Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 Ólafur Gíslason: Að bera fram plastdiskinn í nýlegum leiöara Morgunblaðs- ins var vikið að þeim harmleik, sem átt hefur sér stað undan- farna daga á lóð sendiráðs Perú í Havanha á Kúbu. Hér er vissu- lega um harmleik að ræða, þar sem þúsundir manna hengja sig utan í trjágreinar og þakskegg erlends sendiráðs til þess að biðjast ásjár erlendra aðila. En ég get ekki látið hjá líða að gera athugasemdir við skýringar Morgunblaðsins á þessum harm- leik. Fólkið á sendiráðslóð Perú í Havanna er vissulega fórnar- lömb illra afla, það hefur verið niðurlægt og það er hjálpar þurfi. En ég vil af eigin reynslu og þekkingu á málefnum Kúbu eindregið mótmæla því að þetta fólk sé fórnarlömb grimmra stjórnvalda í eigin landi. Því miður er þetta fólk sem ánetjast hefur áróðri og gylliboðum aug- lýsingameistara kapítalismans og selt sjálfsvitund sína fyrir þann plastdisk sem síðar skal vikið að. Fyrir rúmu ári síðan voru um 3000 pólitískir fangar látnir laus- ir á Kúbu. Þetta voru fangar sem á sínum tíma höfðu unnið skemmdarverk í framleiðslunni og reynt að skipuleggja fólk til andspyrnu gegn þjóðnýtingu og umbótum stjórnvalda á Kúbu í heilsugæslu, mennta- og húsnæð- ismálum. Þeir hafa nú gengið lausir á götum Havanna í um það bil ár. Þeim var frjálst að flytjast úr landi ef þeir vildu, og margir sóttu um það, þar sem þeir áttu erfitt með að samlagast samfélaginu fyrir utan fangelsin og hinn ameríski draumur sem mafían hafði ræktað svo dyggi- lega á Kúbu áður fyrr lifði ennþá í hjörtum þeirra. En hvað gerð- ist. Mannréttindapostulinn Jimmy Carter taldi þessum aumu handlöngurum imperíal- ismans á Kúbu ekki of gott að búa við sameignarkerfið og vildi ekki sjá þá í sínum högum. Guðseiginland var þeim lokað. Á sama tíma og þessum föng- um var gefið frelsi á Kúbu var kúbönskum útlögum í Florida og annars staðar veitt leyfi af kúb- önskum yfirvöldum til þess að heimsækja ættingja sína á Kúbu. Síðan hefur verið stöðugur straumur slíkra heimsókna til Kúbu, og þetta fólk sem hefur yfirgefið ættjörð sína í beiskju fyrir ameríska drauminn ber hann enn í brjósti sínu og níðir niður kúbönsku ríkisstjórnina við ættingja sína og aðra þar sem það fær því við komið. Ég var á Kúbu um síðastliðin áramót og átti þá m.a. tal við unglingspilt sem var í 2. heimsókn sinni frá Miami á árinu. Hann átti ekki orð til að lýsa því hvað kúbanir ættu ljóta bíla og hvað hús þeirra væru hrörleg. Það var nú eitthvað annað á Miami ... Áróðursmaskína heimsvalda- stefnunnar starfar enn á Kúbu, og jafnvel þar hefur hún átt sín fórnarlömb, þótt kúbanska þjóð- in njóti nú virðingar um allan heim fyrir hið gagnstæða. Öllu þessu fólki hefur verið frjálst að fara úr iandi, en hin sorglega staðreynd er sú að draumaríkið handan hafsins hef- ur hafnað þessum óskilgetnu afkvæmum sínum og vill á engan máta gangast við þeim. Kúba er fátækt land sem á við gífurlega efnahagsörðugleika að etja um þessar mundir sakir uppskerubrests og sjúkdóma sem komið hafa upp í sykurreyr og tóbaki. Sú öra uppbygging sem átt hefur sér stað í menntamál- um, heilbrigðismálum, byggingu húsnæðis og iðnaðaruppbyggingu hefur ekki getað orðið nema vegna mikilla fórna alls almenn- ings. Framboð á almennum neysluvörum hefur verið tak- markað og víðtæk skömmtun verið í gangi til þess að tryggja jafna dreifingu þess sem til er. Ég gekk sem ferðamaður frjáls um Havanna og Santa Clara í desember og janú. 1. og ég sá hvergi betlai a á gowm úti og varð einungis einu sinni fyrir því að vera Seðinn um að selja erlendan gjaldmiðil. Kúba er líklega eina landið í Ameríku þar sem niðurlæging betlsins hefur verið upprætt í öðrum myndum en þeim sem við sjáum á sendi- ráðslóðinni í Perú. Þá er ekki síður merkilegt að velta fyrir sér þeim óskum þessa fólks, að flytjast til Perú eða Venezúela, úr því að Guðseigin- land er því lokað. Ég hef því miður ekki nýlegar tölfræðilegar upplýsingar um Perú við hend- ina, en þar ríkir nú hernaðar- einræði, og í síðustu kosningum sem haldnar voru í landinu 1978 var 2 milljónum manna þar neitað um kosningarétt vegna ólæsis (íbúatala 16,5 milljónir 1977). Fátækrahverfin í útjöðr- um Lima hafa verið orðrómuð sem einhver mestu eymdarbæli sem fyrirfinnast á jarðríki, þar sem rottufaraldur hefur orðið þúsundum barna að bana á ári hverju. Það misrétti sem ríkir í Perú og Venezúela tilheyrir horf- inni tíð á Kúbu. Fólkið á sendi- ráðslóðinni í Havanna horfir nú til þessarar fortíðar með eftirsjá. Tveir bandarískir hagfræð- ingar, Richard J. Barnet og Ronald E. Múller hafa af skarp- skyggni lýst því hvernig auglýs- ingatækni auðvaldsins er beitt meðal fátækra þjóða í bók sinni Global Rcach — The Power of the Multinational Corporations (New York 1974). Þeir nefna þar m.a. rannsókn sem gerð var á viðbrögðum fátækustu stéttanna í Perú við bandaríska sjón- varpsþættinum Mission imposs- ible sem gerist í heimi hins bandaríska millistéttardraums. Skýringin á vinsældum þessa sjónvarpsþáttar meðal fátækl- inganna í Perú var talin sú, að þessi fjarlægi draumaheimur gæfi ímyndunarafli fólksins kraft til að brjótast út úr þeim föstu og órjúfanlegu viðjum stéttamismununar sem það bjó við og lifa sig inn í annan heim líkt og álfatrúin var draumur fátæka mannsins á íslandi hér áður fyrr. Það kom fram í umræddri könnun, að sjónvarps- efni eins og Mission impossible hefði marktæk áhrif á gildismat fólksins þannig að hefðbundin viðhorf til trúmála, hógværð í umgengni og afslappað viðmót vikju fyrir þeim spenningi og glamúr sem fylgir upphefðinni, ofbeldinu og ofneyslunni. Þeir sölumenn fjölþjóðafyrir- tækjanna, sem líta á flestar þjóðir heims sem mögulega neyt- endur á varningi sínum beita útsmognum sálfræðilegum að- ferðum til þess að ánetja fátækl- inga 3. heimsins bandaríska millistéttardraumnum um upp- hefð, ofbeldi og ofneyslu. Einn þeirra, Peter Drucker, segir: „Verksmiðjustúlkan eða af- greiðslustúlkan í Lima eða Bombay vill eiga varalit ... Það er ekkert sem gefur henni jafn mikið fyrir andvirði fáeinna centa." Jafnvel þótt hún sé að öllum líkindum vannærð og búi í heilsuspillandi húsnæði, þá er það samt sem áður varaliturinn sem kaupa skal. Þeir Barnet og Múller vitna síðan í annan sölu- mann, Albert Stiidsberg, sem í bók sinni Advertising Age skrif- aði, að „menn verði að losa sig Ólafur Gíslason undan hinum hefðbundnu hug- myndum um það sem ráði efnis- legum þörfum fátæka mannsins. Sálrænt gildi þess að hann eyði pening sínum í transistortæki getur fullnægt honum betur en þótt hann eyddi sama fé í nauðsynleg matvæli." Síðan halda þeir B og M áfram: „Þetta er athyglisverð kenning, sér- staklega þegar henni er beitt á land eins og Perú, þar sem talið er að umtalsverður hluti allra lifandi fæddra barna byrji líf sitt með alvarlegum og e.t.v. ólækn- anlegum heilaskemmdum vegna vannæringar. Með því að skapa þarfir fyrir hluti eins og transistortæki eða varaliti á meðan frumnæring- arþörfum er jafnvel verr sinnt en áður er verið að auka enn meira á eymd fjöldans í hinum fátæk- ari löndum. (I sumum þorpum í Perú má sjá þá átakanlegu sjón þar sem eru steinar, málaðir til að líkjast transistortækjum. Bændur sem ekki eru nægilega efnaðir til þess að eignast slík tæki bera þessa steina sem stöðutákn). Fjölþjóðafyrirtækin búa yfir því ótrúlega valdi sem felst í því að ákveða hvað veiti „sálræna fullnægju". Það er frá- leitt að tala um „kröfur neytand- ans“ þar sem neytandinn er algjörlega á valdi þeirrar tækni og sálarfræði sem auglýsinga- mennskan beitir fyrir sér. Hver verða félagsleg langtíma- áhrif þess að stunda auglýsingar og sölumennsku meðal fólks sem hefur innan við 200 dollara í tekjur á ári? Bóndinn sem stritar fyrir lífsviðurværinu á einhverj- um örreitisskika, íbúi stórborg- arslúmmsins sem dregur fram lífið á tilboðum dagsins á vinnu- markaðnum og sorphaugunum, hinn fjölmenni her farandverka- fólks í landbúnaði, þjónustufólks og láglaunafólks í iðnaði, allt þetta fólk fær mesta vitneskju sína um umheiminn í gegn um draumamyndir og slagorð aug- lýsiiigaheimsins. Og eitt af þeim boðum sem hvað skírast koma fram, er að hamingja, velgengni og það að vera hvítur á hörund er eitthvað sem er óaðskiljanlegt. í löndum þar sem aðrir kynþættir og kynblöndun er mikil eins og t.d. í Mexíkó eða Venezúela þar sem meginþorri þjóðarinnar ber sterk merki um indíánauppruna sinn eru það undantekningar- laust ljóst og bláeygt fólk sem er látið bjóða hið ljúfa líf til sölu á risaveggmyndum fjölþjóðafyrir- tækjanna. Ein af afleiðingum þessarar „white is beautiful / hvítur er fallegur" einstcfnu í auglýsingum er að þröngva van- metakennd inn í litaðar þjóðir, en það er einmitt grundvallar- atriði þegar gera þarf nýlendu þegnanna pólitískt óvirka. Það hefur verið grundvallar- atriði í stefnumótun þeirra þjóða, sem náð hafa langt í að aflétta eymd fjöldans og uppræta atvinnuleysi og misrétti að virkja fjöldann og vekja hann til sjálfsvitundar, bæði sem ein- staklinga og hluta af þjóðarheild. Fjöldi fólks sem hefur heimsótt lönd eins og Kína, Kúbu, Tanz- aníu eða Norðurvíetnam hefur orðið furðu lostið yfir þeirri einlægu hrifningu sem fólkið sýnir í þátttökunni í hinni nýju þjóðfélagslegu tilraun sem það er stöðugt minnt á. í þessum lönd- um er því stöðugt haldið að fólki að það eigi að trúa því að það sé „nýtt fólk" fyrir tilverknað eigin getu og framlags er geri þeim kleift að umbreyta þjóðfélaginu með þeim hætti sem ekki eru dæmi um áður í sögu mannsins. Ríkisvaldið í þessum löndum leggur í áróðri sínum megin- áherslu á persónulegt og þjóðlegt stolt. í þjóðfélögum þar sem hins vegar Áróðursmálaráðuneytið er í höndum auglýsingafyrirtækj- anna er beitt gagnstæðum að- ferðum. Árangurinn sýnir sig í eyðileggingu á þjóðlegri og stað- bundinni menningarhefð og menningu um leið og fólkið er gert háð erlendri menningu. Sál- fræðingurinn Michael Maccoby hefur sagt frá því er hann heimsótti leirkerasmið í mexík- önsku sveitaþorpi, sem fram- leiddi undrafagra handmálaða diska af sömu gerð og seldir eru dýrum dómum á verslunargötum New Yorkborgar. Gesti sínum til heiðurs framreiddi leirkerasmið- urinn hádegisverð handa honum á plastdiski frá Woolworths." Hér lýkur tilvitnun í bók þeirra Barnet’s og Múllers. Kúb- anarnir á sendiráðslóð Perú í Havanna hafa kosið plastdisk- inn. Mér virðist að leiðarinn í Morgunblaðinu hinn 9. apríl. sl. hafi verið borinn fram á slíkum diski líka, og er þá eftir að vita hvort þjóðin tekur hann fyrir góðan málm. Ölafur Gíslason Fidel ávarpar fjöldann. Athugasemd ritstj.: Ath. ritstj.: Ólafi Gíslasyni verður í grein sinni tíðrætt um auglýsinga- skrum og áróður sem eðlilegt er, þegar fjallað er um Kúbu, því að ekkert land hafa kommúnistar notað meira í auglýsingaskyni síðustu ár. Nú er talið að Sovét- menn greiði 2,8 milljónir Banda- ríkjadollara til ríkisstjórnar Fidels Castro á dag, svo að hún geti fleytt sér áfram. Á Kúbu hafa menn ekki tæki- færi til að láta í ljós hug sinn til stjórnvalda með atkvæði sínu í kosningum. Þeir verða því að gera það með öðrum hætti. Á 21 árs valdaferli Fidels Castro hef- ur um ein milljón manna flúið Kúbu. Stjórn landsins kallar þá, sem sækjast eftir að komast þaðan á brott „afætur, letingja og glæpamenn" og Ólafur Gíslason víkur að þeim í svipuð- um dúr og bætir því við að þeir séu „aumir handlangarar imp- eríalismans". Fram hefur komið í fréttum að meira en helmingur þeirra u.þ.b. 10.000, sem leitað hafa hælis á lóð sendiráðs Perú í Havana eru undir 30 ára aldri. Þetta unga fólk hefur sem sé verið alið upp í „dýrð“ sósíalism- ans. Síðustu atburðir á Kúbu svipta kommúnista mikilvægri skrautfjöður, sem þeir hafa ekki síst veifað framan í þriðja heim- inn. Vonlegt er, að þeir reyni að leita annarra skýringa á þessum atburðum en í meininu sjálfu, þjóðfélagsskipaninni á eyjunni. Það er hins vegar alltof einföld skýring á fjöldaflóttanum frá Kúbu, að „auglýsingameistarar kapítalismans" hafi sigrað Fidel Castro og sovéska rúblusjóðinn hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.