna þess að veikindavottorð voru „söltuð" og fleira þess háttar. Fleiri þættir voru tíndir til en verða ekki tíundaðir hér að sinni. Sigurjóns þátt- ur yfirverkstjóra Sigurjón heitir yfirverkstjóri fyrirtækisins. Myndarlegur eldri maður, mikill á velli og fyrir- mannlegur. Á fundum sem haldnir voru með forsvarsmönnum Dagsbrúnar og Verkakvennafélagsins Framsókn- ar komu fram alls kyns ásakanir á hendur þessum manni. Eftir fyrri fundinn var Sigurjón kallaður til viðræðna við fulltrúa verkalýðsfé- laganna tveggja. Að morgni þess dags sem hann átti að mæta kallaði hann á mig inn á skrifstofu sína til þess að „ræða hreinskiln- islega og opinskátt um okkar mál“, eins og hann orðaði það. Spurði hann meðal annars hver umkvörtunaratriðin væru. Sagði ég honum þá að framkoma hans við starfsfólkið hefði verið gagn- rýnd, t.d. þegar menn tilkynntu veikindi hefði hann átt það til að hlæja að þeim, gera grín að veikindum þeirra og hæða þá. Einnig þegar t.d. stúlka ein kvart- aði yfir ákveðnum þætti í starfinu, svaraði hann því til, að ef hún væri ekki ánægð gæti hún bara hætt. Einnig því, að hann hefði „saltað" vottorð um lengri eða skemmri tíma og jafnvel neitað að skrifa upp á þau. Þá kom líka fram, að framkoma hans væri og hefði verið með þeim hætti að starfsfólkið þyrði ekki að ræða um eitt eða neitt við hann af ótta við að það yrði hreinlega rekið — enda væri hann þekktur fyrir annað en umburðarlyndi við starfsfólk Isbjarnarins. Ekki vildi Sigurjón fallast á alla þessa þætti en kvartaði hins vegar yfir slæmri mætingu starfsmanna og á það get ég fyllilega fallist. Mæting starfsmanna hafði verið vægast sagt slæm. En til þess að fyrirbyggja allan misskilning þá tók Sigurjón fram, að sér félli mjög vel við mig sem starfsmann og hefði síður en svo nokkuð yfir verkum mínum að kvarta. Þau hefðu verið unnin með þeim hætti að varla yrði betur gert í þeim efnum. Þá tjáði ég honum, að starfsmenn vildu að ég tæki við sem trúnaðarmaður Dagsbrún- armanna í ísbirninum. Ekki þótti honum ástæða til þess að gera slíkar breytingar en þó skildist mér að hann ætlaði sér ekki að skipta sér af þeim málum , enda væri það ekki í hans verkahring. Ymislegt fleira bar á góma sem mun væntanlega koma fram síðar. Ekki er ástæða til þess að fjalla um þátt Gísla aðstoðarverkstjóra fyrirtækisins enda virðist hann aðallega vera í fyrirtækinu til þess að segja já við Sigurjón og ekki i aðstöðu til þess að taka ákvarðan- ir um nokkurn hlut eða nokkurt mál og er honum því vorkunn. Óskars þáttur „bónussérfræðings“ Óskar heitir maður sem sér- staklega var fenginn að láni frá Vestmannaeyjum til þess að „hanna" bónuskerfi fyrir ísbjörn- inn en það þótti ástæða til þess vegna „þeirrar miklu tæknivæð- ingar sem notuð er í húsinu". Óskar þessi var lipur maður og er væntanlega enn. En lipurðin náði þó ekki lengra en honum sjálfum þótti gott og gat komið sér vel fyrir hann sjálfan. T.d. var hann lipurðin HVAÐ HEFUR ÍSBJÖRNINN AÐ FELA? sjálf uppmáluð þegar hann ræddi það mál við mig að skrá þyrfti nákvæmlega allar tafir sem fyrir kæmu í vélflökunarsal til þess að raunhæft afkastamat gæti átt sér stað. Það kom reyndar seinna í Ijós að eina ástæðan fyrir þessari beiðni var sú að t.d. á karfavélum var hægt að ná hámarksbónus en ef um töf var að ræða þá var ekki greiddur bónus fyrir þann tíma enda þótt afköst vélarinnar væru það mikil að heildarmagnið sem sett var í gegn væri fyrir ofan hámarkið. Sem dæmi: Frá kl. 8—17 skyldu 14500 fiskar fara í gegnum vélina til þess að ná hámarki. Ef t.d. 1 klst. fór í töf fengu starfsmenn ekki greiddan bónus fyrir þá klst. Þrátt fyrir að áðurnefndu hámarki væri náð. Mismunurinn var þá hagnaður hússins. Þannig sparaði Óskar húsinu pening á kostnað starfs- manna. Snjall strákur. Einnig var hann lipur þegar hann reyndi að fá mig til þess að upplýsa sig um hverjir væru óánægðir með bón- uskerfið eða hluta þess og þá hvaða hluta. Ekki er að efa að upplýsingar um hvaða þættir kerfisins væru mönnum ekki að skapi, hefðu farið í salt en hins vegar hefði upplýsingum um hvaða starfsmenn væru óánægðir verið komið vel á framfæri. Hefði starfsaldur viðkomandi starfs- manns varla orðið langur eftir það. Hins vegar brást Óskar snilldin þegar kom að því að hann var beðinn um upplýsingar varð- andi staðal fyrir flökunarvélarnar — hve marga fiska þyrfti að setja í gegnum „þorskvélarnar" á klst. af hverri tegund fyrir sig og fyrir hverja vél fyrir sig. Visaði hann á Dagsbrún og ASÍ í því sambandi. Benti ég honum á þá staðreynd, að ég væri í vinnu lengri tíma en opnunartíma þessara félaga og ætti því bágt með að nálgast þá hluti þar. Sagðist hann samt sem áður ekki láta mig hafa þessar upplýsingar og vísaði til sam- þykktar þar að lútandi um hverjir skyldu hafa þessar upplýsingar undir höndum. Hafði ég þá samband við Dags- brún og ÁSÍ símleiðis. Kom þá í Ijós að hvorki Dagsbrún né ASÍ höíðu fengið bónuskerfi og/eða staðla ísbjarnarins til umsagnar. Þaðan af síður væru nokkrar upplýsingar til á þessum stofnun- um um bónuskerfi fyrirtækisins. Samkvæmt upplýsingum sem ég fékk er bannað að láta vinna eftir nokkru því bónuskerfi sem ekki hefur verið samþykkt af viðkom- andi verkalýðsfélagi. Vinurinn snjalli, Óskar, hélt því hins vegar fram að báðir þessir aðilar hefðu fengið þessa útreikn- inga sína. Meira að segja fullyrti hann það við yfirverkstjóra fyrir- tækisins sem síðan stóð í þeirri meiningu þar til hið sanna kom í ljós. Eftir fund starfsmanna með verkalýðsfélögunum mun hins vegar hafa verið bætt úr þessu enda ekki seinna vænna eftir að allt starfslið Isbjarnarins hafði unnið eftir þeim í meira en eitt ár. Snjall strákur, Óskar, og lýkur hér hans þætti. Á áðurnefndum fundum nokk- urra starfsmanna ísbjarnarins og verkalýðsfélaganna kom í ljós að ekki voru allar ásakanir starfs- manna á rökum reistar og var því komið á framfæri við starfsmenn sem tóku því að sjálfsögðu misvel en rétt er rétt og ekkert við því að segja því að lög og siðgæði ber þó að viðhafa. Ekki er við fyrirtækið að sakast þótt Dagsbrún geri óhagstæða og lélega samninga heldur er það mál starfsmanna að þrýsta á félagið og leggja fram kröfur sínar þar og sjá síðan um að félagið framfylgi þeim kröfum. Einnig var kvörtun Sigurjóns varðandi slæmar mætingar starfsmanna komið á framfæri og gaf hann út þá yfirlýsingu í samtali við starfsmann Dagsbrún- ar nú fyrir skömmu að mætingar hefðu lagast og er það ánægjulegt. Þá er komið að þætti Jóns Ingvarssonar o.fl. yfirmanna Isbjarnarins og þeirri spurningu hvað ísbjörninn hafi að fela. Mánudaginn 25/2 stóð til að ná fundi Dagsbrúnarmanna með for- ráðamönnum Dagsbrúnar yrði ég formlega kosinn bónustrúnaðar- maður Dagsbrúnarmanna í ísbirninum. Föstudaginn 22/2 var ég hins vegar kallaður á fund Jóns Ingv- arssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hafði sá ágæti maður vart getað valið verri tíma en rétt fyrir kl. 17 þegar allir eru í óðaönn að ganga frá og þá ekki síst við sem störfuðum við það að flytja fullunninn fisk fram í fryst- itæki. Jón tilkynnti mér þar að ákveðið hefði verið að segja mér upp störfum hjá fyrirtækinu. Ég sagði honum, að það kæmi mér ekkert á óvart en spurði um ástæðu fyrir uppsögninni. Einnig spurði ég hann að því hvers vegna Sigurjón hefði ekki séð um þessa brottvikningu eins og allar aðrar. Jón svaraði því til að „álitið hefði verið að betra væri að hafa þennan háttinn á“ varðandi upp- sögn. Um ástæðu vildi hann lítið segja en þó hafðist það út úr honum að lokum, að ég hefði „valdið ákveðinni óánægju í fyrir- tækinu". Ekki treysti hann sér til þess að nafngreina þá sem höfðu látið þessa óánægju í ljós og sagðist ekki bregðast trúnaði þessara manna. Ég spurði hann þá hvort hann hefði ekki athugað trúnað og sannleika þessara ásak- ana og svaraði hann því til að hann treysti þessum mönnum. Þá spurði ég hann að því hvort hann vissi að það hefði staðið til að kjósa mig trúnaðarmann Dags- brúnarmanna og hefðu um 30 þeirra nú þegar skrifað undir lista því samfara og að fundurinn ætti að vera næstkomandi mánudag. Sagði hann það engu skipta, upp- sögnin stæði og yrði ekki breytt. Sagði ég honum þá frá uppruna þessara mála og virtist honum ekki kunnugt um hann né heldur vita um hvað þessi mál snerust. Uppsögnin tók þegar gildi og var uppsagnartíminn greiddur skilvíslega en ekki var óskað eftir því að undirritaður ynni út frest- inn. Nú vildu sumir starfsmenn ganga út í mótmælaskyni en fengust þó til þess að fresta því fyrir mín orð gegn því að til þeirra kæmi maður frá Dagsbrún vegna þessara mála strax morguninn eftir (laugardag) en þann dag var unnið. Gekk ég í það mál og mætti Halldór Björnsson starfsmaður á skrifstofu Dagsbrúnar til við- ræðna á laugardagsmorgninum. Þar var ákveðið að Halldór ræddi við Jón næsta mánudags- morgun. Mánudagsmorgunninn rann upp, en fleira hafði runnið. Jón Ingvarsson hafði þá um helg- ina runnið af hólmi til útlanda og tekið bróður sinn Vilhjálm með sér þannig að fátt var um svör. Sá ruddaskapur sem þessir menn sýndu best þegar á það er litið, að á þriðjudeginum átti að vera fundur með öllu starfsfólki fyrir- tækisins ásamt forsvarsmönnum þess og þar skyldu málin rædd. Ekki höfðu þessir „háu“ herrar fyrir því að tilkynna verkalýðsfé- lögunum um þessa fjarveru sína sem standa skyldi í eina viku. Var því starfsmannafundurinn hald- inn án þeirra. Nokkru síðar eftir að Barði Friðriksson hjá Vinnu- veitendasambandinu hafði rætt við Jón hringdi ég til Jóns eftir fyrirmælum Barða. Hann vildi þá að ég gerði grein fyrir mínu máli í símanum sem ég gerði enda þótt sá háttur væri mér ekki að skapi. Að lokum spurði Jón hver krafa mín væri. Sagði ég honum að þó ekki væri annað en „móralsins" vegna vildi ég að hann drægi þessa uppsögn til baka. Tók hann sér eins dags frest til þess að svara. Daginn eftir hljóðaði svar hans á þessa leið: „Við teljum það óheppilegt bæði okkar vegna og þín vegna að þú hefjir aftur störf hjá fyrirtækinu." Ekki útskýrði hann á hvern hátt það væri óheppilegt. Sagði ég honum þá að ég myndi þá þessu næst fara með þetta mál í blöðin. Sagði hann að það væri auðvelt að vera með slíkar hótan- ir. Vissulega er auðvelt að vera með hótanir. En þetta var ekki hótun heldur einfaldlega skýrt frá staðreyndum. Hvað var það sem fékk Jón Ingvarsson & Co. til þess að leggjast það lágt að reka starfsmann fyrir þær sakir einar MM •%. «,•.-« «JKM '*■ JM* I ..... 11 ...... I ■W-f-WP-W

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.