Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRIL 1981 Hækkar áburÖur um 85% í byrjun maí? Áburrtarvcrksmiðja ríkisins hef- ur íariA fram á 85% hækkun áhurðar ng hefur rikisstjórnin málið til umfjollunar. Pálmi Jóns- son, landhúnaðarráðherra. saijði í KaT. að þessi heiðni yrði löjtð fyrir verðlaifsráð til athuuunar, cn síð- an tæki rikisstjórnin ákvörðun um máiið upp úr mánaðamótum. Hax- deild Seðlahankans «k Ujóðhaifs- stofnun fóru yfir tilliiKur Áhurðar- verksmiðjunnar áður en beiðnin var send ríkisstjórninni «k stað- festa þessar stofnanir mat stjórn- ar Áhurðarverksmiðjunnar um að þiírf sc 85% hækkunar. Pálmi sagði, að ástæður þessarar miklu hækkunarbeiðni væru marg- ar. í fyrra hefði verksmiðjan beðið um 53,5% hækkun, en fengið 46% hækkun. Þessi niðurskurður á beiðni fyrirtækisins um 7,5% hefði valdið nokkrum erfiðleikum í rekstri verksmiðjunnar. Orku- skömmtun tvo síðastliðna vetur hefði komið illa við rekstur verk- smiðjunnar. Innfluttur áburður og áburðarefni hefðu hækkað um 25% í erlendri mynt síðan í fyrra og ofan á það bættist gengissig, sem orðið hefði frá því áburðarverð var síðast ákveðið. Loks væri að nefna al- menna launa- og verðlagsþróun hér innanlands. „Sala á áburði fer fram að langmestum hluta á vorin og verð á áburði hefur verið ákveðið einu sinni á ári. Áburðarverksmiðjan hefur verið rekin þannig, að sala á áburði hefur staðið undir rekstrin- um og yfirleitt hefur það dugað til, að endar hafa náð saman. Af þeim ástæðum, sem ég hef talið upp eru erfiðleikarnir í rekstrinum meiri nú en áður og því er talin þörf á svona mikilli áburðarhækkun," sagði Pálmi Jónsson. Tilboð starfsfólks SR í Siglufírði: Án launa í viku í sumar svo en g- inn missi vinnu Síldarverksmiðjur ríkisins sógðu upp 38 manns af starfsliði fyrirta'kisins á Siglufirði með þriggja mánaða uppsagnar- fresti 1. febrúar sl. Uppsagnirn- ar hefðu átt að koma til fram- kvaunda 1. maí, en fyrir nokkr- um vikum tilkynnti stjórn SR, að 30 af þessum hópi yrðu cndurráðnir án þess að til at- vinnumissis kæmi. Ilinir átta eiga hins vegar að fá vinnu þegar loðnubræðsla byrjar í verksmiðjunni. e.t.v. um miðjan júlí. Starfsmenn SR hafa nú ritað stjórn ríkisverksmiðjanna bréf þar sem þeir bjóðast til að bæta einni launalausri viku við sumar- leyfi sín á tímabilinu frá 1. maí til 1. ágúst. Á móti endurráði SR átt-menningana. Er þarna um 70 manns að ræða og iaun þess hóps í eina viku samsvara nokkurn veginn launum þeirra átta, sem ella missa vinnuna 1. mai. Kolbeinn Friðbjarnason, for- maður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, sagði í samtali við Mbl., að með þessu vildi fóikið sýna samstöðu og vera launalaust í nokkra daga til að enginn þyrfti að missa vinnuna. Hins vegar sagði Kolbeinn, að ef loðnu- bræðsla yrði ekki á Siglufirði nema fram í desember mætti búast við uppsögnum starfsfólks og jafnvel enn stærra vandamáli en við hefði verið að glíma í ár. Tvennir tón- leikar í dag BANDARÍSKA songsveitin „The Young Ambassad«rs“ hélt sina fyrstu tónleika hér á landi í Iláskólabiói í gærkvöldi. Ilópur- inn var með létta og skemmtilega dagskrá ug gerði hann rnikla lukku hjá áhorfendum. I dag heldur söngsveitin tvenna tónleika, klukkan 13.30 í íþrótta- húsinu á Selfossi og klukkan 21 í íþróttahúsinu í Keflavík. Meðfylgjandi mynd tók RAX í Háskólabíói í gærkvöldi. Mats Wibe Lund ásamt syni sínum Christopher og kettinum Buster. Ekki er annað að sjá en að þeir feðgar séu sáttir við köttinn. sem greinilega er ekki af smærri sortinni. þó varla geti hann torgað heilli fermingarveislu! Lióma. Mbi. RAX. Kötturinn komst í krásirnar... UPP IIEFUR komist um óheimila lánastarfsemi sem ástunduð hefur verið á Póstgfróstofunni, en aðild að málinu eiga tveir menn, undir- maður og yfirmaður, sem þar hafa starfað. Lánastarfsemin var í því fólgin að umræddir menn lánuðu sjálfum sér fé, en upp um þetta athæfi komst við endurskoðun, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Jóni Skúlasyni póst- og símamálastjóra. Samkvæmt upp- lýsingum Jóns var upphæðin sem um er að ræða í kringum 100 þúsund krónur þegar mest var, en peningar þessir hafa verið endur- greiddir með vöxtum. Mál þetta mun ekki hafa gengið lengi þegar upp um það komst að því er Jón taldi, rúmt ár það sem lengst var. Menn þessir hafa sagt upp og eru hættir störfum. Aðspurður kvaðst Jón ekki telja að mál þetta yrði kært og mun því lokið af hálfu Pósts og síma. Viktor Korchnoi i fjolteflinu við félagsmenn TR. Ljóxm. Mbi.ói.K.M. Viktor Korchnoi vill tef la á næsta Reykjavíkurmóti „ÞEIR BUÐU mér að tefla á alþjóðlegu móti í Reýkjavik á næsta ári og ég þáði það boð,“ sagði Viktor Korchnoi, er Mbl. ræddi við hann eftir fund hans og stjórnarmanna Skáksambands tslands að morgni sumardagsins fyrsta. Viktor Korchnoi hélt utan aftur í gærmorgun, til V-býzka- lands. en þar teflir hann á næstunni á sérstöku æfingamóti i Bad Kissingen fyrir einvigi hans og Karpovs i haust. Meðal keppenda á þessu móti verða Hort og Seirawan, sem verður ásamt Stean í hópi aðstoðarmanna Korchnois i heimsmeistaraeinviginu. Á sumardaginn fyrsta tefldi síður fyrir þær undirtektir, sem Korchnoi fjöltefli við 35 félags- menn Taflfélags Reykjavíkur. Hann vann 31 skák, gerði jafn- tefli við Stefán Aðalsteinsson, Braga Halldórsson og Þröst Þór- hallsson og tapaði einu skákinni í þessari Islandsferð, fyrir Erl- ingi Þorsteinssyni. Kvöldið áður tefldi hann fjöltefli við 30 bankamenn; vann 26 skákir og gerði jafntefli við Björgvin Olafsson, Hilmar Karlsson, Jó- hann Örn Sigurjónsson og Vil- hjájm Þ. Pálsson. Kvöldi sumardagsins fyrsta eyddi Korchnoi í kvöldverðar- boði Taflfélags Reykjavíkur, sem gaf honum til minja Islandsbók, skrautritaða af Erlu Axelsdótt- ur, eiginkonu Guðfinns Kjart- anssonar, formanns TR. Guðfinnur Kjartansson sagði í samtali við Mbl. í gær, að Korchnoi hefði við brottförina lýst mikilli ánægju með þessa heimsókn og verið sérstaklega þakklátur fyrir þau samtöl, sem hann átti við ráðamenn, og ekki hans málflutningur fékk. „Korchnoi gerði okkur ítarlega grein fyrir málum sínum og fjölskyldu sinnar; baráttu hans fyrir frelsi þeirra og þeim undir- tektum, sem hann hefur fengið í öðrum iöndum og hjá skáksam- böndum," sagði Þorsteinn Þor- steinsson, varaforseti Skáksam- bands íslands, er Mbl. ræddi við hann í gær um fund stjórnar SÍ og Korchnois. „Hann lagði í samtali okkar mikla áherzlu á það, að Friðrik Ólafsson gæti manna bezt hjálpað honum og fjölskyldu hans. Við sögðum honum að mál hans yrði form- lega tekið fyrir á fundi hjá okkur 30. maí og að hann skyldi ekkert efast um okkar stuðning við hann,“ sagði Þorsteinn. „Við sögðum honum ennfremur, að það væri vilji allra stjórnar- manna að bjóða honum að tefla á Reykjavíkurmótinu í febrúar, marz á næsta ári og hann sagðist hafa mikinn áhuga á því, hver svo sem úrslit heimsmeist- araeinvígisins yrðu. EKKI MUN það algengt að köttum sé boðið I fermingar- veislur, en þó getur gerst að þeir bjóði sér sjálfir. bað gerði kötturinn Buster. en eigandi hans, Mats Wibe Lund. hélt fermingarveislu á sumardaginn fyrsta. Kötturinn mun hafa verið orð- inn úrkula vonar um að verða boðinn í veisluna, svo hann tók það ráð að skjótast inn í bílskúr þar sem allur maturinn var geymdur og tók þannig forskot á sæluna, sé við aðra gesti miðað. Eigendum kattarins tókst að bæta úr spjöllum þeim sem kötturinn olli, svo kötturinn hef- ur minna á samviskunni en á horfðist í upphafi. „Skemmdirnar voru ekki slíkar að ástæða væri til að kveðja fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins á vettvang," sagði Mats Wibe Lund í spjalli við Morgunblaðið. „En kötturinn er enn á lífi og í miklu uppáhaldi," sagði Mats og hló. Starfsfólki Flugleiða fækkaði um 350 í fyrra „Á ÁRINU 1980 fækkaði starfs- fólki félagsins um nærri 25% eða um 350 manns. sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða á aðal- fundinum í gær. „bað var vissulega mikil blóðtaka fyrir félagið að sjá á eftir svo mörgu góðu starfsfólki. sem raun varð á. En vegna þess samdráttar sem nú er staðreynd hefur verið óhjákvæmilegt að gripa til þeirra ráða að fækka markvisst starfsfólki. Sem betur fer þá hefur flestu ef ekki öllu þessu starfsfólki tekist að finna sér störf annarsstað- Ég hefi áður getið um að svo farsællega hefur tekist til að verk- efni erlendis hafa skapast sem gert hafa félaginu það kleift að halda í starfi tæknilega sérþjálfuðu starfs- fólki. Ég gat um það áðan að verulegur kostnaður hefði fylgt því að fækka starfsfólki og þá sérstaklega vegna greiðslna sem gengið hafa til starfs- fólksins samkvæmt samningsbundn- um réttindum við uppsagnir. Félagið hefur í dag á að skipa vel þjálfuðu starfsliði sem er fyllilega fært um að annast þau verkefni sem við er að fást á hverjum tíma. Mikill samhugur hefur almennt verið með starfsfólkinu og er mér ljúft að geta þess að það hefur lagt sig mjög fram um að stuðla að velgengni félagsins á þeim erfiðleikatímum sem við hefur verið að glíma á undanförnum misserum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.