Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 20
Það var mikið líf ok fjör i kringum rásmorkin i Hlíðarfjalli enda keppendur marjfir. Fjögur hundruð börn keppa nú á Andrésar andar-leikunum á skíðum Sumardagurinn fyrsti rann upp bjartur og fagur á Akureyri. Bærinn skartaöi sínu fegursta, Pollurinn rennisléttur og fjallasýnin var tignarleg í sólinni. Rétt rúmlega níu um morguninn mátti sjá hvern langferöa- bílinn af öörum leggja leið sína í skíðaparadís þeirra noröanmanna, Hlíöarfjall. Fjögur hundruö keppendur víðsvegar aö af landinu voru mættir á Akureyri til þess aö taka þátt í 6. Andrésar-andar-leikunum á skíöum sem hófust þennan dag. Veður í Hlíöarfjalli gat varla verið betra. Glamp- andi sól og logn. Eins ákjósanlegt keppnisveður og hugsast gat. Örlítill þokuslæöingur var á toppi fjallsins fyrst um morguninn en hann hvarf fljótt. Þennan fyrsta keppnisdag var keppt í stórsvigi 7, 8 og 9 ára í svokallaðri Hjallabraut og í svigi 11 og 12 ára viö Strýtu um morguninn, en eftir hádegi fór fram stór- svig 10 ára. Þaö var greinilega mikill hugur í hinum ungu kepp- endum, þeir voru einbeittir á svipinn þar sem þeir tóku fram skíðaútbúnaö sinn og geröu sig klára fyrir keppn- ina. Elstu keppendur á Andrésar andar-leikunum eru 12 ára og þeir yngstu reyndust vera 4 ára að þessu sinni. Flest haföi unga fólkiö undirbúiö sig vel fyrir keppnina og nú var stóra stundin aö renna upp. Sum þeirra voru nú aö taka þátt í sínu fyrsta stórmóti. Þaö mátti lesa spenning út úr andlitum flestra. Skíða- mót Andrésar er fjölmenn- asta skíöamót sem fram fer hér á landi. Mótseldurinn tendraður fyrir utan Akureyrarkirkju við setningarat- höfnina. Ljósm. Þórarinn. Einbeitintnn skein út úr andlitum unga fólksins i keppninni. Hér er einn albúinn i rásmarkinu. Það var með ólíkindum hversu mikla hæfni unga kynslóðin sýndi á skíðunum. „Erfitt að taka litlar beygjur“ — segir Pálmar Pét- ursson sem byrjaði á skíðum 2 ára HANN ER ekki hár í loftinu hann Pálmar Pétursson úr Reykjavík. Enda er hann ekki nema sjö ára gamall. En máltækið segir: „Margur er knár þótt hann sé srnár" og það á svo sannarlega vel við hann Pálmar. Þrátt fyrir ungan aldur rennir hann sér svo fimlega á skíðum niður brekkurn- ar að margur fullorðinn gæti öfundað hann. Hann var ekkert nema öryggið sjálft í stórsvigs- keppninni í flokki sjö ára. Fór af miklum krafti í gegnum öll portin í brautinni og keyrði á fullri ferð. Pálmar varð í fjórða sæti í sínum flokki. Hann var nú frekar feim- inn og hlédrægur er blaðamaður Mbl. fór að spjalla við hann enda óvanur þeim með öllu. — Þetta er nú í fyrsta skipti sem ég keppi hér á Andrésar andar-leikunum. En mér fannst þetta mjög skemmtilegt. Stórsvig- ið er líka uppáhaldsgreinin mín. Svigið er ekki eins skemmtilegt. Það er svo erfitt að taka litlar beygjur. Ég ætla nú samt að keppa í sviginu. En ég held að mér komi ekki til með að ganga eins vel þar. Það er svolítið harðfenni í brautinni, en það var líka það eina sem gerði mér erfitt fyrir, sagði þessi ungi skíðamaður. Pálmar, sem er í skíðadeild Ármanns, sagðist fara á skíði í Bláfjöllin oftast um helgar. Hann byrjaði á skíðum tveggja ára gamall. Hann var ákveðinn í því að halda áfram að æfa sig á skíðum og keppa áfram. „Mér finnst þetta vera mjög skemmtilegt mót,“ sagði Páimar Pétursson frá Reykjavik. Skipulag eins og best verður Það eru sjálfsagt fæstir sem gera sér í hugarlund hversu mikið starfslið þarf til að framkvæma keppni sem Andrésar andar- leikana. Um 100 manns störfuðu í Hlíðarfjalli fyrsta dag mótsins. Mikill tími hafði farið í undirbún- ingsstarf. Það var athyglisvert hversu allt gekk vel fyrir sig. Allt skipulag gekk eins vel fyrir sig og nokkur kostur var. Átti það jafnt við keppnina sjálfa og það sem var þar fyrir utan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.