Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981 HLAÐVARPINN MANNASIÐIR Á fjorur okkar IIIaAvcrpinKa hcfur rckið merkilcKa bok, scm „Rekkjusiðir“ hcitir ok Kcfin cr út í Rcykjavík 1945. Hcfur monnum líklcxa þá þótt þcim sióum mcð þjóóinni mjóK áhóta- vant, hvað sem satft verður um þá nú. I>að skal þó tckið fram, að ckki cr um kcnnslu i hólfimi í þcssari átca'tu hók aó ra'óa, hcld- ur cr ttcrt K<>ólátIcKt Krín að hcKÓan manna þar til aó slíkum æfinKum kcmur. Samkvamt þcim hcimildum scm Hlaðvarp- inn hcfur aflaó scr mun það vcra óllu mikilva'Kara ok munum vió því hirta nokkrar Klcfsur úr hókinni þcim til lcióhcininKa, scm tclja sík þurfa á þcim að halda: „En kynleKast allra ævintýra er þó það að vera lokaður inni í svefnherherKÍ með annarri mann- eskju af hinu kyninu, ok verða samkvæmt samninKÍ að hátta hjá henni, sofa hjá henni ok vakna hjá henni á hverjum einasta sólar- hrinK, hver veit hvað lenKÍ. Þetta Kristmann Guðmundsson þýddi „Rekkjusiði“. Ljósmynd Mbl. Rax. cndursaKði hina þórfu bók Rekkjusiðir er kallað „hjónabar.d". Ef til vill hefur þú þegar lent í því. Að minnsta kosti Ketur það skollið á, þe^ar minnst varir." „Enda þótt konan sé útmökuð í smyrslaslepju ok vaninhyrnd af krullupinnum ok eÍKÍnmaðurinn leKK> frá sér alla KÓða siði um leið ok hann fer úr jakkanum, verður maður að komast einhvernveKÍnn í KeKnum nóttina. Bezt er náttúr- le^a að senja sem allra minnst. Vér höfum Kert stutta áætlun um nokkur samtalsefni, sem ættu að Keta orðið báðum hjónunum til ánætyu. Þess ber þó að K*la, að náh'Ka hvað saklaust hjal sem er Ketur leitt til rifrildis ok vand- ræða. SérstakleKa skaltu varast að minnast einu orði á hattakaup ok matarreikninga konunnar þinnar, ef þú vilt, að vel fari. Þegar þið eruð búin að tala góða stund um vini ykkar og vanda- menn á þann hátt, sem ráðlagt er hér að framan, (karlmennirnir rígmontnir skíthælar, kvenfólkið menningarlausar frenjur og frekjudósir), þá skaltu búa konuna þína undir svefninn með því að minnast lítillega á starf þitt og áhugamál. Það ætti að duga undir öllum venjulegum krLngumstæð- um og ekki taka langan tíma. En sé um svefnleysi að ræða, verð- urðu að hafa þig upp í að tala við hana um bókmenntir og listir; það er hundrað prósent öruggt." „Það eru bara söngfuglarnir, þessir litlu, fiðruðu vinir manns- ins, sem hoppa út úr hreiðri sínu á morgnana syngjandi gleðisöngva. En hin æðri dýr, svo sem karl- menn og kvenfólk, eru einmitt í allra versta ham á morgnana, geðill og meinfýsin. í Frakklandi hafa mæðurnar þann sið að færa sonum sínum stóran bolla, fullari af súkkulaði, í rúmið á morgnana, til þess að mýkja skap þeirra og búa þá undir daginn. Vér mundum nú fremur ráðleggja whisky og sódavatn. Hafi móðir þó látið undir höfuð leggjast að gefa þér þennan góða og hressandi drykk, meðan þú varst drengur, þá skaitu venja konuna þína á að færa þér hann í rúmið á morgnana. Þegar þú ert búinn að tæma glasið, muntu syngja eins og fugl á kvisti fram yfir morgunverð. Og þótt þú verðir eitthvað svolítið linur á skrifstof- unni á eftir, gerir það minna tii.“ Það er annars gott að temja sér að fara ekki á fætur fyrr en um hádegisbilið, því morgnar eru yfir- leitt leiðinlegir." Bókin er yfirfull af ágætum ráðleggingum og .heilræðum sem þessum, en vegna þrengsla verður að fara hratt yfir sögu og munum við láta nægja til viðbótar því, sem komið er, að birta lokakafla bókarinnar: „Hvort á að segja síðasta orðið, eiginmaðurinn eða konan? — Því er fljótsvarað: Hvorugt! Þau hvísla bara hvort í annars eyra: Góða nótt, stelpa! Góða nótt, drengur! — Yfirleitt er viturlegt að segja sem allra minnst í svefnherberginu, — þar eiga verkin að tala.“ Það var rithöfundurinn Krist- mann Guðmundsson, sem þýddi og endursagði þessa bók eftir amer- ískri bók, „Bad Manners" og því leitaði Hlaðvarpinn til Krist- manns og bað hann segja sér ofurlítið um bókina. „Ég vil nú sem minnst um þessa bók tala, fólk hefur alltaf verið að bendla mig við kynlíf og margir telja að ég hafi þýtt þessa bók vegna áhuga míns á því. Það er hins vegar alrangt, í þessari bók er ekkert um kynlíf og því vil ég alls ekki flíka, það er einkamál manna. Ég þýddi þessa bók fyrir Ragnar Jónsson, eiginlega út úr neyð. Þetta var á stríðstímunum og þá var búið að loka á allar greiðslur til mín fyrir þýðingar á verkum mínum erlendis og mig vantaði hreiniega peninga. Þetta var am- erísk bók, sem hét „Bad Manners", en hún höfðaði nær eingöngu til Bandaríkjamanna, svo ég skrifaði hana nær eingöngu sjálfur. Hún olli talsverðu umtali og seldist upp, eftir að Ragnar Jónsson hafði komið þeirri sögu á kreik að búið væri að banna hana.“ Hefur ekki meira verið gert af því að þýða eftir þig, en að þú hafi þýtt eftir aðra? „Jú, það er alveg rétt, bækur eftir mig hafa verið þýddar á um 30 tungumál, en það er alltaf einhverju stolið líka, sem manni er meira og minna ókunnugt um. Mest hefur verið þýtt eftir mig á asíu-mál og í austantjaldslöndun- um. Til dæmis hefur talsvert verið þýtt eftir mig á kínversku og japönsku, en þar er erfitt að fá þá til að borga. í Júgóslavíu hafa verið þýddar eftir mig bækur á 4 tungumál, meðal annars á Svart- fellingamál. Bæði Júgóslavar og Tékkar sendu mér spurningalista, þegar til stóð að þýða eftir mig. Þá var ég meðal annars spurður að því hvort ég væri kommúnisti. Ég svaraði því til að ég hataði kommúnista og fékk þá það svar að það væri þeim andskotans sama um. Það var líka talsvert þýtt eftir mig í Þýzkalandi, en nazistarnir bönnuðu bækurnar mínar vegna þess að ég vildi ekki fara niður eftir til að halda fyrirlestra fyrir þá. Annars er það verst nú að nær allir þýðendur eru kommúnistar og því fá varla aðrir en flokks- bræður náð fyrir augum þeirra," sagði Kristmann. Að lokum þykir mér við hæfi að segja litla sögu af þeim Krist- manni og Jóhannesi úr Kötlum, en þeir voru kunningjar og kváðust oft á. Eitt sinn hittust þeir í fjölmenni og kastaði Jóhannes þá þessari stöku fram: Lít ég einn sem list kann, löngum hafa þær kysst hann, Kristmann. Kristmann svaraði að bragði: Einnig þó vér ötlum að þær fari úr pjötlum í Kötlum. Það er hægt að borða annað en soðinn fisk og ofn- steikt lambalæri „Á undaníörnum árum hefur áhugi fólks hér á landi á mat og matargcrö, stórlega aukist. Fjölbreyttara vöruval og hin tíðu ferðalög íslendinga er- lendis, eiga stóran þátt í þess- um áhuga. Eiginmenn eru orðnir virkari þátttakendur í matargerð en áður tíðkaðist og fleira mætti tína til. Við eigum einnig völ á stórkost- legu hráefni til matargerðar og sjálfsagt er að nýta sér það til fullnustu. Með tilkomu þessa blaðs, er gerð tilraun til þess að mæta þörf sem við höldum að sé fyrir hendi, ekki eingöngu fyrir upp- skriftum um mat, heldur líka fyrir öllu sem snertir mat, matargerð og borðhald, eða er á einhvern hátt tengt eldhúsi og borðstofu. Ætlunin er, að ef vel gengur, muni blað þetta koma út fjór- um sinnum á ári. Við munum fá góðborgara til þess að sýna í máíi og myndum hvernig þeir koma fram sem gestgjafar. Veitingahús verða kynnt og matvörufyrirtæki. Kennt verður að úrbeina kjöt og greinar verða um margvís- legt efni, allt tengt mat og matargerð. Allar uppskriftir, aðrar en þær sem „gestgjafar" blaðsins kynna, eru prófaðar og staðfærðar af okkur og upplýs- ingar eru um hvar hlutirnir fást. Uppástungur um efnisval eru vel þegnar. Eflaust er sitthvað sem finna má að í þessari fyrstu tilraun okkar til blaðamennsku, en við vonum að lesendur blaðsins taki viljann fyrir verkið og að sem flestir geti fundið sér eitthvað við sitt hæfi.“ Þetta segja hjónin Elín Káradóttir og Hilmar B. Jóns- son, veitingastjóri, um blað sitt „Gestgjafann", sem nýlega hef- ur litið dagsins ljós í fyrsta sinn. Blaðið fjallar, eins og þau hafa þegar sagt, um matargerð og allt, sem henni við kemur og er hið vandaðasta á allan hátt og prýtt mörgum ágætum ljósmyndum, sem Hilmar hefur að mestu leyti tekið sjálfur. Okkur Hlaðverpingum þótti það því mjög við hæfi að hafa tal af þeim hjónum og fylgjast með því, hvernig efni „Gest- gjafans" yrði til. Þegar okkur bar að heimili þeirra Elínar og Hilmars í Hafnarfirði, voru þau hjónin önnum kafin við að matbúa lúðu, kennda við sænsku kon- ungsættina. Hún var síðan sett á dúklagt borð og mynduð í bak og fyrir og það var ekki fyrr en við höfðum gert kræsingunum góð skil, að þau gáfu sér tíma til að rabba við okkur. „Við vorum búin að ganga með þessa hugmynd í magan- um í mörg ár og það má segja að meðgöngutíminn hafi verið nokkuð langur, en fæðingin gekk betur en við bjuggumst við. Blaðið hefur fengið mun betri viðtökur en við höfðum þorað að vona, þar sem það er mjög lítið auglýst og þar að auki nýtt af nálinni. Við höfum þegar selt um 6.000 eintök og það má segja að það renni stoðum undir þá skoðun okkar að mikil þörf hafi verið á' íslenzku blaði af þessu tagi, en það getur verið að salan detti niður, þegar nýjabrumið er farið af blaðinu," sögðu þau hjónin. „Þetta er hörku spennandi og skemmtilegt verkefni, okkur gengur vel að vinna saman, en því er ekki að neita að það liggur mikil vinna að baki hvers blaðs, við vorum 6 mán- uði að koma þessu út, en síðan er svo ætlunin að það komi út á þriggja mánaða fresti. Við vinnum biaðið að öllu leyti sjálf til prentunar að undanskilinni framköllun og filmugreiningu, svo nóg er að gera og þetta hentar Elínu mjög vel, þar sem hún varð að hætta að vinna fyrir 3 árum vegna liðagigtar. Við höfum líka lifað og hrærzt í matargerð og veitingamennsku í 20 ár, eða síðan Hilmar byrjaði að læra, svo þetta er á okkar aðaláhugasviði. Það er æði margt, sem veldur auknum áhuga Islendinga á mat og matargerð. Aukið vöru- úrval, ferðalög erlendis og fjöl- gun matsölustaða af öllum gerðum hafa orðið til þess, að Islendingar hafa séð að það er hægt að borða annað en soðinn fisk og ofnsteikt lambalæri. Það er tvímælalaust mikill menningarauki að þessari breytingu og þeirri hugarfars- breytingu, sem henni fylgir. Áður þótti það nánast glæp- samlegt, ef maður leyfði sér að fara með börnin út að borða á vínveitingahús, þó á þeim tíma væri ekki um annað að ræða, en nú er komið svo mikið af svokölluðum milliveitingahús- um þar sem öll fjölskyldan getur farið út að borða og notið þess í ró og næði, að slíkt þykir alveg sjálfsagt. Það er reyndar alveg út í hött að reyna að sameina það að borða og dansa á sama staðnum, á slíkum stöðum fær maður hvorki góð- an mat né næði til þess að borða hann.“ Hvernig lítur fjárhagslega hliðin á útgáfunni út? „Ætli það megi ekki segja að hún líti sæmilega út, en það er margt, sem kemur þar til. Það hefur gengið svolítið erfiðlega að fá auglýsingar í þetta fyrsta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.