Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 1 1 Kór Langholtskirkju Á sama hátt og þróun tónlist- ar í Evrópu, frá stofnun krist- innar kirkiu á_4. öld og til loka 16. aldar, var nær eingöngu byggð á kórsöng, eru fyrstu spor íslendinga á sviði tónsmíði og tónflutnings að mestu bundin við kórsöng. Allveruleg kunnátta í meðferð hljóðfæra er forsenda góðs flutnings hljóðfæratónlist- ar, en möguleikinn til flutnings söngtónlistar er fyrir hendi ef stjórnandinn er nægilega þolin- móður, þó hver einstaklingur í kórnum kunni lítið sem ekkert í söng eða tónmennt. Nú hefur tónmennt fleygt svo fram að til er stór hópur söngmanna er kunna vel til verka, enda eru starfandi í landinu nokkrir kór- ar, sem vel geta kallast fram- bærilegir hvar sem er. Kór Langholtskirkju, undir stjórn Jóns Stefánssonar, hefur undan- farið fengist við flutning stærri tónverka, en það er einmitt í átökum við erfið verkefni, sem söngfólki vex áræði og hæfni, auk þess sem góð tónlist veitir dýpri ánægju, þegar til lengdar lætur, en vinsæl skemmtitónlist, sem öllum er tiltæk án nokkurr- ar áreynslu í vinnu eða einbeitni. Þessi skil eru mjög greinileg hvað snertir mismun á kórum og er ljóst að gott söngfólk dæmir söngstjórana eftir viðfangsefn- um, sem vissulega er að nokkru rétt, því í markmiði stjórnand- ans eru fólgin mörk kunnáttu hans og hverjar kröfur hann gerir til samstarfsmanna sinna og því líklegt að nokkur sæmd sé af samstarfi við slíkan mann. Það er sem sagt ekki tilviljun að kór Langholtskirkju er góður. Hann er til vegna þess að stefnt hefur verið að stærri markmið- um en venja er hjá öðrum kirkjukórum og stjórnandinn hefur haft bæði þrek og kunn- áttu til að standa undir þessu starfi. Vorverk kórsins að þessu sinni voru tvær kantötur eftir J.S. Bach, en með kórnum sungu einsöng Signý Sæmundsdóttir, Anna Júlíana Sveinsdóttir, Garðar Cortes og Halldór Vil- helmsson. Lítil kammersveit að- stoðaði við flutning verkanna. Fyrri kantatan nr. 8, Mildi Guð, nær mun ég deyja, var sungin við textaþýðingu eftir Kristján Val Ingólfsson, sem víðast hvar féll vel að tónlistinni, nema á nokkrum stöðum í einsöngsþátt- unum. Samleikur kórs og hljóm- sveitar var ekki í góðu jafnvægi hvað snertir styrk og flutningur eins einsöngvara ekki nógu vel æfður eða „stúderaður", svo boðskapur verksins kom ekki til skila í túlkun þeirra. „Er dauð- inn kallar, hvar er þá skjól og sálarró“,„Er hylur jörð mín bein í skauti sínu“, „í ástarfaðminn Guðs ég flý“ og verkinu lýkur með lofsöng, þar sem dauðinn er ekki endalok, heldur líf í „eilífu ljósi og helgum friði". Seinna verkið var Kantata nr. 39, Miðla hinum hungruðu af brauði þínu og hýs bágstadda og hælislausa menn. í dag er þessi boðskapur nær veruleikanum en nokkru sinni fyrr í sögu mannkynsins, fyrst og fremst vegna þess að nú er séð fyrir að hægt sé að fullnægja þörf allra íbúa jarðar- mnar. Upphafskór verksins var vel sunginn af kórnum enda sérlega skemmtileg tónsmíð. Og sem niðurlag ætiað tímanum í Tðnllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON dag, má tilfæra lauslega þýðingu á lokakórnum í efnisskrá, en þar stendur: „Sælir eruð þér, sem líknið nauðstöddum og hafið meðaumkun með bágstöddum. Þér, sem liðsinnið með orðum og gjörðum. Þér munið uppskera hjálp og miskunnsemi." Jón Ásgeirsson Frá sýningu Leikfélags Sandgerðis. Fremst eru ómar Bjarnþórsson og Kristján Guðjónsson. „Möppudýragarður- innusýndur í Sandgerði Sandgeröi, 15. apríl. LEIKFÉLAG Sandgerðis frum- sýndi sl. fimmtudag revíuleikrit- ið „Möppudýragarðurinn“ eftir Óttar Einarsson. Einnig voru 3 aðrar sýningar á revíunni hér í Sandgerði um helgina við mjög góða aðsókn. Leikritið er í mjög léttum dúr með allmiklum söng og skýrir það frá raunum manns, Vermundar forstjóra, í samskiptum við hið svokallaða kerfi og gengur þar á ýmsu. Alls koma 18 leikendur fram í revíunni en aðalhlutverkið, Vermund forstjóra, leikur Ómar Bjarnþórsson. Fer hann á kostum í hlutverkinu og er það álit margra er sáu leikritið að hann gefi mörgum atvinnuleikaranum ekkert eftir. Revíustjóri er Ólafur Gunn- laugsson og stjórnar hann söngn- um af röggsemi. Leikstjóri er Aðalsteinn Bergdal, en leikmynd gerði Hallmundur Kristinsson. Ákveðið hefur verið að hafa 2 sýningar til viðbótar í Sandgerði og eru lýkur á fleiri sýningum víðar. Jón. Athugasemd Tekið skal fram að þeir aðrir aðilar, sem talað er um í frétt blaðsins í gær um „Hús verslunar- innar", eru: Kaupmannasamtök Islands, Félag ísl. stórkaupmanna, Bílgreinasambandið og Verslun- armannafélag Reykjavíkur ásamt Landssambandi ísl. verslunar- manna. KÓNGSBAKKI Var að fá í einkasölu mjög fallega 4—5 herb. íbúö í þriggja hæð stigahúsi við Kóngsbakka. íbúöin er 3 svefnherb., fataherb., þvottaherb., gott bað, stór stofa, skáli og stórt eldhús. Geymsla í kjallara. Suöur svalir. Sérstaklega vönduð eign. Kjartan Reynir Ólafsson, hæstaréttarlögmaður, Háaleitisbraut 68, sími 83111. mmm^^m—m^mammmmmmrnmmmmmm* LAUGAVEGI47, BANKASTRÆTI 7 6.129

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.