Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APR'ÍL 1980 Beinist þá áhugi þinn að dýra- fræðinni, væna mín? Maturinn er ekki alveg til, — ég hef verið að bóna gólfin í allan dag! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Að loknu spili er oft spjallað um hvað gerst hefði ef einhver við borðið hefði gert eitthvað annað en hann gerði í raun. Og þá geta uppgötvast furðulegir möguleikar spilsins. Norður gaf, norður-suður á hættu. Norður S. KD95 H. D105 T. ÁK102 L. ÁK Vestur Austur S. G10832 S. Á6 H. 43 H. KG972 T. G8 T. D764 L. 10542 L. 83 ♦ — Og muna nú — ekki kyssa næstu tvo tímana! • • Hitinn í Orfirisey Heitt vatn fyrir hitakerfi Reykjavíkur Eðlilegt er að ætla að mikið af mjög heitu vatni og góðu vatni fyrir Hitaveitu Reykjavíkur sé að finna í Örfirisey. Hagnaðurinn er auðséður af nýtingu þessa vatns þar sem Örfirisey er svo að segja rétt við Vestur-Reykjavík, sem nú er verið að byggja upp, en hinar stóru, víðu aðflutningspípur, sem þarf að leggja, þegar vatnið er fengið ofan úr sveit, eru mjög kostnaðarsamar, svo hér er um margra milljóna króna sparnað að ræða fyrir skattborgara Reykja- víkur. Hér áður fyrr á árunum rauk heit vatnsgufa upp úr suðvestur- horni Örfiriseyjar, og hét þá Reykjarnes. Þar var hola niður í nesið og steinarnir heitir í kring. Seinna var svo farið að keyra grjót austan úr Öskjuhlíð — og það gert í mörg ár — út í Örfirisey og þar gerðar götur og torg. Líklega hefur þá grjót dottið ofan í holugat og stíflað útstreymið. Ástæðulaust er að ætla að hinn mikli hiti hafi stungið af, þó að vatnsgufan sé hætt að rjúka. Nú, þegar allt eldsneyti er svo kostnaðarsamt, þyrfti sem allra fyrst að senda stóran, fljótvirkan, góðan bor út í Örfirisey og bora eftir heitu vatni fyrir hitakerfi Reykjavíkur — það myndi vafalít- ið gefa góða raun. Nestor. • Hvers vegna ekki að syngja? Þennan greinarstúf birtir þú fyrir mig eitt sinn, en langt er síðan. Þar sem ég hef ekki orðið neinna breytinga vör í þessu efni, langar mig að biðja þig vinsam- lega að endurtaka hann. Oft hef ég velt því fyrir mér, er ég hef verið við jarðarfarir, hvers Gömul mynd af örfirisey og Reykjavik frá 1820. Grandinn ekki upp úr, og hefur gr einilega verið háflæði. Suður S. 74 H. Á86 T. 953 L. DG976 Yfir opnun norðurs á einum tígli sagði austur eitt hjarta en síðan varð suður sagnhafi á þrem gröndum. Út kom hjartafjarki, tían frá blindum og austur fékk að eiga slaginn á gosann. Hann skipti í lauf, sagnhafi tók bæði á ás og kóng, spilaði spaðakóngnum og þannig reyndust níu slagir auð- fengnir og í reynd kom sá tíundi á tígul. Suður benti á, að hefði austur spilað hjartakóngnum eftir fyrsta slaginn þá hefði orðið erfitt að vinna spilið. Þá færi hjartaásinn of snemma og ekki væri fyrir hendi innkoma til að taka slagina, sem væru nauðsynlegir á laufin. Austur sagði það rétt vera en bætt við að suður hefði þá getað klórað sig áfram með því að spila lágum tígli og láta tíuna frá blindum, léti vestur lágt. Austur yrði þá að gefa slaginn því annars yrði nían innkomuspilið mikilvæga eftir að gosinn kæmi næst í ás eða kóng. Þannig yrði tían sjöundi slagurinn og fá mætti slagina tvo, sem vantaði með því að spila tvisvar lágum spaða frá blindum svo, að austur fengi ekki háspil undir ásinn. Þannig mátti sem sé vinna spilið en niðurstaðan varð, að slíkur spilamáti væri heldur of erfiður til, að umræðan gæti talist marktæk. Lcikfélag Akureyrar frumsýnir á föstudag: BEÐIÐ EFTIR GODOT Akurcyri. 15. april Leikfélag Akureyrar frumsýnir á föstudagskvöld, sjónleikinn „Beðið eftir Godot“ eftir írska leikritahöf- undinn Samuel Becket undir leik- stjórn Odds Björnssonar, leikhús- stjóra. íslensk þýðing er eftir Indriða G. Þorsteinsson. Leikendur eru 5: Árni Tryggvason, sem leikur scm gestur, Bjarni Steingrímsson, Árni Tryggvason leikur sem gestur með L.A. Laurent Jónsson (7 ára), Theódór Júlíusson og Viðar Eggertsson. Þetta er fimmta verkefni L.A. á þessu starfsári og jafnframt hið síðasta. Tvö verkefni hafa verið í æfingu samtímis að undanförnu í fyrsta sinn í sögu félagsirs, og má kalla það gjörnýtingu á starfslið- inu. I tilefni þessarar væntanlegu frumsýningar átti fréttamaður Mbl. stutt samtal við leikstjórann, Odd Björnsson. — Hve lengi hafa æfingar staðið yfir? — Undirbúningur og æfingar hafa nú staðið samfellt í tvo mánuði, en vitanlega er miklu lengra síðan farið var fyrst að undirbúa sýninguna. Magnús Tóm- asson gerði sviðsmynd, og ljósa- meistari er Ingvar Björnsson, en hans starf er mjög vandasamt og á hann reynir mjög mikið í sýning- unni. Ég er sérstaklega feginn að hafa fengið Árna Tryggvason til að leika í sýningunni, ég held, að ég hefði ekki lagt í að fara upp með verkið með neinum öðrum, þó að ég hefði átt völ á því. — Hvernig hafa æfingarnar gengið? — Þetta leíkrit er mjög við- Frá vinstri: Árni Tryggvason, Bjarni Steingrímsson, Viðar Eggertsson og Theódór Júlíusson. kvæmt í æfingu, og það þarf að nálgast það af mikilli gætni og varfærni. Það þarf að finna hinn rétta tón, sannfærandi grunn. Ég vona, að það hafi tekist. Þessi tilfinning þarf að nást með náinni samvinnu við leikhópinn, og á það hefur ekkert skort í þessum hópi leikara. Þeir Árni og Bjarni eru að heita má allan tímann á sviðinu, svo að mikið reynir á þá. — Hvernig segir þér hugur um viðtökurnar? — Tíminn hefur unnið með þessu verki, allt frá því það kom fram árið 1953. Það hefur gengið mjög lengi í ýmsum erlendum leikhúsum, t.a.m. í Dramaten í Stokkhólmi. Leikfélag Reykjavíkur sýndi það fyrir réttum 20 árum með þeim Brynjólfi Jóhannessyni og Árna Tryggvasyni. Viðtökur þá voru ágætar, enda sýningin eftir- minnileg. Höfundurinn kallar verkið tragí-kómedíu, og þó að það sé oft flokkað sem absúrdverk eða fáránleikaverk, vil ég kalla það harð-raunsætt. Kímnin er mjög í anda gömlu þöglu kvikmyndanna með ýmsum uppátækjum og skringilegri umræðu, sem er speki og fyndni í senn. — Verður leikurinn sýndur víðar en hér á Akureyri? — Það hafa verið ákveðnar 3 sýningar í Iðnó á listahátíðinni í Reykjavík í sumar, en um aðrar sýningar hefur nú ekkert verið ákveðið enn. Sv. P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.