Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 47 Einn efnilegasti handknattleiksmaður á íslandi i dag, Alfreð Gíslason KA, hefur brotist í gegn og skorar eitt af átta mörkum sínum á móti KR í leik liðanna í gærkvöldi. Ljósm. Emllla Naumur KR sigur yfir KA í bikarnum KA misnotaði f jögur vítaköst ÞAÐ verða lið KR og Hauka sem mætast í úr- slitaleik bikarkeppni HSÍ að þessu sinni. Lið KR-inga bar sigurorð af KA frá Akureyri í leik liðanna í Laugardalshöll- inni í gærkvöldi með einu marki. 20—19, eftir mjög svo spennandi leik, en ekki oft á tíðum vel leikinn, enda leikmenn beggja liða nokkuð taugaspenntir. Það var norðanmönnum dýrt í gærkvöldi að mis- nota ekki færri en fjögur vítaköst og sum þeirra á mjög svo afdrífaríkum augnablikum í leiknum. En heilladísirnar voru þeim svo sannarlega ekki hliðhollar að þessu sinni. Spennandi lokamínútur Þegar sex mínútur voru eftir af leik í gær hafði KR tekist að ná tveggja marka forystu í leiknum, 18—16, en KA-menn létu ekki deigan síga heldur börðust af miklum krafti. Ármann skoraði fyrir KA og minnkaði muninn niður í eitt mark, 18—17. Björn skorar með einu af sínum frægu undirskotum og enn er KR tveim- ur mörkum yfir 19—17. KA mis- notar næstu sókn en KR-ingar einnig. Alfreð minnkar muninn niður í eitt mark, 19—18 og þrjár mínútur eru eftir. Aftur fer sókn hjá KR forgörðum og Friðjón fær gullið tækifæri á að jafna metin er hann kemst einn í gegn fyrir miðju marki en skýtur beint í Pétur markvörð KR. Þarna fór mikilvægt tækifæri út í sandinn. S- 20:19 Ólafur Lárusson skorar svo 20. mark KR og aðeins ein mínúta er eftir af leiknum. KA sækir og tveimur KR-ingum er vísað af leikvelli í lokin og einum KA- manni og allt er á suðupunkti er Ármann skorar 19. mark KA 20—19. Aðeins 10 sek. eru eftir þegar KR byrjar með boltann og Björn Pétursson sá sér þann kost vænstan um leið að rekja boltann á undan sér út í horn með tvo KA-menn á hælunum og láta tímann renna út. KR-sigur var i höfn. KA-liðið frískara framan af Fyrri hálfleikur var öllu betur leikinn en sá síðari og lengst af voru KA-menn betri aðilinn á vellinum þrátt fyrir að bæði liðin færu afar illa með góð tækifæri sín. Eftir að staðan hafði verið jöfn um miðjan hálfleikinn tókst KA að ná tveggja marka forystu og með því að nýta tækifæri sín hefði fjögurra marka forskot ekki verið óraunhæft. En í stað þessa var staðan jöfn í leikhléi, 10—10. Alfreð Gíslasn var mjög atkvæða- mikill í fyrri hálfleiknum þrátt fyrir að hann hefði mann á sér allan tímann. Er skotkraftur hans geysimikill og hvað eftir annað reif hann sig lausan og skoraði falleg mörk. Af 10 mörkum KA í fyrri hálfleik skoraði Alfreð 6. Liðin Þrátt fyrir að lið KR stæði uppi sem sigurvegari í leiknum verða þeir að gera betur ef þeir ætla sér að vinna bikarinn. Ljóst er að úrslitaleikurinn á milli Hauka og KR verður spennandi og skemmti- legur þar sem bæði liðin eru jöfn að styrkleika og allt getur gerst. Lið KR-inga getur verið mjög harðskeytt ef það vill svo við hafa. Það var ekki fyrr en síðari hluta leiksins sem þeir virkilega tóku vel á og þá sérstaklega í varnar- leiknum enda tókst þeim þá að að ná tveggja marka forystu. Leikur liðsins var oft á tíðum góður en datt niður á milli. Bestu menn liðsins voru Pétur í markinu sem varði þrjú vítaköst og svo Ólafur Lárusson í sóknarleiknum og Jó- ' hannes í vörninni. Þá átti Einar Vilhjálmsson ágætan leik i vörn. Besti maður KA var að venju Alfreð Gíslason. Tvímælalaust einn efnilegasti handknattleiks- maður á íslandi í dag. Lið KA lék leikinn vel, en hafði ekki efni á að láta öll vítin fara í súginn í svona leik. Það var liðinu greinileg blóðtaka að þeir Gunnar Gíslason og Þorleifur Ananíasson gátu ekki leikið með vegna meiðsla. Auk Alfreðs áttu Ármann og Magnús ágætan leik. Þá átti Friðjón góða spretti. Mörk KR: Ólafur Lárusson 5 (lv) Símon Unndórsson 4 (lv) Jóhannes Stefánsson 3, Björn Pét- ursson, Haukur Geirmundsson og Haukur Ottesen 2 mörk hver og Konráð Jónsson, Einar Vil- hjálmsson 1 mark. Mörk KA: Alfreð Gíslason 8 (lv) Ármann Sverrisson 4, Friðjón Jónsson 2, Magnús Birgisson 2 og Hermann og Jóhann 1 hvor. - ÞR. Handknattlelkur v-.. -■ ^ 12 þátttakendur fra íslandi á Ólympíu- leika fatlaðra A blaðamannafundi sem íþróttasamband fatlaðra boðaði til í gærdag var greint frá því að ákveðið hefði verið að senda 12 þátttakendur á sjöttu ólympíu- leika fatlaðra sem fram fara í borginni Arnhem og nágrenni í Hollandi 21. júní til 5. júlí í sumar. Er þetta í fyrsta sinn sem hópur frá íslandi verður meðal þátttakenda í þessum leikjum. Fram kom að mikill áhugi er á leikunum hjá þeim keppendum sem vaidir hafa verið til fararinn- ar. í leikum sem þessum er mjög mikil flokkaskipting sem fer eftir því hversu lömun fólksins er mikil. I sundkeppninni er um sex flokka að ræða, mesta vegalengd er 100 metrar. Svipuð flokkaskipt- ing er höfð í frjálsum íþróttum og öðrum greinum. Þá kom fram að blindir hlaupa eftir hljóðmerkjum eða á eftir fylgdarmanni með band. Oft á tíðum getur fatlað fólk gert hina ótrúlegustu hluti í íþróttum, og sem dæmi má nefna Kanadamann einn sem náð hefur þeim ótrúlega árangri að stökkva 1,96 metra í hástökki þó einfættur sé. Hoppar hann á fætinum eina 15 til 20 metra í atrennunni áður en hann stekkur. Pétur Einarsson fyrrum frjáls- íþróttamaður sem hefur starfað hér á landi með blindu ’ fólki í sambandi við íþróttir mun fara utan fyrir leikana til að kynna sér ýmis mál mótinu viðkomandi. Reiknað er með um 2000 þátt- takendum á leikana frá 42 þjóð- löndum. Þjálfarar og aðstoðarfólk verður um 600 talsins. íslensku þátttakendurnir sem allir hafa hlotið fötlun sina í slysum fyrir utan einn verða þessir: Edda Bergmann: 100 m bringu- . sund, 100 m baksund og 100 m skriðsund. Elsa Stefánsdóttir: borðtennis (H), Guðný Guðnadótt- ir: borðtennis (H), Arnór Péturs- son: lyftingar, spjótkast (H), Við- ar Guðnason: borðtennis (H), Hörður Barðdal: 100 m baksund, 100 m skriðsund, Guðjón Skúla- son: kúluvarp, kringlukast, Guð- mundur Gíslason: kúluvarp, spjótkast, kringlukast, borðtennis, Snæbjörn Þórðarson: 100 m bringusund, 100 m baksund, 100 m skriðsund, Sigurrós Karlsdóttir: borðtennis, 50 m bringusund, Si- gmar Maríusson: lyftingar, Jónas Oskarsson: 100 m baksund 100 m skriðsund lyftingar. Fararstjórn: Sveinn Áki Lúðvíksson, Páll B. Helgason læknir, Magnús H. Ólafsson sjúkraþjálfi, Pétur Einarsson, fulltr. blindra. Þjálfarar: Júlíus Arnarson, Erl- ingur Jóhannsson, Markús Ein- arsson. - þr. Liverpool og Arsenal leika í þriðja sinn LIVERPOOL og Arsenal þurfa að leika þriðja leikinn um það hvort liðið fer á Wembley í úrslitaleik enska bikarsins. Liðin gerðu jafntefli. 1 — 1, í gærkvöldi á Villa Park. Leikurinn var framlengdur en allt kom fyrir ekki. og liðin munu leika aftur í næstu viku. Liverpool náði for- ystunni í leiknum með marki á 51. minútu leiksins sem Fair- clough skoraði. en hann kom inn í lið Liverpool á síðustu stundu sem varamaður fyrir Jimmy Ross sem var meiddur. Aðeins 11 mínútum síðar jafnaði Alan Sunderland fyrir Ársenal. þegar honum tókst að vippa boltanum laglega yfir Clemence í markinu. West Ham í úrslit ANNARRAR deildar lið West Ham náði að sigra Everton 2—1. í æsispennandi leik i undanúrslit- um enska bikarsins. Það þurfti framlengingu til þess að ná fram úrslitum og litlu munaði að þriðja leikinn þyrfti til, því að aðeins tveimur mínútum fyrir leikslok tókst bakverðinum Frank Lampard að skora sigur- markið og mjög var þá dregið af leikmönnum beggja liða. Eftir að venjulegum leiktima lauk var staðan jöfn. ekkert mark hafði verið skorað. Strax á 2. mínútu framlengingarinnar skoraði svo Alan Devonshire og náði foryst- unni fyrir West Ham en Bob Latchford jafnaði metin 1 —1, en það dugði ekki til. West Ham er komið á Wembley í úrslitin. Armann lagði Val LIÐ Ármanns gerði sér litið fyrir og sigraði Val í Reykjavíkurmót- inu í knattspyrnu í gærkvöldi 1—0. Markið var skorað um miðjan síðari hálfleik. Lið Ármenninga er nú taplaust eftir tvo leiki, en þeir burstuðu Víkinga í fyrsta leik sínum í mótinu 3—0. - þr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.